Þjóðviljinn - 02.10.1955, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 02.10.1955, Blaðsíða 2
2) — ÞJÓÐVTLJINN — Sunnudagur 2. október 1955 ★ ★ í dag er sunnudagurinn* 1 2. október. Leodegariusmessa. 275. dagur ársins. — Tungi í hásuðri kl. 1:22. — Árdegis- háflæði kl. 6:20. Síðdegishá- flæði kl. 18:37. W\\A^ KL 9:30 Morgun‘1 f/y\ \ útvarp: Fréttir og veðurfregnir. og tónleikar. a) Konsert í c-moll fyrir tvö harpsikord og hljóm- eveit eftir Bach. b) Drengjakór Vínarborgar syngur. d) Píanó- lög eftir Mendelssohn. e) Sch- erzo úr oktett eftir Mendels- sohn. f) Klassísk sinfónía í D- dúr eftir Prokofieff. g) Fjög- ur píanólög úr Mikrokosmos eftir Bartók. h) Píanókonsert nr. 1 í d-moll eftir Brahms. i) Partíta nr. 1 í h-moll fyrir einieiksfiðlu eftir Bach. 13:00 Berklavarnardagurinn: Út- varpsþáttur SÍBS fyrir sjúk- linga. Meðal flytjenda: Árni Tryggvason, Nina Sveinsdóttir, Lárus Ingólfsson og Stúdenta- kórinn í Washington. 15:15 -Miðdegistónleikar (pl.): a) Sellósónata nr. 1 í G-dúr eftir Bach. b) Gerard Souzay syng- ur lög eftir Saint-Saéns: Danse Macabre op. 40 og Le Rouet d’ Ömphale op. 31. 17:00 Messa í Laugarneskirkju. 18:00 Barna| tími. 19:30 Tónleikar. 20:20 Tónleikar: Konsert í leikhússtíl eftir Couperin. 20:35 Erindi:] Júlíus guðníðingur (Sverrir Kristjánsson sagnfræðingur). 21:05 Kvartettsöngur: Delta ; Helgidagslæknir Páll Gíslason, læknavarðstof- unni í Heilsuverndarstöðinni, sími 5030. ’ LYFJABÚÐIB Holts Apótek | Kvöldvarzla tl' Jgjgg? | kl. 8 alla daga Apótek Austur- | nema laugar bæjar I datra tll kt 4 Rhythm Boys syngja. 21:40 Upplestur: Róa sjómenn, smá- saga eftir Jóhannes Helga Jónsson. 22:05 Danslög. Útvarpið á morgun 20:20 Útvarpshljómsveitin: a) Rússnesk alþýðulög. b) Róm- ansa eftir Tschaikowsky. 20:50 Um daginn og veginn (Ólafur Gunnarsson). 21:10 Einsöngur: Ólafur Magnússon frá Mosfelli syngur haustlög. 21:30 Búnað- arþáttur (Oddur Helgason mjólkurfræðingur. 21:45 Tón- leikar: Tvær píanósónötur í G- dúr, op. 49 og 79, eftir Beet- hoven. 22:10 Sögulestur. 22:25 Létt lög. Brúðkaup I gær voru gefin saman í hjóna- band af séra Emil Björnssyni ungfrú Katxín ... Karlsdóttir Hverfisgötu 106A og Viðar Jónsson vélstjóri Hverfisgötu 73. Heýjnili ungu hjónanna verð ur að Hverfisgötu 73. í gær voru gefin saman í hjónaband af séra Emil Björns- syni ungfrú Elín Jóhanna Guð- mundsdóttir Barónsstíg 30 og Gylfi Jónsson vélvirkjanemi Hverfisgötu 73. Heimili þeirra verður að Hverfisgötu 73. í gær voru gefin saman í hjóna- band af séra. Emil Björnssyni Stella Tryggvadóttir og Leifur Guðlaugsson. Heimili þeirra verður á Frakkastíg 26A. VfSA UM KLAKKSVÍK Ekki er kyrrt í Klakksvík enn, Kampmann þangað skundar. Eftir honum sækja senn sjóliðar og hundar. J. P. Haustfermingarbörn séra Emils Björnssonar eru vinsamlega beðin að koma til viðtals í Austurbæjarskólanum kl. 8 n.k. mánudagskvöld. mmmsmmmm V1 hóíninni Kolenkliov: Það verður volgt á okkur í kvöld, Pavlowa, en það öðlast enginn árangur á íistbrautinni án erfiðis og svita . . . . Þannig farast baliettmeistai-aniun Kolenkov orð í gamanleiknum Er á meðan er, sein Þjóðleikhúsið sýnir í kvöld. Myndin sýnir hljómlistamaiminn Ed (Róbert Arnfinnsson), Kolenkhov (Rúrik Haraldsson) og dansmejna Essie (Bryndís Pétursdóttir), en þau vekja oft hlátur áhorfenda meðan á sýningunni stendur. Kvenfélag Háteigssóknar heldur fund þriðjudaginn 4. október klukkan 8.30 í Sjó- mannaskólanum. Barnaguðsþjónustur verða framvegis i Hallgríms- kirkju kl. 9.30 árdegis, en síð- degismessan kl. 2; og er þetta gert með tilliti til þess að morgunninn er jafnan talinn heppilegasti tíminn fyrir barna guðsþjónustur. Innritun í Námsflokka Reykjavíkur hefst á morgun kl. 5 í Miðbæjarbarnaskólan um. Kvennadeild SVFl heldur fyrsta fund sinn á þessu hausti annað kvöld kl. 8:30 Sjálfstæðishúsinu. Hlutavelta Kvennadeildar Slysavamafélags ins verður í dag kl. 2 í Skáta' heimilinu. Eiraskip: Brúarfoss fór frá Gmndarfirði í gær til Ólafsvíkur, Sands, Keflavíkur og Reykjavíkur. Dettifoss fór frá ísafirði í gær til Flateyrar, Akraness, Hafn- arfjarðar og Reykjavíkur. Fjall- foss fór frá Rotterdam 27. fm til Antverpen og aftur til Rott- erdam, Hull og Reykjaríkur. Goðafoss fór frá Ventspils 30. fm til Helsingfors, Ventspils, Riga, Gautaborgar og Reykja- víkur. Gullfoss fór frá Leith í gær til Kaupmannnahafnar. Lagarfoss fór frá Reykjavík 26. fm til New York. Reykja- foss er í Hamborg. Selfoss fór frá Reykjavík í gær til Ólafs- víkur, Gnmdarf jarðar, Patreks- fjarðar, Bíldudals, Flateyrar, ísaf jarðar og Hafnarfjarðar. Tröllafoss fór frá Reyltjavík 29. fm til New Yorlc. Tungu- foss er í Reykjavík. Baldur fór frá Leith 30. fm til Rvíkur. Drangajökull er í Rotterdam. Ríkisskip: Hekla verður á Akureyri í dag á vesturleið. Esja er á Aust- fjörðum á suðurleið. Herðu- breið á að fara frá Reykjavík á morgun austur um land til Þórshafnar. Skjaldbreið er í Reykjavík. Þyrill er væntan- legur til Raufarhafnar á morg- un frá Noregi. Baldur á að fara frá Reykjavík á morgun til Búðardals og Hjallaness. Skipadeild SlS Hvassafell er væntanlegt til Fá- skrúðsfjarðar í dag. Amarfell er í Rostock. Jökulfell, Dísar- fell og Orkanger eru í Reykja- vík. Litlafell losar oliu á Aust- ^fjarðahöfnum. Helgafell fer frá 1 DAG verður Bæjarpósturinn að nokkra leyti í bundnu máli til hátíðabrigða. Ég held að það hljóti að vera hollt and- legri heilbrigði manna að raula öðra hvora hnyttnar stökur; og a.m.k. hefur höf- undi þessarar gömlu stöku reynzt svo: Stundum pungbær þiignin er þrautalífs á vöku, en alltaf llfnar yfir mér, e.f éfí raula stöku. 1 hinni hörðu stjórnarfarslegu og efnahagslegu baráttu okk- ar hættir okkur til að taka hlutina of hátíðlega og gleyma að brosa annað slagið. Það er helzt að hátíðleikinn í svip og fasi okkar réni svolítið, ef við getum heimfært veralega meinyrta setningu upp á þann náunganna, sem okkur er eitthvað í nöp við þá stund- ina. Ég hef séð tiltölulega róljmda menn blátt áfram titra af reiði, þegar þeir fengu skatt- reikningana sína. Haldið þið ekki, að það hefði verið heilsu- samlegra fyrir þá að syngja eins og krakkarnir á Njáls- götuvellinum sungu einhvern tíma í fyrra: Maðurlim með hattinn stendur upp við staur ogr borgar ©kki skattinn, . þu hann á engan aur. 'oaohid Þetta er vitanlega ekki vel gerð vísa, þar sem bæði vant- Bundið mál — Hnyttnar vísur andleg heilsubót — Botnið, gerið svo vel ar stuðla og höfuðstafi, en hún túlkar mjög heilsusam- legt viðhorf til skattamál- anna. Ég tek það strax fram, að ég er sjálfur slappur hag- yrðingur og leita því vítt til fanga og vona að bað móðgi engan. Ég held, að eftirfar- andi vísa sé eftir vesturís- lenzka skáldið Káinn, en eng- ar slcýringar kann ég á hcnni umfram það, ir sig sjálf: sem hún skýr- Merkin ber til grafar glögg greyið séra Jóhann. Það hefur verið þrælslegt högg, þegar merin sló hann. Það hlýtur að vera þungt farg hátíðleika og alvöra sem ekki bifast þegar menn hafa vísuna þá arna yfir. Stundum rekst maður á vísur, þar sem botninn er ekkert skyldur fyrripartinum, að öðra leyti en því, að hann rímar á móti honum. Eftirfarandi vísa mun hafa verið ort á ferðalagi norður í Skagafirði: Hnígur bráðum sól í sjá, sígur hún á grundina. Xngólfur er alveg bliv- edrú þessa stundina. Hér er fyrriparturinn einkar lýrisk náttúrustemning, en seinniparturinn stráksleg at- hugasemd um þáverandi for- mann Sambands bindindisfé- laga í skólum. — Tökum ann- að dæmi: Af uppsum einbýlishúsanna lekur, lekur leiðindaregiu Hvernig haldið þið nú, að botninn við þennan drunga- lega fyrripart sé? Jú, hann er svona: Eigendur ben/.inbrúsamia te.kur, tekur Guðmundur J. í gegn. Nú rísa vafalaust hinir vand- látu upp og segja að þetta sé bæði vitlaust og illa kveðið og skal ég góðfúslega fallast á það. Og sennilega mundi ég hætta alveg, ef næsta vísa væid ekki þeim mun betur gerð: Blaktlr á skari blelkur logi, bitur iculdl nistir mann Nú Icjósa þeir í Kópavogi um kaupstaðinn og oddvltann. Einltvera tima var maður nokkur ástfanginn mjög af stúlku, sem Erla hét en gár- ungarnir sögðu að hann skorti hugrekki til að biðja hennar. Þá var ort fyrir lians hönd: Ást min ©r eins og perla Lnnan í lokaðri skel. Erla, lijartaiLs Eria, þú athugar málið nú vel. Þetta er einkar snoturlegt bónorð, finnst mér. Að lokum er svo hér einn fjTripartur, sem ég bið ykkur vinsamlegast að botna fyrir mig: Fyrripartur botnlaus biður betri tinia fyrli' andaun. Sendið Bæjarpóstinum botna við þetta, og sömuleiðis hnvttnar tækifærisstökur. Malm I dag. Raufarhöfn. G St. Valborg er á Á T A N Eins hlutar nafn er einkum þannig: galli á gullkeri, gott fyrir búsmala, fylgsni fjalla, féhirzlu blómi, meðal metorða, mýkir kóngsreiði. Ráðning síðustu gátu: —• KIRKJUKLUKKA. Róa sjómenn... Kl. 21:40 í kvöld les Gils Guð- mundsson alþángismaður í út- varp söguna Róa sjómenu . . . eftir ungan rithöfund Jóhannes Helga. Saga þessi er ein af fjórum sögum er að undan- genginni samkeppni hér heima á vegum Eimreiðarinnar voru sendar í enskri þýðingu til bandaríska blaðsins New York Herald Tribune, og hefur blað- ið tryggt sér útgáfu á þessari sögu í úrvali þeirra sagna er bárust. Lesendur Þjóðviljans kannast við Jóhannes Helga af frásögn hans hér í blaðinu í vor: Blóð í morgunsárinu, og mætti af þeirri frásögn álykta að hér væri efnilegur höfundur á ferð. ■■■>■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■! XXX N ft N K liN mm ★ ★ ★ KNÍÍKI ■■■■■■■■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■*■■•■■■•■■■■■■■■■■■«■■■■!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.