Þjóðviljinn - 02.10.1955, Blaðsíða 9
A ÍÞRÓTTIR
RtTSTJÓRi. FRtMANN HELGASOJf
Samkeppnin lifi!
Eitthvað þessu líkt munu
margir hafa 'hugsað þegar sam-
tímis voru í gangi þrjú happ-
drætti frá aðilum innan sömu
hreyfingar — íþróttahreyfing-
arinnar, um bifreiðar.
Þessir aðilar voru íþróttasam-
band Islands, KR og Ármann
sameinuð og svo IR með skyndi-
happdrætti.
Aðalsalan fór að sjálfsögðu
fram í Reylcjavík og því hlaut
samkeppnin að verða hörð um
sölu miða. Allir sem til þekkja
vita að íþróttahreyfingin á allt-
af í fjárbasli, bæði einstök fé-
lög og sambönd, og ekki nema
eðlilegt að aðilar reyni að afla
sér tekna til starfseminnar. Fé-
lögin sérstaklega hafa oft lagt
inná brautir happdrættis, og á
þann hátt haldið starfinu við.
En félögin hafa skyldur við
fleiri en sjálf sig, þau eru að-
ilar að ýmsum samböndum sem
þeim ber skylda til að styrkja,
svo að starfsemi þeirra geti
haldið áfram,' svo þau geti
gegnt því hlutverki í heildar-
samtökunum sem þeim er ætlað
að gera. Eitt þessara sambanda
er Iþróttasamband íslands,
elzta heildarsambandið um í-
þróttir hér á landi. Um langa
hríð hafa félögin í landinu ekki
treyst sér að leggja þessu sam-
bandi svo mikið fé að starf-
semi þess væri örugglega borg-
ið, bæði hvað snertir daglega
starfsemi og dvalarstað eða
húsnæði.
Á þinginu á Akranesi 1953
var, eftir langar umræður um
fjárhagsmál sambandsins, lagt
til að efnt væri til happdrættis
fyrir l.S.I. og var það ein af
fjáröflunarleiðum hinnar ný-
kjörnu stjómar. Það var þó
ekki fyrr en í jan. s.l. að fram-
kvæmdastjórn Í.S.I. fékk að-
stöðu til að hefjast handa um,
að framkvæma þennan vilja
þingsins á Akranesi. Bjartsýnir
menn hugðu gott til málsins
bæði til að rétta við fjárhag
Í.S.Í. og eins ef hægt væri að
festa kaup á skrifstofuhúsnæði
fyrir sambandið þar sem búið
var að segja framkvæmdastj.
upp húsnæði því er hún hafði
verið í um árabil. Iþróttasam-
band íslands var því raunveru-
lega á götunni 1. okt. þ.á. ef
ekkert yrði aðhafzt.
Það hlaut þvi að vera full-
komið áhugamál allra þeirra
sem skilja þýðingu l.S.Í. fyrir
íþróttamál að vel tækist til um
happdrætti þetta. Sambands-
þinginu á Akranesi láðist að
ganga svo frá málinu að eigi
skyldu önnur happdrætti ganga
meðal iþróttamanna sem hefðu
neikvæð áhrif fyrir happdrætti
I.S.Í., meðan salan stæði yfir.
Þá lá það í augum uppi að það
var ,,mórölsk“ skylda félaga að
bíða þá fáu mánuði sem þetta
happdrætti heildarsamtakanna
var í gangi. Ekki síður fyrir
það að þetta var í fyrsta skipti
sem til slíks happdrættis er
efnt af þeim og líkur til að
langt verði þangað til farið
verður af stað aftur.
En hvað skeður, tvö elztu
félögin í landinu sameinuð —
KR og Ánnann — fara af stað
með bíla-happdrætti í sam-
keppni við happdrætti þeirra
eigin samtaka, og svo kemur
þriðja stærsta félagið — ÍR
með sitt skyndi-bílhappdrætti,
Framkoma þessara félaga er
næsta ótrúleg. Hún sannar
raunar það sem kunnugir vita
og komið hefur fram á mjög
margan hátt í fjölda ára að
félögin láta sér mörg hver í
léttu rúmi liggja afkoma, vel-
ferð og virðing LS.I.
Það er engu líkara en þau
líti svo á að það sé þeirra 5
sem í stjórn sitja hverju sinni
að hugsa um „sín“ mál.
Hér áttu sér stað mikil fé-
lagsleg mistök sem hið nýaf-
staðna þing hefði átt að taka
afstöðu til, sem það þó ekki
gerði. Fari svo að sambands-
þing leyfi framkvæmdastjórn
Í.S.I. að efna til fjáraflana sem
hér var gert verður það að
ganga svo frá hnútum að þessi
saga endurtaki sig ekki.
Sunnudágur 2. október 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9
England vann Danmörk
í unglingakeppninni 5-1
Unglingalið Dana og Breta
áttust við s.l. miðvikudag í
Portsmouth, og fóru leikar svo
að Bretar unnu með yfirburð-
um. Aldurinn miðast við 22 ár.
Danir léku vel í f. hálfleik enda
stóðu leikar 1:1 í leikhléi. En
þeir stóðust ekki sókn Breta í
síðari hálfleik, var vörnin sund-
urlaus og hvorki bakverðir né
framverðir réðu við sóknarþung-
ann. Bezti maður Dana var
Flemming Nielsen, og gerði hann
mark Dana úr aukaspyrnu af
30 m færi. Bezti maður enska
liðsins var Haynes frá Fulham.
Gerði hann 4 mörk af 5. Þess
má geta að A-liðið sem leikur
við A-lið Dana í Kaupmanna-
höfn í dag tapaði 2:1 fyrir
þessu unglingaliði. Hins vegar
vann A-liðið Charlton í æfinga-
leik 2:1.
LIGGUR LEIÐIN
Hið frœga enska knattspyrnulið Wolverhamton fór
keppnisför til Sovétríkjanria á s.l. sumri. Myndirnar voru
teknar 7. ágúst s.l. er „úlfarnir“ kepptu við Spartak á
Dynamó-leikvanginum í Moskva og töpuðu 0—3. Á efri
myndinni til hœgri sést Satjnikoff (Spartak) brjótast
gegnum ensku vörnina, en á miðri myndinni sést starfs-
maður Moskvuútvarpsins rœða við nokkra Englendinga í
hópi áhorfenda að leik loknum.
Qtbreiðið
Þjóðviljann!
Leiklnii
drengnr
í bænum Fredrikstad í Nor-
egi var um daginn efnt til keppni
um svonefndan gullknött, sent'
margir ungir drengir taka þátt
í. Einn þeirra var úr smádreng.ia
liði Fredrikstad félagsins, leik-
ur þar innherja og heitir Tora
Hansen.
Eitt af atriðunum er að halda
knettinum á lofti og má hann
ekki snerta jörð meðan tilraun-
in stendur. Pilturinn gerði sér
lítið fyrir að snerta knöttinn
6.368 sinnum. Já það er réte
sex þúsund þrjúhundruð sex-
tíu og átta sinnum! — Að þessu
var hann í 1 klukkutíma og 15
mínútur og þá varð hann að
að hætta vegna myrkurs
en ekki vegna þess að
honum hefði mistekizt. Þetta
var framkvæmt í viðurvist dóm-
ara, Blaðið sem segir frá þessu
spyr hvort hér geti ekki verið
um heimsmet að ræða.
Skyndiverkfali
Framhald af 7. síðu.
Benda þeir á að nú starrá
25.000 lestastjórar og kyndarar
á jámbrautunum en þeir voru
40.000 árið 1938. Þrátt fyrir*
þessa fækkun starfsliðs hafa af-
köst járnbrautanna við flutninga
aukizt um 40% á sama tímá
og telja -verkamenn sér bera
hlutdeild í hagnaðinum seni
því fylgir.
Gróði franskra fyrirtækja
hefur sjaldan verið meiri eri
nú og verkamenn sætta sig
ekki við að aukinn arður vinnu
þeirra lendi allur í vasa ai-
vinnurekenda.
■HRIIHIIMIBIVMIIIRMIIIIIBIIIIIBBMMIIIIICIIIIIII ■•■(UK
ÞjéðviEjaiet waitar unglinga
til að bera blaðið til kaupenda í eftirtöldum hverf-
um nú þegar :
Skjélin
Seiffaxftaxnes
Frámnesveg
Drápuhlíð
BlönduMíð
Vogaz (2 hverli)
Talið við afgreiðsluna.
Þjóðviijimt, Skólavörðustíg 19. Sími 7500 j
Hlutavelfa Kvennadeildar Slysavarnofélagsins
eftir hódegi í dag í Skátaheimilinu
.2
Hamingjan hampar þeim er þangað koma, því á boðstólum eru flugferðir, skipsferðir, klæðnaður, málverk, tannsmíðar,
kolatonn, hveitisekkir, bókmenntir o.fI. o.fl.
Styrkið gott málefni og efnist sjálf!
l■»■••■■•••*•••*•••■■■»•■•■•»■■*•»•■*•**"",,•»••••■■••■•••••••»••»■■»■■■■»■■■•■•■••■■»•••••■••■■»■••**■’•""*■■•■»■■•■••••■••■•■■■■»■•*"•,,••••■■••■»■■■■■••■■»•■■••■•■■■■•■*•■■■■■■■,uMl•••*•■■•■■■•■•■*■■■■•■•■■■■*■■■•■■■■■■*■■■■■••■■
irMiNiHiRstnwuiieiiiiHimnHiesMwS