Þjóðviljinn - 02.10.1955, Qupperneq 3
Félagsfræðinguriim fékk háðulega út-
reið á fundinum um lóðamálin
Kópavogsbúar ákveSnari en nokkru sinni fyrr í að
svara ofsóknum stjórnarflokkanna og lögleysum út-
sendara þeirra með því að fylkja sér um G-iistann
Sjaldan hefur sézt aumkunarverðari og vesælli frammi-
staöa en hjá Hannesi Jónssyni á fundinum í fyrrakvöld
um lóðamálin í Kópavogi. Átti hann í fundarlok ekki ami-
að til en innantóm fáryrði og upphrópanir.
Sunnudagur 2. október 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (S
' Sýning Karls Kvaran, sem opnuð var i Listamannaskái*
anum í fyrrakvöld, er opin daglega kl. 11—22, og stendt r
hún til nœstu lielgar. Myndin sýnir listamanninn og eiit
málverk í Listamannaskálanum.
Gamlir nemendur Vélskólans
gefa líkneski of M. E. Jessen
Vélskólimi var settur í gærmorgun, og tók liinn nýi
skólastjóri, Gunnar Bjarnason við störfum, en fráfarandi,
skólastjóri M. E. Jessen voru færöar þakkir fyrir forusti
hans i skólamálunum og langt og gott starf.
Hannes var frummælandi eins
og eðlilegt var, þar sem hann
hafði boðað til fundarins. Var
ræða hans ruglingsleg, ýmist æsti
hann sig uppí hinar hrikalegustu
bölbænir yfir Finnboga Rúti og
öðrum ■ vondum kommúnistum
eða þá að hann taiaði grátklökk-
ur um þá vondu menn, sem ekki
vildu lofa konunni hans að
rækta blóm og kál og birkilund
eins og hugur hennar stæði til.
Skildi hann ekki að nokkur
skyldi hafa eitthvað við það að
athuga, að hann úthlutaði sjálf-
ur sér — konu sinni — og
venzlamr.mum sinum stórum
svæðum á erfðaleigu þar sem
verið er að skipuier gja mjög
eftirsóttar byggingalóðir. Hins
vegar gat hann ekki afsannað
eitt einasta atriði í hinum
þungu ásökunum, sem bornar
hafa verið á hann í sambandi
við ráðsmennsku hans í lóða-
málunum, þar sem hann hefur
gefið ýmsum einstaklingum að-
stöðu til að græða of fjár á
lóðabraski, en beitt aðra yfir-
gangi og rangsleitni.
Finnbogi Rútur Valdimarsson
talaði næstur. Rakti hann ítar-
lega gang lóðamálanna í Kópa-
vogi. Skýrði hann m. a. frá til-
drögum þess, að hann og aðrir
frumbýlingar þar fengu sín
ræktunarlönd, sem þeir vörðu
mikilli vinnu og fjármunum í
að rækta og höfðu sumir lífs-
framfæri sitt af smábúskap á
iandinu. Sýndi hann fram á þau
breyttu viðhorf, sem nú eru,
þegar stór og ört vaxandi byggð
Fyrirspurn um
Iðnbankann
Ég þurfti að endurnýja
vélakost á verkstæði mínu
sem ég hef rekið um 20 ára
skeið, en vantaði nokkra upp-
hæð við þá sem ég hafði sjálf-
ur handbæra. Ég taldi víst að
ég fengi þessa peninga hjá
banka minnar eigin stéttar,
ekki sízt þar sem ég hafði ör-
uggt fasteignaveð fyrir lán-
inu. En svo fór þó að lokum
að ég fékk þvera neitun hjá
bankanum, sem bar því við,
að hann hefði ekki fé hand-
bært. Nú hef ég lesið í
blaði yðar mér til undrunar,
að sami banki hafi á sama
tíma keypt 100 þús. kr.
víxil og hið sama fé hafi að
lokum verið lánað hálfgjald-
þrota braskfyrirtæki með 60%
ársvöxtum. Er ekki einhver
misskilningur hér á ferðum?
Var þetta ekki einhver ann-
ar banki en Iðnbankinn?
Iðnaðarmaður.
★
Svar: Nei. Það var Iðnbank-
inn.
er komin þar sem áður voru að-
eins örfá hús, sem búið var í allt
árið. Fletti hann ofan af rang-
færslum Hannesar svo að ekki
stóð þar steinn yfir steini. Var
hinni rökföstu ræðu hans tek-
ið afbragðs vel af fundarmönn-
um.
Karl Guðmundsson, formaður
Félags erfðaleiguhafa, talaði af
hálfu þess félags. Hann er i
hópi þeirra, sem mestan dugnað
og þrautseigju hafa sýnt í að
rækta lönd sín og ótaldir eru
þeir, sem notið hafa hjálpsemi
hans og drenglundar á þeim ár-
um þegar erfiðast var og flest
Hfsþægindi vantaði. Skýrði hann
ljóslega viðhorf erfðaleiguhafa.
Þeir skoruðust ekki undan að
láta af löndum sínum, ef almenn-
ingsheill krefðist, en þeir gætu
ekki sætt sig við að rétti þeirra
væri traðkað af ófyrirleitnum
oflátungum eins og Hannesi
Jónssyni.
Auk þessara aðalræðumanna
töluðu margir fundarmenn. Voru
flestir þeirra erfðaleiguhafar,
sem höfðu ófagrar sögur að
segja af framferði Hannesar.
Nefndu þeir fjölda dæma um
yfirgang hans og valdniðslu.
Nokkrir skjólstæðingar Hannes-
Vilhjálmur Þ. Gíslason út-
varpsstjóri hringdi til blaðsins
í gærmorgun til að leiðrétta
þennan misskilning. Hann
sagði að engum hinna gömlu
hljóðfæraleikara útvarpshljóm-
sveitarinnar hefði verið sagt
upp starfi; hinsvegar Væru
samningar við hina hljóðfæra-
leikarana nýrunnir út, og
stæðu nú yfir nýjar samninga-
gerðir. Til nánari skýringar
skal þess getið að sveitin er
samsett af þremur hópum
hljóðfæraleikara um launakjör.
I fyrsta lagi eru menn á föst-
um fullum launum, í öðru lagi
menn sem hafa ekki full laun
en leika þó stöðugt með sveit-
inni, í þriðja lagi aukamenn
svonefndir sem leika með í
sérstökum verkum sem út-
heimta vissar tegundir og viss-
an fjölda hijóðfæra.
Sinfóníuhljómsveitin er nú
ein deild Rikisútvarpsins, og
hefur útvarpið þegar gert til-
boð þeim hljóðfæraleikurum
sem samningar eru útrunnir
við og jafnframt tilkynnt að
ar tóku til máls. Þar var t. d.
maðurinn, sem ekki haði fundið
nema eina lóð við sitt hæfi í
Kópavogi og hún var í kál-
garði fátæks fjölskyldumanns.
Einnig var þarna Reykvíkingur,
sem þuldi særingar í ljóðum eins
og geðbilaður maður yfir oddvita
fyrir að hafa ekki leyft honum
að byggja á óskipulögðu svæði.
Jón Helgason, ritstjóri, skýrði
frá því, að Hannes hefði kært
yfir því í Framsóknarflokknuni,
að enginn fengist til að skrifa
í Tímann til stuðnings sér nema
hann sjálfur og árangurinn hefði
svo verið oflofspistill, sem allir
hentu gaman af. Af þessu til-
efni lýsti Þráinn Valdimarsson
yfir því, að því er manni skild-
ist fyrir hönd miðstj. Fram-
sóknarflokksins, að Hannes væri
þar í miklu áliti og vaxandi
maður. Mun þá margur Fram-
sóknarmaðurinn á fundinum
hafa beðið guð að hjálpa sér og
flokknum.
Það er fundarmönnum ráð-
gáta hversvegna félagsfræð
ingurinn fór að efna til þessa
fundar. Báglega stóð með mál-
stað hans fyrir fundinn, en nú
hálfu ver eftir hina hraklegu
útreið, sem hann fékk þar.
Mönnum er nú enn Ijósara
en fyrr, hver nauðsyn er á því,
að Kópavogsbúar standi vörð um
sinn málstað með því, að kjósa ■
G-Iistann við kosningarnar í dag.
það sé reiðubúið til að halda
starfsemi sveitarinnar áfram
til áramóta að minnsta kosti.
Útvarpsstjóri sagði að vissu-
lega væru miklir örðugleikar
á starfsemi sveitarinnar; en
hverjar breytingar sem kynnu
að verða gerðar á reksturs-
fyrirkomulagi hennar, þá
mundu allir á einu máli um
að ekki kæmi til greina að
leggja hana niður. Undir þau
orð munu allir taka.
í gær var dregið um röð skák-
manna og er hún þessi: 1, Ar-
inbjöm Guðmundsson, 2. Pilnik,
3. Guðmundur Pálmason, 4.
Baldur Möller, 5. Guðmundur Á-
gústsson, 6. Ingi R. Jóhannsson,
7. Þórir Ólafsson, 8. Jón Einars-
Athöfnin hófst á þvi að M. E.
Jessen hélt ræðu og rakti upp-
haf skólans, erfiðleika hans í
upphafi og þróunina siðan. Af-
henti hann síðan Gunnari
Bjarnasyni lyklana að skólan-
um. Gunnar þakkaði Jessen ó-
metanleg störf, skoraði á hann
að rita endurminningar sínar
og færði honum blóm. Bauð
hann síðan nemendur velkomna,
en 28 nýir nemendur setjast í
skólann í haust. Verður skólinn
starfræktur með óbreyttu fyrir-
komulagi, en nýr kennari bæt-
ist við, Andrés Guðjónsson.
Einnig talaði við skólasetn-
Piltur og stúlka
á horni Séleyjar-
götu
Á síðasta bæjarráðsfundi var
samþykkt einróma að kaup
höggmyndina piltur og stúlka
og setja hana upp á horni Sól-
eyjargötu og Skothúsvegar.
son, 9. Jón Þorsteinsson, 10. Ás-
mundur Ásgeirsson.
í fyrstu umferð tefla saman
Arinbjörn og Ásmundur, Pilnik
og Jón Þorsteinsson, Guðmundur
Pálmason og Jón Einarsson,
Baldur og Þórir, Guðmundur
Ágústsson og Ingi R.
inguna Þorsteinn Árnason secst
fulltrúi Vélstjórafélagsins cg
færði Jessen þakkir, er gamliE’
nemendur tilkynntu að þeir,
hefðu ákveðið að gefa skólao-
um brjóstlíkan af Jessen o§
hefði Ríkarður Jónsson tekiðl
að sér að gera það. Væri svœ
ráð fyrir gert að líkneskið yríi
fyrst innanhúss en því yrði sí 5-
an komið fyrir á lóð skóíaas
þegar gengið yrði frá henni.
áTímarit
Frímf'tki
S0LUTURNINN
við Aznaihól
Ms. Dronning
Alexandrine
fer frá Kaupmannahöfn til Fæ>
eyja og Reykjavíkur þann It,
okt. n.k. —■ Flutningur óskaiti
tilkynntur skrifstofu Same:>
aða í Kaupmannahöfn.
Skipaafgreiðsla ;
les Zimsen
Erlendur Pétursson
Kemur ekki til greina að hætta
starfsemi SmfóníuUjómsveitarinnar
Það er ekJki rétt, sem hermt var í blaðinu í gær og
gengiö hefur fjöllunum hærra undanfariö, að „hljóöfæra-
leikurum Sinfóníusveitarinnar hafi verið sagt upp starfi“;
og engir, sem um málefni sveitarinnar fjalla, hafa enn
gert því skóna aö hún veröi aö hætta starfsemi sinni.
Taflmótið hefst í dag
Taflmótið í tilefni af komu taflmeistarans Pilniks
hefst í dag kl. 1.30 í Þórskaffi.