Þjóðviljinn - 02.10.1955, Síða 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 2. október 1955
r--------------------------
þióeviuiNN
Útgefandi:
Sameiningarflokkur alþýðu
— Sósíalistaflokkurnn —
--------------------------
, Kjörseðill gegn
- ofbeldi
í dag ganga Kópavogsbúar
enn til kosninga um stjórn
svpitarfélags síns, í þriðja sinn
frá því fram fóru venjulegar
hreppsnofndarkosningar í árs-
byrju’.i 1954, og er ekki liðinn
hclmingur af þvi kjörtimabili
sem þá hófst. Ætla mætti að
Kópavogsbúar hefðu í tveimur
kosn' igum verið svo óheppnir
að kjcsa sér ósamlynda sveitar
stjórn, að hún hefði reynzt ó-
starfhæf, og af þeim sökum
hefði þurft að kjósa aftur og
aftur. En það var öðru nær.
1 tvennum kosningum fengu
Kópavogsbúar meirihluta þeirri
samfylkingu manna, óháðra
stjórimálaf 1 okkum, sem undir
for.-stu Finnboga R. Valdimars-
sonar hefur stýrt málefnum
h:ns unga sveitarfélags til mik-
illá frsmfara, og farsældar um
áratuga skeið.
Þnð cr orðið hneyksli sem
lengi mun i minnum haft, að
nokkrir klíkuforingjar í Kópa-
vogi vildu ekki una þessum ó-
tviræða dómi fólksins í lýðræðis-
kosningum, og tókst að misnota
þrjá stjórnmálaflokka og meiri-
hhita Alþingis til að knýja
fram þriðju kosningarnar á.
tveímur árum, og nú í formi
bæiarstjórnarkosninga, ef verða
mætti að tækist að hrekja svo
kjósendur og hrjá að þeir lyftu
þessum Bakkabræðrum Kópa-
vogs til valda. Allt kaupstaða-
bröltið var til þess eins gert
að fá að endurtaka enn kosn-
ingar í Kópavogi, um það er nú
ekki lengur deilt. Meðan verið
var að berja málið fram á Al-
þingi var reynt að halda í þá
blekkingu að það væri brennandi
áhuga- og hagsmunamál
fólksins í Kópavogi að úr
hreppsfélaginu yrði gerður
sjálfstæður kaupstaður. Heiðar-
leik þeirrar baráttu má marka
áf því að nú eru sjálfir Bakka-
bræðumir, Hannes, Jón Gauti
og Þórður hreppstjóri allir
hlaupnir frá fyrri skoðunum í
þessu máli.
Flóttinn frá kenningunni um
nauðsyn sérstaks kaupstaðar í
Kópavogi og önnur viðbrögð
Bakkabræðra kaupstaðarbrölts-
ins undanfama daga sýna, að
þeir eru orðnir uggandi um sinn
hag. Þeir óttast að fólkið í Kópa
vogi svari í dag með kjörseðli
sínum einstæðum og linnu-
lausum árásum og ofbeldi sem
það hefur verið beitt af hálfu
pólitískra glæframanna, sem
tekizt hefur að misnota Alþingi
og ríkisstjórn í því skyni. Fram
á siðasta dag hefur. ríkisstjórn
landsins verið beitt í þeim
Ijóta leik. Allt er í óvissu um
stjóm og framtíð Kópavogs-
kaupstaðar, ef tætingsliði þeirra
Bakkabræðra tekst að hrifsa
völdin. Á það munu Kópavogs-
búar var’a hætta, en tryggja
farsæla þróun byggðarlags síns
og svara ofbeldi og lögleysum
með því að sjá um að Finnbogi
R. Valdimarsson og samstarfs-
lnenn hans vinni einnigaþriðju
Jcosningarnar. m 1
Það væri synd að segja, að
íslenzkir skákmenn kynnu
ekki að meta komu erlends
taflmeistara, sjötíu og tveir voru
mættir í fyrsta fjöltefli Piln-
iks — miklu fleiri en nokkur
tök voru á að hann tefldi við.
Og í dag hefst kapptefli, sem
gera má ráð fyrir að margan
fýsi að fylgjast með: viður-
eign Pilniks við 9 af beztu
skákmönnum okkar. Að vísu
er Friðrik Ólafsson ekki með-
al þátttakenda i þetta sinn, en
gaman verður að sjá Guðmund
Pálmason aftur á íslenzku
skákmóti og fróðlegt verður
að sjá, hvernig Ásmundi og
Baidri vegnar gegn ungu
mönnunum, en hvorugur þeirra
hefur verið meðal þátttak-
enda á mótum hér í Reykja-
vík nýlega. Áætlað er að tefla
þrjár umferðir eða fjórar á
viku og verða fyrstu umferð-
irnar tefldar á Þórskaffi, en
ef aðsókn verður mikil rná
búast við að flytja verði í
stærra húsnæði.
Hér fer á eftir ein af skák-
um Pilniks frá árinu 1952, en
það ár stóð hann sig mjög vel
á ýmsum mótum í Evrópu,
ög hlaut einmitt þá nafnbót-
ina stórmeistari í skák.
Spænskur leikur.
Tefldur á skákmóti í Ungverja-
landi 1952.
H. Pilnik — T. Petrosjan
(Argentínu) — (Sovét.)
<
1. e2—e4 e7—e5
2. Rgl—f3 Rb8—c6
3. Bfl—b5 a7—a6
4. Bb5—a4 Rgg—f6
5. d2—d3 d7—d6
6. c2—c3 g7—g6
7. 0—0 Bf8—g7
8. Rbl—d2 o—o
9. Hfl—el Rf6—h5
10. Rd2—fl Kg8—h8
11. Ba4—b3 Rh5—f4
12. Bclxf4 e5xf4
Síðustu leikir hafa mótað
svip skákarinnar. Svartur hef-
ur biskupaparið, en á tvípeð
og aðstaða hans á miðborð-
inu er lakari en hvíts. Hann
á aðallega um tvennt að velja:
opna biskupunum línur og
losa sig við tvípeðið með Í7—
f6, eða nóta f-peðið sem fylk-
ingarbrodd peðsóknar á kóngs-
armi (g6—g5—g4). Fróðlegt
er að sjá, hvernig hvítur spyrn-
ir gegn þessum hættum.
13. d3—d4 g6—g5
f7—f5 svarar hvítur með e4—
e5, en sá leikur kom sterk-
lega til greina engu að síður.
Svartur á góð sóknarfæri, ef
hann getur leikið g5—g4.
14. h2—h3 Dd8—f6
g5—g4 15. h3xg4 Bc8xg4 16.
Ríl—h2 kemur tæpast til
greina, svartur verður að eiga peð á g4.
15. Rfl—h2 Df6—g6
Betra var h7—h5 strax.
16. Bb3—c2 h7—li5
17. e4—e5 Dg6—h6
18. e5xd6 c7xd6
19. d.4—d5 Rc6—e5
20. Rf3xe5 d6xe5
Þetta lítur vel út, en er of
tvíeggjað. Betra var Bxe5,
svartur getur þá valdað bisk-
upinn með f7—f6, ef hvítur leikur Rf3.
21, Rh2—f3 f7—f6
22. d5—d6 ' Bc8—d7
SKflK
Ritstj.: Guðmundur Amlaugsson
23. Ddl—d5 Ha8—b8
Þessi leikur er heldur vesæld-
arlegur, en hvað skal gera.
Leiki svartur Bc6, smýgur
drottningin yfir e6 á f5, ef svo
ber undir.
24. Hal—dl h5—h4
Svartur gefst alveg upp á
g5—g4 að svo stöddu, því að
riddarinn mundi þá smjúga
yfir h4 til g6.
25. Rf3—h2 f6—f5
Nú vofir bæði e5—e4 og g5—g4
yfir hvít. Er svartur að rétta
sig vel við?
Petrosjan
ABCDEFGH
Pilnik
26. Helxe5!
Hér dugar engin hálfvelgja!
Hvítur lætur skiptamun, en
hann á tveggja peða meiri-
/
hluta drottningarmegin, sem
vegur fyllilega á móti skipta-
muninum.
26. Bg7xe5
27. Dd5xe5t Dh6—f6
28. De5xf6t Hf8xf6
29. Rh2—f3 Bd7—C6
Svartur virðist vonast eftir
30. Rxg5 Hg8 31. d7 Hd8 og
vinnur d-peðið.
30. Rf3—e5! Hb8—e8
31. Re5xc6 b7xc6
32. c3—c4 g5—g4
33. c4—c5 Kh8—g7
34 Bc2—a4 He8—c8
35. Hdl—el Kg7—f8
36. Ba4xc6!
Nú er Hxc6 sjálfbannað vegna
d6—d7 og hvítur vinnur þeg-
ar í stað.
36. Kf8—g7
37. d6—d7 Hf6xc6
38. d7xc8D Hc6xc8
39. b2—b4 Kg7—f6
40. f2—f3 g4—g3
41. Kgl—fl Hc8—b8
42. a2—a3 a6—a5
43. Hel—bl a5xb4
44. a3xb4 Kf6—e5
45. b4—b5 Ke5—d5
46. c5—c6 Kd5—d6
47. Hbl—dlt Kd6—c7
48. Hdl—d7t Kc7—b6
49. Hd7—-f7! Kb6—a5
50. Hf7—b7 og svartur
gafst upp.
Á sama skákmóti kom þessi
staða upp i skák milli Stábl-
bergs og Kottnauers.
Kottnauer
AB CDEFGH
Stáhlberg
Kottnauer lék síðast Hc4 og
ætlaðist til þess, að hvítur
hefði áhyggjur af kóngspeðinu.
En Stáhlberg lék 21. Bf4xd6!
og vinnur nú peð, því að
Hxe4 strandar á Bxe7!, en
Dxe4 á He3, því að Hc4 er
óvaldaður. Kottnauer lék því
21. Be7xd6 og framhaldið
varð 22. Hd3xd6 Hd8xd6 23.
De2xc4 Hd6—d2 24. Rc2—e3!
Hugvitsamleg gildra!
24. Hd2xb2 25. Dc4—d3!
Nú er hrókurinn króaður inni,
og engin leið til að bjarga
honum, því að Dd7 strandar
á Hdl, t.d. 25— Dd7 26. Hdl
Dxd2 27.Hxd2 Hblt 28. Rfl
Rc6 29.Hd6 og hvítur vinnur
hreinan mann.
25. Rb8—c6 26. Re3—c4
Hb2—b3 27. Dd3—c2 Rc6—a5
28. Re3—d2 og svartur gafst
upp.
Misskilningurinn BidstruP teiknaði