Þjóðviljinn - 15.11.1955, Side 5
Þriðjudag-ur 15. nóveraber 1955 -r- ÞJÓ£>VILJINN — (5>
Brezkur verkalýður i sókn
Sex milljónir krefjasf hœrra kaups til aS
vega upp álögur ihaldsstjórnarinnar
Brezkur verkalyður hefur svarað aukafjárlögum Butl-
ers, fjármálaráðherra í ríkisstjórn íhaldsmanna. Verka-
lýðsfélög sem hafa innan sinna vébanda sex milljónir
manna hafa borið fram kröfur um hækkaö kaup.
Yfirlýstur tilgangur Butlers
með aukafjárlögunum var að
draga úr kaupmætti innanlands.
Það bugðist hann gera með
stórhækkuðum álögum á al-
menning, svo sem háum sölu-
skatti á fjölda nauðsynja,
hækkuðum póst- og simagjöld-
um og með því að fella niður
niðurgreiðslur úr ríkissjóði á
byggingarkostnaði húsa sem
Átök á Kýpur
Brezkt herlið og lögregla
beittu í gær táragasi og bar-
eflum til að dreifa hópgöngu í
Nicosia, höfuðborg eyjarinnar
Kýpur. Varð að flytja 10 menn
í sjúkrahús eftir átökin en 26
voru teknir höndum. Af föng-
unum eru 16 skólanemendur.
Hópgangan var farin til að
mótmæla því að brezku yfir-
völdin hafa hafnað náðunar-
beiðni frá griskumælandi Kýp-
urbúa, sem dæmdur var til
dauða fyrir að valda bana lög-
regluþjóns. Til átaka kom af
sama tilefni S tveim öðrum borg-
um í Kýpur, Famagusta og Lim-
assol.
1 Aþenu, höfuðborg Grikk-
lands, réðust stúdentar á bygg-
ingu brezks fyrirtækis með
grjótkasti.
bæjarfélög leigja lágtekjufólki.
Þessi síðastnefnda ráðstöfun
mun hafa í för með sér mikla
hækkun á húsaleigu.
Árás á lífshjör almennings.
Brezk verkaiýðssamtök hafa
einum rómi mótmælt aukaf jár-
lögum Btitlers. Benda þau á að
hinar auknu álögur muni koma
þyngst niður á lágtekjufólki.
Hinsvegar hefur fjámná’aráð-
herrann varla snert við sívax-
andi gróða atvinnurekenda og
kaupsýslumanna.
Gagnsókn.
Brezka verkalýðshreyfmgin
hefur þegar sýnt í verki að hún
mun ekki taka þessum stéttar-
fjárlögum með þögn og þolin-
mæði heldur hef ja gagnsókn til
að verja lífskjör almennings.
Hvert verkalýðssambandið af
öðru ber fram kröfur um hækk-
að kaup og þau sem farin voru
af stað með kauphækkunarkröf-
ur áður en aukafjárlögin voru
borin fram hafa hækkað kröfur
sínar vegna þeirra.
Félög vélsmiða, sldpasmiða og
skyldra starfsgrcina með þrjár
milljónir félaga eru að samræma
kröfur sínar. Milljón bygginga-
verkamanna krefst fjögurra
pence kauphækkunar á klukku-
stund. Félag 700.000 namu-
manna krefst kauphækkunar
sem nemur tveim og hálfum
shilling á vakt. Tóbaksiðnaðar-
menn krefjast 15 shiilinga
ka.uphældtunar á viku. Félag
360.000 járnbrautarstarfs-
manna hefur einnig borið fram
kröfu um hækkað kaup.
Práperdm einangrað m blóði maana
Vísindamönnum hefur tekizt aö einangra úr blóöfi
manna efni sem veitir vörn gegn hverskonar sýkingu.
Lengi hefur verið Ijóst að
slíkt efni hlyti að vera ti>, því
að menn og dýr cru í svo stöð-
ugri snertingu við sýkla að
þeim væri ekki líft ef likam-
inn réði ekki yfir varaarvopni
sem vinnur á flestum sýklainn-
rásum áður en þeim hefur tek-
izt að vinna tjón.
Nýtt undralyf?
Þetta efni hefur nú fundizt í
blóðinu og hefur hlotið nafnið
próperdín. Vísindamönnum sem
starfa við læknadeild Western
Reserve háskólans í Bandaríkj-
unum tókst að einangra það.
Von visindamanna er su acS'
liægt veroi að bcizla próperdia
svo að hægt verði að beita því
gegn hverskonar sjúkdómum og
sýkingum.
Það sem vísindamönnunum,
þykir merkilegast við próperd-
ín er að það virðist jaín örugC
gegn öllum sýklum. Að þvi leytí
er það frábrugðið móteínum,
sem myndast í blóðinu við sýk-
ingu eða bólusetningu en vinnr
ekki nema á emni tegund sýkla.
Rottur bezt varðar.
Próperdín fannst fyrst i blóðl
Framhald á 10. síðu
Gráturinn
lengir lifiS
Nokkrir franskir læknar haía
komizt að þeirri niðurstöðu að
karlmenn gætu lengt ævi sína
verulega með því að skæla há-
stöfum öðru hvoru. Það á að
gefa tárunum lausan tauminn
en ekki bæla niður grátinn eins
og flestir karlmenn gera, segja
læknamir. Bælingin kemur ó-
reiðu á allt kirtlakerfið og á
oft þátt í hjartasjúkdómum og
kvillum í nýrum og maga. Kon-
urnar eru grátmildari en karlar
og það á að dómi læknanna þátt
í að þær ná hærri meðalaldri en
karlar.
Andi Carlyie
er óráðholiur
Prófessor í Detroit í Banda-
ríkjunum hefur höíðað mál á
hendur kvenmiðli og krefst af
henni skaðabóta sem nema
hálfri fjórðu milljón króna. Mið-
illinn hafði að áeggjan prófess-
orsins náð sambandi við Thom-
as heitinn Carlyle, skozkan rit-
höfund sem dó 1881, og spurt
hann ráða hvernig hann ætti
að verja eignum sínum á
arðvænlegastan hátt. Ekki
stóð á ráðleggingunum hjá
Carlyle, en þær gáfust ekki
betur en það að prófessorinn tap-
áði hverjum eyri.
Lodge, fulltrúi Bandaríkjanna
hjá Sþ, skýrði frá því í gær að
hann mundi sitja hjá í Öryggis-
ráðinu þegar upptökubeiðnir
fjögurra Austur-Evrópurikja í
samtökin koma þar til atkvæða,
greiða atkvæði með upptöku-
beiðnum 13 ríkja en gegn upp-
tökubeiðni Ytri Mongólíu. Fer
bandariski fulltrúinn þar að
dæmi fulltrúa Sjang Kaiséks.
Brezki fulltrúinn hjá SP sagði
í gær, að stjórn sín væri fylgj-
andi upptöku allra 18 ríkjanna.
Pearson, utanríkisráðherra Kan-
ada, sem bar fram tillöguna um
upptöku þessa ríkjahóps, ræddi
málið í gær við Eden forsætis-
ráðherra í London. Það eina sem
heyrzt.hefur frá írönsku stjórn-
inni um málið er að hún kæri
sig ekki um að fá inn í SÞ f jölda
ríkja sem myndu styðja sjálf-
stæðiskröfur nýlenduþjóðanna.
Vssturþýzkri her-
vssSiugu hraðað
Bonnatjómin hefur ákveðið að
hraða hervæðingu í Vestur-
Þýzkala.ndi með því að heimila
20.000 mönnum í landamæra-
varðliðinu að ganga í vestur-
þýzka herinn. Þingið hefur enn
aðeina veitt heimild til að kalla
6.000 sjálfboðaliða til vopna þar
til í xnarz næsa áx.
Við hæinn Kakovka við Dnépr par sem sumar hörðustu orustur borgarastyrj-
aldarinnar og síðari heimsstyrjaldarinnar voru háðar er nú verið að byggja raf-
orkuver sem verður eitt mesta í heimi. Það mun framleiöa 250.000 kílóvött og
sjá bœjum, iðnaði og landbúnaði í grenndinni fyrir orku. Framkvœmdir hóf-
ust árið 1951 og peim veröur lokið nœstaár. Lóniö sem myndast ofan við stíflu-
garðinn í Dnépr mun hafa aö geyma 14 mitljarða teningsmetra af vatni og
ver&ur pað uppistaöa í áveitukerfi. í sambandi við virkjunina verður gerður
skipaskurður sem mun gera stórum skipum kleift að sigla til hinna miklu
iðnaðarmiðstöðva í Úkraínu. Myndin g zfur nokkra hugmynd um hve stórfeUd-
ar pessar framkvœmdir eru. Hún er af vélasal orkuversins í smíðum t ilJ-í
■ KimMIHIHMHIUMHMinillllHnnMII