Þjóðviljinn - 25.11.1955, Page 6

Þjóðviljinn - 25.11.1955, Page 6
jj) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 25. nóvember 1955 r -------------------------------\ Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðn — Sósíalistaflokkurinn — Stjórnarkjörið í Sjómannafélaginn í dag hefst kosning stjórnar og annarra trúnaðarmanna í gr :ersta sjómannafélagi lands- ics, Sjómannafélagi Reykjavík- • iir. Hafa komið fram tveir list- ar', listi fráfarandi stjórnar, studdur af hægri mönnum A!- þýðuflokksins og að mestu skipaður sömu mönnum og nú sitja í trúnaðarstöðum félags- ins. Hinn listinn er borinn fram ai starfandi sjómönnum og studdur af hinum stéttarþrosk- uóu öflum innan félagsins. Ekki mun um það deilt meðal þe rra manna í Sjómannafélagi Reykjavíkur sem hafa sjó- mennsku að atvinnu að á því sé mikil og knýjandi nauðsyn skipt verði um forustu í fé- laginu. Núverandi stjórn þess er að flestra dómi værukær og aímrhaldssöm í kjaramálum sjómannastéttarinnar og hefur í j-aun og veru reynzt hið erf- iðí-.sta og versta farg á hags- munasamtökum sjómanna um land allt og sókn stéttarinnar i heild til bættra lífskjara. Er það eftirtektarvert og talandi tákn um óhæfni stjórnar Sjó- 333í.nnafélags Reykjavíkur til ’þeas að hafa íorustu fyrir iþessu stærsta félagi sjómanna í landinu að félög sjómanna úti um land hafa náð betri ár- aiigri í samningum um kaup og kjör meðiima sinna, þrátt fyrir smæð þeirra og margfalt erfiðari i aðstöðu. Alkunnasta og ferskasta dæmið um þetta . er óumdeilanleg forusta Sjó- mannafélagsins Jötuns í Vest- Hsannaeyjum í að tryggja fiski- mönnum hærra verð fyrír afl- arm og sækja rétt þeirra í he.idur útgerðannanna fyrir dómstólunum. Mætti þannig . íeagi upp telja. En þótt hinir starfandi fiski- «nenn og farmenn séu yfir- leítt sammála um dugleysi for- ■m tu Sjómannafélags Reykja- víkur í hagsmunamálum þeirra og nauðsyn þess að breytt verði œn til batnaðar með því að þeir ' tstú málin í eigin hendur, hef- ' nr afturhaldinu í félaginu tek- jav. að halda velli fram að þessu spaeð hverskyns bolabrögðum og lagaflækjum sem beitt hefur .verið gegn hinum raunverulegu jxeðlimum félagsins. Þannig er meS fáum undantekningum f< rðazt að halda fundi í félag- jnu nema þegar öruggt er að ejómenn séu við störf sín á hafi ír. i og geti ekki sótt þá. Og til þtss að tryggja sér undirtökin í allsherjaratkvæðagreiðslu um stjórnarkjör hefur afturhaldið gtrt félagið að allsherjarsam- fcafni manna úr flestum eða öll- nm starfsgreinum þjóðfélags- ins. Eru þar í fullum réttindum hundruð manna sem ekki hafa ératugum saman stundað sjó- mennsku. Með þessum hætti fctfur sá meiiihluti verið feng- jr.n sem valdaaðstaða aftur- haldsins hefur byggzt á. Listi starfandi sjómanna við þ- stjórnarkosningu sem hefst í dag er skipaður reyndum ogl „Enginn hefur getað dregið það af Islandi að það hafi verið eitthvert ágætasta sögu- land til forna, enda hefur ís- lendingum oft verið borið það á brýn að þeir lifðu allir í söguöld sinni og stærðu sig af henni, og er það þá ekki af engu og satt er bezt að segja að sögufróðir menn hafa ver- ið hér á öllum öldum þó ekki hafi seinni aldirnar komizt til jafns við hinar fyrri. Þetta er þó einkum sagt um bóksög- urnar; en til eru einnig aðrar sögur sem hafa, eins og bólc- sögurnar, fyrst framan af gengið munna á milli og það miklu lengur margar hverjar en bóksögurnar. Það eru al- þýðusögurnar eða munnmæla- sögur og ævintýri og veit eng- inn hvað gömul þau eru sum hver. Þessari sagnagrein hafa fáir gefið gaum til forna sem vera bar, og þeir sem lögðu nokkra rækt við hana hafa oítast orðið fyrir aðkasti og þó eru slíkar sagnir jafnskil- getnar dætur þjóðarandans sem bóksögurnar sjálfar sem enginn hefur enn getað of- lofað. Það má fullju’ða það að munnrnælasögur hafi fæðzt og myndazt í og með þjóðinni, þær eru skáldskapur þjóðar- innar og andlegt afkvæmi hennar öld eftir öld og lýsa því betur en flest annað hugs- unarháttum hennar og venj- um. . ..“. Þannig hóf Jón Árnason formálann að útgáfu sinni á íslenzkum þjóðsögum og æv- intýrum, sem prentuð var i Þýzkalandi 1862. Hann segir síðar frá því að árið 1845 „tókum við séra Magnús sál. Grímsson meðan hann var í skóla okkur saman um að safna öllum þeim alþýðlegum fomfræðum sem við gætum komizt yfir. Safnaði hann þó mestmegnis sögum, en ég kreddum, leikum, þulum, gát- um og kvæðum, en hvor safn- aði þó fyrir annan og benti öðrum þangað sem liðs var að leita. Þetta safn jókst smámsaman þangað til við fengum af Einari prentara Þórðarsyni hér í bænum að gefa út dálítið sýnisliorn af því 1852 og kölluðum það ís- lenzk æfintýri. Þetta sýnis- hom átti fyrst í stað fáum vinum að mæta á íslandi eins og við mátti búast eftir það dugandi mönnum úr stéttinni sjálfri, mönnum sem þekkja gerst hvar skórinn kreppir í kjaramálum sjómanna. Þarf ekki að efa að sjómenn muni fylkja sér fast um þetta fram- boð sitt og vinna öfluglega að kosningu iista síns. Sigur sjó- mannalistans myndi ekki aðeins boða algjör þáttaskil í starfi stærsta sjómannafélagsins held- ur einnig verða upphaf nýrrar djarfrar sóknar í hagsmuna- baráttu og félagsstarfi allrar íslenzku sjómannastéttarinnar. sem á undan var farið, en þó virtu sumir vel viðleitni okk- ar. .. . Síðan segir Jón frá komu dr. Konráðs Maurers hingað til lands sumarið 1858, iivatn- ingu hans og uppörvun að þeir félagar héldu áfram söfn- uninni; og honum er það að þakka að þýzkt útgáfufyrir- tæki tók að sér prentun Is- lenzkra þjóðsagna og ævin- týra 4 árum síðar. En Jón segir svo áfram frá söfnun sinni í formálanum: „Þegar Maurer var far:nn héðan um haustið 1858 tck ég mig til og skrifaði í ailar áttir vinum mínum og skóia- bræðrum og öðrum fræði- mönnum viðs vegar um land- ið og lét þar með fylgja yfir- lit y ir það sem ég óskaði helzt að safnað væri; það vf- irlit kallaði ég Hugvekju. Varð ég þess þá brá.tt áskynja að „íslenzku æfintýrin” höfðu þegar frá . leið vakið hér at- hygii manna sem þess vegna vikust flestir svo vel undir tilmæii mín að síðan hafa mér víða komið bitlingar eins og Haligerði sálugu, í ýmsum greinum alþýðiegrar forn- íræði, og yrði það öf iangt mál að telja þá hér upp alla sem til þess liafa orðið að senda mér sögur og fræði.... en ég votta þeim öiium hér mínar beztu þakkir fyrír þá aðstoð og velvild sem þeir liafa sýnt mér í þossu efni sem annars hefði „aldrei orð- ið barn í brók“. Eins og þetta er uppreistarsaga íslenzkra alþýðusagna, eins er það að- dragandinn til þess að safn þetta'kemur á prent“. Það er ekki ofmælt hjá Jóni Ámasyni að hónum komu víða bitlingar; þeir sem kunna að hafa haldið til skamms tíma að með útgáfu hans frá 1892 hafi al’t safn- hans verið komið á prent, hafa vaðið í villu og svíma. Hann átti þá eftir. mikil handr.it í > órum sínum, og honum barst drjúg- ur jöldi handrita eftir það. Handritasafn Jóns Árnason- ar hefur síðan átt róiega daga í Landsbókasafninu — unz rykið hefur nú verið dustað af því. Þar er Bókaútgáfan Þjcðsaga að verki. Nú er að segja frá því. Bólcaútgáfan Þjóðsaga var stofnuð í bsim tilgangi að gefa. þjcðsogiir Jóns Árnason- ar út að nýju, og sömuleiðis handritasyrpur hans sem ó- prentaðar voru. Þeir Árni Böðvarsson og Bjami Vil- hjálmsson réðust til að „ann- ast útgáfuna" fyrir hönd út- gefenda sjálfra, og i fyrra komu út tvö bindi „íslenzkra þjóðsagna og ævintýra“. Svör- uðu þau bindi að mestu til útgáfu Jóns frá árinu 1862, en vinnubrögð þeirra félaga vom þó önnur en Jóns. Hann umskrifaði þau handrit sem honum bárast, steypti þau í sitt persónulega stílmót; en þeir Ámi og Bjarni fóru rak- leiðis í hin upphafiegu handrit sjálf og létu prenta þau eins og hinir gömlu höfundar gengu frá þeim — nema staf- setningin var færð í nútíma- horf. Jafnvel gömlum orð- myndum, sem nú kunna að vera taldar rangar, er hald- ið; þær eni þó alténd söguleg heimiid um málið. Þau tvö hindi, sem komu út í fyrra vom samtals nær 1300 biaðsíður í stóru broti og sett þéttu letri. Var öll útgá an með miklum glæsi- brag; og hafði prentsmiðjan, Hólar, unnið verk sitt af stakri prýði. Og nú er þriðja hindi safnsins að koma ' út, eins og sagt var frá í gær. Er það 656 blaðsíður að lengd, prýtt nokkrum fallegum sýn- ijhornum, handrita. 1 bindinu eru þrh f okkar sagna: Goöiræðisögur, Draugasögur, Galdrasögur. . Hér verða nú rakin á eftir meginatriðin í frásögn Bjarna Vilhjáimssonar á fundi með fréttamönnum í íyrradag. I þessu. nýja bindi, sagði Bjarni, er um það bil þriðj- ungur þess sem eftir varð í syrpum Jóns Árnasonar er fyrsta útgáfan kom út, að viðbættu því er honum barst seinna í hendur. Upphaflega var ætlunin að koma þessu efni fyrir í 2 bindum; en það reyndist meira að vöxtum en hugað var, þannig að viðbót- arbindin verða 3, og útgáfan þá 5 bindi alls. I handrita- safni Jóns eru ennfremur nokkur söfn sem eldri eru en hin eiginlegu söfn hans og Magnúsar Grhnssonar, t.d. handrit Gísla Konráðssonar. Þau handrit verða ekki tekin með í þessa útgáfu. Okkur þykir sjáifsagt að Gísla Kon- ráðssyni verði gerð sérstök skil, sagði Bjarni, en reitum hans ekki ruglað saman við annarra manna góðs. Sama er að segja um sagnaþætti eftir Bólu-Hjálmar, sem fundnir verða í syrpum Jóns Ámason- ar; enda hefur sumt af þeim komið út áður annarstaðar. Sumt af því sem nú kemur fyrir ahnenningssjónir í hinni nýju útgáfu hefur verið prent- að áður á víð og dreif í ýms- um söfnum, t.d. nokkrar sög- ur BrynjúKs frá Minna-Núpi; en þær voru upphaflega send- ar Jóni Árnasyni. Þá hefur Állrahanda eftir séra. Jón Norðmann einnig verið prent- að áður, í Mönnum og niinj- um Finns Sigmundssonar landsbókavarðar. Það sem prentað hefur verið áður hverfur þó eins og dropi í hafið hjá hinu sem aldrei hef- ur komið fyrir almannasjónir. Bjarni sagði að vonandi kæmi 4. bindi útgáfunnar á næsta ári. í því bindi verða Náttúrasögur, sem Jón kallaði svo, einnig Helgisögur og Úti- legumannasögur. Þá má vera að ævintýraflokkurinn hefjist í því bindi, en hann er lang- stærsti flokkur alls safnsins. Ánnars verður hann að mestu í lokabindi útgáfunnar, og þar verða einnig Kímnisögur og Kreddur; ennfremur og að lokum nafnaskrá um allt verkið og skrá um atriðis- orð. Að lokum sagði Bjarni: Þjóðsögurnar eru merki- legur vitnisburður um íslénzka bókmenningu og hve samgró- in hún var þjóðinni. Mest af því efni, sem hér birtist, var að vísu ritað fyrir hvatningu lærðra manna; en þegar bænd- ur höfðu fengið þá hvatningu skráðu þeir sögurnar sjálfir upp á eigin spýtur. En ekki voru það bændur einir, lield- ur einnig vinnumenn þeirra. Og það eru til dæmi um flakk- ara sem einnig voru rithöf- undar á Islandi á 19. öld. — I Islenzkum þjóðsögum og ævintýmm gengur íslenzk kynslóð í dag til móts við hugmyndalieim horfinnar tíð- ar, orðsnilld flakkara og kot- karla, skáldskap sem harg ís- lenzku lífi.yfir kröm og dauða, Þegar saumaö er utan um lík á ekki að hnýta linút á þráðinn, ekki præða upp í hendina eða að sér og ekki bíta úr nálinni. Einu sinni ætluðu kanur aö sauma hjúp utan urn iík og varö þeim tilrcett um að ekki nvundi saka pó bitinn vœri þráðurinn úr nálinni og kvaðst sú er fyrst tók til að sauma mundi reyna það og svo varð. Varð henni þá eitthvað það að liún mátti hœtta sauminu. Allar freiMilðu hins sama og fór á sömu leið þangað til kom aö þeirri seinustu. Tók hún líka til að sauma og þegar hún hafði saumað néUþráðinn á enda mælti hún: „Ekki finn ég neitt á mér“. Heyrðist þá mœlt: ,,Þú ert ekki búin að bíta úr nálinni“. Ekki lét stúlkan sér bilt við verða, beit hún þá þegar úr nálinni og stakk henni um leið í U þess dauða og mcelti: „Búin er ég að pví“. Varð henni og ekki meint við. (íslen/.kar þjóðsögur og ævintýri, 3. bindi, blaðsíðti 291—29.2).

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.