Þjóðviljinn - 30.11.1955, Page 4
«&) — ÞJ ÓÐVILJINN — Miðvikudagur 30. nóvember 1955
S W\Mí
f>Æ<íkr5
Meflnl hinna nýju, sovézku skemmtimynda jjallar ein um sirkuslíf og er myndin hcr fyrir
ofan lír hcnni: Tigrisdýrið hefnr liomið scr vel fyrir i hægindastól forsljórans.
21 kvikipiir gerðar í Sovébipuun í ár
Aldrei hefur verið meira
slarfað kvikmynda-
verum víðsvegar um Sov-
étríldn en á þessu ári.
Gert er ráð fyrir að tala
mynda, sem fullgerðar
verða á árinu, komist
upp í 200, og er þá ekki
meðtalinn mikill fjöldi
minni fræðslukvikmynda
um hin margvíslegustu
efni. Til dæmis um sið-
arnefndu myndirnar má
geta þess, að gerð hefur
verið mynd um rússneska
vísindamanninn Mikhail
Lomonosoff, en nýja há-
skólabyggingin í Moskva
er sem kunnugt er kennd
við hann. Einnig má
nefna mynd um vanda-
mál æskunnar, litmynd
um dýralífið í frumskóg-
um Síberiu og aðra um
listaverk í Leníngrad.
Myndir um nútíma at-
burði setja æ meiri svip
á sovézka kvikmynda-
gerð. Jafnframt fækkar
sögulegu myndunum, og
er þá engan veginn átt
við að þær séu alveg að
hverfa af sjónarsviðinu.
Atburðir í sambandi við
októberbyltinguna eru t.
M.a. á a8 kvik-
mynda Don Ouixote
eftir Cervantes
d. alltaf vinsælt kvik-
myndaefni, svo og bylt-
ingin 1905 og þeir örlaga
ríku atburðir er þá gerð-
ust. í þessum flokki er
myndin Formálinn eftir
Alexander Stein ein sú
nýjasta, einnig I götu-
virkjum Mosltvuborgar,
en þar hefur Pogodin
skrifað tökuritið, og
mynd sem Sergej Vasiljet
hefur eert um atburði frá
hinu sögulega ári 1917.
Vasiljet þessi hefur áður
gert fræga mynd um
Tjapaéff, þjóðsagna-
kennda hetju frá tímum
innrásarstríðsins eftir
byltinguna.
Áætlanir eru um að
gera fjölmargar myndir
eftir frægum verkum
heimsbókmenntanna. T.d.
má nefna Othello, sorgar-
leik Shakespeares um af-
brýðina. Vonast er til að
hinn frægi bandaríski
söngvari Poul Robeson
geti farið með aðalhlut-
verkið í þeirri mynd, ef
hann fær einhverntíma
vegabréf sitt og leyfi til
að fara úr Bandarikjun-
um. Einnig er gert ráð
fyrir að Don Quixote,
sagan frægá eftir Cer-
vantes, verði kvikmynd-
uð, svo og Taras Bulba
eftir Gogol, Móðirin eftir
Gorkí, og fleiri. Undir-
búningur er þegar hafinn
að kvikmyndun skáldsög-
unnar Stálið var hert eft-
ir sovézka höfundinn
Ostrovskij. Hér í þæýtin-
um hefur áður verið
minnzt á kvikmyndun
Síríðs og friðar eftir Tol-
stoj.
Auk þeirra mynda, sem
nú hafa verið taldar, hafa
verið og verða gerðar
margar gamanmyndir,
ævintýramyndir og síðast
en ekki sízt fantasíu-
myndir í líkingu við
skáldsögur Jules Verne
og H. G. Wells á sínum
tíma. Og auðvitað bætist
svo við þessa upptaln-
ingu fjöldinn allur af
kvikmyndum fyrir börn
og unglinga.
Iauglýsingum og leik-
skrá stendur að
myndin sé þýzk; það er
rangt, hún er svissnesk,
gerð af öðru kvikmynda-
félaginu sem nú er starf-
andi í Sviss: Schweizer
Praesens-Film. þetta er
ágæt mynd, að vísu ekki
mjög stórbrotin en ákaf-
lega falleg og hiýtur að
koma öllum í gott skap
sem sjá hana, ekki sizt
börnum og unglingum.
Bókin, sem myndin er
byggð á, hefur komið út í
íslenzkri þýðingu og er
þvi mörgum kunn. Aðal-
hlutverkið, náttúrubarn-
ið Heiðu, leikur lítil og
falleg telpa, Elsbeth Sig-
mund, af einstakri prýði,
en Heinrich Gretler fer
skemmtilega með hlut-
verk afa hennar. — Öll
útiatriðin í myndinni eru
tekin í Graubiinden, einu
af fjallahéruðum Sviss,
og má þar glöggt greina
stórbrotna fegurð Alp-
anna. Það má hiklaust
mæla með mynd þessari.
Hún er sýnd í Stjörnu-
bíói.
Jóhann Húss i prédihunarstóli (Zdenek Stepanek).
Mynd um Jóhann Húss
Isumar var lokið við að
gera nýja kvikmynd
í Tékkóslóvakíu um líf
Jóhanns Húss, siðbótar-
mannsins fræga.. Mjmd
þessi er sú fyrsta af
þrem um þetta efni og
iýsir aðallega hinum
miklu bændauppreisnum
á 15. öld. Húss var
nefnilega ekki eingöngu
siðbótarfrumherji heldur
engu síður og fyrst og
fremst byltingarmaður.
Stuðningur hans við
bændauppreisnirnar 1415
varð til þess að hann lét
ítölsh heimildarhrik-
mf§nd um A-Indíur
Atriði iír italskri hcimiidarkvikmynd um Austur-Jndiur.
Xefnist myndin Týnda landið og hefur fcngið sérstiik verð-
laun á kvikmýndahátiðinni i Canncs. Myndin sýnir 'einn
hinna innfecddu i hátiðaklœðiun
lífið á báli. Þessvegna
var hann alger andstæða
Marteins Lúthers, sem á
örlagastundu hvatti
þýzku lénsherrana til að
drepa bændurna eins og
hunda.
Stjórnandi myndarinn-
ar heitir Otakar Vavra.
Jiri Trnka, hinn kunni
leikbrúðustjómandi, að-
stoðaði við ‘uppsetningu
sumra leiktjaldanna sem
notuð eru í myndinni.
Fimm sögur
eítir 0. Henry
í Nýja bíói
t
Amorgun eða föstudag
byrjar Nýja bíó að
sýna nýja bandaríska
mynd, sem gerð er eftir
fimm smásögum O.Henry.
Fjölmargir kunnir kvik-
myndamenn eiga hlut að
myndinni, t. d. leikstjór-
arnir Henry Koster,
Henry Hathawa.v, Jean
Negulesco, Howard
Hawks og Henry King,
og leikararnir Charles
Laughton, Richard Wid-
mark, Oscar Levant, Gre-
gory Ratoff, Dale Robert-
son, Farley Granger, Da-
vid Wayne, Anne Baxter,
Jeanne Crain, Marilyn
Monroe og Jean Peters.
Kynnir er rithöfundurinn
John Steinbeck.
Stjörnubíó
Heiða
Til „lesanda" í Hafnaríirði — Verkfallsbrot og ekki
verkfallsbrot — Semjið við F.Í.H. — Fjarlægið
glymskrattann — Villimennskuæði eða skémmtun
J DAG ÆTLAR Bæjarpóstur-
urinn að byrja á því að spjalla
• dálítið við ,,Iesanda“ í Hafnar-
i firði, út af bréfi, sem ,,lesandi“
í skrifaði honum um veikfalls-
i brot í sambandi við verkfa.ll
i hljóðfæraleikaranna. Feiag ísl.
i hljóðfæraleikara á í deilu við
i Samband veitinga- og gisti-
- húsaeigenda og hljóðfæraleik-
I arar hafa lagt niður vinnu.
/ Þar af leiðir, að það er ský-
J laust verkfallsbrot, ef einhver
/ aðili að fyrmefndu sambandi
/ fær hvort heldur iál. eða er-
i lendan hljóðfæraleikara til
i þess að spila fyrir dansi i hús-
i um síniun, og þeir menn, sem
i létu hafa sig til slíks verks,
i væru tvímælalaust verkfalls-
/ brjótar. Aftur á móti held ég
■’ að það séu ekki verkfallsbrot
■ af hálfu hljóðfæraleikara, þótt
- þeir spili fyrir dansi á sam-
! komum hjá þeim aðiljum, sem
I eru reiðubúnir að semja við
< þá upp á þau kjör, sem þeir
J fara fram á. Þannig hefur t.d.
i hljómsveit leikið fyrir dans-
• inum í einu samkomuhúsi hér
| í Reykjavík allt verkfallið, en
það er í Góðtemplarahúsinu.
„Gúttó“ mun hafa samið við
hljóðfæraleikara strax, enda
munu þeir, sem þar ráða hús-
um ekki vera aðiljar að félags-
skap veitinga- og gistihúsaeig-
enda. Sama máli mun vera að
gegna um þá staði í nærsveit-
um Reykjavíkur, þar sem
hljómsveitir úr Reykjavík eða
aðrir félagar í F.Í.H. leika fyr-
ir dansi. Og þótt einhverjir
veitinga- og gistihúsaeigendur
vilji ganga til samninga við
ísl. hljóðfæraleikara, þá fá
þeir það ekki, nema meirihluti
þeirra vilji það. Og þótt ein-
hver félagsskapur, t.d. eitt-
hvert átthagafélag, vildi halda
skemmtisamkomu að Hótel
Borg eða Sjálfstæðishúsinu,
og fá ísl. hljómsveit til að
leika fyrir dansi hjá sér, þá
leyfa húsráðendur á þessum
stöðum ekki, að ísl. liljómsveit
komi þar inn fyrir dyr, meðan
á verkfallinu stendur. Og
sama er að segja um aðra að-
ila að félagsskap gistihúsaeig-
enda. (Undanfarið hafa hins-
vegar ýms félög haldið
skemmtanir í Skátaheimilinu
við Snorrabraut, og samið við
hljómsveitir um að leika fyrir
dansi hjá sér). — Að lokum
þakka ég svo ,,lesanda“ í Hafn-
arfirði fyrir ummælin um
þrautseigju reykviskra og
hafnfirzkra verkamanna í
verkfallinu í vor, svo og fyrir
vinsamlega kveðju til Bæjar-
póstsins persónulega. Jafn-
framt vona ég, að þetta rabb
leiðrétti dálítinn misskilning,
sem mér fannst gæta í bréfinu.
OG ÞÁ VILL Bæjarpósturinn
segja fáein orð i fullri alvöru
við lesendur sina, einmitt í
sambandi við yfirstandandi
verltfall hljóðfæraleikara. Hve
lengi ætlar fólk að láta það
dragast að gera einskonar
samúðarverkfall; þ.e. hætta að
sækja dansskemmtanir, þar til
samið hefur verið við hljóð-
færaleikara ? Hve lengi ætla
reykvískir samkomugestir að
láta bjóða sér það, að kaupa
aðgöngumiða að grammófón-
balli á fjörutíu krónur, og
kókaflösku á tólf krónur, til
þess eins að auðvelda fá-
mennri klíku atvinnurekenda
að halda upui deilu við full-
komlega löglegt stéttarfélag ?
Eg hygg, að hér, eins og
raunar í mörgum tilfellum, sé
það einmitt afstaða almenn-
ings, sem mest hefur að segja,
og hljóðfæraleikarar eru yfir-
leitt vinsæl stétt meðal al-
mennings, a.m.k. íorðikveðnu.
Og hvers vegna ekki að sýna
það líka í verki? Nú segja
kannski einhverjir, að þetta
skipti svo sem engu máli. En
það er ekki rétt. 1 fyrsta lagi
er það fullkomin ósvífni af
hálfu samkomuhúsaeigenda að
selja aðgöngumiða að
grammófónballi á 40 krónur,
og annað liitt, að þótt dans-
samkomur, þar sem hljóm-
sveitir leika fyrir dansi, séu
e.t.v. ekki með miklum menn-
ingarblæ, þá er þó um stór-
lega afturför að ræða á því
sviði, síðan grammófónninn
tók við. Mér hafði Verið sagt
þetta, en af því að sjón er
sögu ríkari, fór ég á eitt
grammófónball um daginn. Og
það var blátt áfram ömurlegt.
Hávaðinn í grammófóninum
var ægilegur, og fylliríissöng-
ur fólksins tók langt fram
öllu, sem ég hef áður heýrt
af þvi tæi. Einkum var kven-
fólkið áberandi drukkið og
söng að sama skapi hátt. Það
Framh. á 10. síðu