Þjóðviljinn - 30.11.1955, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 30.11.1955, Blaðsíða 9
 V # ÍÞRÓniR RTTSTJÓRJ FRiMANN HEUGASO* Frá ársþingi Knattspyrnusambands íslands' Samþykht að taka þátt í HM í knatispymu í Svíþfóð 1958 — Aukaþing ákveðið síðar í vetur Síðast liðinn laugardag var þing Knattspyrnusambands ís- Jands haldið hér í Reykjavík. Setti formaður sambandsins Björgvin Schram þingið og bauð forsela ÍSÍ velkominn og aðra gesti og fulltrúa, en þingið sátu nokkuð yfir 40 fulltrúar frá 9 héraðssamböndum. Miklar umrseður urðu um skýrslu stjórnarinnar, en skýrsl- an ber með sér að margt hefur verið vel gert á árinu og fitjað upp á nýmælum sem geta haft grundvailandi þýðingu fyrir knattspyrnuna ef vel tekst til og áfram verður haldið á sömu braut. Má þar nefna ferðir landsþjálfarans um landið, nám- skeið fyrir knattspyrnuþjáifara — og hæfnismerki KSÍ, svo nokkuð sé nefnt. Margar tillögur komu fram og þ. á. m. tillaga um að tilkynnt verði þátttaka í heimsmeistara- móti í knattspyrnu 1958, sem fer fram í Svíþjóð, og var hún eín- róma samþykkt. Tillögur um breytingar á lög- um sambandsins iágu fyrir eri þeim var vísað eftir stuttar um- ræður til aukaþings sem halda á síðar í vetur. Annarra tillagna og mála sem fram komu á þing- inu verður getið nánar síðar. Stjómarkjör Stjóm sambandsins var endur- kjörin óbreytt frá því sem var. Björgvin Schram var endurkjör- inn formaður. Sömuleiðis þeir Guðmundur Sveinbjörnsson og Ingvar Pálsson. Fyrir eru í stjórninni: Ragnar Lárusson og Jón Magnússon. í varastjóm voru endurkjörnir: Sveinn Zöega, Haraldur Snorrason og Rafn Hjaltalín. Endurskoðendur voru kjörnir: Hannes Sigurðsson óg Haukur Eyjólfsson. í iþrótta- dómstól voru kjörnir þeir Ólaf- ur Sigurðsson, Axel Einarsson og Óðinn S. Geirdal. Hér fara á eftir nokkur atriði úr skýrslu stjórnarinnar. Nýja keppnisfyrirkoiriulagið. Á aukaþingi KSÍ hinn 15. janúar var samþykkt nýtt keppn- isfyrirkomulag varðandi keppni í meistaraflokki, þannig, að skipt var i 1. og 2. deild. Enda þótt þátttaka væri minni í 2. deild- ar keppninni, en vonir stóðu til, er það almenn skoðun, að hér hafi þó verið stigið spor í rétta átt, og að þessi nýbreytni muni eiga vaxandi vinsældum að fagna. Eins og fyrr segir tóku aðeins 4 aðilar þátt i keppninni að þessu sinni. Lið frá íþrótta- bandalagi Akureyrar vann sig X,PP í 1. deild, en lið Þróttar flytEt í 2. deild. Má búast við meiri þátttöku næsta sumar og mjög harðri keppni. Námskeið. Sú nýbreytni var tekin upp að halda námskeið að Laugar- vatni fyrir knattspyrnuþ'jálfara og þá, sem áhuga hefðu á því að kynnast þjáiíunaraðferðum o. fl.. Var til námskeiðsins stofnað í samVinmr- við hr. Þor- stein Einarsson íþróttafulltrúa rikisins, er studdi KSÍ með ráð- um og dáð í þessu máli. Þátttaka í námskeiðinu varð því miður mirini en við hefði mátt búast, þótt kostnaði væri mjög í hóf stillt. Alls tóku 5 menn þátt í því. Karl Guðmundsson hafði allan veg og vanda af námskeið- inu fyrir hönd KSÍ og var aðal- Björgvin Schram kennarinn, en naut aðstoðar ýmsra manna, m. a. hr. Björns Jakobssonar skólastjóra, dr. Brodda Jóhannessonar, þóris Þörgeirssonar o. fl. Prófraunir i knatfspyrnu — Unglinganefnd. Önnur er sú nýung er KSÍ hef- ur nýlega hieypt af síokkunum, sem sé prófraunir í knattspyrnu- hæfni fyrir drengi 12—16 ára. Er hugmyndin sænsk, og kjmnt- ist Karl Guðmundsson henni í ut- anför sinni fyrr á árinu. Ai- reksmerki, silfur og brons, hef- ur KSÍ útvegað írá Svíþjóð, og verða merkin afhent þeim, sem standast prófin. Væntir stjórnin þess, að ef áhugi íyrir þessu máli grípur um sig, þá geti nýung þessi látið mjög gott af sér leiða. KSÍ hefur nýlega skipað sér- staka nefnd manna til að gera tillögur tii stjómarlrinar um það, hvað helzt sé æskilegt að gera, til að örfa áhuga ungiinga fyrir knattspyrnunni og á hvern hátt sem örustum framförum verði náð. Einnig mun nefndin fylgj- ast með framkvæmd prófraun- anna og ýta undir þátttöku í þeim eftir megni. Nefndin er skipuð þessum rnönnum: Frí- manni Helgasyni, sem er for- maður hennar, Atla Steinars- syni, Halli Símóriarsyni, Sig- urgeir Guðmacmssyni og Karli Guðmundssyni. Sanuiingar við erleiul knattspymusambönd Stjórnin lét verða rneðal fyrstu verka sinna að setja sig í sam- band við knattspyrnusambönd víðs vegar í Evrópu með það fyrir augum að semja um gagn- kvæmar heimsóknir landsliða. Stjórninni er ljóst, að landsleikir þurfa að ákveðast langt fra-m í tímann, jafnvel 4—5 ár. Skrifað var til þessara landa: Finnlands Austurríkis, Sviss, Frakklands, Spánar, þýzkalands, írlands og Englands. Hjá allmörgum þess- ara aðila kom fram áhugi fyrir athugun á möguleikum til sam- starfs, og áttu sér stað ail víð- læk bréfasamskipti við ýmsa að- ila, en segja má að áhugi margra hafi mjög dofnað við nánari at- hugun á ferðakostnaði milli ís- iands og annarra ianda. Beinn árangur þessara skrifa varð þó sá, að Finnar buðu til landsleiks í Helsingfors 29. júní 1956. Óska þeir eftir, að annar landsleikur verði leikinn í sömu ferð, til að dreifa ferðakostnaðinum, en óá- kveðið er hvar sá leikur verður. Þá má fullyrða, enda þótt formlega staðfestingu vatni, að hér vcrði landsleikur við Eng- land í byrjun ágúst næsta ár og verður það heimboð bundið því sámkomulagi, að England bjóði til landsleiks úti 1957. Til óbeins órangurs af þess- um bréfaviðskiptum KSÍ við önnur sambönd má telja það, að samböndin vita nú meira um knattspyrnu á íslandi og mögu- leika á því að komast hingað, þannig, að samningar ættu að geta gengið fljótar í fram- tíðinni, eftir þá kynningu, sem KSÍ liefur veitt hinum ýmsu aðilum erlendis. Fararstjóri þj'zka liðsins frá Niedersachsen lét svo um mælt, er hann dvaldi hér s.i. sumar, að Knattspyrnusamband V- Þýzkalands hefði áhuga fyrir að leika við ísland, bæði hér heima og ytra. Fóru fram viðræður milli hinna þýzku fararstjóra og stjórnar KSÍ um mól þetta og var niðurstaða viðræðnanna síð- an staðfest bréflega til þýzka knattspyrnusambandsins. En þvi miður hefur enn ekki borizt neitt svar frá þjóðverjum. Þá höfðu fararstjórar USA- liðsins mikinn áhuga fyrir á- framhaldandi samstarfi við KSÍ og töldu víst, að boðið yrði til landsleiks í Bandaríkjunum i haust eða 1956, en engin endan- leg ákvörðun eða boð hefur enn borizt til KSÍ. 10 ára afhiæli KSÍ. Svo sem kunnugt er, verður KST 10 ára 1957, og af því tilefni ákvað stjórnin að bjóða hingað samtímis bæði Dönum og Norð- mönnum til keppni í júlí það ár. Norðmenn hafa svarað og telja erfitt að samþykkja boðið vegna þess, að finnska Knatt- Frh. á 10. síðu. Miðvikudagur 30. nóvember 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (9 Isleifur Högnason sextugur Framhald af 7. síðu. ísleif þekkja, vera mér sam- mála um, að betri drengur, vinur og traustari félagi er vandfundinn. 5>egar fundi okkar bar sam- an í fyrsta sinp, var Isleifur þegar búinn að skipa sér í raðir djörfustu og framsækn- ustu sona íslenzkrar alþýðu og hefur hann verið virkur forystumaður hennar alla tíð síðan. Það væri vissulega gaman að rifja upp max-gar enaur- minningar frá liðnum árum í Vestmannaeyjum, þegar erfið- ast var að sækja á, og alltaf stóð ísleifur í fararbi-oddi á öllum sviðum í baráttu fólks- ins fyrir bættum kjörum, enda hefur hann ætíð skipað þýðing- armestu trúnaðarstöðurnar. í bæjarstjórn Vestmannaeyja var hann í tvo áratugi. Hann var stofnandi og miðstjórnarmaður Kommúnistaflokks íslands fyr- ir réttum aldarfjórðungi og einn af fyrstu þremur þing- mönnum hans. Siðar stofnandi Sósíalistaflokksins og ætíð fremstur í flokki þar. Hann hefur alla tíð unnið í sam- vinnuhreyfingunni og er braut- i-yðjandi að myndun verka- mannakaupfélags ó íslandi. Þessi fjölþætti og ábyrgðar- mikli starfsferill í þágu ís- lenzkrar alþýðu ber því gleggst vitni, hve góðan dreng ísleif- ur hefur að geyma. Ég fagna.því að geta í dag hitt hann .iafn kátari og gunn- reifan og fyrir þrjátíu árum og óskað hontim til hamingju og verðskuldaðs árangurs af miklu og fórnfúsu starfi. Haukur Bjömsscn Þegar ég kom til Vestmanna- eyja laust eftir 1920 var einn glæsilegasti forvigismaður ís- lenzkrar verkalýðshreyfingar, ísleifur Högnason, að hefja baráttuíeril sinn, og um hann hafði þá þegar safnazt álitleg- ur hópur ungs fólks'því þessum manni vildi æskan rétta örf- andi hönd. Á þessum. árum - og tímum kreppunnar miklu þegar veik verkalýðshreyfing varð að heyja þi-otlausa baráttu fyx-ir tilveru sinni og samtakafrelsi voru átökin milli stéttanna harðari en nú. Til forustu í slíkri hx-eýfingu dugðu erig- in löðurmenni. Þeir máttu hve- nær sem var búast við líkams- árásum og jafnvel að beint væri að þeim skotvopnum. Sliku hlutverki gegndi ísleif- ur Högnason af meiri prýði en flestir aðrir, en hann mun nú eiga að baki sér sem næst þrjátíu og fimm ára baráttu- sögu í þógu íslenzks al- þýðufólks. Þessi maður hefur leyft sér þann munað, sem aðeins heil- steyptustu og beztu synir þess- arar þjóðar hafa getað veitt sér, að eiga fagra hugsjón ' og bregðast henni aldrei hvað sem á hefur dunið. Þegar nú íslenzk borgara- stétt stígur hrunadans sinnt og skuggar hernámsins verða voveiflegri með hverju árinu sem líður, þá er gott til þess að vita að enn á íslenzk þjóð menn eins og ísleif Högna- son, þjálfaða i baróttu við for.ynjur afturhalds og siðspill- ingar. Og beri hún gæfu tii að veita slíkum mönnum lið og forsjá mála sinna mun brautin áður en varir verða bi-otin til enda. Það var í Vestmannaeyjuin einhverntíma ó órunum laust fyrir 1930 að gömul vinkona mín, sem hafði orðið fyrir því lifsóláni að festa sig í blekkingarneti aíturhaldsins. sagði við mig, þegar stjórn- málastarfsemi ísleifs bar á góma: „Það er leiðinlegt að það skyldi fara svona með hann Leifa eins og þetta er góður drengur". Og nú er hann Leifi orðinn sextugur að aldri og enn reiðu- búinn að fórna kröftum sín- um í þágu sinnar dýru hug- sjónar — • af því að hann er svo góður drengur. Siguröur Guttonnsson \ Til skattgreiðenda í Reykjavík Skattgreiðendur í Reykjavík, athugið, að veru- leg vanskil eru orðin á greiðslu allra skatta írá árinu 1955, sem enn eru ógreiddir. Verið er að framkvæma lögtök til tryggingar sköttunum og j er skoraö á menn að greiöa þá hið fyrsta. Atvinnurekendur bera ábyrgð á, að haldiö sé : eftir af kaupi starfsmamra upp í skatta við hverja j útborgun, einnig í desember. a Tollstjéíaskriistoian, Arnarhvoli 29. nóv. 1955 ÞiOÐVILJANN vantar ungling til að bera blaðið til kaupenda við Hverfisgötu, I. Talið við afgreiðsluna. — Sími 7500.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.