Þjóðviljinn - 30.11.1955, Side 10

Þjóðviljinn - 30.11.1955, Side 10
10) — ÞJÖÐVILJINN — Miðvikudagur 30. nóvember 1955 FóSurbœfiskaup bœnda Framhaid af 6. síðu. eftirgrennslan í bókasöfnum mun þetta mjöl í meginatrið- um hafa svipaða eiginleika og maniokamjölið, nema verra, því allvænn skammtur af því er ómeltanlegt tréni. Hefur mér hvergi tekizt að finna ná- kvæma efnagreiningu á þessu efni, enda mun það alger und- antekning að það sé framleitt til skepnufóðurs og að bænd- ur kaupi það vitandi vits sem slíkt. Nú mun margur spyrja hvers vegna fóðurfræðingar vorir og ráðunautar hafi ekki mótmælt þessum innflutningi ef þetta væri jafn lélegt fóð- ur og ég segi. En þeir munu yfirleitt ekki hafa verið spurð- ir ráða um innflutninginn og litlu eða engu ráða um sam- setning fóðurblandanna, og heldur ekki hafa möguleika til að framfylgja eftirliti. En hvers vegna er þetta flutt inn fremur en góðar korntegundir? Er verið að græða á óhöppum bændanna á óþurrkasvæðinu, með því að flytja inn og selja sem fóður- bæti vöm, sem líklega hefur fengizt fyrir lítið verð miðað við úrvals korntegundir, en er hinsvegar mjög illa fallið til að bæta upp hrakin hey? Góðar korntegundir fást á út- skipunarhöfnum fyrir minna en 100 ísl. kr. hver 100 kg. og litlu eða engu þarf að muna á farmgjöldum hingað og til Bretlands, ef rétt er haldið á málum. Ejnar Petersen frá Kleif Bæjarpostu'inn Pramhald af 4. síðu. var eins og ,,hifaðar“ meyjar og þéttkenndar stútungs- kerlingar þrejd-tu æðisgengna- hávaðakeppni við glymskratt- ann. Þið hlægið kannski að þessu; en þetta er ekkert hlægilegt. Það er ekkert hlægilegt við að sjá annars myndarlegasta fólk renna fljótandi brennivínsaugum um salinn og öskra eins og hel- særða griðunga. — Nei, það verður að gera róttækar ráð- stafanir til að fjarlægja villi- mennskuna úr skemmtanalífi okkar. Mér finnst, að aðiljar eins og samkomuhúsaeigend- ur, lögregla og hljóðfæraleik- arar ættu að taka saman höndum og vinna að því I bróðerni að halda uppi aga á dansskemmtunum, og reyna að að gefa þeim menningarlegri blæ. Þvi fer víðs fjarri, að ég amist við því að fólk fái sér ,,sjúss“ og sé kátt og skemmti sér, en mér finnst fyllilega réttmætt að krefjast þess, að fólk kunni að greina á milli skemmtunar og villimennsku- æðis. — Og svo vona ég, að fólk skilji nauðsyn þess að leysa deilu hljóðfæraleikara og samkomuhúsaeigenda, og mæti að henni leystri á dans- leikjum, með það fyrir augum að skemmta sjálfu sér og öðr- um á mannsæmandi hátt. n \ ■ 5 I UPPBOÐ Opinbert uppboð verður haldið í húsakynnum Fæðis- kaupendafélags Reykjavíkur í Camp Knox hér í bænum föstudaginn 2. desember n.k. kl. 1.30 e.h. Seld verða borð og stólar, borðbúnaður, rafmagnsáhöld, píanó o.fl. tilheyrandi Fæðiskaupendafélagi Reykjavíkur. Ennfrem- ur verður selt eftir kröfu Gústafs Ólafssonar hdl. og fl. ca. 140 kassar af sultu, 36 kassar af þurrkuðum aprikós- um, 15 kassar af þýzku bóndufti, ísskápur, 6 strangar af kápuefni o.fl. Greiðsla fari fram við hamarshögg. Borgarfégellan í Reykjavík ■ ■ Allsheriaratkvœðagreiðsia ! um heimild til vinnustöövunar fer fram í Blaða- mannafélagi íslands dagana 30. nóv. og 1. des. Atkvæðagreiðslan fer fram í skrifstofu formanns félagsins, Sigvalda Hjálmarssonar, í Alþýöuhúsinu við Hverfisgötu og hefst hún kl. 9 f.h. hinn 30. nóv. og stendur til kl. 12 á miðnætti þann dag. At- kvæöagreiðsla hefst kl. 9 f.h. 1. des og lýkur kl. 6 e.h. Stjórn Blaðamannafélags Islands Sósíalistafélag Reykjavíkur Aðaífundur félagsins verður haldinn föstudaginn 2. desember klukkan 8.30 að Tjamargötu 20. DAGSKRÁ: L Venjuleg aSalfundarstözf 2. Félagsmál Stjórnin fB innincjarópjo Framh. af 9. síðu spyrnusambandið muni sama sumar halda upp á 50 ára af- mæli sitt. Þeir biðja um frest til að taka ákvörðun vegna boðs okkar. Danir hafa ekki enn svarað boðinu. Stjóm KSÍ er vel Ijóst, að verkefnin eru æði mörg, sem enn eru óleyst í sambandi við skipulagningu og uppbyggingu knattspyrnunnar á íslandi. Á- hugi fólksins fyrir þessari íþrótt er mjög mikill, það sýnir hin geysimikla áðsókn að góðum kappleikjum. En það sem vantar er miklu meiri þátttaka únglinga í íþróttinni, betri og fullkomn- a.ri æfingaskilyrði og skipuleg þjálfun, reglusemi og agi. Megin- þungi þessarar uppbyggingar hlýtur að lenda á knattspyrnu- félögunum víðs vegar um landið og verður það því ekki nógsam- lega undirstrikað, hversu ábyrgð- armikið starf er unnið í félögun- um, íyrir þessa vinsælustu í- þrótt, sem stunduð er í landinu. Það er og verður skylda KSÍ að standa vörð um knattspyrnuí- þróttina, leggja á góð ráð, fitja upp á nýjungum, hafa til taks færa þjálfara og vinna að því af krafti, að kunnátta íslenzkra knattspyrnumanna taki sem ör- ustum framförum og að íþróttin verði iðkuð af sem flestum ung- um mönnum í landinu. nð jólum og fólk fer ao hugsa um jólagjafir til vina og kunningja Stærstu jólagjafirear fá þeir, sem hreppa bílana í happdrætti Þjóðviljans Bjóðið heppninm heun — Kaupið miða strax Dreg/’ð 23. desember

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.