Þjóðviljinn - 17.12.1955, Síða 1

Þjóðviljinn - 17.12.1955, Síða 1
Laugardagur 17. desember 1955 — 20. árgangur — 287. tölublað r. UtsYÖrm hækka um 43 Útsvarsbyrði Reykvíkinga 144 millj, 347 þús. kr. — Fj árhagsáætlunin hin hæsta 166 millj. 577 þús. kr. A bæjarstjórnarfundinum í fyrrakvöld og fyrri-4 nótt gerðist það stærst tíðinda að Sjálfstæðisflokk- urinn setti nýtt met í álögum, hækkaði útsvörin um 43% eða upp í 144 millj. 347 þús. kr. og er niður- síöðutala fjárhagsáætlunarinnar 166 millj. 577 þús. kr. Hitt var þó sýnu merkara að minnihlutaílokk- arnir stóðu sameinaðir að flutningi tillagna í bæjar- stjórninni og kváðu það upphaf samvinnu flokkanna um síefnu í bæjarmálum og þess að Sjálfstæðis- ílokkurinn yrði leystur írá stjórn Reykjavíkur. Fjárhagsáætlun Reykjavíkur- bæjar var til lokaafgreiðslu á bæjarstjórnarfundi þeim er hófst kl. 2 e. h. í fyrradag, og iauk honum ekki fyrr en kl. 7 í gærmorgun. Þá hafði íhaldið lokið þeim næturverkum sínum að hækka útsvarsólögur bæjarbúa um 43% upp í 144 millj. kr. Eru slíkar hækkanir orðin föst jólakveðja þessa fiokks til bæjarbúa, þóti aldrei hafi álagahækkun ham verið jafn gífurleg og nú. Þessa 43% útsvarshækkun rökstyður íhaldið með þvi að verkamenn hafi fengið 11% grunnkaups- harkkun. Vitanlega er sú röksemd blekking ein. Hitt er sannleik- urinn i máiinu, að á síðustu áramótum hótaði forsætisráð- herra íhaldsins verkalýðnum því að ef hann dirfðist að reyna að fá bættar k.iaraskerð- ingar þær er hann hafði orðií fyrir síðustu árin, skyldu k.jara- bæturnar teknar af honum aft- ur. Auðstéttin var og er stað- Enn ekki samí! ráðin í því að taka af verka- lýðnum aftur kjarabæturnar. Bæjarstjórnarmeirihlutinn er eitt af þægustu tækjum auð- stéttarinnar til að rýra kjör verkalýðsins. Það sanna þær hækkanir ó útsvörum og öðru er íhaldið í bæjarstjórn hefur nú samþykkt. Enn hafði íhaldið hinn sama sið og felldi allar framkvæmda- og breytingatillögur minnihluta- flokkanna, en þeir sameinuðust nú í fyrsta sinn um tillögur. Olli það íhaldinu mikillar skelf- ingar. Að sinni er ekki rúm til að segja nákvæmlega frá gerðum 'iæjarstjórnarfundarins, en verð- ur gert siðar. Dagar Sjaogs^í SÞ senn taldir Heimsblöðin eru sammála um að nú hljóti senn að draga að því að Formósustjórnin verði að vikja úr sæti Kína hjá SÞ, jafn- vel bandarisku blöðin, eins og t. d. Washington Post, sjá fram á að SÞ muni ekki lóta sér lynda að þessi umboðslausa stjórn hindri framgang mála sem nær öll önnur aðildarríki samtak- anna hafa samþykkt. Blöðunum ber einnig saman um að Sovét- ríkin hafi unnið mikinn dipló- matiskan sigur þegar þeim tókst að koma 16 nýjum ríkj- um inn í SÞ, þannig að Japan væri lokað úti. Þykir nú séð að Japan muni ekki komast í SÞ fyrr en kínverska alþýðu- stjórnin tekur sæti Kína í sam- tökunum. Halldór Kiljan og sœnski lífeðlisfrœðingurinn Thorell skoöa heiöursslcjölin sem peir fengu með nöbélsverðlaun- unum. — Á 7. síöu er viðtal við Jón Helgason prófessor um | Kiljan og nóbelsverölaunin. a Róstur urðu í flestum bæj- um á Kýpur enn í gær. Nemend- ur og kennarar í æðri skól- um á eynni mættu ekki í tíma en héldu í staðinn mótmæla- fundi sem lögregla og hermenn hleyptu upp með táragasi og kylfum. í Famagusta skaut lög- reglan viðvörunarskotum þegar skólafólkið neitaði að hlýðnast fyrirskipunum hennar. Fjölmarg- ir unglingar voru handteknir. í Nicosia hefur 18 ára gamall piltur verið dæmdur í 18 mán- aða fangelsi fyrir að rífa sund- ur prentmynd af Elísabetu Englandsdrottningu. Óskastundin fellur niður í þessu blaði en verður tvöföld næst. m Verðyr stjórnarkreppa eftiráramótin? Úrræðum í málum útgerðanmtar ekki það langí kemið, að viíað sé, hvort ágreiitingur verður iniían ríkisstjómarimiar. — Úsamkomuiag um íjáiiagaaígreiðsluna Sósíalistaflokkurinn mótmælir ábyrgðarleysinu Enn hefur ekkert samkomu- lag náðst mn hvaða ríki skuli taka. við af Tyrklandi í Örygg- isráðinu eftir áramótin. Atkv. voru greidd tvívegis í gær, en árangurslaust, og eru atkvæða- greiðslurnar þá orðnar 31. Enn sem fyrr skiptust at- kvæðin milli Filippseyja (36) sem njóta stuðnings Bandaríkj- anna og ríkja Suður-Ameríku og Júgóslavíu (30), sem nýtur stuðnings Sovétríkjanna, Bret- lands og brezku samveldisland- anna. Tii þess að kosning sé giid þarf graiddra atkvæöa. Nú er talað um að ekki sé ó- sennilegt að samkomulag getij tekizt um Svíþjóð. Forseti allsherjarþingsins til- kynnti því í gær að hann myndi ekki slíta því fyrr en þetta mál hefði verið afgreitt. í umræöum um lög' um bráöabirgðagreiðslur úr ríkis- sjóöi vegna frestunar á afgreiöslu fjárlag-a og þingfrest- unar, gáfu Ólafur Tliors og Eysteinn Jónsson athyglis- veröar yfirlýsingar. Ejrsteinn sagði að ekki hefði reynzt unnt að ná samkomu- lagi milli stjórnarflokkanna um afgreiðslu fjárlaga. Það liefði þó verið hægt, en Sjálfstæðis- flokkurinn ekki viljað fallast á það. Ólafur sagði að Sjálf-j stæðisflokkurinn hefði ekki tal-; ið auðið að afgreiða fjárlög fyrr en mál fiskiflotans hefðuj verið leyst. Báðir tóku fram, að ágreiningurinn væri aðeins j hvað fjárlögin snerti. Mál íiski- flotans væri ekki það langt komin, „að efnisiegur ágrein-j ingur hafi komið til“. Eysteinn; tók fram, að hann hefði ákveð-: ið að vera áfram í ríkisstjórn. Það væri því ekki stjórnar-j kreppa nú. Hins vegar mátti skilja að svo kynni að fara. | Mótmæli Sósíalistaflokksins Sósíalistaflokkurinn hafði skrifað formönnum stjórnar- flokkanna bré' í tilefni af þing- frestunartillögunni. Þar segir svo: ,,Hér með levfum vér oss að leggja til við yður, með tilliti til yfirvofandi stÖðvunar á allri útgerð landsmanna um næstu áramót, að fundum Alþingis sé ekki frestað nú, heldur sé fund- um haldið áfram milli jóla og nýárs, til þess að reyna að finna lausn á þeim vandamál- um, er við blasa, svo að eigi komi til stöðvunar fiskiflot- ans í ársbyrjun. Væri þá í staðinn hægt að taka nokkurt þingfrí seinna í janúar, er af- gr. þessara mála væri iokið“. Hörð hríð að stjórninni Einar Olgeirsson, Emil Jóns- son, Gils Guðmundsson, Lúð- vík Jósepsson og Gylfi Þ. Gísla- son gerðu harða hríð að ríkis- stjórninni ivrir seinagang henn- ar og dugleysi. Nú væri kominn 16. desember og fyrir mánuði síðan hefði stjórn L.Í.Ú. sam- þykkt, að báta- og togaraflot- inn stöðvaðist. um áramót, ef ekki hefði fundizt lausn á mál- um útvegsins. Og þetta væri það sem allir hefðu vitað, að myndi gerast. En nú væri þing- ið sent heim og ríkisstjórnin ekki einu sinni komin það á-j ieiðis, að liún vissi hvort innan! hennar yrði ágreiningur uinl málin. Tvær nefndir — beðið eftir skýrslu Ólafur Thors átti mjög í vök að verjast, er hann reyndi að bera blak af sér og stjórninni. Sagði hann að tvær nefndir hefðu verið skipaðar. Önnur er hagfræðinganefnd, sem í eru Benjamín Eiríksson, Ólafur Framhald á 11. ríðu. Skvsnastervél «/ lendir á Akur- eyrarflugvelli í gæikvöld I.enti millilanda- t'lugvél i fyrsta sinn á Akúreyr- arflugvelli. Var það önnur af skymasterflugvélum Flugfélags íslands, en meðal farþega í þess- ari ferð voru nokkrir þoðsgest- ir félagsins. Eins og kunnugt er, er um þessar mundir liðið eitt ár frá þvi hinn nýi flugvöllur Akur- eyrar á eyrunum við Eyjafjarð- ará var vígður og tekinn í notkun.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.