Þjóðviljinn - 07.03.1956, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 07.03.1956, Qupperneq 7
Miðvikudagur 7. marz 1956 — ÞJÓÐVILJINN — <7 fí ÁRNI ÚR EYJUM: ATÓMSTÖDIN og villidýrabúríö FYRRI HLUTI i ★ ÍSLAND HEFUR EIGNAZT STÓRSKALD ,Vel gefinn, ungur mennta- maður, Kristján Albertsson upphefur ritdóm sinn um Vef- arann mikla frá Kasmír, í Vöku 1927 með þessum orð- um: „Loksins, loksins tilkomu- mikið skáldverk, sem rís ■ eins og hamraborg upp úr ! flatneskju íslenzkrar ljóða- ' og sagnagerðar síðustu 1 ára! Island hefur eignast 1 nýtt stórskáld — það er ! blátt áfram skylda vor að ! viðurkenna það með fögn- ! uði. Halldór K. Laxness ' hefur ritað þessa sögu á 24. 1 aldursári sínu. Ég efast um, 1 að það komi fyrir einu sinni ! á aldarf jórðungi, að skáld á ' þeim aldri semji jafn snjallt verk og þessi saga 'hans er. ! Á 64. gráðu norðlægrar v.,1. breiddar hefur það aldrei :!;] fyr gerzt.“ . Fyrir þessi spámannlegu ummæli velur stærsta blað landsins, Morgunblaðið, Krist- jánAlbertsson til þess að færa höfundi Ve'arans hamingju- óskir í tilefni af veitingu Nób- elsverðlauna, 28 árum síðar. Daginn eftir að sænska Aka- demian kastaði ellibelgnum, ef svo mætti segja, birtir Morgunblaðið heillaóskir Vökuspámannsins frá 1927 til lárviðarskálds heimskringl- unnar 1955. — Að vísu eru heillaóskir Kristjáns bundnar nokknim fyrirvara: „Við sem ekki erum sæm- herjar hans í stjórnmálum myndum gera það (þ. e. að samfagna skáldinu) af enn heilli hug ef nokkurt viðlit væri að gleyma því, að skáldið hefur um langt skeið af miklu kappi notað penna sinn til framdráttar hinum versta málstað í ís- lenzku þjóðlí'i á síðari tím- um, oft með þeim liætti, að miklu skáldi var sízt sómi að því,“ segir hann. Hann segir enn- fremur: „Sænska Akademían hefur vafalaust viljað heiðra elztu ’ bókmenntaþjóð norðursins ' um leið og hún heiðraði ! Laxness. Því miður mun mörgum þykja sem sá heið- ur hefði verið enn vafa- lausari, ef skáldið hefði ekki skrifað jafn-smekk- lausa og rangindafulla sögu um Island nútímans og At- ómstöðina.“ Kristján Albertsson getur í þessari grein sinni um öll helztu skáldverk Laxness — fram að Atómstöðinni, viður- kennir snilld þeirra og þakkar hana af þeim skilningi, sem vænta mátti af höfundi Vöku- ritdómsins, sem fyir er nefnd- ur. En þegar að Atómstöð- inni kemur, tekur gallið að flæða. ★ ATÓMSTÖÐIN SKAL VERA VOND BÖK Svo sem öllum mun í fersku minni, fögnuðu Islendingar mjög veitingu Nóbelsverðlaun- anna og menn lýstu fögnuði sínum einróma — og voru einhuga um að gleyma dæg- urþrasi og skoðanamun. Má segja, að öll þjóðin hafi sam- einazt um heillaóskir skáldinu til handa — utan þessi eina hjáróma rödd. Hvers vegna þessi rödd? Vegna Atóm- stöðvarinnar. — Mikið hlýtur Atómstöðin að vera vond bók, gætu ókunnugir hald- ið, að kúltíveraður heims- borgari og diplómat skuli gerast svo ósmekklegur að geta ekki einusinni óskað skáldinu til hamingju, án þess að hreyta í hann ónotum um leið, bara vegna þessarar einu bókar. Þetta var 28. október. — Hví í ósköpunum lét jafn-fág- aður menningarblysberi og Kristján Albertsson sér ekki nægja óblandnar heillaóskir þennan fágnaðarríka haust- dag? Geyma bara skammirn- ar þangað til 29. okt. — eða jafnvel fram yfir mánaða- mót. Nei, þörfin til að úthúða Atómstöðinni var svo sterk, að uppeldi, menntun og lang- dvalir með hámenningarþjóð- um mátti sín einskis á móti henni — maðurinn hlaut að gera sig að viðundri, til þess að vera köllun sinni trúr. Þann 6. nóvember birtir fylgirit Morgunblaðsins, Les- bók, þýðingu á grein eftir Jörgen Bukdahl: „Nóbelsverð- laun Laxness". Hann ritar mikið og óblandið lof um Sölku Völku, um Sjálfstætt fólk og bókaflokkinn um Ólaf Kárason. En síðan tekur skáldinu að fará aftur: „Seinni skáldrit Laxness standa eltki þessari skáld- sögu (Ól. Kárasyni) á sporði um sanna skáldlega andagift," segir hann. Þó hrósar hann Islandskluklcunni að mörgu leyti og viðurkennir snilldina í henni, — en: „Hér hefur samspil samtíð- arþjóðlífslýsingar og nú- tímaviðhorfa orðið hemill á sögu’egu hugarflugi Lax- ness“ („Anakronismus“, sagði Sigurður Grímsson, þegar íslandsklukkan var sýnd á sviði). Um Atómstöðina segir Buk- dahl: „1 Atómstöðinni, sem á að lýsa Islandi á hernámsárun- um, bregst honum hin al- kunna hæðni og bitur á- deila. Hér verður ádeUan á Bandaríkin (Bandaríki Norður-Ameríku ?) mátt- laus, og vaxandi glettni hans verður að gálgaglettni og fyrir það verða atburð- irnir oft að sundurlausmn hrærigraut. Skáldskapurinn og ádeilan, sem studdu hvort annað, þegar honum tókst bezt upp, grafa hér hvort undan öðru og hafa gert bókina að níði, þar sem öll hin góðu skáldlegu tilþrif verða eins og ólífræn innskot.“ Bukdahl þessi virðist hald- Inn einhverju USA-ofnæmi, eins og fleiri; — í Atómstöð- inni snýst ádeilan ekki gegn Bandaríkjum N-Ameríku, heldur gegn íslenzkum óláns- mönnum fyrst og fremst, eins og síðar mun vikið að. En skemmst er frá því að segja, að eitthvað á þennan veg eru ummæli flestra borgaralegra ritdómara um Atómstöðina, þ. e. a. s. þeirra, sem ekki hafa tekið þann kostinn að þegja alveg um hana. T.d. má benda á, að þegar Gunnar Thorodd- sen tók sér fyrir hendur að bjarga heiðri ofstækisfullra stjórnarvalda (af mikflli smekkvísi, svo sem við var að búast), hrósaði hann öllum helztu verkum Laxness — nema Atómstöðinni, hann minntist ekki á hana. Og sannleikurinn er sá, að miklu er sterkari ádeila þagnar Gunnars Thoroddsens en f jar- stæðuorð Kristjáns Alberts- sonar. ★ IIVERSVEGNA VOND BÓK? En hvað um Atómstöðina? Hversvegna leggja menn þetta ofurkapp á að níða verk þetta niður — eða að reyna að þegja það í hel? Rifjum upp ummæli Kristjáns og \ Bukdahls — en samkvæmt þeim er bók þessi bæði vond og ómerkileg. Aftur á móti telja þeir bækur eins og Sölku Völku, Sjálfstætt fólk og sögu Ólafs Kárasonar Ljósvíkings mikil listaverk. — Sú var þó tíð, að allar þessar bækur vöktu mikinn úlfaþyt. I þeim öllum er ádeila, oft hatrömm. Er t. d. hægt að hugsa sér öllu sárbiturri ádeilu en frá- sögnina af með"erð þeirri, er Ólafur Kárason sætti að Fæti undir Fótarfæti ? — Allir vita, að sú lýsing er sönn. Menn- ing vor var ekki stærri í snið- um en svo, að líf hunda var hátíð lijá lífi hreppsómaga. Þannig mætti nefna fjölmörg dæmi um ádeilur í þessum verkum, sem nú era lofsungin af öllum. Atómstöðin getur því ekki verið forkastanleg bók fyrir það eitt að vera ádeílurit. — „Smekklaus", segú' K. A. — Er þá ádeilan í Atómstöðinni eitthvað „smekklausari“ en í fyrri bókum Halldórs Kilj- ans? Er verr farið með hinar borgaralegu týpur? — Síður en svo. Pétur þrihross og Jú- el J. Júel kannast flestir við — og ekki var Rauðsmýrar- maddaman beinlínis aðlaðandi kvenmaður. Aftur á móti er Búi Árland í Atómstöðinni mjög kúltiveraður maður, að- al 'ulltrúi borgarastéttarinnar. Börnin eru að vísu illa upp alin, en elsku'eg börn eins og gerist, und’r skelinni — já, og í skáktafli minkaþjófanna litlu birtist meira að segja trú höfundar á sigur siðmenning- arinnar, mitt í brjáluðu „geimi“ líðandi stundar. — Frúin er náttúrlega aumkvun- arlegt fífl, svo sem efni standa til, — enda sér enginn á henni, „að hún sé stúdent“. Nei, hvernig sem maður veltir þessu fyrir sér, er á- deilan í Atómstöðinni sízt ó- vægilegri en í öðrum ritum HaPdórs. — Jafnvel forsætis- ráðherrann, sem er mjög „kari- keraður“, og tvímælalaust ber að skoða sem „týpu“ er síður en svo verr með farinn en t.d. Júel J. Júel. — Hvað er það þá, sem gerir Atómstöðina svona vonda bók í augum borgaralegra. ritdómenda? ★ NLTÍMASAGA, SEM AFHJIPAR HÖFUÐ- GLÆP ÍSLENZKA AUÐVALDSINS I Atómstöðinni er greint frá tilburðum íslenzkra, stjóniarvalda til þess að selja. erlendu stórveldi í hendur ný- endurheimt íslenzkt sjálf- stæði. Hún segir frá stórfelld- ustu þjóðsvikum íslenzkra manna frá upphafi Islands- byggðar, svo að svik gissur- anna á Sturlungaöld eru sem barnabrek hjá þeim. Atómstöðin skal vera vond bók af því hún afhjúpar höf- uðglæp íslenzka auðvaldsins. Hún er ekki tiltölulega mein- laust háð um íslenzka menn eins og þríhrossið, júelinn og rauðsmýrarmaddömuna heldur flettir hún ofan af þátttöku íslenzkra valda- manna í sameiginlegum dauðadansi hins alþjóðlega kapítalisma. Það er ráðizt á það allra helgasta, sem varið skal með kjafti og klóm — eða atómsprengjum ef því er að skipta. Atómstöðin er viðvörun og ákæra í senn, og sárbiturt vopn til varnar nýendur- heímtu íslenzku frelsi og sjálfstæði. — Það heitir raun- ar á máli Kristjáns Alberts- sonar, að skáldið hafi „notað penna sinn til framdráttar hinum versta málstað í ís- lenzku þjóðlífi.“ — Já, sínum augum lítur hver á silfrið. Það er því von hann telji, að heiðurinn að fá Nóbelsverð- laun „hefði verið enn vafa- lausari, ef skáldið hefði ekki skrifað jafn-smekklausa og rangindafulla sögu“ — — o. s. fl’V. Bukdahl er borgari eins af Atlanzríkjunum, þar sem meira að segja nafn bókarinn- ar er tabú — og e. t. v. er það í krafti þess, hverja af- stöðu hann tekur? Annað kemur og til greina, að því er íslenzlra borgara- stétt varðar: Atómstöðin er nútímasaga, fjallar um það, sem gerist samtímis því hún er rituð. Hún bregður npp myndum af lí"i íslenzks fólks, að vísu dregnum skörpum lin- um og máluðum sterkum lit- um. Og myndir þessar eru orpnar sterkri birtu, svo að andstæður ljóss og skugga skera oft í augun. En gegn slíkri birtu stoða engin sól- gleraugu. — Látum það vera, þó að örvar skáldsins beinist að mönnum og málefnum frá í gær eða fyrragær — bara ef nútíminn fær að vera í friði, og að landsfeðurnir fái vinnufrið! Sem sagt: Atómstöðin er hættuleg bók, af því að hún berst fyrir málstað Islands, gegn a'sali landsréttinda - og hún skýrir frá þeim myrkraverkum, sem verið er að vinna einmitt nú í dag. - Það svíður undan henni eins og musterissvipu —■ þeirri svipu, sem alla táma hefur húðstrýkt þá, sem hafa gert sér það að verzlunarvöru, sem öðrum var heilagt. ★ ÞJÓÐIN TÓK SJÁLF Á MÓTI SÍNU SKÁLDI Ault þess sem sagt hefur Framhald á 11. síðu, Kristján Albertsson lagði sig um skeið í framkróka til að koma í veg fyrir að Atómstöðin yrði pýdd á erlendar tungur. Það mistókst gersamlega; Atómstööin er pegar einhver víðkunnasta skáídsaga Kiljans, kom m.a. í geysistóru upplagi hjá stœrsta forlagi Vestur-Þýzkalands í haust. Myndin sýnir kápuna á rússnesku útgáfunni.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.