Þjóðviljinn - 18.05.1956, Síða 6
■Cf&') ~ ÞJÓÐVILJINN — Pöstudagnr 18. xnai 1956
ÞlÓÐVILJINN
Útgefandt:
I Sameiningarflokkur alpýöu — Sósíalistaflokkurinn
Kýs þjóðin „óvinsælar ráðstafanir"4?
að virðist. hafa komið við
hjartað á Hræðslubandalag-
inu er flutt var á þingmála-
fundi á Siglufirði tillaga um
að mótmaela hinum þungbæru
álögum ríkisstjórnar Sjálfstæð-
isflokksins og Framsóknar.
Hinn nýi bardagagarpur Al-
þýðuflokksins, Áki Jakobsson,
aftraði þvi að slík tillaga feng-
ist borin undir atkvæði. Al-
þýðuflokkurinn hefur þó talið
sig andvígan þeim gífurlegu á-
lögum, en virðist' nú vera orð-
inn svo samdauna Eysteins-
klíkunni, að ekki megi minn-
ast á mótmæli framar.
ÍIT'inmitt þær álögur eru á-
þreifanlegt dæmi um heil-
indi Eysteins og kumpána i
bandalaginu, og gefa til kjmna
hve mikið mark er takandi á
yfiriýsingum þeírra um end-
urfæðingu Framsóknarflokks-
3ns. f allan vetur sem leið og
sennilega lengur stóðu yfir
samningar Framsóknar og Al-
þýðuflokksins, um samfylkingu
í kosningum. En jafnframt
þeim, að því er virðist með
fullri vitund Gylfa og annarra
hægrimanna Aiþýðuflokksins,
var unnið að því með Sjálfstæð-
.isflokknum að skella álögunum
miklu á alþýðu manna. Sam-
tímis því, sem Eysteinn var
að semja við Gylfa og Harald
Guðmundsson um bandalag,
gekk ekki hnífur á milli hans
og íhaldsráðherranna um á-
rásirnar á alþýðu manna. Ey-
steinn og Steingrímur Stein-
þórsson hafa ekki mótmælt
þeirri yfirlýsingu ráðherra
Sjálfstæðisflókksins að alger
samstaða hafi verið i ríkis-
stjórninni um álögurnar.
Framsókn hikaði ekki við að
ganga að þessum skítverk-
um með íhaldinu rétt fyrir
kosningar. Jafnframt hafa for-
ingjar hennar hvað eftir ann-
að ymprað á, að ein meginrök
fyrir kosningum í sumar séu
þau, að framundan séu svo
„óvinsælar ráðstafanir“ ' að
ekki sé unnt að framkvæma
þær nema kosningar séu ný-
afstaðnar. Sú hugmynd bregð-
ur upp þokkalegri mynd af
stjórnmálasiðferði Eysteins og
kumpána, en gefur einnig mik-
iivægar bendingar um það,
hvað Framsókn og Sjálfstæð-
isflokkurinn ætlist fyrir að
kosningum afstöðnum. ef þess-
ir flokkar fá ekki þann skell að
þeir telji ófært að ráðast gegn
fólkinu.
að er ekkert. launungarmál,
þó leynt hafí átt að fara,
að ríkisstjórn Sjálfstæðis-
flokksins og Framsóknar-
flokksins hefur látið gera á-
ætlanir um „íausn“ þess efna-
hagsöngþveitis, sem þeir eru
samsekir um. Þar er áætlun
tim gengislækkim og kaupbind-
ingu, og má marka hin leyni-
legu tengsl á milli flokkanna
af þvi pukri, sem bæði Sjálf-
stæðisflokkurinn og Framsókn
hefur haft um þær fyrirætl-
anir.
Sjálfstæðisflokkurinn gefur
opinskátt til kynna i blöð-
um sínum að hann sé fús að
halda áfram því afturhalds-
samstarfi við Framsókn sem
stefnt hefur efnahagsmálum
landsins í öngþveiti. Hvað eft-
ir annað eru lesendur Morgun-
blaðsins minntir á að þeir
skuli ekki kippa sér upp við
það, þó Framsókn segist ætla
að taka sér frí úr íhaldssam-
vinnu einu ári áður en kjör-
tímabil rennur út, og rjúki í
kosningar sem „vinstriflokk-
ur“. Bent er á með dæmum,
að þetta sé að verða skilorðs-
bundíð viðhorf hjá Framsókn,
og valdi því nálægð kosninga.
Og íhaldsmenn eru huggaðir
með dæmum um það hve fús-
lega Framsókn skríður að fót-
um Ólafs Thórs og Bjarna
Ben. að loknum kosningum,
og sé þá allt eins viljug og
fyrr í dansinn um hernáms-
gróða og helmingaskipti, um
misnotkun ríkisvaldsins gegn
alþýðu.
IT’n nú ganga hægrimenn Al-
þýðuflokksins með til leiks-
ins. Þeir gera þann hluta
flokksihs sem fylgir þeim að
einskonar deild úr Framsókn-
arflokknum. Og þeir ganga til
þess leiks án þess að hafa
minnsta loforð fyrir því, að
Framsókn sé orðin því afhuga
að „Ieysa“ efnahagsöngþveitið
á kostnað alþýðunnar, með
þeim „óvinsælu ráðstöfunum",
sem' Eysteinn lét gera áætlun
um í samvinnu við Ólaf Thórs
og Bjarna Ben. Gæti meira að
segja margt bent til að hægri-
menn Alþýðuflokksins hefðu
þegar neyðzt til að samþykkja
að ganga með til þeirra „óvin-
sælu ráðstafana", með eða án
samfélags við Sjálfstæðisflokk-
inn, að loknum kosningum.
■%Iarla mun hægt að ganga
* lengra í óheilindum gegn
alþýðu manna en gert er með
kosningabaráttu Hræðslu-
bandalagsins. Enginn kjósandi
sem kýs frambjóðendur þess,
hefur hugmynd um hvers kon-
ar stjórnarfar hann er að leiða
yfir sig og þjóðina alla. Hins
vegar er sjálf tilvera Hræðslu-
bandalagsins vottur þess, að
krafan um vinstri stjórn og
nýsköpunarstefnu er orðin svo
rík með þjóðinni, að hún hef-
ur knúið afturhaldsmenn
Framsóknar og Alþýðuflokks-
ins til undanhalds í orði. Sýni
kjósendur. nógu rækilega, að
þeir vilji vinstri stjórn og ný-
sköpunarstefnu, með því að
senda Alþýðubandalagið á
þing sem sterkan þingflokk, er
ásÆæða til að vona að vinstri
öfl Framsóknar takist að knýja
flokkinn til stefnubreytingar,
— einnig í verki.
Vilja haía frjálsræði
í okurlánastarfsemi
Ætlar Bjarni Benediktsson að íresta málshöíð-
unum á fjármálamennina fram yfir kosningar?
Þjóðviljinn vakti fyrir nokkrum dögum athygli
á pví að mál fjármálamanna peirra sem rann-
sóknarnefnd Alpingis ákœrði hefðu nú legið lijá
Bjarna 'Benediktssyni um tveggja mánaðu skeið
án pess að hann hefði látið höfða mál gegn nokkr-
um peirra. Spurðist Þjóðviljinn fyrir um hverju
petta sœtti, hvort œtlun ráðherrans vceri ef til vill
að fresta pessum lærdómsríku
hneykslismálum fram yfir kosning-
ar— eins og svo mörgu öðru. En ráð-
herrann hefur ekkert sagt og ekki
heldur málgögn hans.
Af pessu tilefni hefur pað rifjazt
ipp fyrir mörgum hversu tregur
Ijarni Benediktsson var til að taka
okurmálin nokkrum tókum, liann
lýsti yfir pví á Alpingi að engar sannanir lœgju
fyrir um nokkra okurlánastarfsemi og heimtaöi
að Einar Olgeirsson legði sjálfur
annanir á borðið pegar hann krafð-
zt aðgerða í málinu. Einnig minn-
ist margir pess að Lárus Jóhannes-
'.on, formaður Lögmannafélagsins og
'rambjóðandi Sjálfstœðisflokksins á
Veyðisfirði lýsti yfir pví á sínum
tíma að allt tal um okurlánastarf-
semi væri fjarstœða ein; á pví sviði
sem öðrum ætti að ríkja sem mest frjálsrœði.
Ef til vill œtlar Bjarni Benediktsson að fresta
öllum áðgerðum fram yfir kosningar í von um aö
fá pá aðstöðu til að framkvæma frjálsrœðiskenning-
una einnig á pessu sviði.
k_________________________________________._j
„Tvær
manneskjur64
Tíminn segir í gær að vest-
rænar þjóðir hafi ekki mikið
á samvizkunni þótt „tvær
manneskjur“, Rosenberg-hjón-
in, hafi verið teknar af lífi eft-
ir réttarhöld sem langflestir
heiðarlegir menn flokka til
réttarglæpa. En því miður er
hér um meira en tvær mann-
eskjur að ræða. Þeir skipta
tugum þúsunda sem hafa ver-
ið fangelsaðir eða ofsóttir á
annan hátt fyrir stjórnmála-
skoðanir sínar í BandaríKjun-
um. Þeir skipta tugum þús-
unda sem Bretar hafa svipt
lífi á Kýpur, Malakkaskaga
og Kenýja fyrir það eitt að
berjast fyrir sjálfstæði landa
sinna. Þeir skipta tugum þús-
unda sem Frakkar hafa svipt
lífi í Marokkó, Alsír og Indó-
kína fyrir sömu sakir. Og man
Tíminn ekki kjarnorku-
sprengjuárásir Bandaríkjanna
á Hírósíma og Nagasaki sem
afmáðu hundruð þúsunda af
yfirborði jarðar, en sú árás
hefur verið talin upphaf kalda
stríðsins.
Þjóðviljinn hefur fordæmt ó-
hæfuverk þau sem unnin voru
af báðum aðilum á tímabili
kalda stríðsins. Tíminn virðist
hins vegar ætla að halda á-
fram að verja stórglæpi vest-
rænna valdamanna. Setur ekki
„hroll að venjulegu fólki" eins
og Tíminn komst að orði í
gær?
6563 - 86832
eru símanúmerin á skrifstofu
Alþýðubaiidalagsins í Hafn-
arstrætl 8.
WM-
RAFGEISLAHITUN
Hollasta og fullkomnasta húsahitun,
sem nú pekkist
Fylgizt meö tímanum
Hinar eldri orkulindir, kol og
olía, ganga nú óðum til þurrðar.
Að fáum árum liðnum mun raf-
magnið koana í þeirra stað, alis-
staðar þar sem það er mögulegt.
Rafmagnið tekur öllum öðrum
orkugjöfum langt fram að þæg->
indum og hreinlæti, en það er of
dýrt til að láta það fara til spillis.
í úreltum hitunartækjum. ■
Eswa-kerfið er eina rafhitunin,
sem reksturslega þolir samanburð
við eldri hitunaraðferðir.
Þægindin, hreinlætið og hollust-
una hefur það fram yfir allt
annað.
CEISLRHITUN
___Garðastræti 6 sími 4284
M
EINKAUMBOÐ FYRIR NORSK ESWA A/S, OSLO