Þjóðviljinn - 11.09.1956, Blaðsíða 10
10) — ÞJÓÐVHJINN — Þriðjudagur 10. september 1956 -
Yfir 100 lendingar Pan American á
Keflavíkurflugvelli í ágúst
Frá 1. til 30 fyrra mánaðar hafa 100 flugvélar frá
bandaríska flugfélaginu Pan American lent á Keflavíkur-
flugvelli.
1 frétt frá Pan American seg-
ir að félagið hafi 8 lendingar
áætlunarvéla í Keflavík á mán-
uði, og séu það ekki mikil við-
skipti þar sem flugferðir Pan
American milli Evrópu og Am-
eríku skipti hundruðum á
mánuði. Aðalannatíminn er frá
apríl til október. Á tímabilinu
apríl-júní ferðast ameríkumenn
í tugþúsundatali til Evrópu og
til baka í júlí-september.
Síðari hluta sumars eru há-
vindar algengir á Norður-At-
i Ný sending:
Jerseykj ólar
Margir litir
Hvítar blússur
Fallegt úrval-
QuUfoss
A ð a 1 s t r æ t i
Haustkjólar
Síðclegiskjólar
Cocktailkjólar
HARKAÐURINN
Haínarstræti 5
lanzhafi frá vestri til austurs,
og benzíneyðsla flugvélanna á
syðri leiðinni því mikil á vest-
urleið.
Þessir sterku vestanvindar
eiga sér ekki stað norður und-
ir Ishaf; heldur fremur öfugt,
að þar eru austanvindar. Það
borgar sig því, þegar svo er á-
statt fyrir flugvélarnar að fara
nyrðri leiðina um ísland, þegar
þær fara vestur vegna þess, að
þær hafa meðvind í stað mót-
vinds.
Flugvélarnar hafa benzín sem
endist frá Evrópu til Keflavíkur
og í stað þess að fylla geymana
geta iþær tekið nokkrum far-
þegum fleira eða meiri flutning.
Með þessu fylla þær geyma sína
í Keflavik áður en þær leggja
vestur um haf til Bandaríkj-
anna.
Flestar Pan American vélar
taka allt að 5000 gallón í Kefla-
vík á vesturleið. Tollur af
hverju gallóni til ríkissjóðs eru
ca 7 cent, auk þess venjuleg á^
lagning foenzínsala fyrir dreif-
ingarkostnaði. Þess skal getið,
að Pan American hefur hvorki
kvartað undan tollum né álagn-
ingu. Það, sem hver flugvél gef-
ur af sér lauslega áætlað eru
7-10.000 kr. í tolla og dreyfing-
arkostnað af benzíni. Hver flug-
vél er með frá 60-90 farþega
og þegar 5 flugvélar eða fleiri
eru í einu á Keflavíkurflugvelli,
eru þar um 2-300 manns. Engin
skilyrði eru þar fyrir svo margt
fólk að fá sér þar hressingu og
sætin eru þar aðeins fyrir kon-
ur og ungbörn. Hinir farþeg-
arnir þurfa að rangla um og
bíða þar til flugvélin fer aftur,
sem oft tekur nokkra klukku-
tíma.
Þar sem flugvéium hefur
f jölgað stórlega síðustu árin og
stækkað, er brýn nauðsyn á um-
bótum á þessum alþjóða við-
komustað.
Flugvélar lenda yfirleitt ekki
á Keflavíkurflugvelli nema þær
séu tilneyddar af veðurfarsá-
stæðum, en á Shannon á Ir-
landi verða flugvélarnar oft að
lenda, vegna fyrirmyndar fyr-
irgreiðslu og vegna kröfu far-
þega, án nokkurrar þarfar af
veðurfarsástæðum.
(Frá Pan American. Aðalum-
boðsm. G. Helgason & Mel-
sted h.f.).
Yerðar reisi sameiginleg kyadi-
sti íyrir Hálogalandshverfi?
Hitaveitunefnd falin athugun máisins
Á bæjarstjórnarfundi sl. fimmtudag bar Guðmundur Vigfús-
son fram eftirfarandi tillögu:
„Bæjarstjórnin ályktar að ítreka fyrri samþykkt sína
um að fela hitaveitunefnd að láta hiö allra fyrsta farai
fram athugun á því hvort ekki sé hagkvæmt að bærinn
láti reisa sameiginlega kyndistöð fyrir Hálogalands-
hverfi“.
Guðmundur gerði að umtals-
efni á bæjarstjórnarfundinum
hve hagkvæmara væri að bær-
inn reisti sameiginlega kyndi-
stöð fyrir Hálogalandshverfið
en að íbúar þess hafi hver sína
Stef þakkar veitta
aðstoð
Forseti Islands hefur nýlega
undirskrifað fyrir Islands hönd
skilríki fyrir aðild Islands að
Genfarsamþykkt Sameinuðu
þjóðanna, UNESCO, um aukna,
gagnkvæma höfundaréttar-
vernd.
Af því tilefni var í upphafi
aðalfundar STEFs nýlega utan
dagskrár samþykkt einróma
svohljóðandi þakkarávarp:
„Aðalfundur STEFs þakkar
Alþingi, höfundaréttarnefnd og
öðrum opinberum aðiljum starf
og stuðning við undirbúning að
inngöngu íslands í Genfarsam-
bandið um höfundarétt, en með
henni er íslenzkum höfundum
m.a. loks tryggð samskonar
vernd í Bandaríkjunum og
Bandaríkjamenn fá notið hér,
og standa því vonir til að
tekjur íslenzkra höfunda er-
lendis megi fyrir það aukast.
Sérstaklega þakkar fundur-
inn formanni höfundaréttar-
nefndar Jóni Ásbjörnssyni
hæstaréttardómara og Þórði
Eyjólfssyni hæstaréttardómara,
svo og þeim nefndarmönnum
Sigurði Reyni Péturssýni hæsta-
réttarlögmanni, Tómasi Guð-
mundssyni skáldi og Gunnari
Einarssyni, fulltrúa Bóksalafé-
lags Islands, merkileg og ræki-
leg nefndarstörf þeirra í þágu
höfundaréttarmála".
Heita vatnið í Höfða sé hagnýtt
Verði leitt init í kerfi hitaveitunnar í haust
Á síðasta bæjarstjórnarfundi bar Guðmundar Vigfússon fram
sVohljóðandi tillögu:
„Bæjarstjórnin beinir því til hitaveitunefndar að gera
ráðstafanir til að hagnýta þegar í vetur vatnsmagn það,
er fengizt hefur úr borholunni viö Höfða, með því að
bæta því inn á kerfi núverandi hitaveitusvæðis“.
Boranir eftir heitu vatni í
Höfða hafa borið þann árang-
ur að fengizt hafa 6 sek/1 af
96 stiga heitu vatni. Höfða-
hverfisbúar hafa eðlilega óskað
þess að vatn þetta yrði ein-
mitt notað til þess að hita upp
húsin í hverfinu. Þótt sú ósk
þeirra væri í alla staði eðlileg
myndi þó ekki vera hægt að
verða við henni á næsta vetri,
og því bæri að nota vatnið, en
láta það ekki renna ónotað í
sjóinn. Lagði hann því til að
vatni þessu yrði bætt inn í
kerfi Hitaveitunnar fyrir vet-
urinn.
Tillögu Guðmundar var vís-
að til hitaveitunefndar.
LIGGUR LEIÐIN
xx x
NPNKIN
KHAKI
miðstöð. Snemma í sumar var
samþykkt tillaga þess efnis frá
Bárði Daníelssyni, en ekki er
vitað hvort það né annað hef-
ur verið gert í því máli enn,
Nú eru byrjaðar byggingafram-
kvæmdir í hverfinu og orðið
tímabært að taka endanlega á«
kvörðun um málið.
Tillaga Guðmundar var sam-
þykkt samhljóða.
Þeir stjórna Stefi
Á aðalfundi STEFs voru eft-
irtaldir menn kosnir í stjórn:
Jón Leifs formaður, Skúli Hall-
dórsson, Þórarinn Jónsson,
Snæbjörn Kaldalóns og Sigurð-
Reynir Pétursson hæstaréttar-
lögmaður. — Endurskoðendur
voru kjörnir: Friðrik Bjaxma-
son ■ og Helgi Pálsson, en til’
vara Siguringi E. Hjörleifsson.
Námskeið í
spænskn í
Bareelona
Eins og undanfarin ár, gengsll
háskólinn í Barcelona nú fyrir
nániskejði í spanskri tungu og
bókmenntum fyrir erlenda náms-
menn, og stendur námsskciðið
yfir frá 15. október 1956 til 311.
maí 1957.
Aúk spönsku er hægt að
leggja stund á margar aðirarl
xxámsgreinar í sambandi við
námsskeiðið, og að þessu sinnl
verður tejón þar upp kennsla í
þjóðlegri spanskri tónlist, og
mun háskólinn sjá fyrir sérstakri
söngkennslu í þessu sambandi.
Heimilt er að hefja námið hve-
nær sem er á því tímabili, er
námskeiðið stendur yfir, og ekkl
er krafist sérstakra prófa sem
skilyrðis til inntöku á námskeið-
ið.
Þéir, sem þess óska, geta
þreytt próf að námsskeiðintf
loknu, og öðlast prófvottorð þar
að lútandi. Aðrir þátttakendur fá1
viðurkenningu á að hafa sótifc
kennslu.
Á síðasta ári tóku allmargiri
íslendingar þátt í mámskeiðl
þessu, en alls sóttu það á því
ári nemendur frá 33 þjóðum.
Allar nánari upplýsingar varð-
andi námsgreinar, kennslugjald
og annað námskeiðinu viðvíkj-
andi veitir ræðismaður Spánar,
Magnús Víglundsson, Bræðrta-
borgarstíg 7, Reykjavík.