Þjóðviljinn - 15.09.1956, Page 12
um
p á stórm
um Súezs
Htnir erlendu hafnsögumenn á förum
heim, Egypfar taka Wð allri stjórn
Hinir erlendu starfsmenn Súezskurðarins eru nú á för-
um heim og siðasta skipalestin undir stjórn erlendra
hafnsögumanna fór frá Port Said um skuröinn í gær og
var væntanleg til Port Taufiq við suðurenda skurðarins
um miðnætti. Líkur eru taldar á að Egyptum muni
reynast erfitt að halda uppi eðlilegum siglingum um
skurðinn, á.m.k. fyrst um sinn.
Hin brezk-franska stjórn
hiiis grimla Súezskurðarfélags
hafði fyrr í vikunni skipað hin-
um erlendu starfsmönnum
skurðarins að leggja niður
störf sín fyrir 15. þ.m. Mikill
meirihiuti þeirra íilýddi þess
um fyrirmælum og stjórn fé-
lagsins tilkynnti í gær, að alls
myndu 352 starfsmenn skurð
arins sem til þessa hafa verið
í Egyptalandi leggja niður
störf, þar af um 90 hafnsögu-
menn. Nokkrir hinna erlendu
hafnsögumanna verða áfram
Egyptalandi.
Síðasta skipalestin undir
erlendri stjórn.
í gærmorgun lagði síðasta
skipalestin sem erlendir hafn-
sögumenn stjórna af stað -frá
Port Said suður um skurðinn
og var væntanleg til Port
Taufiq á miðnætti í nótt sem
leið. Aðeins fjögur skip voru í
þessari lest, enda þótt 10 skip
biðu í Port Said eftir að kom-
ast suður skurðinn, og mun
það hafa stafað af því, að ekki
voru nægilega margir hafn-
sögumenn viðlátnir til að sigla
skipunum suður.
Hið egy izka Súezskurðarfé-
lag hefur nú aðeins 60 hafn-
sögumenn, en samt eru Egypt-
ar sagðir vongóðir um að þeir
geti haldið uppi eðlilegri um-
ferð um skurðinn. Að jafnaði
fara um 40 skip um skurðin'n
á hverjum sólarhring, og tek-
ur siglingin um 12 tíma.
'Undirbúinngi notendasamtaka
haldið áfram.
Þrátt fvrir hinar slæmu und-
Metuiðíerð um
vöil í ágúst
í ágústmánuði s.l. Ie(ntu á
Keflavíkurflugveili samtals 459
farþegaflugvélar, hefur umferð
aldrei áður verið svo mikil í ein-
um mánuði.
21918 farþegar fóru um flug-
völlinn í mánuðinum. Frá flug-
vellinum fóru samtals 319 far-
þegar en til vallarins komu 234.
Eftirtaiin flugfélög áttu flestar
þeirra flugvéla, er viðkomu
höfðu:
PAA .................. 102 vélar
BOAC .................. 81 —
TWA ................... 80 —
Flying Tiger Line .... 40 —
KLM .................. 24 —
SLICK ................ 22 —
AIR FRANCE ............ 16 —
Brúttó tekjur flugmálastjórn-
arinnar í mánuðinum munu
verða allt að kr. 1,8 milljónir, í
erlendum gjaldeyri.
irtektir sem fyrirætlun vestur-
veldanna um stofnun notenda-
samtaka Súezskurðarins hefur
fengið um allan heim, eru þau
ekki fallin frá henni. Bú,izt er
við að þegar á mánudag muni
utanríkisráðherrar Bretlands,
Frakklands og Bandaríkjanna
koma saman á fund í London
til að undirbúa stofnfund sam-
takanna og nokkrum dögum
síðar, kannske þegar á mið-
vikudag, muni hefjast í London
ráðstefna þeirra ríkja sem þau
bjóða aðild að samtökunum.
Þegar samtökin hafa verið
formlega stofnuð má búast við
því, að þau fari þess á leit við
egypzku stjórnina að hún taki
upp samvinnu við þau, en eng-
inn vafi er á, að egypzka
stjórnin mun hafna slíkri mála-
leitan.
Samtökin gagnslaus án sam-
vinnu Egypta.
Erfitt er að spá nokkru um
hvað þá mun taka við, en hins
vegar augljóst að samtökin
verða með öllu gagnslaus, ef
engin samvinna næst við
egypzk stjórnarvöld. Skip á
vegum samtakanna myndu alls
ekki geta siglt um skurðinn
nema hin egypzka stjórn skurð-
arins sé með í ráðum, og vilji
hún það ekki, myndi engin önn-
ur leið vera fær fyrir samtök-
in en að setja her á land á
Súezeiði og taka stjórnina af
Egyptum. Og það myndi þýða
styrjöld.
Samvinna við egypzk stjórn-
arvöld er nauðsynleg af mörg-
um ástæðum. I fyrsta lagi
§eta skipalestir sem um skurð-
inn fara aðeins mætzt á tveim
stöðum og umferðin um skurð-
inn verður því að vera nákvæm-
lega skipulögð af öllum þeim
aðilum sem skurðinn nota og
honum stjórna. Miklum erfið-
leikum myndi einnig bundið að
safna skipum saman í lestir, ef
notendasamtökin hefðu ekki
not af egypzkum höfnum.
Samvinna við Egypta er ó-
hjákvæmileg í öðru lagi vegna
þess að við E1 Qantara liggur
lyftibrú yfir skurðinn sem
byggð var eftir síðustu styrj-
öld. Hingað til hefur brúin að-
eins verið notuð átta klukku-
stundir á sólarhring svo að
hún lokaði ekki umferð um
skurðinn, en Egyptar eru ekki
lengur bundnir af neinum
samningum um það.
í þriðja lagi myndu notenda-
samtökin verða að hafa í þjón-
ustu sinni tvöfalt fleiri hafn-
sögumenn en ella, ef Egyptar
leyfa hafnsög\mönnum þeirra
ekki landvist í Egyptalandi.
Þar sem sigling um skurðinn
tekur 12 tíma hefur hingað til
Framhald á 5. síðu.
þJÖÐVILIINII
Laugardagur 15. september 1956 — 21. árg. ■— 210. tölublað
Bifvélavlrkjar é námskeiði
MlR-íundur í Gamla bíói á morgun
Þar koma m.a. fram tveir sovézku lista-
mannanna sem hér dveljast
MÍR heldur fund í Gamla bíói kl. 2 á morgun til þess
aö gefa félögum sínum kost á að kynnast sovézku nefnd-
unum sem hér dveljast um þessar mundir.
Þetta eru bifvélavirkjar þeir sem undanfarið hafa verið á nám-
skeiði því sem Volvobílasmiðjurnar sænsku hafa haldið hér.
í dag lýkur fyrra námskeið-
inu sem einn af verkfræðingum
Volvoverksmiðjanna, Ernst Lind-
ers hefur haldið hér. Eftir helg-
ina byrja námskeið fyrir annan
Herrabúðin
stœkkuð
Herrabúðin á Skólavörðustíg
2 hefur verið stækkuð og ger-
breytt.
Búðin hefur verið smekklega
innréttuð, en Sverrir Haralds-
son réði litavali og Sveinn
Kjarval teiknaði og sá um tré-
smíðavinnu, sem Trésmiðjan
h.f. Brautarholti annaðist.
Herrabúðin hefur, eins og
nafnið bendir til, allskonar
fatnaðarvörur fyrir karlmenn,
frakka, skyrtur, bindi, sokka,
húfur, hatta, sloppa, raksápur
o. s. frv., yfirleitt flestar
,,herravörur“ nema alföt.
Framkvæmdastjóri Herrabúð-
arinnar er Þorgrímur Tómas-
son en eigandi hennar 5 síð-
ustu árin hefur verið Elgur h.f.,
en búðin var stofnuð 1943.
Herrabúðin hefur aðra búð í
Vesturveri.
Á fundinum flytur Hákon
Bjarnason skógræktarstjóri er-
indi og sýnir kvikmynd. Hall-
grímur Jónasson flytur ræðu,
og formenn sovézku nefndanna
flytja ávörp. Þá koma fram á
fundinum óperusöngkonan Lav-
rova og píanóleikarinn Baskí-
roff.
Magnás
son sýnir
Magnús Á. Árnason listmál-
ari fer í dag með m.s. Gullfossi
utan á leið til Rúmeníu í boði
stofnunar þeirrar rúmenskrar,
sem sér um menningartengsl við
útíönd.
Hann mun halda málverkasýn-
ingu þar eystra, sem er hin
fyrsta sem íslendingur heldur í
Austur-Evrópu. Hann hefur með-
ferðis 30 olíumálverk og 8 tré-
skurðarmyndir.
(Frétt frá Vináttutengslum ís-
lands og Rúmeníu).
Vélskólann vantar nauð-
synleg kennslutæki
Bif vélavirkj anámskeiðið,
sem sagt er frá á öðrum stað,
er haldið í Vélskólanum. Með-
al ræðumanna þar, þegar
blaðamenn litu inn á nám-
skeiðið í gær, var Gunnar
Bjamason skólastjóri Vél-
skólans. Tók hann það fram
að þótt skólinn hefði lagt til
húsakynni undir námskeiðið
bæri ekki að taka það sem á-
róður frá skólans hálfu fyrir
Volvobílum, heldur myndi
fleiri smiðjum heimilt að
halda þar námskeið.
Hann kvað Vélskólann hafa
upphaflega verið miðaðan við
að mennta vélstjóra á skipa-
flotann, enda nafn hans lengi
í samræmi við það. Nú væri
eðlilegt að ætlast til þess að
skólinn yki starfssvið sitt
með kennslu um vélar og
tækni yfirleitt. Skólinn hefði
líka á að skipa hæfum mönn-
um til slíkrar kennslu. En
sá hængur væri á að skólann
vantaði vélar og tæki til
slíkrar kennslu. — Það eru
einar 1500 kr. ætlaðar til
slíkra kaupa Vélskólans á ári,
en til samanburðar má geta
þess að tækin sem Volvo-
smiðjurnar fluttu hingað til
notkunar á bifvélavirkjanám-
skeiðinu munu kosta á þriðja
hundrað þúsund króna.
Gunnar Bjarnason kvað
ekki skorta áhuga iðnaðar-
manna til að kunna sitt verk
til hlítar, það sýndi m. a. að-
sóknin að þessu námskeiði
Það væri líka brýn nauðsyn
að mennta þá vel, því ótrú-
legar upphæðir spöruðust á
því að þeir kynnu störf sín
til fulls, kunnátta í véltækni
væri þjóðarhagur. — en Vél-
skólann er látið vanta
kennslutæki.
hóp og stendur í 10 daga. Um
150 Volvobílar hér á landi eru
með dísilhreyflum, og þar sem
notkun dísilhreyfla í bíla er til-
tölulega fyrir stuttu byrjuð hér
hefur aðaláherzlan 4 námskeiði
þessu verið lögð á meðferð og
viðgerðir dísilhreyfla. Námskeið-
ið hefur staðið í 10 daga frá kl.
9 á morgnana til 5 á daginn.
Linders kom með öll verkfæri og
vélar með sér og kvað um 80%
kennslu sinnar hafa verið verk-
lega kennslu. — Næsta námskeið
hefst í næstu viku og munu
sækja það 15—-17 bifvélavirkjar.
í Gautaborg hafa Volvosmiðj-
urnar skóla fyrir viðgerðarmemi
bifreiðanna og hafa sótt þangað
menn frá fléstum löndum, ekkx
aðeins menn frá Evrópulöndun-
um heldur einnig Egyptar og
Tyrkir og
ur-Afríku.
blökkumenn úr Suð-
Auk skólans og námskeiða í
Gautaborg hafa VolvosmiðjuríA
ar einnig farandnámskeið í við-
gerðarvögnum víðsvegar um Svi-
þjóð.
Colomboveldin
ræða m Súez
Nehru, forsætisráðherra Ind-
lands, hefur beðið sendiherra
hinna Colomboveldanna, þ. e,
Pakistans, Ceylons, Burma og
Indónesíu, í Nýju Delhi að koma
á sinn fund í dag til að ræða
Súezdeiluna.
Tónleikar sovét-
listamannamu
Sovézku tónlistarmennirnir
sem hér dveljast á vegum MÍŒt
halda aðra tónleika sína í Aust-
urbæjarbíói í kvöld kl. 7. Koma
þar fram píanóleikarinn Dimitri
Baskíroff og sópransöngkonan
Tatjana Lavrova. Annað kvöld
verða þriðju tónleikarnir, einn-
ig í Austurbæjarbíói kl. 7, og
þar koma fram fiðluleikarinn
Khalída Aktjamova og bassa-
söngvarinn Viktor Morosoff.
Frieda iBauer annast undirleik
á hvorutveggja hljómleikunum.
Björn Franzson skrifar unx
fyrstu tónleika listamannanna
á 2. síðu blaðsins í dag.