Þjóðviljinn - 23.09.1956, Síða 4

Þjóðviljinn - 23.09.1956, Síða 4
§) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 23. september 1956 iVinsamleg ummæli botnaranna — Sjötugur „nng- lingur" sendir gáskaíullan botn — Botnarnir — Nýr fyrripartur (eða seinnipartur) ÞÁ HELD SG að það sé rétt að birta botna sem borizt bafa. Sumir fylgja botnum sinum úr hlaði með mjög vin- samlegum ummælum um þennan þátt, og get ég ekki stillt mig um að tilfæra sumt af því. „Fauti“ segir þetta m. a.: „Kæri Bæjarpóstur! Ég þakka þér kærlega fyrir vísna- þættina, sem ég fylgist ætíð með af mestu ánægju. Mér datt í hug að senda þér botna við vísuhelmingana frá því á sunnudag: Fyrripartur: Fyrir brjósti berið nú Bæjarpóstsins hagi. Botn: Heilafóstur finnst mér þú fæða í mjósta lagi. Þarna gerði ég þér að vísu rangt til, en ég gat ómögu- lega stillt mig, þar sem þú lást svo vel við höggi.... “ ★ ÍBOTNAR í þessum dúr eru einmitt „líf og yndi“ Bæjar- póstsins, og hygg ég, að „Fauti“ sé snjall hagyrðing- ur. Og utan af landi komu botnar, ásamt eftirfarandi fylgibréfi: „Heiðraði Bæjar- póstur! Af því ég hef stund- um fyrir tómstundaföndur að setja saman bundið mál, þá datt mér í hug að senda þér botna við vísnaupphöfin, sem þú birtir í sunnudagspóstin- um. Býst þó varla við að þú sjáir þér fært að birta þá. Ég er ekki allskostar ánægður með botninn við upphaf H. Mér finnst ekki viðeigandi, þegar menn á annað borð eru komnir í Edenslund, að þeir verði sorginni svo að bráð, sízt með þeim ofurþunga, að hvert tár þeirra vegi 1000 pund. Þér finnst nú kannski minn botn nokkuð gáska- fenginn, en það kemur til af því að ég er ekki eldri en rétt nýlega sjötugur... ★ EN HÉR koma svo botnarnir. Fyrripartur I.: Fyrir brjósti berið nú Bæjarpóstsins hagi. Botnar: 1. Honum er Ijóst að heilabú hans er í mjósta lagi. 2. Andans gjósti eyðir þú í lífs hrjósturflagi. 3. Alltaf bjóst við öðr’ en snú- ast í fósturjagi. 4. Ei með þjósti er mín trú að hann ljósti Bragi. 5. Innst á hrjóstrum andans á í gjóstudragi. [bú 6. Heilafóstur finnst mér þú fæða í mjósta lagi. Fyrripartur n: Eina stund í Edenslundi okkar fundum saman bar. Botnar: 1. Á þeirri stund í þessum lundi þúsund pund hvert tár mitt var. 2. Við lítið dund hjá ljúfu sprundi leynast undur veraldar. 3. Glöð var lund með Ijúfu sprundi, lífs við bundum eiða þar. 4. Auðargrundin orðlaus stundi, ástarmundum vafin þar. 5. Dável undum ýmsu dundi, ástartundrið sprungið var. 6. Mér fannst, að grundin gefa mundi góðar undirsængurnar. (Þennan botn sendi sjötugi „unglingurinn“, sem skrifaði bréfið, er tilfært var hér áð- an). 7. Seimagrundin og ég undi; ■— ást við bundum saman þar. ★ FLEIRI botnar hafa held ég ekki borizt, en hér er fyrri- partur handa ykkur. — Kannski er þetta líka betri botn, og þá prjónið þið bara framan við það, m. ö. o. þið getið notað þetta fyrir fyrri- eða seinnipart, allt eftir geð- þótta og hentugleikum. „Bekrasvið og blóðmörsiður bráðum kviðinn fylla minn“. Bæjarpóstinum hefur borizt bréf frá Kletti, en það bíður þriðjudags vegna þrengsla. fi s Múrarameistar- I ar athugið j Ungur maður óskar eftir ■ að komast að sem nemi. Hef- • ur gagnfræðapróf og er van- j ur byggingarvinnu. Tilboð: óskast sent blaðinu fyrir: þriðjudagskvöld. — Merkt: : „Múraranemi". LIGGUB LEIÐIN UtaGlGCUS xmsm Minningarkortin era tU söln f okrifstoín Sósíalistaflokks- ins, Tjarnargötn 20; afgreiðsln Þjóðviijans; Bókabúð Kron; Bókabúð Máls og menningar, Skólavörðustíg 21; og í Bóka- verzlun Þorvaldar Bjarnason- nr i HafnarfirðL A f g r e i ð s I b s t ú I k u r Nokkrar stúlkur verð'a ráðnar að mjólkurbú'ð- um voru í haust. Einnig aðstoðarstúlka í brauð- gerð. Upplýsingar í skrifstofu vorri. KSjélkursamsalan ■ fitsvarsskrá Njarðvíkurhrepps i 1956 | Skrá yfir niðurjöfnun útsvara í Njarðvíkur- hreppi fyrir árið 1956 liggur frammi til sýnis í : skrifstofu hreppsins, Þórustíg 3, Ytri Njarðvík, og 5 verzluninni Njarðvík h.f., Innri Njarðvík, frá og með 24. september til 8. október 1956. Kærufrestur er til 8. október 1956. ■ ■ HreppsiteM Njarðvíkurlirepps. J Fvrsta hlutavelta haustsins heíst í Lisíamannaskálanum kl. 2 í dag. — Glæsilegt úrval vinninga. — Stórkostlegt happ- drætti, m.a. ílugferð til Kaupmannahafnar, ferð til Englands, reiðhjól, matvara í miklu úr- vali o. fl., o. fl. Aðgangur ókeypis Drátturinn 2 krónur Freistið gæfunnar í Listamannaskálanum i dag- I. R. v//‘JVWMnMAMAnMMMMMAnflMAMMAIVIWJ^MMnW^miWUVWUVWVWWVWWWWIWWUWWUMWUWVWMnAWWUWVMVn^mi

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.