Þjóðviljinn - 23.09.1956, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 23.09.1956, Qupperneq 12
in í sumar innan við meðallag, xarnir yfirleift vænní en í fyrra SilungsveiSi misjöfn i einsfökum vöfnum Veiðitímanum fyrir lax- og göngusilung lauk 15. þ.m. Samkvæmt upplýsingum veiðimálaskrifstofunnar var laxveiðin í sumar innan við meðallag og veiddust um þriðjungi færri laxar en í fyrra, sem var metveiðiár. Lax- inn í sumar var bo yfirleitt vænni. Laxveiðin var misjö'ín í ein- stökum ám. Bezt veiddist að til- tölu í Laxá í Kjós, Laxá í Leir- ársveit, Grímsá, Þverá, Víði- dalsá, Laxá á Ásum og á vatnasvæði Biöndu. Veiði í öðr- um ám, sem skýrslur liggja fyrír um, var innan við meðal- lag. Mikil laxagengd var í Laxá í Þingeyjarsýslu, en vatnið í ánni var lengst af skollitað og hamlaði það veiði. Samt nálg- aðist veiðin þar meðallag. Mis.jöfn silungsveiði Sjóbirtingsveiði á Suðurlandi hefur yfirleitt verið lítil í sum- ar nema á stöku stað. Silungs- veiði hefur verið mjög misjöfn í einstökum vötnum. I Þing- va'lavatni hefur veiðzt sæmi- lega og ágætlega í Apavatni. I Mývatni var veiði í meðallagi og veiddist þar bezt síðari hluta sumars. Friðun vatnasil- ungs hefst n.k. fimmtudag og stendur til 31. janúar. ' f- • Lax fluttur tií Bretlands Lax og silungur er nær ein- göngu notaður til matar inn- an’ands. I sumar var lax flutt- ur út til Bretlands og mun s ff|j sov- oindl kvöld væntanlega verða sent út meira seinna á árinu. Þá hefur niður- soðin murta verið seld til Bandaríkjanna. Verðlag á laxi og silungi innanlands var yfir- leitt aðeins hærra heldur en síðastliðið ár. Dimitri Baskiroff í Anrað kvöld verða haldnir tónleikar í Þjóðleikhúsinu o g koana þar fram allir fimm sov- ézku tónlistarmennirnir, sem hér dveljast í boði MÍR. Fyrst leikur íiðlusnillingurinn Kh-alida Aktjamova verk eftir Tsjækofskí, Sarsistki, Glasunov og Saint-Saens. Þá syngur sópr- ansöngkonan Tatjana Lavrova lög eftir Gliere, Dsersinski, Grieg og Rossini. Pianóleikarinn Dimitri Baskiroff leikur þessu næst verk eftir Beethoven (són- ötu op. 31 í C-dúr), Chopin og Debussy. Loks syngur bassa- söngvarinn Viktor Morozov lög eftir Tsjækofskí, Dnagomiskí, Gounod, Massenet o. fl. Undir- leikari söngvara og fiðluleikara er Frieda Bauer. Tónleikarnir hefjast kl. 20. Fiskirækt Að fiskirækt hefurverið unn- ið í mörgum ám í sumar. I eft- irtöldum ám er verið að koma upp laxastofnum: Fróðá á Snæ- fellsnesi, Miðá, Kjarlaksstaðaá, Staðarhólsá og Hvolsá í Dala- sýslu, í Hrófá og Selá í Stein- grímsfirði og í Laxá hjá Hösk- 17 ára piltur í II ára fangelsi Brezkur dómstóll á Kýpur dæmdi í gær 17 ára gamlan pilt í 10 ára fangelsi. Viðgerð á sæsíma- sfrengnum lokið Eins og kunnugt er slitnaði sæsímastrengurinn til útlanda fyrir hálfri þriðju viku eða nán- ar tiltekið 5. september s.l. Sam- kvæmt upplýsingum Jóns Skúla- sonar verkfræðings hjá Lands- simanum höfðu Danir lokið við viðgerð á símastrengnum í gær og var þá verið að reyna sam- bandið milli Þórshafnar í Fær- eyjum og Lundúna. Símasam- bandið við útlönd kemst því í eðlilegt horf nú um helgina. Pearson Framhald af 1. síðu anríkisráðherra gestunum veizlu í Ráðherrabústaðnum. Á þiriðjudagsmorgun mun Mr. Pearson heimsækja forseta ís- 'ands, forsætisráðherra og ut- anríkisráðherra, en síðari hluta dags býður utanríkisráðherra þeim hjónum og fylgdarliði þeirra til Þingvalla. Verður í þeirri ferð komið við að Reykj- um og skoðuð dælustöð hita- veitunnar. Um kvöldið heldur forseti Islands gestunum veizlu að Bessastöðum. Á miðvikudagsmorgun verða skoðuð söfn o. fl. í Reykjavík, en síðari hluta dags mun ut- anríkisráðherra Kanada ræða við blaðamenn. Þá mun og ut- anríkisráðherra Kanada taka á móti gestum að Hótel Borg. Undir miðnætti halda þau síðan af stað til Kanada frá Reykja- víkurflugvelli. 1 fylgdarliði utanríkisráð- herrans verður, auk sendiherra Kanada, Mr. Ray Crepault, fulltrúi í utanríkisráðuneytinu í Ottawa. 1 þessari opinberu heimsókn kemur utanríkisráðherrann fram sem fulltrúi ríkisstjórnar sinnar og lands, en eigi sem sérstakur sendimaður Atlants- hafsráðsins. (Frá utanríkisráðuneytinu). uldsstöðum. Lítill eða enginn lax hefur gengið í þessar ár. í Meðalfellsvatn í Kjós var sleppt ársgömlum laxaseiðum í tilraunaskyni og voru seiðin merkt. Laxastigar og eldisstöðvar Tveir laxastigar hafa verið í smíðum í sumar. í Fróðá á Snæfellsnesi var lokið við laxa- stiga og sprengt fyrir fiskvegi í Blöndu ofan við Blönduós og mun stiginn verða fullgerður á næsta ári. Þá hafa gönguskil- yrði 'fyrir fisk verið bætt í Reykjadalsá í Borgarfirði og unnið var að því að bæta lífs- skilyrðin fyrir lax í efri hluta Hítár á Mýrum. Eldisstöðvar hafa starfað með svipuðum hætti og í fyrra og hafa nokkrar nýjar eldis- tjarnir verið teknar í notkun í sumar. Merkingar laxa og silungs Veiðimálaskrifstofan hefur merkt lax og silung á undan- förnum árum og hafa margir merktir fiskar endurveiðzt í sumar. M. a. hefur murta verið merkt í Þingvallavatni norðan- verðu, en ekki hefur verið til- kynnt um, að nein þeirra hafi veiðzt þar í sumar, þó að lík- legt megi telja, að svo hafi ver- ið. Veiðimálaskrifstofan greiðir verðlaun fyrir upplýsingar um merkta laxa og silunga, sem veiðast. HlðOVIUINM Sunnudagur 23. september 1956 — 21. árg. — 217. tölublað Larsen hefur betri útkomu en Botvinnik Skák þeirra lauk með jaíntefli, en Larsen hafði saml alltaf betra tafl Bent Larsen, hinn ungi danski skákmeistari, var ekkl langt frá því aö sigra heimsmeistarann Botvinnik, þeg- ar sveitir Danmerkur og Sovétríkjanna áttust við á skák- mótinu í Moskva. Skák þeirra'lauk að vísu með jafntefli, en í skeyti frá Guð- mundi Arnlaugssyni segir, að Bent hafi rejmdar alltaf haft betr.a tafl. Danir töpuðu öllum hinum þrem skákunum við Sov- étríkin. Moskvaútvarpið sagði á þriðju- daginn var, að hinn ungi Dani væri eftirlæti allra sem fylgd- ust með olympíu skákmótinu. Þá hafði hann náð betri árangri við fyrsta borð en sjálfur Botvinn- ik. Larsen hafði þá teflt 13 skák- ir, unnið níu, tapað einni og gert þrjú jafn- tefli, vinningshlutfall rúmlega 80%. Botvinnik hafði teflt tíu skákir, unnið fimm og gert fimm jafntefli, vinningshlutfall 75%. Það er sérstaklega athyglis- vert að Larsen hafði fram til þriðjudagsins ekki sleppt úr Bent Larsen einni einustu skák, og gerir það hinn góða árangur hans enn glæsilegri. Það er talið víst, að stjóm alþjóðaskáksambandsics muni samþykkja tillöguna um að sæma hann stórmeistaranafn- bót, og yrði hann fyrsti Dan,- inn til að hljóta hana. ísland í 1. sæti eft- ir 8 ■mferðir Eftir átta umferðir á skák- mótinu í Moskva voru íslending- ar efstir í miðflokknum, en Svíar og Austurríkismenn næstir og jafnir. Biðskák Baldurs og Fr.akkans Norodjans úr 6. um- ferð lauk með jafntefli, en skák Inga og Borteville fór aftur í bið. í 9. umferð tefldu fslen#ingar við Austurríkismenn og tapaði Ingi þar slysalega fyrir Dúck- steiner, Baldur gerði jafntefli við Pramashuber, en skákir Friðriks og Robatsj og Frey- steins og Lochvenc fóru í bið. Undanhald vesturveldanna í Súezmálinu eykur sáttalíkur Indverska sfjórnin sögS bjarfsýnni á aS samkomulag fakist, Menon til London Líkur á samkomulagi í Súezdeilunni eru taldar hafa batnað að mun eftir Lundúnaráðstefnuna, en þar neydd- ust vesturveldin til að láta að nokkru undan nær ein- róma kröfu annaira ríkja, sem þar áttu fulltrúa, um að deilan yrði leyst á friðsamlegan hátt. Indverska stjórnin kom sam- an á fund í gær og ræddi um Súezmálið og niðurstöður Lund- únaráðstefnunnar. Fréttaritari brezka útvarpsins í Nýju Del- hí segir, að enda þótt indversk- ir ráðamenn hafi ekki látið í Ijós opinberlega neina skoðun á árangri ráðstefnunnar, sé það vitað, að indverska stjórnin sé nú bjartsýnni á samkomu- lag í Súezdeilunni en hún hef- ur verið síðan deilan reis. Yf- irlýsing ráðstefnunnar er talin nægilega hógværlega orðuð til að hægt verði að taka upp beina samninga við Egypta, en á það hafa Indverjar frá upp- hafi lagt áherzlu. Menon, fulltrúi Nehrus for- sætisráðherra, hefur undan- farna fjóra daga dvalizt í Kaí- ró til viðræðna við Nasser og aðra egypzka ráðamenn. Hann flaug í gær til London og mun þar ræða við brezka ráðamenn og er enginn vafi á því, að til- gangur þessara viðræðna hans er sá að miðla málum. Flestir fulltrúanna á Lund- únaráðstefnunni eru nú farnir heim. Margir þeirra lýstu við brottförina yfir ánægju sinni með niðurstöður ráðstefnunnar. Pineau, utanríkisráðherra Frakka, tók í annan streng og sagði ráðstefnuna hafa verið því nær gagnslausa. Stjórnmálafréttaritari brezka útvarpsins sagði í gær, að því væri ekki að leyna, að þau „notendasamtök Súezskurðar- ins“ sem ákveðið væri að stofna á ráðstefnunni, væii með öðru sniði en vesturveldin hefðu upphaflega ætlað sér. En þetta hefði verið óhjákvæmi- legt, þar sem meirihluti full- Framhald á 5. síðu. Flogið fyrir að ekld sé áti Lærdómsríkur fréttaburður í Alþýðublaðinu a Alþýðublaðið birtir í gær á forsíðu með stóru letri þriggja dálka fyrirsögn svohljóðandi: „Kommúnistar efna til sam- vinnu við íhaldið í SMF um kjör á þing ASÍ“. Þegar greinin undir fyrirsögninni er lesin kemur í ljós að tilefnið er svo- hljóðandi: „Þá hefur það flogið fyrir (!), að ekki sé útilokað (!), að einn eða tveir íhaldsfulltrúar eigi að fá að fljóta með á lista „eiiiingarmanna“ í Sam- bandi matreiðslu og fram- reiðslumanna.“ Það er ekki að undra þott' Alþýðublaðið setji feita og flatarmálsfreka fyrirsögn á , slíkan fréttaburð! Að sjálf- sögðu er ekki um neina samn- inga að ræða milli vinstri manna og íhaldsins í SMF, og ekki er vitað að kosning þar sé undirbúin að öðru en því að stjóm sambandsins er ný- lega búin að kjósa uppstilling- arnefnd sem ekki hefur lokið störfum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.