Þjóðviljinn - 27.09.1956, Page 3
Fimmtudagur 27. september 1956 — ÞJÓÐVTLJINN — (3
plarækt í Borgarfirðl
VíöigerSiseplin hafa veriö ræktuö undanfarin 4 ár. í
fyrra fengust 60 epli af trénu.
Ræktandi borgfirzku eplanna,
Benedikt Guðlaugsson, býr í Víði-
gerði í Reykholtsdal, og því eru
eplin hans hér nefnd Víðigerðis-
eplin, en raunar eru þau dönsk
að uppruna og bera þar heitið
Prinsesse Margarethe. Benedikt
íékk lítið eplatré frá skólastjór-
anum í garðyrkjuskólianum í
Beder á Jótlandi. Tréð var þá
4ra ára, en nú er það 12 ára.
Síðustu 4 árin hefur það borið
epli. Uxu 60 epli á því í fyrra,
en ekki nema 32 í sumar og kem-
ur þar fram sólarlausa sumarið
í fyrra, því uþpskera af epla-
trjám er_komin undir sumrinu
næsta á undan, segir Benedikt.
Spurningunni um það hvort
raunverulega sé hægt að rækta
epli hér á landi svarar Benedikt:
— Ef við fáum tré sem ræktað
er með það fyrir augum að
hafa það í húsi þá er hægt að
ræka epli hér. Eplatré er hægt
að rækta í stórum stömpum
inni. Eitt eplatré getur gefið af
sér 300 kg. af eplum.
Þetta tré er ekki ræktað við
þau skilyrði sem það þarf, það
líður fyrir aðrar jurtir.
IÐJA
Framhald af 1. síðu
Bergþór Ivarsson, Dósaverksm.
Erlendur Jónsson, Nýja Skó-
verksmiðjan.
Guðlaug Bjarnadóttir, Efna-
laugin Lindin.
Haraldur Gíslason, Trésmiðjan
Víðir.
Hreiðar Björnsson, Trésmiðjan
Heiðmörk.
Ingibergur Kristjánsson Skó-
gerðin h.f.
Jakob B. Björnsson, Steinstólp-
ar h.f.
Magnús Sigurðsson, Kaffiverk-
smiðja O. J. Kaaber.
Málfríður Þ. Þórbergsdóttir.
Klæðagerðin tJltíma h.f.
Maríus Sölvason, Sjófataverk-
smiðjan.
Sverrir Jónsson, Kassagerð
Reykjavíkur.
Tómas Sigurjónsson, Ullarverk-
smiðjan Framtíðin.
Pearson
Framhald af 1. síðu.
menn af íslenzkum ættum
hefðu einkum látið til sín taka
■
í stjórnmálum, menntamálum,
listum og vísindum. Hins vegar
sagðist ráðherrann ekki vita til
þess, að íslenzkir menn í Kana-
da hefðu orðið miklir milljón-
arar. Hann bætti brosandi við,
að þeir hefðu sinnt öðrum
hugðarefnum.
Pearson sagði að hann og
kona hans væru mjög ánægð
með dvölina hér, þau færu héð-
an jafnvel enn vinveittari Is-
Iendingum en þau hefðu verið
við komuna hingað. Að vísu
hefði dvölin verið stutt og þau
hefðu séð minna af Islandi en
þau hefðu kosið, en ógleyman-
leg yrði þeim dvölin á Þing-
velli, þar sem fyrsta þjóðkjörna
samkoma Norðurálfu hefði ver-
ið.
Pearson og frú hans héldu
íslenzkum ráðherrum og öðr-
um gestum veizlu í gærkvöld,
en héldu í nótt flugleiðis vest-
ur um haf. Ráðherrann bjóst
við að sitja ráðuneytisfund í
Ottawa klukkan 10 í dag.
— Hvað ræktarðu fleira?
— Aðallega tómata, vínber og
pottaplöntur, liljur að. vetrinum.
Gráfíkjur rækta ég einnig með
góðum árangri. Eg fékk danskt
fíkjutré 1946. Það liggur við
að það beri eins marga ávexti
og blöðin á því eru mörg, það
vex fíkja við hverja blaðrót.
Benedikt Guðlaugsson í Víði-
gerði hefur starfað við garð-
yrkju síðan 1930. Hann lærði
garðyrkjustörf í Danmörku, en
frá 1938 hefur hann búið í Víði-
gerði í Reykholtsdal.
Bændasendinefndin rómar mjög
góða fyrirgreiðslu í Sovétríkjnnum
Dvaldi þar og ferðaðisi í þrjár vikur
Bændasendinefndin sem undanfariö hefur dvalizt í
Sovétríkjunum, kom heim 23. þ.m.
Benedikt og eitt af eplum hans. (Ljósm. Sig. GuÖm).
Landsfundi Kvenréttindofé-
iags íslands lýkur í kvöld
Fundinn hafa sótt um 70 konur víðsvegar
af landinu
Níundi landsfundur Kvenréttindafélags íslands hefur
staöiö yfir undanfarna daga hér 1 Reykjavík. Sækja fund-
inn um 70 konur víösvegar af landinu.
Á dagskrá landsfundarins
hafa verið ýmis hagsmuna- og
réttindamál kvenna, svo sem
atvinnu- og launamál, trygg-
ingamál, skattamál, samstarf
heimila og skóla, verðgildi
heimilisstarfa, félagsmál o. fl.
I fyrradag sátu fundarkonur
boð bæjarstjórnar Reykjavíkur
og í gær fóru þær til Bessa-
staða í boði forsetahjónanna. I
dag munu þær verða viðstadd-
ar, er lagður verður blómsveig-
ur frá Kvenréttindafélaginu á
leiði frú Bríetar Bjarnhéðins-
dóttur, brautryðjanda í rétt-
indamálum íslenzkra kvenna.
Ætlunin mun vera að lands-
fundi KRFl ljúki í kvöld með
hófi 1 Tjarnarkaffi, þar sem
fundurinn hefur verið haldinn
undarifarna daga. I hófi þessu
verður minnzt 100 ára afmælis
frú Bríetar. Öllum konum er
heimil þátttaka.
Bólusetning
Framhald af 12. síðu
kvæmt fenginni reynslu, að
mætnusóttarbólusetning er sízt
hættulegri en hver önnur tíðkan-
leg bólusetning. Foreldrar, sem
velta því fyrir sér, hvort þeir
eigi að taka á sig þá ábyrgð að
láta bólusetja börn sín gegn
mænusótt, mega hugleiða, að
samkvæmt þeirri þekkingu, sem
nú telst áreiðanlegust, er sú á-
byrgð stórum meiri að láta það
ógert.
— Upplýsingar þessar eru frá
Vilmundi Jónssyni landlækni.
| Signr íhldsins |
■
| - sigur hægri |
I krata I
■ ■
s
j Það er lærdómsríkt fyrir:
j félagsmenn innan Alþýðusam- j
■ bands fslands að lesa Al-:
þýðublaðið og Morgunblaðið ;
þessa dagana.
• r i
I fyrradag skýrði Alþýðu- ;
blaðið frá fulltrúakjöri í Múr- ;
■
arafélaginu undir fyrirsögn- ;
inni: Sigur í Múrarafélagi >
Reykjavíkur.
Tveir listar voru í kjöri í ;
þeim kosningum og var Egg- j
ert Þorsteinsson fyrv. alþing- j
ismaður Alþýðuflokksins á j
báðuni listunum, — og vitan- j
lega kosinn, „Sigurinn“ sem j
Alþýðublaðið á við hlýtur því j
að vera sá einn að kosinn var ;
íhaldsmaður með Eggerti í
■
stað vinstri manns!! Ekki ó- ;
laglegur Alþýðuflokks-„sigur“ ;
það!
Morgunblaðið staðfesti þetta >
í gær með frásögn af sömu j
j kosningum, undir fyrirsögn- j
j inni: „Lýðræðissinnar sigr- i
I uðu“. j
J , ■
; Sigur Ihaldsins er því sig- ;
| ■
; ur hægri kratanna — og sig- |
■ ■
; ur hægri kratanna einnig sig- ;
> ur íhaldsins.
> Það er verkamönnum holl :
í nefndinni voru: Ásmundur
Sigurðsson fyrrv. alþm., Þor-
steinn Sigurðsson bóndi Vatns-
leysu, formaður Búnaðarfélags
íslands, Haraldur Árnason verk-
færaráðunautur B. í., Þórarinn
Haraldsson, bóndi í Laufási
Kelduhverfi, og Kristófer Gríms-
son, ráðunautur Búnaðarsam-
bands Kjalarnesþings. Lagði
nefndin af stað frá Reykjavík 2.
sept. og var fyrst flogið til
Kaupmannahafnar, þaðan til
Helsinki og síðan farið með
járnbrautarlest til Moskvu.
Dvöldust nefndarmenn fyrst
nokkra daga í Moskvu, bæði til
að skoða hina merku landbún-
aðarsýningu, sem þar stendur
opin frá 1. júní til 1. nóv. ár
hvert, og ýmislegt fleira er
merkilegt þótti.
Síðan var farið til Kharkov í
XJkraínu. Voru þar skoðuð bæði
samyrkjubú og ríkisbú í ná-
grenni borgarinnar, en XÍkraína
er sem kunnugt er, frjósamasti
hluti Sovétríkjanna, enda fræg
fyrir hinn ágæta jarðveg, svörtu
moldina, sem talin mun vera frjó
samasti jarðvegur Evrópu. Einnig
skoðaði nefndin þar vélastöð,
sem leigir mörgum samyrkjubú-
um landbúnaðarvélar til afnota,
en slíkar vélastöðvar eru al-
gengar í Sovétríkjunum. Þá
skoðaði nefndin stóra verksmiðju
er framleiðir landbúnaðarvélar,
þ.á.m. stórar beltisdráttarvélar.
Sáu nefndarmenn þar samsetn-
ingu einnar slíkrar vélar, frá því
hún byrjaði og þar til vélinni
var ekið út fullgerðri. í verk-
smiðju þessari vinna 35 þús.
manns.
Frá Kharkov var síðan haldið
til Sochi, sem er borg í vestan-
verðu Kákasus, við austanvert
Svartahaf, lítið eitt norðan við
landamæri Grúsíu. Er það fræg-
ur staður fyrir hlýtt loftslag,
fagran og fjölbreyttan gróður,
og ekki síður hin mörgu heilsu-
og hressingarhæli, sem þar hafa
verið reist í skjóli Kákasusfjall-
anna og hinna fjölmörgu suð-
rænu trjátegunda er þar vaxa.
Skoðuðu nefndarmenn þar til-
raunastöð í trjá- og garðrækt,
ásamt jurtagarði mjög fögrum
og fjölbreyttum. Ennfremur var
var skoðuð heilsuverndarstöð er
byggir á lækningamætti hins
heita hveravatns, sem þar fæst
með því að bora djúpt í jörð
niður. Þá var einnig farið í
skemmtiferðir upp i Kákasus-
fjöllin, þar sem getur að líta hið
stórbrotnasta og fegursta lands-
lag og fjöllin vafin skógi og öðr-
um gróðri upp í 2400 m hæð,
þar sem ekki voru beinlínis lóð-
réttir bergveggir.
Frá Sochi var síðan aftur
haldið flugleiðis til Moskvu, og^
þar dvalizt enn nokkra daga við
að skoða betur landbúnaðarsýn-
inguna og aðra staði og bygging-
ar í borginni. Einnig var farið í
heimsókn á samyrkju- og ríkisbú
í nágrenni borgarinnar. Samtals
var dvalizt í Sovétríkjunum á
þriðju viku.
Ferðin var farin í boði land-
búnaðarráðuneytis Sovétríkj-
anna, og róma nefndarmenn
mjög, hve móttökur og fyrir-
greiðsla öll hafi verið með ágæt-
um, og allt til þess gert að
ferðalagið gæti orðið þeim til
ánægju. Ennfremur að þeir gætu
fengið sem gleggstar og greina-
beztar upplýsingar um landbún-
að Sovétríkjanna, og annað er
þá fýsti að fræðast um.
Blaðamannakabarettimi
> og nauðsynleg vitneskja.
Forsala aðgöngumiða að
kabaretti B. í„ sem hefst 6. n.
m„ er nú í fullum gangi.
í kabaretti þessum koma fram
fjöllistamenn sem mjög eru eft-
irsóttir og var því ekki hægt að
fá þá til dvalar hér lengur en
12 daga.
í stað hléa milli skemmtiatriða
verða tízkusýningar. Verzlunin
Guðrún mun sýna þar kápur og
dragtir frá Englandi og ameríska
kjóla eftjr nýjustu tízku.
Tvær sýningar verða daglega,
kl. 7 og 11,15 á kvöldin, en sér-
sýningar verða fyrir börn kl.
5 á laugardögum og kl. 3 á
sunnudögum.
Aðgöngumiðar verða seldir
fyrirfram á 10 fyrstu sýningarn-
ar og má panta þá í síma 6056,
— og mátti segja að sá sími
þagnaði ekki í gær.
Myndin hér að ofan er af
„herrum'1 sem munu skemmta á
kabarettinum,