Þjóðviljinn - 27.09.1956, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 27.09.1956, Blaðsíða 12
n mænuvelki verður inskamms Þegar tryggf hóluefni i 65 þús. manns og fyr irhugaÓ að hólusefja öll bórn og unglinga Samið hefur verið um kaup á mænusóttarbóluefni til landsins, sem nægir til fullkominnar — þrítekinnar — .bólusetningar ca. 65 þúsund manns, þar af frá Banda- ríkjum nægilegt í 15 þúsund, en frá Danmörku í 50 þús- und manns. tuóommiN Fimmtudagiir 27. september 1956 — 21. árg. — 220. tölublað Ríkisstjórnin hefur ekki aðeins bannað verðhækkanir heldur einnig tryggt lækkun á vörum og þjónustu Ihaldið er óvenjulega taugaóstyrkt um þessar mund- ir og blöð þess illorð í garð ríldsstjórnarinnar. Menn fara nærri um ástæðuna. Skjólstæðingar Morgunblaðsins og Vísis taka því ekki fagnandi að fá ekki sjálfdæmi um vöruverðið eins og áður meðan Ólafur Thors, Bjarni Benediktsson og Ingólfur Jónsson sátu í ríkisstjórn og réðu mestu um stefnu og stjórnarframkvæmdir. Afstaða almennings er hins vegar með öðrum hætti. Fólldð í landinu fagnar því af heilum hug að vöxtur dýr- tíðarinnar hefur verið stöðvaður með því að banna verð- hækkanir. Dýrtíðin kemur harðast niður á launastéttun- rnn, þær kunna því að meta það sem gert er til að ráða niðurlögum hennar. Það hefur ekld farið fram hjá neinum, að ríkisstjórn- in hefur ekki aðeins staðið fullltomlega við þá yfirlýs- ingu að komið skyldi í veg fyrir liækkun verðlags og þjónustu, miðað við 15. ágúst, eins og fram var tekið í lögunmn um verðfestinguna. Fyrir beint frumkvæði rík- isstjórnarinnar hafa vissar tegundir varnings og þjón- ustu verið lækkaðar í verði, svo sem niðursuðuvörur, bílaviðgerðir, vinnuföt, kuldaúlpur o.s.frv. Þá varð og veruleg lækkun á sláturafurðum frá því verði sem gilti á sl. ári. Fessi þróim er í rétta átt og hún þarf að halda áfram. Verkalýðshreyfingin hefur með þátttöku sinni í ríkis- stjórn haft heillavænleg áhrif og tryggt breytta stefnu. Ekkert í þessa átt hefði gerst ef íhaldið réði eins og áður, þvert á móti myndi dýrtíðin hafa vaxið hröðum skrefum í sumar og haust og hlufallið milli launa og verðlags orðið enn óhagstæðara laimastéttunum en það áður var. Þau kvéðusf ggarita viljja gisfa okkur öðru sinni Lokasýning sovézka ballettflokksins var í Þjóðleikhús- inu í fyrrakvöld. Var leikhúsið fullskipað og fögnuður á- horfenda mikill. Var listafólkið kallað fram hvað eftir annað að sýningu lokinni. Til þess að hefja jafnvíðtæka mænusóttarbólusetningu með 2 stungum þarf % hluta hins um- samda bóluefnis, og er sá hluti hins bandariska bóluefnis þegar kominn til landsins. Samsvarandi hluti hins danska bóluefnis er tilbúinn til afgreiðslu, Tryggt er að síðasti þriðjungur bólu- efnisins verði afgreiddur í tæka tíð, þegar að því kemur, að bólu- setningin verður til lykta leidd með hinni 3. stungu, sem verður ekki fyrr en að áliðnum kom- andi vetri eða síðar. Böni — unglingar — skólafólk Ætlazt er til, að mænusóttar- bólusetningunni verði hagað sem hér segir: 1) Fyrst verði bólusett sem allra flest börn á barnaskóla- aldri, 7—12 ára, eins og þegar er hafið. 2) Þá verði bólusett böm, unglingar og aðrir í öllum skól- um tandsins, hverju nafni sem nefnast. 3) Síðast eða jafnframt, eftir iþví seni við verður komið, verði bólusett börn innan 7 ára ald- urs. Adenauer forsætisráðherra og von Brentano utanríkisráðherra Vestur-Þýzkalands hafa undan- farna daga verið í Brussel, höfuðborg Belgíu, til að ganga frá samningi um leiðréttingu á landamærum ríkjanna. Talið er að þeir hafi notað tækifærið til að snyrjast fyrir um afstöðu belgísku stjórnarinnar til þessa máls og hvort hún myndi fyrir sitt leyti geta fallizt á að vest- 1 dag, á afmælisdegi Bríetar Bjarnhéðinsdóttur, gengst Kvenréttindafélag íslands fyr- ir hinni árlegu fjáröflun til Menningar- og minningarsjóðs kvenna með merkjasölu. Eru merkin, sem seld verða, gerð með sérstöku tilliti til aldaraf- mælis frú Bríetar. Merkin verða afgreidd á skrifstofu KRFl, Skálholtsstíg 7, í dag kl. 10—18 og á sama tíma í Alþýðuhúsinu í Hafnar- firði. Börn og aðrir sem vildu selja merkin eru beðnir að sækja þau þangað. Almenning- ur ætti að minnast stofnanda Menningar- og minningarsjóðs kvenna með því að kaupa merki dagsins. Síðar allir að 45 ára aldri Ákveðið hefur verið, að rík- issjóður leggi fram ókeypis bóluefni til þeirra mænusóttar- bólusetningar sem nú hefur verið gerð grein fyrir, þ. e. barna og alls skólafólks. Lögð mun verða áherzla á að afla bóluefnis til áframhaldandi mænusóttarbólusetningar, þann- ig að allir landsmenn fram að Litlar fréttir höfðu borizt af fundinum þegar blaðið fór í prentun í gærkvöld. Fulltrúi Kúbu í ráðinu, Portuondo, sem urþýzki herjnn verði búinn kjiarnorkuvopnum. í Parísarsamningunum um hervæðingu Vestur-Þýzkalands var ótvirætt tekið fram, að Vest- ur-Þjóðverjum skyldi hvorki leyft að framleiða kjarnorku- vopn né búa her sinn þeim. Búizt er við, að Adenauer muni einnig leggja þetta erindi fyrri þá Mollet og Pineau, for- sætis- og utanríkisráðherra Frakklands, þegar hann kemur til fundar við þá á laugardaginn í þessari viku. Á þeim fundi á annars að ganga endanlega frá samningi Frakklands og V- Þýzkalands um innlimun Saar- héraðs í Þýzkaland. Vesturþýzk blöð halda því fram, að þegar sé ákveðið að búa vesturþýzka herinn kjarn- orkuvopnum og muni hann hafa fengið þau fyrir árið 1960, þeg- ar herinn á að vera fullstofnað- ur. Fulltrúar Skjald- ar á Flateyri Verkalýðsfélagið Skjöldur hef ur kosið fulltrúa sína á Alþýðu- sambandsþing. Kosnir voru Kol- beinn Guðmundsson og Einar Hafberg og varamenn þeirra Andrew Þorvaldsson og Jón Hjartar. 40 eða jafnvel 45 ára aldri eigi hennar sem allra fyrst kost. Heilbrigðisstjórnin væntir þess, að landsmenn kunni vel að meta að eiga svo skjótt kost jiafnviðtækrar mænusóttarbólu- setning.ar sem hér er efnt til, en það sýna þeir bezt með þvi að sækja bólusetninguna tregðu- laust og skipulega eftir þeim reglum, sem kunnar verða gerð- ar á hverjum tíma og hverjum stað. Sízt hættulegri en önnur bólusetning Óhætt er að fullyrða sam- Framh. á 3. síðu er formaður þess þennan mán- uð, las upp kærurnar, sem því hafa 'borizt. Stjórnir Bretlands og Frakk- lands hafa kært yfir „því á- standi sem hafi skapazt við þá einhliða ákvörðun egypzku stjórnarinnar að binda endi á alþjóðastjórn Súezskurðarins, sem ákveðin var í sáttmálan- um frá 1888“, en egypzka stjórnin yfir þeim „aðgerðum sem nokkur lönd, og þá sér- staklega Bretland og Frakk- land, hafa gert og ógna heims- friðnum og eru auk þess al- varlegt brot gegn sáttmála Sameinuðu þjóðanna“. Þegar Portuondo hafði sett fundinn, Ias hann upp bréf, sem honum hafði borizt frá Dag Framhald á 5. síðu. Öhagstæður um 15,7 miiljj. kr. Samkvæmt upplýsingum Hag- stofunnar var verzlunarjöfnuður- inn óhagstæður í ágústmánuði s.l. um 15 niillj. 709 þús. kr. — í ágústmánuði á s.I. ári var verzlunarjöfnuðurinn óhagstæð- ur um 45 millj. 519 þús. kr. f ágústmánuði s.l. voru flutt- ar inn vörur fyrir 96 millj. 209 þús. kr. en út fyrir 80 millj. 500 þús. I ágústmánuði í fyrra var flutt inn fyrir 107 millj. 229 þús., en út fyrir aðeins 61 millj. 710 þús. Á tímabilinu jan. — ágúst á þessu ári var flutt inn fyrir 836 millj. 721 þús. kr., þar af voru skip fyrir 32 millj. 955 þús. kr. Verzlunarjöfnuðurinn á þessu tímabili var því óhagstæður um 234 millj. 560 þús. kr. — Á sama tíma í fyrra var flutt inn fyrir 750 millj. 513 þús. kr. en út fyrir 498 millj. 886 þús. og var verzl- unarjöfnuðurinn þá því óhag- stæður um 251 millj. 627 þús. kr. Upphaf’ega var ráðgert að sýningar flokksins yrðu aðeins 5; en samningar tókust síðar um 2 sýningar í viðbót; og allra síð- ast var ákveðin barnasýning. Var hún á sunnudaginn. Sýning- ar urðu þannig 8 alls, og var húsið fullsetið í öll skiptin. Eftir sýninguna í fyrrakvöld hafði þjóðleikhússtjóri boð inni í Þjóðleikhúskjallaranum fyrir gestina. Meðal annarra gesta voru Gylfi Þ. Gíslason mennta- málaráðherra og frú og Ermosjin sendiherra Sovétríkjanna. Lista- fólkið hélt til Kaupmannahafn- ar í gærmorgun, þar sem það mun hafa nokkrar danssýningar. Það var mjög ánægt með kom- una hingað. Kvaðst það gjárnan vilja gista ísland öðru sinni, Utanríkisráð- herrafundor hald- iníi í Reykjavík Utanríkisráðherrafundur Norð- urlanda verður haldinn í Reykjavík dagana 8. og 9. okt- óber n.k. (Frá utanríkisráðuneytinu). og þá helzt í heilum balleít- flokki ef slíkt mætti verða. Félagsmálaráðherra hefur nu tilnefnt þá menn, sem sam-| kvæmt bráðabirgðalögum fráj 21. september sl. skal hætt íj húsnæðismálastjórn, en þeir eru: lEggert G. Þorsteinsson, fyrr- verandi alþingismaður og Sig- urður Sigmundsson, fulltrúi. Varamenn þeirra eru: Öskar Hallgrímsson, rafvirk jameist- ari og Guðmundur Vigfússon, bæjarfulltrúi. Samkvæmt sömu lögum hafa1 eftirtaldir þrír menn úr hús- næðismálastjórninni verið til- nefndir til þess að hafa á hendi stjórn allra framkvæmda á vegum hennar, sbr. 2. gr. reglu- gerðar frá 21. september 1956, um húsnæðismálastjórn: Eggert G. Þorsteinsson, fyrr- verandi alþingismaður, Hannes Pálsson, fulltrúi og Sigurður Sigmundsson, fulltrúi. Adeeauer vill atómvopn handa her V-Þýzkalands ■ Vesturþýzka stjórnin er nú sögð róa að því öllum árum, að numið verði úr gildi bann við því, að hiim nýi vestur- þýzki her veröi búinn kjarnorkuvopnum. Öryggisráðið ræðir kærar Breta, Frakka og Egypta Búizí við að þær verði teknar á dagskrá, en umræðum frestað fram í október Öryggisráð SÞ kom saman á fund í New York í gær til að fjalla um kærur sem því hafa borizt frá stjórnum Bretlands og Frakklands og frá egypzku stjórninni út af Súezdeilunni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.