Þjóðviljinn - 27.09.1956, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 27.09.1956, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 27. september 1956 — ÞJÓÐV3XJINN — (9 RITSTJÓRI: FRÍMANN HELGASON Dönsk hjón koma hingað í vetur og kenna handknattleik Frá ársþiiigi HandknaStteihsráðs Hvíbnr Handknattleiksráð Reykja- víkur hélt nýlega aðalfund sinn í Félagsheimili Fram. Lagði stjórnin fram ársskýrslu ráðs- ins. Ber skýrslan með sér að margt hefur verið gert og árið hið viðburðaríkasta. Verða hér á eftir teknir upp kaflar úr skýrslunni. Frœðslustarfsemi Ráðið hóf vetrarstarfið með því að fá hingað kvikmyndir frá danska íþróttasambandinu; eins fékk ráðið kennslubækur í ihandknattleik frá danska hand- knattleikssambandinu. Kvikmyndir þessar voru sýnd- ar hér og í Hafnarfirði um 10 sinnum og sáu þær um 300 manns. Kennslubækurnar voru aðallega seldar í Reykjavík og einnig til Hafnarf jarðar og ísa- fjarðar. Þessari starfsemi mun ráðið halda áfram eins og kost- ur er á. Um mótin segir í skýrslunni m.a.: 1 meistaraflokki karla var leikið í einni deild að þessu sinni. Ráðið óskaði eftir þessu vegna þess að ekki var tími til að halda nema eitt mót á starfsárinu og einnig hefðu þau félög, sem eru í 2. deild og ekki áttu von á að fá nema einn eða tvo leiki alveg lagt niður handknattleik þetta árið. Mótið varð við þessa breytingu tvlsýnt og skemmtilegt, svo að aldrei hefur verið meiri áhorf- endafjöldi á handknattleiksmóti Ihér en við úrslit mótsins. Á síðasta ári fékk H.K.R.R. Iieimsókn frá Noregi. Það var sn.fl. kvenna frá Grefsen Idrettslag; lið þetta kom upp á gagnboð. Snemma í vetur var hafinn Undirbúningur að Noregsferð. æfingar voru hafnar í janúar og var æft þar til þrem dög- Um áður en farið var. Þjálf- arar voru Frímann Gunnlaugs- Son og Stefán Gunnarsson. Ráðinu var kunnugt um Norðurlandamót, sem halda átti | í Finnlandi og óskaði eftir upp-1 lýsingum um þátttökuskilyrði j hjá Norska handknattleikssam-1 bandinu. Norska sambandið ogí þá sérstaklega frk. Laila Schou j •Ni-lsen, Einar Kaspersen og Ole Moksnés tóku málið upp á sína arma og fluttu málstað okkar með þeim ágætmn á ráðstefnu, sém haldin var í Danmörku, að íslandi var boðin þátttaka í Norðurlandamótinu í fyrsta sinn. Þegar svo var komið vísaði ráðið þessu til ÍSl sem í lok apríl fól málið sérstakri nefnd til athugunar. , 1 nefnd þessari áttu sæti 3 Imenn frá H.K.R.R. og 2 frá ÍSÍ, frá ráðinu voru Árni Árna- feon, sem var formaður nefnd- arinnar, Ari Jónsson og Stefán Gunnarsson, frá ÍSÍ voru Hannes Sigurðsson og Gísli Ól- afsson. Nefndin tók til starfa strax. Starf hennar var að at- huga fjárhagslega möguleika fyrir Finnlandsferð í framhaldi af ferð H.K.R.R. til Noregs; einnig átti nefndin að velja í samráði við H.K.R.R. stúlkur til fararinnar. Mjög erfitt var að afla þess fjár sem þurfti. H.K.R.R. hafði tryggt sér fé til Noregsferðar, ISl gat ekki lofað fé til að borga það sem á vantaði til að fara til Finnlands, en það var ákveðið að fara til Finnlands þó smávegis vantaði. Farið var frá Reykjavík 15. júní og kom- ið aftur 3. júlí. Fararstjóri var Árni Árna- son, Hannes Sigurðsson fulltrúi ÍSÍ og Stefán Gunnarsson þjálfari. Þessi ferð varð að mörgu leyti dýrmæt. 1 fyrsta lagi unnu Islendingar þaraa sinn fyrsta landsleik í handknatt- leik. I öðru lagi lærðist mikið í leikaðferð, túlkun á reglum, skipulagningu og um hvar við stöndum meðal nágrannaþjóða okkar. Og í þriðja lagi fengum við tækifæri á að kynnast for- ystumönnum handknattleiksins á Norðurlöndum, en samstarf við þessa aðila er okkur nauð- synlegt til að efla handknatt- leikinn heima fyrir. Um ferðina í heild má segja það, að hún var erfið, en meðal annars þess vegna var hún svona ánægjuleg. I Noregi voru móttökumar slíkar, að erfitt mundi vera að gera betur. Ráðið stendur í mikilli þakkarskuld við Lailu Schou Nilsen og Nancy Peter- sen fyrir það starf, sem þær hafa unnið í þágu íslenzks handknattleiks og væri óskandi að þær gætu komið hingað með norska kvennalandsliðið sem I fyrst. I Finnlandi var um stórt mót i að ræða, svo allt var ópersónu- | legra og með allt öðru sniði en 1 í Noregi, en miðað við hve : umfangsmikið þetta mót var, I þá var það frábærlega vel rek- jið og móttökur allar góðar. j Handknattleiksráð Reykja- víkur hefur með því að gang- ast fyrir þessum samskiptum opnað augu ýmsra, og sýnt fram á að þessi íþrótt á skilið að fá betri aðhlynningu. ISÍ hefur til dæmis nú í fyrsta sinn sent fulltrúa á aðalfund al- þjóða handknattleikssambands- ins. Útvarpið hefur nú flutt meiri fréttir um handknattleik en áður, eins hafa blöðin skrif- að mun meira um íþróttina en áður. Enn vantar að íþróttakenn- araskólinn að Laugavatni vinni Víða um heim er blak elcki síður vinsœl ípróttagrein en handJcnattleikurinn. Myndin er frá blakkeppni í Kína. meira að handknattleik. Dómarafélagið starfaði vel síðastliðið ár. Frímann Gunn- laugsson formaður félagsins fluttist úr bænum um það bil er aðalstarfið var að hefjast, tók Ari Jónsson við formanns- stöðunni og hefur unnið frá- bært starf, því hann var einn- ig varaformaður í stjórn H.K.R.R. Vinna ber þá að því að störf- in dreifist meira í framtíðinni. Það er afar óheppilegt að of- hlaða einn mann svo störfum, að hann hætti alveg að hafa ánægju af vinnunni, og finnist þetta þrældómur. Félagið beitti sér fyrir ýms- um umbótum í sambandi við mótin að Hálogalandi, einnig hefur félagið látið sauma blúss- ur og eru dómarar ávallt í þeim er þeir dæma. Þetta setur sinn svip á framkvæmd móta. Þá hyggst félagið hafa skeið- klukkur við tímatöku á leikjum og ber einnig að fagna því. Dómaranámskeið hyggst fé- lagið halda nú strax í byrjun starfsársins. Framtíðarhorfur eru nokkuð góðar hjá Handknattleiksráð- inu. Það hefur hug á að hafa keppnistímabilið að mestu skipulagt fyrirfram, þannig að æfingar að Hálogalandi verði ekki eyðilagðar en húsið nýtt sem bezt. Keppt verði á sunnu- dögum og eitthvað á laugar- dögum. Ráðið hefur gert ráðstafanir til að fá hingað þjálfara; eru það dönsk hjón og koma þau í febrúar eða marz 1957, en dvelja í 3 vikur. Þau munu þjálfa alla flokka sem þess óska og jafnframt er gert ráð fyrir að þau dæmi nokkra leiki og hafi fundi með dómurum. I húsmálum hefur lítið gerzt sem sést, en þó verið töluvert unnið. Húsið að Hálogalandi fær að standa í vetur, en hvað mikið lengur er ekki vitað. Annars standa húsmálin þannig að BRl í félagi við Félag ísl. iðnrekenda og svo Reykjavík- urbæ, mun reisa íþrótta- hús með ca. 22x44 m gólfflöt og 2000 áhorfendur á túninu fyrir neðan Undraland, í nám- unda við nýja íþróttavöllinn í Laugardalnum. Við húsið mun verða handknattleiksvöllur, — væntanlega hefst bygging þessa húss næsta vor. 1 framtíðinni hyggst ráðið koma á árlegum samskiptum við nágrannaþjóðirnar eða aðra sem kynnu að hafa hug á því og verður reynt að haga því þannig að heimsókn verði hjá hvorum flokki 4. hvert ár og utanför 4. hvert ár. Kvenfólk: 1955 heimsókn Grefsen. 1956 Utanför til Nor- egs og Finnlands. Karlar: 1957 Heimsókn ? 1958 Utanför ? Þannig stenzt utanför kven- fólks á við Norðurlandamót og höfum við hér heima lið árið áður til að undirbúa okkur. En karlar geta ef heppilegt þykir farið á heimsmeistarakeppni, með samskonar undirbúning. Nokkrar umræður urðu um skýrslu stjómarinnar. Á fundinum voru mættir auk fulltrúa íþróttafulltrúi ríkis- ins og stjórn ÍSÍ. 1 stjórn ráðsins voru til- nefndir þessir menn fyrir næsta starfsár: Árai Árnason Víking, sem jafnframt var einróma kosinn formaður ráðsins. Stefán Gunn- arsson, Ármann; Hilmar Magn- ússon, Val; Jóhann Guðmunds- son ÍR; Magnús Georgsson KR; Jón Friðsteinsson Fram og Magnús Pétursson, Þrótti. ÞjóðviSjann vantar unglmga ■ \ til að bera blaðið til kaupenda í eftirtöldum \ hverfum: ■: Grímsstaðaliolt Skjól Tjarnargata Óðinsgata Hverfisgata Miklabraut Meðalholt Sigtún Teigar Vogar Nöklívavogur Gerðin Digranesvegur Hlíðarvegur Kársnesbraut Heiðargerði Talið við afgreiðsluna sem fyrst. ÞJOÐVILJBNN, Skólavörðustíg 19, sími 7500 Kópcsvogsbúar Rösk stúlka óskast til afgreiðslustarfa í matvöruverzlun í Kópavogi. Upplýsingar í skrifstofu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.