Þjóðviljinn - 27.09.1956, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 27.09.1956, Blaðsíða 4
Enn um umferðina — Lá við slysi — Ölvun á almannafæri — „Rúntkeyrslurnar" — Úrbóta þörf S) - ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 27. september 1956 '■ # ” [VEGFARANDI skrifar: „Um daginn var ég einu sinni sem oftar á gangi um Laugaveg- inn. Strætisvagn kom á tals- verðri ferð niður götuna, en stálpaður drengur á reiðhjóli renndi sér út af gangstétt- inni, svo til beint í veg fyrir vagninn. Ég bjóst við að hér yrði eitt umferðarslysið, en með fádæma snarræði tókst vagnstjóranum að bjarga því, nema hvað hjólið mun hafa skemmzt eitthvað. Ég segi að- eins frá þessu vegna þess að iþað er alltaf verið að skamma foílstjórana fyrir ógætilegan akstur, og þeim er oftast kennt um umferðarslysin og árekstrana, en mér finnst að alveg eins megi segja frá því, sem betur fer hjá þeim. Að mínu viti forðaði vagn- stjórinn hér slysi með skjót- um viðbrögðum sínum, en tæplega hefði verið hægt að ásaka hann, þótt slys hefði orðið“. JÁ, SEM ’BETUR FER sýna margir bílstjórar oft og ein- att mikið snarræði á hættu- legum augnablikum, annars væri enn meira um umferðar- slys en nú er, og er þó ærið nóg. Og oft hef ég dáðst að öryggi sumra strætisvagna- stjóranna, þegar þeir aka framhjá bílum, sem standa á þröngum götum, og manni finnst að ekki megi neinu muna, svo að þeir lendi ekki | .. 1 i HAFNARFJORBUR | Þjóðviljann vantar ungling til blaðburðar í \ Hafnarfirði, suðurbæ. Upplýsingar gefur Sigrún Sveinsdóttir, Skúla- [ I skeiði 20, sími 9648, eftir kl. 6, og afgreiðsla blaðs- f ins í Reykjavík, sími 7500. 1 i ÞI6ÐVILIINN ! I •■■■■■■■■■■■■■•■■■■•■•■^.•■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■® utan í bílnum. Og þótt mörg- um finnist strætisvagnastjór- arnir keyra hratt og ógæti- lega, þá hafa þeir það sér til afsökunar að þeir eru oftast mjög tímabundnir. ÉG SÁ í einliverju blaðínu hér um daginn grein, sem fjall- aði um hegðun ölvaðs fólks á almannafæri, einkum í mið- bænum. Var þar m.a. lagt til að banna bifreiðaumferð um Austurstræti eftir kl. 8 á kvöldin, og í öðru lagi fjar- lægja tafarlaust alla þá, sem haga sér á einhvern hátt ó- sæmilega. En er þetta fram- kvæmanlegt? Það er alveg rétt, að úrbóta í þessu efni er mikil þörf, en hvað er hægt að gera? Ég held t.d. að það væri ekki nóg að banna um- ferð um Austurstræti eitt, heldur þyrfti að banna hina svokölluðu „rúntkeyrslu“, sem einkum er stunduð af ung- lingspiltum, oft meira og minna ölvuðum, þótt sá sem ekur bílnum sé kannski alls- gáður. Oft fá piltarnir sér líka leigubíla til „að rúnta“ með sig, og finnst mér að leigubílstjórar ættu að neita að fara í slíkar ferðir. Án efa væri mikið hægt að gera til bóta í þessu efni, ef rögg- samlega væri tekið á málun- um, og óróaseggir yrðu varir við að lögreglan fylgdist vel með framferði þeirra og tæki hart á því, ef höfð væri í frammi ósæmileg hegðun. Og ég tek undir þau ummæli í fyrrnefndri grein, að hér sé aðgerða þörf, og því fyrr því betra. verður haldið á Grandagarði hér í bænum föstu- daginn 5. október n.k. kl. 3 e.h. eftir kröfu Ragn- ars Jónssonar hrl. og Lárusar Jóhannessonar hrl. Seldur verður m/b Vinur RE 197 talin eign Þór- halls Sigurjónssonar, og 2 snurpunótabátar til- heyrandi Gísla Halldórssyni h.f. Greiðsla fari fram við hamarshögg. Borgarfógeimm I Beykjavík | Frá Þjóðleikhúsinu Ýmsir munir, sem leikhúsgestir hafa týnt eða gleymt í Þjóöleikhúsinu eru í vörzlu dyravarðar, gengið inn frá Lindargötu. Þeir, sem telja sig geta átt muni þessa eru beðnir að vitja þeirra og sanna eignarrétt sinn. Munanna sé vitjaö fyrir 10. okt. TIL SÖLU starfandi þvottahús í Reykjavík. Húsnæði getur fylgt. Upplýsingar gefur BA6NAS ÖLAFSSON hil.. Vonarstrœti 12. Kumlega 1000 bíða baua á hálfu ári pramM brugðin því sem við eigum að venjast, eins og á myndinni sést. Hún er öll miðuð við það að farþegum sé komið þannig fyrir í vagninum, áð þeim stafi sem minnst hætta af árekstri. Segja má að búið sé um þá, eins og þeir væru brothættur varningur. Hvert sæti er aðeins ætlað einum farþega. ÖkumacSurinn situr fyrir miðjum vagninum, og er eitt sætanna beint fyrir aft- an hann og snúa bökin saman. Þetta sæti fyrir aftan öku- mannssætið ætti að vera örugg- asta sætið í bílnum ef til árekst- urs kemur. ■ Stýrishjólið, sem svo oft veld- ur slysum á ökumönnum þegar toílar á mikilli ferð rekast á, er í þessum bíl látið víkja fyrir handföngum fyrir ofan mæla- borðið. Ökumaðurinn er spenntur í sætið með ól yfir bringuna, og í öllum öðrum sætum bílsins eru öryggisbelti af sömu gerð og notuð eru í flugvélum. Hurðirnar eru af svipaðri gerð og þær sem notaðar eru í stræt- isvögnum, þ. e. leggjast saman í miðju þegar dyrnar eru opn- aðar. Framglugginn er þannig gerður að ökumaðurinn hafi sem bezt útsýni. Málmstoðir eru hafðar til styrktar ef vagn- inum hvolfir. Frétt sem borizt hefur frá Vestur-Þýzkalandi sýnir að ekki veitir af að eitthvað sé gert til að auka öryggið í umferðinni. t. d. á þann hátt sem sagt er frá annarsstaðar í þessum þætti í dag. Á fyrra helmingi þessa árs jukust umferðarslys í Vestur- Þýzkalandi um 6,1% miðað við sama tíma í fyrra. Fjöldi slas- aðra jókst um 5,7% og fjöldi þeirna sem biðu bana um 65%. Fjöldi slysa þar sem einungis varð tjón á farartækjunum sjálfum jókst um 15,7%. 1 júní í sumar urðu á þjóð- (vegunum 28.233 slys þar sem imenn slösuðust. Fjöldi þeirra sem biðu bana i slysum eða lét- ust síðar af meiðslum var 1079. 35.614 menn slösuðust. Pobeda&íll í aímælis- happdrætti Þjóðviljans Nýstárlegur bandarískur bíll á að auka öryggi farþeganna Tveir bandarískir sérfræðingar í umferðarmálum hafa sagt fyr- ir um þessa teikningu af bifreið, sem þeir telja, að muni geta dregið mjög úr umferðarslysum. Nú er verið að smíða tilraunabil ’eftir þessari teikningu í Cornell Aeronautical Laboratory. Fjögurra ára rannsókniV og tilraunir liggja að baki þessum bíl, sem búizt er við að verði fullsmiðaður í ágúst næsta ár. Það er ekki ætlunin að fram- leiða hann í stórum stíl, lieldur er von iþeirra, .sem að þessu hafa unnið, að bílaframleiðendur muni taka bíl þennan til fyrir- myndar að ýmsu leytt og nota þann öryggisbúnað sem í honum er í bílum sinum. Enda þótt slíkir bílar myndu iað sjálfsögðu ekki endilega verða til þess að árekstrum fækki, þá ætti hinn fullkomni öryggisútbúnaður þeirra að geta leitt til þess, að færri stórslös- uðust eða biðu bana í slíkum árekstrum. Það er trú þeirra, sem láta smíða þennan bil að farþegar í honum ættu að sleppa ómeiddir þó að hann yrði fyrir árekstri á 80 km hraða Hins vegar leyna þeir þv: ekki, að híllinn myndi sjálf- ur ekki „hafa gott af slíkum árekstri”. Að utan líkist þessi bíll mjög venjulegum fólksbilum af seinni gerðum, nemia hvað höggdeyf- ar eru einnig á hliðunum en innri gerð bílsins er mjög frá- Hér er Dauphine Við birtum hér í síðustu viku mynd af Simca-vagninum franska og minntumst um leið á að lítið sem ekkert væri um innflutning á frönskum bflum hingað til lands. Því miður, lá okkur við að segja, því að franskir bílar eru að mörgu leyti framúrskarandi og eru a.m.k. flestir fallegri en bílar annars staðar frá. Dauphine-vagninn frá hinum þjóðnýttu Renault- verksmiðjum er engin undantekning. Hann kom fyrst á mark- aðinn í ár og er vafalaust einn fullkomnasti bíll sem nú er smíðaður. Því miður mun verð hans einnig hátt.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.