Þjóðviljinn - 02.10.1956, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 02.10.1956, Qupperneq 3
Þriðjudagur 2. október 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (3 Knattspyrnukappleikur verðar í dag milEi Lufthansa og FEugfélags íslands Síöastliöinn sunriudag komu til Reykjavíkur írá Ham- borg í boði Flugfélags íslands, 15 starfsmenn þýzka flug- félagsins Lufthanza. Er hér um aö ræða knattspyrnu- flokk, sem heyja ætlar kappleik víö Flugfélagsmenn. Fer knattspyrnuleikurinn fram á fþróttavellinum og hefst kl. 17 í dag. Það mun vera einsdæmi, að starfsmenn flugfélags fari til annarra landa til íþróttakeppni. fslandsferð þeirra Luftliansa- manna hefur því vakið athygli í Þýzkalandi og er talin bera vott um góða samvinnu milli tveggja félaga. Sl. sumar stofn- uðu starfsmenn Flugfélags fs- lands með sér íþróttafélag, er hlaut nafnið Faxi. Knattspyrn- an hefur verið þar efst á baugi, og hafa Flugfélags- menn æft af kappi að undan- förnu. Formaður Faxa er Jafet Sigurðsson, og hefur hann á- samt cðrum stjórnarmeðlimum félagsins undirbúið móttöku vegna komu Þjóðverjanna hingað til lands. Birgir Þor- gilsson, fulltrúi Fí í Hamborg, hefur haft veg og vanda af boði Lufthansamanna, og kom hann í fylgd með þeim til Reykjavíkur. í gær fóru hinir erlendu gestir til Þingvalla, Gullfoss og Geysis í boði starfsmanna Fí. Var sú ferð öll hin ánægjuleg- asta. í dag mun þeim verða sýnd Reykjavík, en í kvöld, að kappleiknum, loknum verður þeim haldið kveðjusamsæti. Hér hafa þeir dvalið á heimil- um starfsmanna Fí. í fyrra- málið halda svo Lufthansa- menn heim á leið. Verðlœkkun á tómötum Sölufélag garðyrkjumanna hefur nú tilkynnt haustverð á tómötum og er um mikla verð- lækkun að ræða frá því sem verið hefur. Fyrsta flokks tómatar kosta nú kr. 19.50 kílóið í stað kr. 16.00 áður, en verð á 2. flokks tómötum lækk- ar úr 21 krónu í kr. 13.00 í ráði er, að Flugfélagsmenn fari til Þýzkalands næsta ár í boði Lufthansa og þreyti þar kappleiki við þýzka. Er hér um nokkuð óvenjuleg . en að sama skapi ánægjuleg sam- skipti tvegja félaga að ræða. Drengur lær- tirotfiiar Laust fyrir kl. '7 í gærkvöld varð það slys á Hverfisgötu að ungur drengur, Sigurður Hall- dórsson, Snorrabraut 77, varð fyrir vörubíl og lærbrotnaði. Sigurður var á hjóli, og féll af því á götuna, er honum lenti •saman við bílinn. Honum var þegar ekið á slysavarðstofuna, þar sem búið var um meiðsli hans. Afmæli símans ísafirði í gær. Frá fréttaritara Þjóðviljans. í tilefni 50 ára afmælis Landssíma Islands sl. laugar- dag, bauð símstöðvarstjói’inn hér á ísafirði, Maríus Helga- son, allmörgum gestum til síð- degisdrykkju á heimili sínu. Voru þar margar ræður flutt- ar. Bæjarstjóra- fmidur á Isafirði ísafirði í gær. Frá fréttaritara Þjóðviljans. I s.l viku var haldinn hér á Isafirði fundur bæjarstjóra á Norður-, Austur- og Vestur- landi, Mættu á fundi þessum tveir fulltriíar frá hverjum kaupstað, bæjarstjóri og einn bsejarfulltnia. Þjóðviljinn mun væntanlega skýra nánar frá samþykktum fundarins. Neeclii supernova — ný gerð ..sjáMvirkra” saumavéla Á sunnudaginn auglýsti Fálkinn nýja gerð af sauma- vélum, er nefnist Necchi Supernova, Verzlunin haföi 75 saumavélai- á boðstólum, og seldust jiær upp fyrir há- degi í gær. Fréttamönnum var boðið að skoða þessar vélar, sem ganga svo í augun á húsmæðrum; og eru þetta hinir eigulegustu gripir. Því miður er viðkom- andi blaðamaður Þjóðviljans heldur klénn í saumalistum, og kann hann þvi illa að lýsa vél- inni. En aðalatriðið er það að hún er mun „sjálfvirkari“ en aðrar saumavélar sem hér hafa verið á markaðnum, saumar til dæmis hnappagötin sjálf- krafa og án þess þurfi að snúa efninu, stoppar í og festir tölur. Supérnova-vélin er hálf- skyttuvél, fyrir beinan saum og zig-zag-saum. Sérstakur sjálf- virkur og innbyggður útbúnað- ur stjómar samtímis þremur stillum, eða einum í senn, nál- arstilli, zig-zag-stilli og spor- stilli. 1 sambandi við þennan útbúnað eni settir útsaums- kambar og kambstautur sem snýst í sífeliu. Um leið og kambarnir snúast hreyfa þeir stillana á samstilltan hátt, erx með því móti saumar vélin sjálfkrafa útsaum og skraut- saum. Með því að breyta stöðu kamhanna á ýmsan hátt getur saumakonan saumað útsaums- mynstur eftir sínu eigin höfði. En ætli það þýði nokkuð að reyna að lýsa þessu öllu nán- ar. En fleiri vélar eru væntan- legar síðar, og með þeim fá kaupendur leiðarvísa, auk þess sem stúlka hjá fyrirtækinu kennir þeim á vélaraar, eftir því sem þeir óska og þurfa á að halda. Vélarnar virðast mjög ódýr- ar miðað við verð á ýmsum sambærilegum vörum. Þær eru smíðaðar á Italíu. Arngrímur Fr. Bjarnason sjö- tugur í dag Arngrímur Fr. Bjarnason, Isafirði, er sjötugur í dag. —■ Foreldrar lians voru Bjarni Helgason, sjómaður og Mikka- lína Friðriksdóttir úr Skutuls- firði. Ætt og uppruni ramm- vestfirzkur. Lærði prentiðn á ísafirði 1903—06. Forseti fjórðungssambands fiskideildar Vestfjarða um langt skeið og varaforseti Fiskifélags íslands 1922—30. Bæjarfulltrúi á Isa- firði 1912—17 og 1934—42. Oddviti Hólshrepps, Bolungavík 1924—28. Ritstjóri Vestur- lands á Isafirði 1933—1942. Stormasamt skeið í sögu blaðs- ins. Hann hefur einnig ritað Prentsmiðjusögu Vestfirðinga, ísafirði 1936. Arngrímur er tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Guðrún Jónsdóttir er hann missti 1921, en seinni kona hans er Ásta Eggertsdóttir, Fjeldsted. Hefur hann orðið kynsæll maður, á 17 börn á lífi. Amgrímur er staddur á Isa- firði í dag. G. Næsta umferð í kvöld Fjórða uinferð skákniótsins var tefld sl. þríðjudag:. fimmta umferð á sunnudaginn og næsta umferð verður tefld j kvöld í Þórskaffi kl. 8. Orðsneding til manna j er búa í leiguhúsnæði | Vegna athugunar á leigukjörum þeirra, er húsnæði : hafa á leigu, eru það vinsamleg tilmæli nefndar þeirrar, er hefur það mál til athugunar, að leigutakar húsnæðis sendi henni upplýsingar um leigukjör sín. Þess er vænzt, að þetta nái til alls leiguhús- : næðis, hvort sem það er íbúðar-, iðnaðar, verzlunar- : eða skrifstofuhúsnæði. Áríðandi er, að leigutakar taki jj fram hve margir fermetrar húsnæðið er. Hvernig hús- ; næðið er staðsett (kjallari hæð eða ris) svo og aldur : þess ef hægt er. Bezt er að fá einnig upplýsingar um : rúmmál húsnæðisins og herbergjafjölda svo og hversu það er búið þægindum. Tekið sé fram, hvort stærðin sé miðuð við utan- eða innanmál. Taka þarf fram raunverulega mánaðarleigu, hvað : af henni er talið í húsaleigusamningi og hvað er borg- : að utan hans, svo og hversu mikil fyrirframgreiðsla hefur verið greidd. Þeir, sem senda slíkar upplýsingar, tilgreini nafn : sitt og heimilisfang. Allar upplýsingar verður farið með sem trúnaðarmál og engin nöfn gefin upp í hugsan- | legum umræðum um leigukjör. Sérstaklega er skorað ; á leigutaka 'húsnæðis í Reykjavík, Kópavogi, Hafnar- : firði Keflavík, Akranesi, Akureyri og Vestmannaeyj- um að senda slíkar upplýsingai’, svo hægt sé að mynda : sér skoðun um húsaleigu á þessum stöðum. Þeir, sem gefa oss upplýsingar um framanskráð atriði, þurfa að senda svör sín fyrir 10. okt. n.k. og alls ekki síðar en 15. okt. Allar upplýsingar sendist Hannesi Pálssyni, c/o Gimli, 5 Reykjavík. * Reykjavík, 30. sept. 1956, Hannes Pálsson j Tómas Vigfússon Sigurður Signiundsson 5 I Tilboð ■ ■ : í nokkrar fólksbifreiðar er verða til sýnis að Skúla- : túni 4 í dag, þriðjudaginn 2. okt. kl. 1—3 síðdegis. — j Tilboð án símanúmers verða ekki tekin til greina. Til- • boðin verða opnuð í skrifstofu vorri í dag kl. 5. ■ ■ ■ Sölunefnd varnarliðseigna Samband matreiöslu- og fraitireiðslumaima Ailsherjaratkvæ5agriðs!a í 4. umferð vann Björn Jóh. Jón Víglundsson, Þórir Ól. vann Jón Pálsson, Guðm. Ársæls vann Eirík Marel, Lárus vann Þóri Sæm., Gilfer vann Reimar. Biðskákir voru tefldar á fimmtudag. Björn og Gilfer gerðu jafntefli, Jón Pálsson vann Eirík. Á sunnudaginn var 5. umferð- in. Jón Páls vann Jón Víglunds, Lárus vann Eirík, Ágúst vann Þóri Sæm., Þórir Ól. vann Gilf- er, Björn og Guðmundur áttu biðskák og Reimar sat hjá. Ákveðið hefur verið að allsherjaratkvæðagreiðsla skuli viðhöfö um kjör fulltrúa Sambands mat- reiöslu- og framreiðslumanna til 25. þings Al- þýöusambands íslands. Framboöslistar meö 4 fulltrúum og 4 til vara, ásamt meömælum 35 fullgildra sambandsmeð- lima, séu komnir til kjörstjórnar fyrir kl. 12 á há- degi fimmtudaginn 4. október, á skrifstofu sam- bandsins kl.. 10—12 daglega. Kjörstjórn Eftir 5 umferðir er Lárus Johnsen efstur með 4 vinninga úr 4 skákum og Þórir Ól. næst- ur með 4 vinninga af 5 skákum. í I. flokki er Guðmundur Magnússon efstur með 3i/2 vinn- ing af 4 skákum. II. fl. A er Pétur Halldórsson efstur með 4% eftir 5 umferð- ir. f II. fl. B er Ólafur Ólafsson efstur með 5 vinninga og bið- skák af 6 mögulegum. Næsta umferð er í kvöld kl. 8 í Þórskaffi. Verkamenn - Verkameni? Verkamenn óskast til vinnu við jarösímagröft í Reykjavík. Nánari upplýsingar í nýja símahúsinu við Suöurlandsbraut, sími 82709 milli kl. 08.00 og 18.00. ■ ■ Póst- og símamálastjómin ■ ■ ■ ■ ■ 9

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.