Þjóðviljinn - 02.10.1956, Page 12
\orska bókasýningin opnuð á laugardag
Á laugardaginn var norska
bókar.vningin bpnuð að viðstödd-
um mörgum gestum.
Pétur ólafsson forstjóri ísa-
foldsr !;auð gesti velkomna. í>á
talaði Gylfi Þ. Gíslason mennta-
málaráðherra og kvað fagnað-
arefni að fá hingað norska bóka-
sýningu.
Thorgeir Anderssen-Ryst am-
bassador Norðmanna opnaði
sýninguna með ræðu. Kvað hann
hennar hátign bókina hafa haft
sérstakt gildi fyrir Islendinga og
Norðmenn, og þá sérstaklega
hvernig bókmenntirnar og tung-
an hefðu verið aflgjafi í sjálf-
stæðisbaróttunni. Og hvernig
hefði farið hjá okkur Norðmönn-
um, sagði hann, ef lampinn frá
íslandi, bókin, hefði ekki lýst
Bþrai samþykk-
ur ráMfunum
A fundi í Verkalýðs- og sjó-
mannafélaginu Bjarma á
Stokkseyri s.l. sunnudag var
einróma samþykkt að lýsa yfir
stuðningi við ráðstafanir ríkis-
stjórnarhmar í verðlags- og
kaupgjaldsmálum. Jafnframt
var því yfir lýst að félagið
treysti því að tíminn til ára-
móta verði notaður til þess að
finna varanlega lausn á vanda
efnahagsmálanna og um það
haft fuílt samráð við verka-
lýðssamtökin.
okkur? Við höfðum gleymt, en
það sem hafði gleymzt var varð-
veitt í Heimskringlu.
Það mun ekki þurfa að hvetja
menn til að skoða hina norsku
bókasýningu, en þó skal minnt á
að það er takmarkaður tími sem
sýningin stendur.
Myndin hér að ofan er af
Berggrav fulltrúa norskra bóka-
útgefenda, þar sem hann er að
setja upp sýninguna.
Spádómurinn verður frum-
sýndur á fimmtudaginn
Spádómurinn, verðlaunaleikrit Tryggva Sveinbjörns-
sonar, verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu næstkomandi
fimmtudag.
Fyrir leikrit þetta fékk höf-
undurinn fyrstu verðlaun, með-
al ísl. höfundanna, í norrænu
leikrita samkeppninni, sem
fram fór 1955. Þjóðleikhúsið
hefur áður sýnt leikrit eftir
Tryggva Sveinbjörnsson, leik-
ritið Jón Arason, sem er sterkt
og áhrifamikið og er Tryggvi
því vel þekktur hjá íslenzkum
leikhúsgestum.
Spádómurinn er leikrit sem
fjallar um hin eilífu vandamál
í sambúð karla og kvenna,
samskipti fjölskyldna, þjóða og
íi Fram-
Verkakvenaafélagið Framtíðin
á Eskifirði kaus sl. sunnudag
Ingibjörgu Kristjánsdóttir full-
trúa sinn á Alþýðusambands-
þing.
láSfræðingur ber
vitni í Poznan
Fjórði dagur Poznanréttar-
haldanna var í gær og var
haldið áfram vitnaleiðslum í
málum þriggja unglinga, sem
sakaðir eru um að hafa banað
liðþjálfa úr örj'ggislögreglunni.
Verjendur þeirra leiddu sem
vitni sálfræðing og skýrði hann
réttinum frá því, að innibyrgt
hatur almennings í garð pólsku
öryggissveitanna hefðu leitt til
morðsins á liðþjálfanum. Mann-
fjöldinn hefði verið í mjög
æstu skapi eftir verkfallið,
kröfugönguna og skothríðina
og hann bæri ábyrgð á morð-
inu, en ekki unglingarnir þrir.
þjóðasamsteypa. Leikritið er
um margt nýstárlegt, svo og
sviðsetning þess og leiktjöld.
Leikstjóri er Indriði Waage,
en leiktjöldin gerði Lothar
Grund. Leikarar eru Herdís
Þorvaldsdóttir, Róbert Arn-
finnsson, Hildur Kalman, Bene-
dikt Árnason, Margrét Guð-
mundsdóttir og Ólafur Jónsson.
(Frá Þjóðleikhúsinu).
tMóÐmmiM
Þriðjudagur 2. október 1956 — 21. árgangur — 224. tölublað
Miðstjórnarfundur í
Moskva á næstunni?
Viðræðnr þeirra Krústjoffs og Títós fara
írant í bænmn Jalta á Krímskaga
Skýrt var‘ frá því í Moskva og Belgrad um helgina, að
viðræður þeirra Títós, forseta Júgóslavíu, og Krústjoffs,
aöalritara Kommúnistaflokks Sovétríkjanna, færu fram í
bænum Jalta á Krímskaga.
Fulltruar
Oldunnar
Verkakvennafélagið Aldan á
Sauðárkróki kaus sl. sunnudag
fulltrúa sína á Alþýðusambands-
þi-ng, þær Hólmfríði Jónasdótt-
ur og Hrefnu Jóhannsdóttur.
Varafulltrúar voru kjörnir Að-
alheiður Árnadóttir og Hulda
Sigurbjörnsdóttir.
Fyrsta opinbera tilkynningin
um þessar viðræður var gefin á
laugardaginn, þegar blaðafull-
trúi júgóslavneska utanríkis-
ráðuneytisins, Drascovic, skýrði
fréttamönnum í Belgrad frá
því, að þær fjölluðu um ágrein-
ingsatriði í utanríkismálum og
stefnumálum kommúnistaflokka
Júgóslavíu og Sovétríkjanna.
Blöð og útvarp í Sovétríkj-
unum hafa hins vegar ekkert
látið uppi um hvað rætt sé í
Jalta og hafa heldur ekki birt
þessa yfirlýsingu júgóslavneska
utanríkisráðuneytisins.
Gera, sem tók við aðalritara-
starfi Verkalýðsflokks Ung-
verjalands af Rakosi, hefur
tekið þátt í viðræðunum á Krím
og einnig er talið sennilegt,
þótt þess hafi ekki verið getið
sérstaklega, að Búlganín, for-
sætisráðherra SóVétríkjanna, og
aðrir ráðamenn þeirra hafi
einnig tekið þátt í þeim.
Sendiráð Júgóslavíu í Moskva
sagði í gær, að Tító forseti
myndi dveljast enn nokkra
daga á Krím, en hann myndi
sennilega ekki koma til Moskva.
Fréttamenn í Moskva segj-
ast hafa eftir góðum heimildum
að innan skamms verði mið-
stjórn Kommúnistaflokks Sov-
étríkjanna kölluð saman á
fyrsta fund sinn eftir 20.
flokksþingið, sem -haldið var í
febrúar. Hafi staðið til lengi að
kalla miðstjórnina saman til
að ræða þá þrðÉk sem orðið
hafi í Sovétríkjunum og al-
þýðulýðveldum Austur-Evrópu
eftir 20. flokksþingið, og nú
sé búizt við að fundur hennar
verði innan 2—3 vikna.
Fulltrúi Árvaks
Vei-kamannafélagið Árvakur á
Eskifirði kaus sl. sunnudag Al-
freð Guðnason fulltrúa sinn á
Alþýðusambandsþing.
Fa&giMir vin§íra samstarfi og
lýmr fyllsta stnHiifsigi vfð
fflá5gerdfir stfóriiarfiiiiar
Á fundi í Verkalýðsfélagi
Hveragerðis s.l. sunnudag var
eftirfarandi samþykkt með
samhljóða atkvæðum:
„Fundur haldinn í Verkalýðs-
félagi Hveragerðis 30. sept.
1956 fagnar því að vinstra
sámstarf hefur tekizt á stjórn-
málasviðinu, lýsir fyllsta stuðn- sóttur.
ingi við aðgerðir ríkisstjórnar-
innar í verðlags- og dýrtíðar-
málum og treystir því að tím-
inn fram að áramótum verði
notaður til hins ýtrasta til að
undirbúa framtíðarlausn þess-
ara mála.“
Þessi fundur Verkalýðsfélags
Hveragerðis var óvenju vel
Bandarísk herflutningavé! nanðlend-
ir á Suðurnesjavegi — Engan sakaði
Síðdegis í gær varð flugvél frá bandaríska hernum
með 13 menn innanborðs, að nauðlenda á Suðurnesja-
veginum fyrir ofan Innri-Njarðvík og tókst lendingin svo
giftusamlega að engan sakaði.
Flugvél þessi, sem er flutn-
ingaflugvél af gerðinni DC 3,
eða sömu ög Flugfélag íslands
notar í innanlandsflugi, var að
koma frá Þórshöfn og voru 13
menn í flugvélinni. Annar hreyf-
ill vélarinnar stöðvaðist kl. 16.20
en hinn 16.37 og greip flugmað-
urinn þá til þess ráðs að reyna
að lenda á þjóðveginum um 3
km. norður .af flugvellinum, eða
fyrir ofan Innri-Njarðvík. Lend-
ingin tókst svo vel að enginn í
flugvélinni meiddist. Áður en
flugvélin stöðvaðist fór hún út
fyrir veginn að framan og sner-
ist þversum á veginum. Olli hún
því umferðartruflun um tíma, en
gerðar voru ráðstafanir til að
draga hana út af veginum. Verð-
ur hún tekin í sundur og flutt
suður á flugvöll. Skemmdist hún
svo lítið að talið er að hægt
muni að setja, hana saman aft-
ur og fljúga henni.
Fulltrúar Sjé-
mannaféíags
ísfirðinga
ísafirði í gær.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Sjómannafélag Isfirðinga
hélt félagsfund á sunnudaginn
og kaus fulltrúa sína á Alþýðu-
sambandsþing. Kosnir voru Jón
H. Guðmundsson og Ásberg
Krístjánsson.
Stjórn Vélstjéra-
félags fsafiarðar
endurkjörin
ísafirði í gær.
Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Vélstjórafélag Isafjarðar hélt
aðalfund s.l. sunnudag. Stjóm
félagsins var endurkosin, en
liana skipa: Kristinn D. Guð-
mundsson formaður, Sigurður
Pétursson varaformaður, Krist-
inn Arnbjörnsson ritari og Sig-
urður H. Sigurðsson féhirðir.
Þá fór fram kosning fulltrúa
félagsins á 25. þing Alþýðu-
sambands Islands. Kosinn var
formaður félagsins Kristinn D.
Guðmundsson og til vara Krist-
inn Arnbjörnsson. Fulltrúar á
þing Alþýðusambands Vest-
fjarða voru kosnir Kristinn
Arnbjörnsson og Guðmundur
Guðjónsson.
Hagkvæmara ú
Bjarni .Pálsson í Keflavík
skýrði blaðamörmum nýega
frá nýung í fiskiðnaði, sem
Bretar hafa tekið upp. Hefur
Bjarni kynnt sér verkunarað-
ferð þessa, sem er í því fólg-
in að þurrka fiskinn í vél-
um, bæði flök qg malaðan
og pressaðan í Bret-
ar mala t.d. ufsann ng pressa
hann í plötur og er það ólíkt
útgengilegri vara en hertur
ufsi er stundum.
Við þessa aðferð sparast
frystigeymslur og frystiskip
til flutninganna og er það
ekki lítið atriði. Virðist hér
vera um arðvænlegan at-
vinnuveg að ræða. Hið brezka
fyrirtæki vill gjarnan selja
hingað vélar til slíkrar
vinnslu. — Verður nónar sagt
frá þessu í blaðinu á morgun.
Það vantar
unglinga
Þjóðviljann vantar ung-
linga til að bera blaðið til
kaupenda í ýmsum liverf-
um bæjarins. Sjá auglýs-
ingu á 44. síðu
rvrrvrrvrrrvr'r.rrvrvrrvrsrrrvrvrvrrrvrvrrvrvi