Þjóðviljinn - 14.10.1956, Síða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 14. október 1956
FIM
Jónas Ámason:
,1. Sjór og menn
Einfaldar og skemmtilegar frásagnir úr
lifi alþýðu ritaðar á máli sem á lifandi-upp-
sprettu í daglegu tali. Höfundurinn nýtur
frábærra vinsælda. Bókin kom út í vor og
er langt til uppseld. Þeir sem safna bóka-
flokknum eru sérstaklega minntir á að
tryggja sér hana fljótt.
2, Sextán sögur
sftir Halldór Stefánsson
Ólafur Jóh. Sigurðsson valdi
sögurnar og ritar formála.
Sögur Halldórs Stefánssonar hafa lengi
notið mikilla vinsælda, bæði heima og er-
lendis, og eru í þessari bók margar snjöli-
ustu sögur hians. Halldór Laxness hefur
komizt svo að orði að „telja megi á fingrum
annarrar handar þá íslendinga sem náð
hafa að gera smásögur eins vel og Halldór
Stefánsson, síðan þá höfunda leið er á
þrettándu öld settu surna íslendingaþætti
saman".
3. Þytur um nótt
Sögur eftir Jón Dan
Páir höfundar hafa á undanförnum ár-
um vakið eins mikla athygli fyrir smá-
eögur sínar og Jón Dan. Árið 1955 hlaut
hann tvenn fyrstu verðlaun í smásagna-
eamkeppni, önnur hjá Helgafelli, hin hjá
Samvinnunni, og hafði hlotið þar verð’aun
áður. Þessar þrjár verðlaunasögur ásamt
ejö öðrum birtast hér í fyrstu bók höfund-
ar,
4. Stofnunin
Sögur eftir Geir Kristjánsson
LOKKUR
OG MEN
ásamt heildarútgáfu á l)ó<$um
Guðmundar Böðvarssonar
Bókaflokkur Máls og menningar 1956 flytur
eins og áður frumsamdar og þýddar bækur,
að þessu sinni níu bindi, sögur, leikrit og
fræðibækur. Viðburður er að fá þýðingu Helga
Hálfdanarssona: á leikritum Shakespeares, Lif
í listum, ævisógu hins óviðjafnanlega leik-
stjóra Stanislavskís, og Sextán sögur Hall-
dórs Stefánssonar í úrvali Ólafs Jóhanns. Ný-
stárleg fræðibok er Náttúrlegir hlutir með
svörum við ýmsum eðlisfræðilegum spurning-
um. •
Hver bókaflokkur hefur komið með fyrstu
verk ungra höfunda, og eru hér tveir nýir,
Geir Kristjánsson og Jón Dan. Þá eru enn tveir
höfundar sem lesendur munu fagna af góðri
kynningu, Jónas Árnason með nýjar frásagnir
úr lífi alþýðu og Björn Þorsteinsson með nýtt
rit úr íslandssögu.
Bókaflokkurinn er eins og áður að prent-
un og ytra frágangí meðal fegurstu bóka sem
hér eru gefnar út.
Ásamt bókaflokknum kemur frá Heims-
kringlu fyrsta heildarútgáfan af ljóðum Guð-
mundar Böðvarssonar, hins vinsæla þjóð-
skálds. Fyrstu bækur hans hafa um langt
skeið verið uppseldar.
^ 1 ■■ ■ ■ ■ ■■ ■■ ............................................................................................................................................................................................................................■■■■■■ ■
Guðmundur Böðvarsson:
KVÆÐASAFN
-- ----—■ '■r'T'i
ÞAÐ HEFUR VERXÐ eagt um Guðmund Böðvarsson að hann sé oitt af
ævintýrunum i íslenzkri bókmenntasögu. Starfandi bóndi kveður hann sér
hljóðs sem skáld svo að alþjóð hlustar, og er orðinn einn af vinsælustu
þjóðskáidum íslendinga. Hann hefur gefið út fimm Ijóðabækur, og eru þær
fyrstu löngu ófáanlegar. Ljóðavinum gefst hér í fyrsta sinn kostur á að fá
heildarútgáfu af kvæðum hans.
r
5. Islenzka skattlandið
eftir Björn Þorsteinsson
Þessi bók rekur þjóðarsögu íslendinga &
tímabilinu frá 1262 til 1400, en það skeið
þjóðarsögunnar er áður einna minnst
rannsakað. Um fyrri bók Björns, Islenzka
þjóðveldið, ritaðii Sverrir Kristjánsson:
„Höfundur hefur svo fullkomin tök á efni
sínu að margir kaflar eru hin lostætasta
lesning .... Birni Þorsteinssyni hefur tek-
izt undarlega vel að skrifa sögu áslenzku
þjóðarinnar, svo að hún birtist lesandan-
um sem lífræn heild hver þáttur isienzka
mannfélags fléttaður við annan í sam-
hengi.”
6.—7. Líf í listum I—II
Ævisaga Stanislavskís
Ásgeir Hjartarson segir í formála: „Vart
mun meiri Ijómi stafa af nafni nokkura
leikhússmanns á þessari öld en Konstan-
tíns S. Stanislavskí — mikill brauðryðjandl,
óvið j af nanlegur leikstjóri, frábær skap-
gerðarleikari og máttugur kennari hinna
yngri kynslóða, listamaður sem aldrel
lét sér unnin afrek nægja en leitaði æ
lengra og hærra, vígði leiklistinni alla
krafta sína. Menn hlýddu á raust hana
hrifnir og fjálgir, settust við fótskör hans,
og þó að sjálfsögðu megi deila um suint i
stefnu hans og starfi hefur orðstír hina j
rússneska stórmennis aukizt ár frá ári, j
áhrif hans eflzt og dýpkað og borizt æ við. I
ar um heiminn ....”.
Allir sem að ieiklist starfa munu fagna
þessari bók á íslenzku og hún er til ;
skemmtunar ,og fróðleiks öllum sem i leiJs- j
hús fara.
Ásgeir BI. Magnússon hefur þýtt bókina. !
8. Náttúrlegir hlutir
eftir Wilhelm Westphal
Eðvarð Árnason, verkfr., pýddi
Höfundur er þýzkur háskólakennari í eðl-
isfræði. og hefur samið kennslubækur I
fræðigi-ein sinni og flutt útvarpsfyrirlestra
fyrir almennimg. Bókin gefur svör við ýms-
um spurningum úr daglegu lífi og tekur
dæmi þaðan, en fyrr en varir sér lesandinn
hlutina i nýju ijósi. Þetta er nýstárleg bók
með fjölmörgum skemmtilegum teikning-
um sem hjálpa til að gera efnið ljóst og
[
j
aðgengilegt.
:
9. Leikrit I
eftir William Shakespeare
í pýðingu Helga Hálfdanarsonar
Með þessu bindi er hafin ný útgáfa á
íslenzku á hinum ódauðlegu leikiituni
Shakespeares. Eru hér þrjú leikrit hans,
Draumur á Jónsmessunótt, Rómeó og’ Júlía
og Sem yður þóknast. Hafa tvö af þeiin
verið sýnd í Þjóðleikhúsinu nýlega.
1 leikdómi um Draum á Jónsmessunótt
sagði Ásgeir Hjartarson um þýðingu ÍHelga:
„Þýðingin er nákvæm og hugkvæm í bezta
lagi, ljós og hljómfögur og fer jafnan eðli-
lega í munni; og svo mikil er rímleiknl
Helga að gengur göldrum næst — því
vandasamara rím því léttfleygarii og eðli-
legri verða orðsvör og ljóð Shakespeares
í meðferð hans.
Hér er á ferð ungur sérkennilegur höf-
undur með mikla hæfileika og er þetta
ffyrsta bók hans. Áður hafa birzt sögur eft-
ir Geír í tímaritum og vakið mikla athygli
bókmenntamanna.
BÓKMEMIAftLAGIB MAL OG MENNING
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 21 — SÍMI 5 0 55