Þjóðviljinn - 14.10.1956, Síða 6
ðEí —■ ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 14. október 1956
IOÐVIUINN
Útgefandi:
Sameiningarílolckur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
Ótryggur markaður
Lestarglugginn Biðsirup teiknaði
orgunblaðið hefur að und-
'*"anförnu rætt um nauðsyn
þess að íslendingar hafi öryggi í
afurðasölumálum sínum, og það
er vissulega höfuðnauðsyn.
Þessvegna er samningur sá
sem nú hefur verið gerður við
Sovétrikin mjög mikilvægur;
hann tryggir fslendingum
þriggja ára viðskipti með góð-
um kjörum, og er slík samn-
ingagerð ölium þjóðum mikið
keppikefli.
En það eru aðrir markaðir
sem því miður veita minna
öryggi, t.d. fiskmarkaðurinn í
Bandaríkjunum. Við það land
er ekki unnt að gera neina
heildarsamhinga, þar sem
stjórnarvöldin hafa engin slík
afskipti, og verða íslendingar
sjálfir að koma afurðum sín-
um í verð með samningum við
viðskiptavinina hvern um sig.
Hefur þetta gengið misjafnlega
vel, sum árin hefur markaður
verið sæmilegur, en önnur
mjög slæmur.
En þótt bandarísk stjórnar-
völd hafi engin jákvæð af-
skipti af afurðásölum íslend-
inga vestanhafs, geta þau haft
neikvæð afskipti af þeim. Þau
geta lagt svo háa tolla á inn-
fluttan fisk að það jafngildi
innflutningsbanni, og banda-
rískir fiskframleiðendur hafa
æ ofan í æ borið fram kröfur
um slíka vernd og átt mikinn
stuðning á þingi. Nú er þetta
mál enn einu sinni komið á
dagskrá að því er segir í frétt
í Tímanum í gær, en þar er
komizt svo að orði: „Sam-
kvæmt Reutersfregnum hefur
tollanefnd bandariska þingsins
ráðið Eisenhower forseta til
að hækka toll á innfluttum
fiskflökum frá Noregi, íslandi,
Danmörku, Bretlandi, Vestur-
Þýzkalandi, Hollandi og Kan-
ada. Nefndin byggir álit sitt
á því, að fiskinnflutningurinn
frá þessurn Iöndum hafi að
undanförnu aukizt svo, að hann
skaði mjög fiskveiðarnar við
austurströnd Bandarikjanna
sem atvinnuveg".
Slíkar kröfur hafa áður verið
bornar fram á Bandaríkja-
þingi en þeim var þá hafnað
af forsetanum. Hins vegar er
Ijóst að sú hætta vofir ævin-
lega yfir að bandarískir fisk-
framleiðendur verði svo áhrifa-
miklir að þeir komi tollahækk-
unum í framkvæmd. Þess
vegna verða íslendingar að
hafa gát á Bandaríkjaviðskipt-
um sínum. Þeim ber að sjálf-
sögðu að hagnýta markaðinn
vestan hafs eins vel og kost-
ur er, en þeim ber jafnframt
að haga framleiðslu sinni og
viðskiptum þannig að ekki
hljótist vandræði af þótt sá
ótryggi markaður lokist.
: i ** » *> * “ ~ -j -• ? “• X > ; - T» f
World copyright reserved: Land og F
Staðreyndir
Ihaldið reynir nú að þyrla
upp miklu moldviðri út af
kjörbréfum þingmanna Alþýðu-
flokksins og ætlast til þess að
mökkurinn kæfi staðreyndir
málsins. Þær blasa engu að
síður við hverjum manni sem
hugsar:
IÞað voru fulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins í landskjör-
stjórn sem réðu úrslitum um
það að Framsóknarflokki og
Alþýðuflokki var heimilað að
hafa tvo landslista, enda þótt
það væri tvímælalaust brot
á anda og tilgangi stjómar-
skrárinnar og tilraun til þess
að ná meirihluta þingmanna
út á mikinn minnihluta at-
kvæða. Það var þannig ekki
tilgangur íhaldsins að standa
vörð um ákvæði stjómarskrár-
innar heldur að reyna að búa
sér til möguleika á hrossa-
kaupum.
2 Eftir að úrskurður lands-
kjörstjómar var fallinn
voru kosningar framkvæmdar í
samræmi við hann og hafði
það auðvitað áhrif á afstöðu
kjósenda um land allt. Enginn
getur um það sagt hvernig
kosningamar hefðu farið ef úr-
skúrður landskjörstjómar hefði
verið þveröfugur, og tillögur í-
haldsins úm að hnika úrslit-
unum til eftir á eru algerlega
út í bláinn.
3Einu skynsamlegu viðbrögð-
in við atburðum þeim sem
gerðust í sumar eru þau að
endurskoða stjórnarskrá og
kosningalög til þess að tryggja
að ekki verði unnt að misnota
ákvæðin. Þetta hefur Alþýðu-
bandalagið þegar tryggt í
samningunum um myndun nú-
verandi syórnar; rikisstjórnin
hefur heitið því að endurskoð-
un skuli framkvæmd á starfs-
tíma hennar.
¥»etta er mergurinn mólsins.
* Framkoma íhaldsins er hins
vegar skrípaleikurinn einber,
eins og þegar Jón Pálmason
býr til útreikninga sem eiga
að svipta allt að helmingi þing-
manna þingsetu! Og málþóf í-
haldsins sýnir aðeins hversu
málefnasnauð hin harða stjórn-
arandstaða er.
<?>
skAkin
Ritstjóri: íl
% GUDMUNDUR ARNLAUGSSON —<»
Að fórna liði fyrir sókn
NORSK
8LÖÐ
Blaðaturninn,
Laugavegi 30 B.
Eitt elzta tema skákarinnar,
sem þó er alltaf nýtt, er að
fórna liði fyrir sókn. í tafl-
byrjunum er b-peð hvíts oft
valið til þessarar fórnar; í
Evansbragði er því leikið í
opinn dauðann, b2—b4, en al-
gengara er þó að skilja það
eftir óvaldað og nota tímann,
sem það tekur andstæðinginn
að drepa peðið og koma mann-
inum, sem drápið framdi, und-
an, til þess að efla sóknarað-
stöðu sína á hinum arminum.
Margar skákir hafa unnizt á
þessu, en þess eru einnig möi-g
dæmi, að sá sem tók peðið
hafi lifað sóknina af og unn-
ið lokasigur. Engin leið er að
setja fram almennar reglur um,
hvenær óhætt er að taka peð,
sem þannig er boðið, en vissast
er að fara varlega í þeim sök-
um. Hér kemur ein skák frá
ólympíumótinu í Moskvu, er
fjallar um þetta tema.
5. Rgl—f3 Bc8—g4
6. Bfl—b5 a7—a6
7. Bb5xc6f b7xc6
8. h2—h3 Bg4xf3
9. Ddlxf3 Ha8—b8
10. 0—0 e7—e5
11. Hal—dl Hb8xb2
Gligoric
Júgóslavía
Robats
Austurríki
1. d2—d4 g7—g6
2. e2—e4 Bf8—g7
3. Rbl—c3 d7—d6
4. Bcl—e3 Rb8—c6
Svarti sýnist engin hætta á
ferðum, svo að hann tekur
peðið. Hann hótar jafnframt
að drepa líka á c2 og vinna
sér tímahag, því að riddarinn
stendur óvaldaður.
12. Df3—e2 Rg8—e7
13. d4xe5 Bg7xe5
14. Hdl—d3 0—0
15. Rc3—dl Hb2xa2
Tveimur peðum er hvítur bú-
inn að fórna og hvað hefur
hann í aðra hönd?
16. f2—f4 Be5—g7
17. f4—f5 f7—f6
Hann verður að koma í veg
fyrir Í5-Í6.
18. Be3—d4 Dd8—e8
19. g2—g4 c6—c5
20. Rdl—c3 Ha2—a3
21. Bd4—f2 Re7—c6
22. Rc3—d5
23. c2xd3
24. Hfl—bl
Svartur býður annað peðið tll
þess að losa um sig. Til greina
kom Hb8 til jþess að skipta
Ha3xd3
De8—f7
Rc6—b4
mönnum, en eftir hrókakaup-
in kemst hvíta drotningin vel
í spilið b2 og b7.
25. Rd5—f4 ....
Hvítur vill ekki láta 'sinn
riddara, sem er til muna betri
en sá svarti.
25. a6—a5
26. Rf4—e6 Hf8—a8
27. d3—d4 c5xd4
28. Bf2xd4 c7—c5
29. Bd4—al ....
Hér stendur biskupinn vel.
Hvítur hótar nú g4-g5, svart-
ur má ekki drepa, því að bisk-
upinn er ekki nægilega vald-
aður.
29..... g6—g5
30. Hbl—dl Df7—e7
31. De2—c4 Kg8—h8
32. h3—h4 h7—h6
33. Ii4xg5 h6xg5
34. Kgl—g2 ... .
Enn á ný eru komnar fram
óþægilegar hótanir: Hhlf og
fráskák riddarans. Ef t.d.'Hc8
gæti framhaldið orðið 35. Hlilf
Kg8 36. Rxg5f Kf8 37.
Hh7 og hvítur vinnur. Svartur
fórnar því peði til þess að
losna við fráskákina.
34..... d6—d5
35. e4xd5 De7—d6
Frelsingjann verður að
stöðva.
Framh. á 9. síðu