Þjóðviljinn - 24.01.1957, Side 9
A ÍÞRÓTTIR
RITSTJÓRh- FRtMANN HELGASON
Verður skíðadagurínn endurvakinn?
ir ársshýrslu Shíðasamh att ds Islands
Fimmtudagur 24. janúar 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (9
Vigíús Einarsson: <
Athugasemdir við leidara dn
Gunnlaugs Þórðarsouar ,
Íþróttassíðunni hefur nýlega
borizt skýrsla sú er Skíðasam-
bandið lagði fram á þingi sínu
sem haldið var á s.l. vori, og
nær yfir starfstímabilið 8.-4. ’55
til 22.-3. ’56.
Fara hér á eftir nokkur atriði
Úr skýrslunni:
Sambandsaðilar SKÍ á starfs-
timabiiinu voru:
Héraðssamb Þingeyinga (97).
íþróttabandalag Hafnarfjarð-
ar. (55).
íþróttabandalag Ólafsfjarð-
ar (25).
íþróttabandalagið Stefnir, Suð-
ureyri. Súgandafirði (25).
Skiðafélag Fljótamanna (U.M.
S.S.) (25).
Skíðafélag Siglufjarðar —
Skíðaborg (198).
Skiðaráð Ú.f.A. (91).
Skíðaráð Akureyrar (250).
Skiðaráð Héraðssambands
Strandamanna (76).
Skiðaráð ísafjarðar (160).
Skiðaráð Reykjavíkur (318)
íjáróttabandal. Akraness" (25).
Samtals 12 aðilar með 1345
tneðlimum. Þess ber að geta, að
þar sem engin skýrsla frá skíða-
ráðum eða félögum hefur borizt,
eru tölur um virka skiðamenn
teknar eftir eldri skýrslum.
Stjóim SKÍ og starfstilhögun:
Formaður: Einar Kristjánsson
Akureyri. Meðstjórnendur: Hall-
öór Helgason, Akureyri; Ragnar
Steinbergsson, Akureyri; Gísli
B. Kristjánsson, Reykjavík; Ge-
org Lúðvíksson, Reykjavík.
Varamenn: Haraldur Sigurðs-
son, Akureyri; Hermann Stefáns-
Bon, Akureyri; Ragnar Þorsteins-
son, Reykjavík; Magnús Guð-
mundsson, Reykjavík.
Að afloknu þingi á fyrsta
fundi starfsársins skipti stjórnin
með sér verkum:
Varaformenn: Haraldur Sig-
þrðsson með búsetu á Akureyri.
Georg Lúðvíksson með búsetu í
Reykjavík.
Funda- og bréfritari: Ragnar
Steinbergsson, Akureyri.
Gjaldken: Halldór Helgason
Akureyri.
Meðstjórnandi: Gísli Kristjáns-
6on, Rvik, fulltrúi KSÍ í Olymp-
íunefnd.
Skíðaþing 1955 samþykkti að
fela stjórn SKÍ að endurvekja
Skíðadaginn. í nefnd til þess að
hrinda málinu í framkvæmd,
skipaði SKf eftirtalda menn:
Þorstein Einarsson íþróttafull-
trúa, Ragnar Þorsteinsson og
Guttorm Sigurbjörnsson.
Nefndin hefur unnið umfangs-
mikið undirbúningsstarf og var
ætlunin að Nkoma skíðadeginum
á á þessum vetri, en úr því gat
ekki orðið, Liggur nú fyrir
fekíðaþingi að kjósa fram-
kvæmdanefnd og verður nánar
vikið að þessu 'rnáli undir þeim
öagskrárlið.
Þá var stjóminni falið að
semja reglur um skipan kepp-
enda i hópa (grúppur) við út-
örátt í alpagreinum, eftir tillög-
um frá skíðaráðunum. Ekkert
skíðaráð hefur látið neitt heyra
frá sér þessu viðvikjandi og þvi
hefur engin reglugerð verið sam-
in.
Samstarfið við
meðlimi SKÍ
Eftir að ÍSÍ tók í sinar hend-
ur innheimtu allra árgjalda og
skiptingu þeirra milli sérsam-
bandanna, ásamt úthlutun
kennslustyrkja hefur sambandið
milli SKÍ og meðlima þess að
miklu leyti rofnað. Formaður
SKÍ varaði við þessu áður en
breytingin var gerð og hefur
nú átakanlega komið í ljós, að
sú aðvörun var ekki út í bláinn.
Um þá hlið málsins, sem að ár-
gjöldunum snýr mun verða rætt
á skíðaþingi. Minnkandi tekjur
SKÍ eru að verða alvarlegt vanda
mál og skapar ástand, sem að-
kallandi er að ráðið verði fram
úr.
Skýrslur meðlimanna eru einnig
mál sem nauðsynlegt er að ræða
nokkuð. Ástandið i þeim efnum
hefur aldrei verið verra en í ár.
Ekkert skíðaráð hefur sent árs-
skýrslu og heildarskýrslur um
Samkvæmt frétt frá Skíðasam-
bandinu segir að það hafi til-
kynnt þátttöku i Holmenkollen-
mótinu í Osló í vetur. Ei'U það
fimm menn sem keppa þar, m. a.
Eysteinn Þóiðarson úr ÍR, Hjálm
ar Finnsson frá Siglufirði, Hauk-
ur Sigurðsson frá ísafirði.
Sumir þessara manna eru
farnir utan til æfinga enda
hefur fram að þessu verið lít-
ið um snjó hér.
Fleiri skíðamenn hafa flúið
snjóleysið til annarra landa,
enda hafa þeir þar í kaupbæti
fyrsta flokks skíðakennara og
stöðugt skiðafæri.
Með aðstoð Skíðasambandsins
munu aðrir fimrn skíðamenn
fara til Norðurlanda (Noregs og
Svíþjóðar) og æfa þar en þeir
eru: Bragi Hjartarson frá Akur-
skíðamót á vegum skíðaráða og
félaga hafa aðeins borizt um tvö:
Skíðamót íslands og Skíðamót
Norðurlands.
Núverandi stjórn hgrmar
þetta mjög og vill brýna fyrir
meðlimunum að gera betur við
þá stjórn sem nú tekur við.
Það er mjög nauðsynlegt, að
skýrslur um skíðamótin og árs-
skýrslurnar séu gefnar árlega
og samdar af kostgæfni. Allt
starfið getur oltið á því að
samstarfið á þessu sviði ekki
rofni, og auk þess eru þessar
skýrslur sögulegar heimildir sem
við ættu að setja stolt okkar í
að ekki verði götóttar.
Af þessum orsökum er árs-
skýrsla sú, er hér er lögð fram
kannski í mörgum tilfellum
röng hvað viðvíkur meðhmatali
og nöfnum formanna, þ. e. hér
er um sömu tölu og sömu nöfn
að ræða og á síðasta þingi.
Breytingar á lögum
og reglugerðum
Á skíðaþingi 1955 voru engar
lagabreytingar gerðar, en eftir-
taldar breytingar á reglum um
FramhsM á 10. síðu.
eyri, Kristinn Benediktsson frá
ísafirði, Hreinn Hermannsson
HSÞ, Jóhann Valbergsson frá
Siglufirði og frá Reykjavík
Svanberg Þórðarson. Allt efni-
legir piltar.
Þýzk skíðakona kennir
í skólimi og lijá félögum
Þá segir ennfremur frá því að
nú um áramótin hafi samband-
inu boðizt fyrir milligöngu Ein-
ars B. Pálssonar, að fá þýzka
skíðakonu sem skíðakennara í
vetur.
I því máli var sú ákvörðun
tekin, að iþróttafulltrúi ríkisins,
Þorsteinn Einarsson mun ráða
konuna hjá skólum landsins og
munu þá íþróttafélög á viðkom-
andi stöðum njóta kennslu henn-
ar, eftir því sem við verður
komið
Dr. Gunnlaugur Þórðarson
þjóðréttarfræðingur leysir út
loft mikið í leiðara Alþýðu-
blaðsins þriðjudaginn 8. jan.,
og hefur í greinarlok í hótun-
um við skjólstæðing sinn, ó-
fullveðja dreng, sem hann í
einhverri fljótfæmi hefur tekið
að sér að vinna fyrir leiðinda-
verk gegn þóknup, trúi ég.
Þar sem þetta verk doktors-
ins hefur valdið mér verulegu
tjóni auk hugarangurs, og
doktornum nú ljóslega óþæg-
indum, vil ég biðja Þjóðviljann
fyrir meðfylgjandi samnmg og
athugasemdir.
Samningurinn:
„Við undirrituð.........og
Vigfús Einarsson Laugaveg 27
Reykjavík gerum með okkur
svofelldan samning:
1. Leigusali leigir leigutaka
bakhús ...... 19B, sem er
verkstæðispláss á tveimur
hæðum ca 60 fermetrar alls. I
verkstæðisplássinu eru vinnu-
borð, vinnuskápar, vinnu-
lampar og ennfremur lítill
peningaskápur og fylgir það
með í leigunni.
2. Hið leigða er leigt í því
ástandi sem það nú er í, og
leigutaki þekkir. Hann lofar
að fara vel og þriflega með
það leigða og bæta allar
skemmdir, sem á því kunna
að verða af völdum hans, eða
hans fólks, og skila því að
leigutíma liðnum í jafngóðu
ástandi og það er nú að öðru
leyti en því sem orsakast af
venjulegu sliti. Leigutaki ger-
ir við rúður, glugga, slökkv-
ara, rofa og aðrar smávið-
gerðir á sinn kostnað þó að
skemmdirnar séu ekki honum
að kenna.
3. Leigutíminn er 5 ár og
hefst 5. apríl 1955 og lýkur
án uppsagnar 31. marz 1960.
4. Leigan er krónur eitt
þúsund á mánuði, sem greiðist
fyrirfram 1. hvers mánaðar.
5. Leigutaki hefur rétt til
að framleigja hið leigða að
hluta eða að öllu leyti, enda
samþykki leigusali framleigj-
anda.
6. Leigutaki greiðir ljós
samkvæmt mæli og hita sam-
kvæmt reikningi. Leigutaki
hefur heimild til að fá sér
mæli fyrir hitann og greiðir
þá hita samkvæmt mæli.
7. Brjóti leigutaki samning
þenna getur leigusali látið
bera hann út með fógetavaldi
tafarlaust á kostnað leigu-
taka. Mál út af samningi
þessum má reka fyrir Bæjar-
þingi Reykjavíkur án þess að
leita þurfi sátta fyrir sátta-
mönnum.
Samningur þessi er gei'ður
í tveim samhljóða eintökum
og heldur hvor aðili sínu ein-
taki.
Reykjavík 2. april 1955.
(undirskrif tir)
Við undirritun samningsins
gei'ði ég þá athugasemd við 4.
gi’., að óvarlegt væri fyrir mig
að binda greiðslur við einn
ákveðinn dag hvers mánaðar.
Leigusalar lýstu því þá yfir,
að um greiðsludag yrði aldrei
gerður ágreiningur, það væri
formsatriði eitt. Eg gerði mér
þó að reglu að greiða fyrri
hluta mánaðar eftir því sera
fjárhagsástæður leyfðu.
Leið svo fram tíminn. Eg
bjó þarna og starfaði og hefur
mér tekizt að standa í skilum
allt til þessa dags. Treysti ég,
að svo megi verða leigutímann
á enda hafi ég starfsfrið, og
heilsu.
í marzmánuði síðastliðnunx
gerði innheimta útsvaranna að
mér harða aðför, Vegna erfið-
leika er af því sköpuðust fékk
ég ótímabundið leyfi fjárhalds-
manns húseigandans svo orðað
í síma: „Hafðu engar áhyggjur
af húsaleigunni, þú kemur bara
þegar þú átt hægt með.“ Er ég
síðan vildi greiða honum
2000,00 kr. 20. apríl færðist
hann undan að taka við því og
kvaðst ekki geta ráðið við
skjólstæðing sinn og banna'ði
hann sér að taka við leigunni,
kvað hann mundu vilja fá mig
út úr húsnæðinu.
Slíkt væri þó fjarri sínum
vilja og ráði. Hann vildi halda
samninginn til loka leigutíma-
bilsins. Þetta endurtók hann
undir vitni. Taldi ég ekki á-
stæðu til að véfengja heilindi
hans en greiddi leiguna inn á
bankareikning til hans og sendi
kvittanir i ábyrgðarpósti.
Leið nú enn fram tíminn og
bar 'ekkert til tíðinda.
Það mun hafa verið 18. maí
að hringt er til mín frá fógeta
og mér tjáð, að krafizt sé út-
burðar á mér og ég beðinn að
mæta á skrifstofu fógeta og
leggja fram greinargerð.
3000,00 kr. hafði ég lagt inn á
bankareikning fjárhaldsmanna,
er mér barst þessi vitneskja.
Fógeti raðlagði mér að fá
lögfræðing til að annast málið
fyrir mig. Gerði ég það. Sum-
ar leið. Eg hringdi nokkrum
sixxnum í lögfræðing' minn og
spurði um málið og brýndi
fyrir honum að láta mig vita,
ef hann teldi þörf fleiri gagna.
Eg greiddi leiguna áfram í
bankareikninginn.
24. sept. að kvöldi var ó-
frímerkt bréf milli stafs og
hurðar hjá mér. Kom í Ijós, að
hér var tilkynning frá fógeta.
Úrskurður hafði verið kveðina
upp í málinu. Mér tjáð að út-
burður ætti fram að fara 2fL
s.m. kl. 1 e. h.
Eg varð mjög forviða. Er ég
náði tali af lögfræðingi mínum
færðist hann undan að áfrýja,
en hvatti mig til þess að fá
annan til þess. Hinn 28. krafð-
ist ég frestunar á gerðinni, á-
skildi mér allan rétt í málinu.
Greiddi ég húseiganda í viður-
vist fógeta hálfs mánaðar leigu.
Fékk síðan lögfræðing til að
áfrýja og ná fram lengri fresti
ef hægt væri, en fai'ga ekki
undir neinum kringumstæðum
rétti mínum til skaðabótakröfu,
ef ég yrði að hrekjast út.
Áfrýjunin er dagsett 11. okt.,
- og hef ég afrit af henni.
^Lögfræðingurinix. hringdi til
mín eitt sinn og bað mig
mæta á skrifstofu fógeta, ef
ég man rétt kl. 10 f. h. 20.
okt,
Gerði ég það, en hann hafði
þá boðað forföll.
Nú veiktist ég og lagðist í
Framh. á 10. síðtt
t
Eysteinn Þórðarson
Fimm skíðamenn fara á
Holmenkollenmótið
v