Þjóðviljinn - 24.01.1957, Síða 10
1.0) — ÞJÖÐVILJINN — Funmtudagiir 24; janúar 1957
Athnga s e m d i r
Framhald af 9. síðu.
ítimið.
Miðdegis 23. okt. er ég lá
með háan' hita svara ég upp-
hringingu — er þá í símanum
lögfræðingur sá hinn nýrri,
og tjáði mér að hann hefði gert
réttarsætt í málinu, og ætti ég
að greiða leiguna til áramóta
auk kostnaðar við útburð, en
flytja út um áramót hin næstu.
Eg tjáði honum strax að á
þetta gæti ég ,ekki fallizt og
væri það andstætt því, er okk-
ur hefði farið á milli um mál-
íð. Húsaleiguna skyldi ég
greiða er ég væri orðinn frísk-
ur.
Dr. Gunnlaugur Þórðarson
tók við henni.
Grennslaðist ég síðan um
málið í Hæstarétti í desem-
ber, en þá átti það að koma
þar fyrir eftir því er segir í
áfrýjunarstefnunni. Kom þá í
ljós, að lögfræðingurinn hafði
skrifað á stefnuna, að hún
væri afturkölluð. Eg spurðist
fyrir um það hjá ritara Hæsta-
réttar, hvað hægt væri fyrir
mig að gera. Hann greiddi hið
bezta úr spurningum mínum
og kvað mig geta kippt þessu
í lag, ef stefnan yrði löglega
birt hlutaðeiganda þann dag.
Kom þá í Ijós, að hann var
farinn úr bænum. Viðtal átti
ég við dr. Gunnlaug Þórðarson
og tók það upp á segulband.
Gerði ég honum með því kunn-
ugt, að ég viðurkenndi ekki
teningaspil þeirra lögfræðing-
anna um örlög mín og fékk hjá
honum játningu um að hann
hefði veitt viðtöku húsaleig-
unni til áramóta. ■
Skipti ég mér síðan ekki
meira af þessu fyrr en nú um
áramótin, að ég fór á fund dr.
G. Þ., bauð honum greiðslu,
sem hann vildi ekki veita við-
töku. Hafði hann á hraðbergi
afsakanir, að sem lögfræðing-
ur (líklega þjóðréttarfræðing-
ur) kæmu honum ekki við
einstaklingar og aðstaða þeirra.
Taldi ég hinsvegar sem alþýðu-
maður, að engin lærdómsgráða
gæti losað mann við að vera
maður og taka á sig ábyrgð sem
slíkur.
í samtalslok skaut hann sér
í skjól við fjárráðamann pilts-
íns.
2. janúar fór ég á fund fjár-
ráðamannsins með tvö vitni
með mér.
“ Tók hann við okkur, en færð-
ist undan að taka við leigu og
neitaði að lokum, varð vondur,
lokaði hurð við nefið á vitnun-
um. Vildi hann tala við mig
einan án vitna, en skaut sér að
síðustu bak við dr. G. Þ. og
skjólstæðing sinn, húseigand-
ann. Sagði hann nú vera orð-
inn fjárráða, og myndi hann
koma til bæjarins bráðlega.
Daginn eftir átti ég tal við
hann í síma og tók það samtal
upp á segulband.
Kom þá á daginn, að hann
vildi bjóða mér húsnæðið falt
tii kaups með góðum kjörum.
Allt annað var uppi á ten-
ingnum hjá hinum nýfjárráða
pilti. (Enda ■ ef til vill ekki
undarlegt eftir þá siðferðilegu
uppörvun, sem hann hefur orð-
ið aðnjótandi þessa síðustu
mánuði undir handarjaðri
þeirra lögráðamanns síns og
lögfræðings).
Kom ég nú leigunni fyrir
Skíðadagurinn endurvakinn?
janúarmánuð til hans í gegn
um bankann.
Hef síðan látið kyrrt liggja
um þessi mál.
Aftur hefur dr. Gunnlaugur
Þórðarson brugðið við hart,
eins og væri um velferð ís-
lenzkrar þjóðar að ræða að fá
mig borinn út. Hefur hann enn
lagt inn til fógeta kröfu um
útburð. Heimtar hann mig nú
borinn út úr húsi, sem ég
aldrei hef átt heima í, og leigu
fyrir yfirstandandi mánuð.
Rökstyður hann kröfur sínar
með því, að hann og annar
lögfræðingur, sem ég aldrei
fyrr hef heyrt nefndan, hafi
ráðstafað högum mínum sín
á milli þann veg, að ég færi út
31. des. án réttar til að áfrýja.
I hinum loftmikla leiðara í
Alþýðublaðinu hefur hann að
síðustu í hótunum við hinn
unga skjólstæðing sinn að
birta nafn hans. Læt ég hann.
um það. En vil benda honum
á, að betra væri honum að
hafna þeirri vinnu, sem skemm-
ir sóma hans, en taka þó 1000
kr. bæti við fasta kaupavinnu
hans hjá mér og öðrum íslenzk-
um skattborgurum.
Alþýðufólk telur sér óheim-
ilt að taka kaup hjá Pétri í
vinnutíma sínum hjá Páli.
Vig. Ein.
Framhald af 9. síðu.
skíðamót íslands voru samþykkt-
ar:
1. að gera stórsvig að fastri
keppnisgreim
2. að heimilt sé að senda tvær
sveitir í flokkasvig.
3. að tekin skuli upp þríkeppni
í Alpagreinum. Þó skuli tví-
keppni gilda, ef ein greinin fell-
ur niður.
4. að heimilt sé að keppa í B.
og C-flokkum.
5. að tekin verði upp keppni
í 15—16 ára flokki í göngu og
stökki og tekin upp tvíkeppni í
þeim flokki og 17—19 ára flokki.
Það fer nú að verða aðkall-
andi að Skíðahandbókin verði
endurskoðuð og gefin út að nýju,
þar eð margar breytingar hafa
verið gerðar á keppnisreglum frá
því hún kom út fyrir 10 árum.
Væri æskilegt að skíðaþing það
er nú situr taki málið til athug-
unar.
Flutningur í efri flokka
Það leiðir af sjálfu sér, að
þegar engar skýrslur berast um
skíðamót haldin á vegum skíða-
ráða eða félaga þá getur heldur
enginn flutningur milli flokka
átt sér stað.
Úr þeim skýrslum, sem bárust,
var unnið og er fjöldi skíða-
manna sem flytzt í efri flokka
þessi:
Skíðaganga 15 og 30 km í A-
fl. 1 maður.
Svig, brun og stórsvig í A-fl.
1 maður.
Svig, brun og stórsvig í B-fl.
2 menn. — Samtals 4 menn.
Það er ánægjulegt að sjá að
einhver hreyfing er á því að
koma Skíðadeginum á aftur, og
vonandi líður þessi "vetur ekki
svo að úr því verði ekki. Slíkur
dagur er mikill auglýsingadagur
fyrir skíðaíþróttina, og að því er
virðist hefur hún mikla þörf fyr-
ir vakningu. Það er athyglisvert
að í skýrslunni kemur fram það
sama og hjá flestum hinna sér-
sambandanna, í ársskýrslum
þeirra og það er um skýrslu-
gerðir aðilanna, en það „hefur
aldrei verið verra en í ár“, eins
og það er orðað í skýrslunni.
Með frétt þessari um starf
Skíðasambatndsins f|/lgdi ekki
hvað gerðist á þingi þeirra, og
heldur ekki hvaða menn eru í
stjórn Skíðasambandsins núna.
ORÐSENDING
frá Husmæðraskóla Reykjavíkur
Þeir nemendur, sem fengið hafa loforð um
skólavist á seinna dagnámskeiði skólans, mæti í skól-
anum mánudaginn 4. febrúar kl. 1.30.
Skólastjórinn
SKRIFSTOFUHERBERGI
Skrifstofuherbergi, helzt í miðbænum,
óskast til leigu í nokkra mánuði, frá
1. marz n.k.
Tilboð sendist blaðinu, merkt
1091, skrifstofaj fyrir næstu helgi.
Nauðungaruppboð
verður haldið hjá varðskýlinu á Reykjavíkurflugvelli
eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík o.fl., föstudaginn
1. febrúar n.k., kl. 1.30 e.h.
Seldar verða eftirtaldar bifreiðar:
R-530, R-576, R-952, R-1256, R-1392, R-1603, R-1652
R-1761, R-1823, R-1927, R-1948, R-1967, R-2424, R-2680,
R-2812, R-2878, R-3095, R-3282, R-3326, R-3418 R-3505,
R-3508, R-3555, R-3558, R-3559, R-3854, R-4112, R-4135,
R-4376, R-4496, R-4544, R-4708, R-4918 R-4939, R-5032,
R-5108, R-5115, R-5323, R-5356, R-5358, R-5435, R-5575,
R-5785, R-6013, R-6251, R-6278, R-6425, R-6436 R-6463,
R-6498, R-6562, R-6599, R-6778, R-6886, R-7097, R-7168,
R-7197, R-7223, R-7224, R-7754, R-7576 R-7865, R-7945,
R-8148, R-8310 R-8474, R-8496, R-8963, R-8965 og
B-149.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Borgarfógetinn í Reykjavík
Kvenbomsur
©g
kuldastígvél
Verzlið
þar sem úrvalið
er mest
AÐALSTRÆTI 8 — LAUGAVEGI 20 — LAUGAVEGI 38 — SNORRABRAUT 38 — GARÐASTRÆTI 6
XX X =
fiNKIN e=