Þjóðviljinn - 30.01.1957, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 30. janúar 1957 ~ ÞJÓÐVILJINN — (3
Mfólkurbúin tóku við nær 60
milij. kg mjólkur á sL óri
96,81% mjólkurinnar i 1. og 2. flokki
fsland fullgildi alþjóðasamþykkt um
nauðungarvinnu eða skylduvinnu
Ríkisstjórnin lagöi fyrir Alþingi í gær þingsályktunar-
tillögu um fullgildingu á alþjóöasamþykkt um nauöung-
arvinnu eöa skylduvinnu, er gerð' var á 14. þingi AlþjóÖa-
vinnumálastofnunarinnar í Genf 1930.
Eins og skýrt var frá hér í blaðinu s.l. fimmtudag, jókst j
heildarmjólkurmagn mjólkurbúanna hér á landi um nær
5 millj. kg. á s.l. ári eöa 9.05%. Af heildarmjólkurmagn-
inu 58.828.608 kg., lentu 96.81% í 1. og 2. gæöaflokki, en
3.18% í 3. og 4. flokki, og er það hlutfali mjög svipaö og
áriö 1955.
Þessar upplýsingar og þær
sem hér fara á eftir um starf-
semi hinna einstöku mjólkur-
húa eru frá Kára Guðmunds-
syni, mjólkureftirlitsmanni rík-
isins.
✓
6,25% aukning hjá Mjólkur-
búi Flóamanna
Mjólkursvæði Mjólkurbús
Flóamanna nær frá Mýrdals-
sandi að Hellisheiði og eru
mjólkurframleiðendur um 1130
að tölu.
Innvegin mjólk reyndist vera
25.381.459 kg., sem er 1.492.932
kg. meira magn en árið 1955
eða 6,25% aukning. í 1. og 2.
flokk fóru 97,19% en í 3. og 4.
flokk 2,81%.
11,21% aukning hjá Mjólkur-
stöðinni í Reykjavík
Mjólkurstöðin í Reykjavík
tekur á móti mjólk frá bænd-
um vestan Hellisheiðar að Hval-
fjarðarbotni og eru framleið-
endur 375.
Magn ínnveginnar m jólkur var
6.619.547 kg., sem er 667.007
kg. meira magn en á árinu
1955 eða 11,21% aukning.
97,12% mjólkurmagnsins fóru
í 1. og 2. flokk, en 2,88% í 3.
og 4. flokk.
6,63% aukning á Akranesi
Mjólkurstöð Suður-Borgfirð-
inga tekur á móti mjólk frá
bændum úr Innri-Akranes-
hreppi, Skilmannahreppi,
Strandarhreppi og Leirár- og
Melasveit, en þar eru 66 fram-
leiðendur.
Innvegin mjólk var nú
1.516.840 kg. sem er 94.357 kg.
meira en 1955 eða 6,63% aukn-
ing. í 1. og 2. flokk fóru
95,80%, en 4,20% í 3. og 4.
flokk.
2,39% aukning í Borgarnesi
Mjólkursvæði Mjólkursamlags
Borgfirðinga nær frá Skarðs-
heiði að Snæfellsnesfjallgarði.
Á þessu samlagssvæði eru um
410 framleiðendur.
Skorað á þingnefndir
að hraða störfum
Áður en gengið var til dag-
skrár í neðri deild Alþingis í
gær, mæltust tveir þingmenn úr
Sjálfstæðisflokknum til þess að
nefndir deildarinnar skiluðu álit-
um um mál er hjá þeim lægju.
Forseti Einar Olgeirsson skor-
aði á nefndirnar að afgreiða mál
þau, sem til þeirra hefði ver-
ið visað. Væri ekki vanzalaust
hve seint gengi að afgiæiða mál
frá nefndum.
Emil Jónsson taldi ekki rétt
að saka nefndirnar um seinagang
mála, þau væru í athugun á
ýmsum stigum, og tók hann
sem dæmi mál hjá iðnaðarnefnd,
sem eftir var lýst.
Innvegin mjólk reyndist vera
5.202.638 kg., sem er 121.392
kg. meira en 1955 eða 2,39%
aukning. 1 1. og 2. flokki léntu
97,74% mjólkurinnar, en 2,26%
í 3. og 4. fiokki.
7,81% aukning á Isafirði.
Mjólkursvæði Mjólkurstöðvar
Kaupfélags ísfirðinga er ísa-
fjarðarsýsla, en þar eru 127
framleiðendur.
Innvegin mjólk reyndist vera
886.174 kg.. sem er 64.208 kg.
meira magn en á árinu 1955
eða 7,81%. aukning. 95,92%
mjólkurinnar fóru í 1. og 2.
flokk, en 4.08% í 3. og 4. flokk.
22,09% aukníng á Blöiiduósi
Mjólkursvæði Mjólkursamlags
Húnvetninga er Húnavatnssýsl-
ur og Bæjarhreppur í Stranda-
sýslu; framleiðendur 302.
Innvegin mjólk á árinu var
2.480.646 kg., sem er 448.774
kg. meira magn en á árinu
1955 eða 22,09% aukning. I 1.
og 2. flokk fóni 94,26% en
5,74% í 3. og 4. flokk.
5,13% aulining á Sauðárkróki
Samlagssvæði Mjólkursamlags
Skagfirðinga nær yfir Skaga-
fjarðarsýslu, að frádregnum
Skefilsstaða-, Holts- og Haga-
neshreppum. Á svæðinu eru um
309 framleiðendur.
Innvegin mjólk var á árinu
2.632.816 kg., sem er 128.384
kg. meira magn en 1955 eða
5,13% aukning. í 1. og 2. flokk
fóru 95,13% en 4,75 í 3. og 4.
flokk.
12,30% aukning á Akureyri
Mjólkursvæði Mjólkursamlags
Eyfirðinga: Eyjafjarðarsýsla,
frá Ólafsfjarðarmúla, og Sval-
barðsstrandar-, Grýtubakka- og
Hálshreppur í Suður Þingeyj-
arsýslu; framleiðendur eru um
564.
Innvegin mjólk reyndist vera
11.603.383 kg., sem er 1.270.748
kg. meira magn en á árinu
1955, eða 12,3% aukning. 1 1.
og 2. fl. flokkuðust 96,74%, en
3,26% í 3. og 4. flokk.
21,66% aukning á Húsavík
Mjólkursvæði Mjólkursamlags
Þingeyinga: Suður-Þingeyjar-
sýsla, að frádregnum þremur
vestustu hreppunum. Þar eru
um 245 framleiðendur.
Innvegin mjólk var 2.327.076
kg., sem er 414.378 kg. meira
magn en 1955 eða 21,66%
aukning. í 1. og 2. flokk flokk-
uðust 95,7%, en 4,3% í 3. og 4.
flokk.
Nýtt mjólkurbú í Höfn,
Hornafirði
Mjólkurbú Kaupfélags Aust-
ur-Skaftfellinga, Höfn, Horna-
firði, tók til starfa í marz sl.
Mjólkursvæðið er frá Almanna-
skarði að Breiðamerkursandi,
en framleiðendur um 27 að
tölu.
Innvegin mjólk reyndist vera
178.029 kg. og flokkuðust
177.061 kg. eða 99,46% í 1. og
2. flokk, en 968 kg. eða 0,54%
í 3. flokk. Engin mjólk reyndist
vera í fjórða flokki.
1 reglugerð segir: „Samþykkt
þessi hefur hlotið 31 fullgild-
ingu, þ. á. m. Norðurlandanna
allra nema íslands. Hún gekk í
gildi 1932.
Konur flvtja
erindi og lesa upp
á afmælissýningu KRFÍ
50 ára afmælissýning Kven-
réttindafélags íslands á bók-
menntun, myndlist og listiðnaði
er opin daglega, kl. 14-22, til
3. febr. í bogasal Þjóðminja-
safnsins.
Á kvöldin kl. 21 flytja kon-
ur erindi eða lesa upp frum-
samið efni, sögur og ljóð. Flutt
verður eingöngu efni, sem ekki
hefur áður verið prentað.
Dagskráin næstu daga verð-
ur á þessa léið:
Miðvikudag 30. jan.: Ragn-
heiður Jónsdóttir, rithöfundur;
Upplestur. Guðrún Ólafsdóttir,
cand. mag. Erindi: Stúdentalíf í
Oslo. Fimmtudag 31. jan.:
Selma Jónsdóttir, listfræðingur:
Erindi með skuggamyndum.
Halldóra B. Björnsson, rithöf-
undur: Upplestur. Föstudag 1.
febr. Þórunn Elfa Magnúsdótt-
ir, rithöfundur: Upplestur. Vig-
dís Kristjánsdóttir, listmálari:
Erindi: Listvefnaður. Laugar-
dag 2. febr.: Guðrún P. Helga-
dóttir, kennari. Erindi: Fjall-
konan í íslenzkum bókmennt-
um. Valborg Bentsdóttir: Upp-
lestur. Sunnudag 3. febr. kl. 16:
lesa þessar skáldkonur upp:
Arnfríður Jónatansdóttir, Jó-
hanna Friðriksdóttir og Sigríð-
ur Einars frá Munaðarnesi.
Riki þau, sem fullgilda sam-
þykktina skuldbinda sig til þess
að útrýma nauðungarvinnu, en
með henni er átt við vinnu eða
þjónustu, sem látin er í té
vegna hótana um refsingu og
maður vinnur ekki af fúsum
vilja.
Til nauðungar- eða skyldu-
vinnu samkvæmt samþykktinni
telst ekki herþjónusta eða
venjuleg og eðlileg þegnskyldu-
störf borgara í sjálfstæðu riki.
Sama máli gegnir um vinnu,
sem framkvæmd er samkvæmt
dómi, enda fari hún fram und-
ir opinberu eftirliti og hinn
Framhald á 10. síðu
Vísnakver Rós-
benís Snædals
o
Þjóðviljanum hefur fyrir
nokkru borizt lítil bók eftir Ilós-
berg G. Snædal. Nefnir höfund-
ur hana Vísnakver, og geymir
það 50 vísur.
Höfundur segir svo m. a. í
formála:
„Fyrir tveim árum lét ég prenta
25 hringhendur eftir mig i 50
eintökum og gaf nokkrum vin-
um minum, þeim er ég vissi að
vísur mátu.
Nú hef ég orðið þess var, að
ýmsir vildu gjarnan eiga þessa
litlu bók mina, en upplagið auð-
vitað löngu þrotið. Eg hef því
tínt sáman 50 vísur mínar, eldri
og yngri, og sett í þetta kver
Vísnakver er prentað í prent-
smiðju Bjöms Jónssonar á Ak-
ureyri. Það er í litlu, skemmti-
legu broti, prentað í bláum
lit. Upplagið er 150 eintök. —<
Vísnakver er 5. bók Rósberge
Snædals.
Ihaldið ogj olíumálin
Ingólfur á Hellu gat tryggt 60 sh. fragt, en gróðasjónaimið íhaldsins
stóðu í vegi
Sjaldan mun heill stjórn-
málaflokkur hafa farið jafn
hrapalega út úr umræðum á
Alþingi og Sjálfstæðisflokkur-
inn fór í umræðunum um olíu-
málin 1 sl. viku.
í þessum umræðum varð
Ingótfur .lónsson fyrrv.
viðskíptamálaráðherra að
viðurkenna, að sér hafi
sem ráðherra verið bent á
möguleika þess að semja
um leigui á olíuflutningum
til landsins til langs tíma
fyrir 66 sh. tonnið, en að
hann haíi ekki sinnt því af
þeirri ástæðu, að vitað var
að Hamrafellið kæmi síðar
til landsins og jafnvel einn-
ig annað olíuskip.
Það urðu ekki lítil svip-
brigði á andliti Bjama Bene-
diktssonar, þegar hann heyrði
að þessi játning pressaðist út
úr Ingólfi.
Hann sá fljótlega að með
þessum yfirlýsingum var í-
haldið gjörsamlega afhjúpað í
oliumálummi. Það, sem nú um
skeið hafði spilað sig boðbera
lágs olíuverðs og lágra fragta,
varð nú að viðurkenna, að
það hafði neitað möguleik-
um til hinna hagsfæðustu
olíuflutninga, og afsökunin
\-ar sn að ráðherra þess
hafði verið að spekúlera í
hvað kæmi bezt væntanlegu
olíuskipi íhaldsins og
Hamrafellinu.
Þá var ekki umhyggjan fyr-
ir almenningi í landinu. Þá
var sjálfsagt að láta olíufé-
lögin leigja hvert skipið af
öðru fyrir miklu hærra flutn-
ingsgjald en nauðsynlegt var.
Þessi játning Ingólfs frá
Hellu er að visu athyglisverð,
en þó verður að segja það
eins og er, að hún segir í
rauninni ekkert nýtt um
stefnu íhaldsins í olíumálun-
um. Hver kannast ekki við þá
staðreynd að aldrei hefur svo
verið fundið að verðlagi á olíu
hér á landi, að blóð íhaldsins
hafa ekki varið olíufélögin og
okur þeirra af öllum mætti?
Hver er sá, sem ekki veit
að helztu áhrifamenn ílialds-
ins eru einmitt eigendur og
stjómendur olíufélaganna. Þar
eru menn eins og Björn Ólafs-
son, Sveinn Benediktsson,
Hallgrímur í Shell, Ólafur í
Alliance, Gunnar Guðjónsson
ásamt nokkrum Thórsurum.
Þarf nokkurn að undra, að
Morgunblaðið og Vísir verji
gróðafélög þessara íhaldsfor-
ingja ?
En hugsið ykkur blygðun-
arleysið, þegar Sigurður frá
Vigur og Ingólfur frá Hellu
eru svo látnir belgja sig út
um það, að þeir berjist fyrir
lágu olíuverði og fyrir lágum
olíufrögtum.
Þessir menn, sem hafa með
flokki sínum samþykkt og
varið allar verðhækkanir olíu-
félaganna á undanförnum ár-
um og talið liafa réttmætt að
hafa hér á landi allt að helm-
ingi hærra olíuverð en verið
hefur í nálægum löndum —
þetta ihaldslið æpir nú að
Lúðvík Jósepssyni viðskipta-
málaráðherra. En vegna hvers
æpir það?
Auðvitað er orsökin sú, að
liðið kennir honum um það,
að olíufélögin hafa ekkl
fengið að lxækka olhiverðið
um langan tíma, þrátt fyr-
ir mikla hækkun á olíu i
öðmm löndum.
Árásirnar á Lúðvík eru auð-
vitað sprottnar af því, að olíu-
salarnir hafa nú um skeið
verið látnir skila aftur nokkr-
um milljónum króna af áður
ranglega teknum gróða. Deil-
urnar um olíumálin sýna bezt,
hve takmarkalaus ósvífni í-
haldsins er. Það, sem berst
fyrir hagsmunum olíu-okrar-
anna, þykist bera hag almenn-
ings fyrir brjósti.
Það er sama sagan og I
verðlagsmálunum almennt,
þegar okurkarlar í verzlua
birta daglega í Morgunblað-
inu og Vísi harmatölur um
væntanlegar verðhækkanir, en
liggja sjálfir í verðlagsyfir-
völdunum og heimta h ckkun
á öllum hlutum.
Olíudeilan hefur afhjúpað
íhaldið. i