Þjóðviljinn - 30.01.1957, Blaðsíða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 30. janúar 1957
Franskir og norskir
kvikmyndasmiðir hafa á-
kveðið að vinna í sam-
einingu að gerð tveggja
nýrra mynda. Nefirst
önnur Fellibylur, hin
Síðasti víkingurinn. Síð-
arnefnda kvikmyndin
fjallar um Roald Amund-
sen, heimskautakönnuð-
inn fræga.
*
Á þessu ári er ráðgert
að fullgera kvikmynd í
Englandi eftir leikriti
W. Shakespeares Anton-
ius og Kleopatra. í að-
alhlutverkunum verða
Michael Redgrave og
Margaret Leighton.
I' " rtH
Fyrstu myndir hans
munu fjalla um Bach,
Beethoven, Brahms og
Liszt.
★
í næsta mánuði verð ar
haldin alþjóðleg kvik-
rnyndahátíð í Santa Mar-
garitha, bæ skammt frá
Genúa á Ítalíu. Það sem
gerir þessa hátíð um-
talsverða og sérstæða
er, að þar verða ein-
göngu sýndar gaman-
myndir.
Nýjasta kvikmynd Cat-
erina Valente nefnist
Casino de Paris, frönsk-
þýzk mynd gerð undir
stjórn André Humebelle.
Bandaríkjamaðurinn
Jerry Wald hefur skýrt
frá því, að hann hafi í
listamanna, sem við
kvikmyndagerð fást.
★
í desemþermánuði sl.
höfðu tæplega 40 þúsund
kvikmyndahús víðsvegar
um heim aflað sér út-
búnaðar til sýninga á
Cinema-Scopemyndum,
þar af voru 14.303 I
Evrópulöndum.
★
Fyrir skömmu var skýrt stuttlega hér í þættinum frá
efni nýjustu kvikmyndar spænska leikstjórans J. A.
Bardem „Aðaistræti". Myndin er af aðalleikendunum í
kvikmyndinni: Betsy Biair og Jose Suarez.
IngridBeramann
Hafinn er undirbún-
ingur að kvikmyndun
Töfrafjallsins, skáldsögu
Thomasar Mann, og mun
Gary Cooper
í Hollywood eru uppl
ráðagerðir um kvik-
myndun hinnar heims-
frægu sögu Cervantes
Don Quixote með Cary
Cooper í aðalhlutverkinu.
★
Kóngur í New York,
mynd Chaplins verður
frumsýnd í ÍLondoin í
aprílmánuði n.k
*
Hinn óháði, bandaríski
kvikmyndaframleiðandi
Howard Welsh undirbýr
nú myndaflokk um líf
og verk nokkurra af
frægustu tónskáldum,
sem uppi hafa verið.
Ur ýmsum áttum
Brigitte Bardot til að
leika í mynd, sem hann
mun gera eftir hinni
kunnu skáldsögu Franco-
ise Sagan Bonjour Trist-
esse..
★
Nýjasta kvikmynd með
Dorothy Dandridge, sem
frægust varð fyrir leík
sinn í Carmen Jones,
nefnist Tamango og er
byggð á smásögu eftir
Prosper Mérimée.
hyggju að gera kvik-
myndir eftir nokkrum
helztu verkum heimsbók-
menntanna, m.a. skáld-
sögu Romain Rollands
Jóhanni Kristófer.
★
Við úthlutun banda-
rísku Óskarsverðlaun-
anna verður í framtíð-
inni ekki farið eftir á-
liti kjörinnar nefndar
kunnáttumanna eins og
hingað til, heldur verða
atkvæði kvikmyndahúsn-
gesta látin ráða. Hefur
þetta nýja fyrirkomulag
sætt harðri gagnrýni
Ingrid Bergmann leika
aðalhlutverkið.
★
Júgóslavneska kvik-
myndafélagið UFUS hef-
ur sent frá sér myndina
Stóru börnin, sem gerð
er eftir sögu Antons Isa-
kovitsj. Sama félag vinn-
ur nú að mimd um af-
brotahneigð æskumanna
og nefnist hún Dreng
skaparheitið.
*
Bandaríski kvikmynda-
framleiðandinn Otto
Preminger hefur ráðið
Anna Magnani
Önnur mynd ítölsku
leikkonunnar Önnu
Magnani eftir að hún
gekk í þjónustu banda-
rískra kvikmyndafélaga
(sú fyrsta var Tattóver-
aða rósin, sem Tjarnar-
bíó sýndi í fyrra) nefn-
ist Close to the wind á
ensku og er að nokkru
leyti tekin í Ástralíu.
Japanskir kvikmynda-
framleiðendur taka rnú
evrópsk og vesturlenzk
efni æ oftar til meðferð-
ar í myndum sínum. Til
dæmis er í ráði að kvik-
mynda í Japan §ögu
Victors Hugo Vesaling-
ana og L’Idiot eftir
Dostoéfskí (myndi marg-
ur hafa gaman að bera
saman japönsku útgáf-
una og þá frönsku, sem
Laugarássbíó hefur sýnt
að undanfömu). Þá hafa
Japanir nýlega lokið við
mynd, sem byggð er á
sögunni um Vilhjálm
Tell. Leikstjóri er Tom
Utshida.
V-
Launahæsti leikari
heims er sagður Joha
Wayne, sá sem leikur
Dan Roman aðstoðarflug-
mann í kvikmynd þeirri,
sem gerð hefur verið eft-
ir framhaldssögunni i
Þjóðvíljanum og Austur-
bæjarbíó byrjar bráðlega
að' sýna. Wayne. sem er
49 ára gamall, gerði ný-
lega samning við kvik-
myndafélagið 20th Cent-
ury Fox í Hollywood um
að leika fyrir það í þrem
myndum á næstu þrem
árum og fá fyrir um
tvær milljónir dollara,
þ.e. rúmlega 32 miilj.
ísl. króna fyrir hverja
einstaka mynd!
★
Fyrir 20 árum var
kvikmyndin Það skeði á
einni nótt gerð með þeim
Clark Gable og Claudette
Colbert í aðalhlutverk-
um og kostaði þá rúm
lega 41/2 millj. ísl. króna.
Nú er ný útgáfa þessar-
ar myndar í undirbún-
ingi í Hollywood og er
kostnaður áætlaður a m.
k 49 milljónir króna.
Audrey Hepbum
Paramount-félagið Iief-
ur ákveðið að hefja töku
kvikmyndar um líf eig-
anda Chanel-tízkuhúss-
ins í París. Audrey Heo-
burn á að leika hina
frægu tízkudrottningu,
★
Max Ophijls, kvik-
myndaleikstjórinn frægi,
vinnur nú að tökuriti
myndar um listmálararm
Modigliani og lífið með-
'al lis'tamanna í París
um 1920. Mel Ferrer og
Francoise Arnoul leíka
aðalhlutverkin.
.Vitnað í Nordal — Barnabækur — Gömul ævintýri
endurprentað — Umskriíuð þjóðsaga —
Fiskleysi í Hlíðunum
BARNAKARL SKRIFAR: „Þú
varst eitthvað að ræða um
þörn og bamaleikrit fyrir
skömmu síðan, Póstur sæll,
og í því sambandi datt mér í
hug það sem Sigurður Nordal
segir um uppeldi bama í
Áföngum, nánar tilgreint í
grein, 'sem heitir íslenzk yoga.
Honum farast m.a. orð á þessa
leið: „Einhver mesta hætta í
uppeldi stafar frá ihlutun
r:3il
ímyndaða bernsku, sem þeir
halda að sé smækkuð mynd
af sjálfum þeim". Þannig far-
ast hinum ágæta lærdóms-
manni orð um þetta efni; en
ég vil ráðleggja fólki (t.d.
foreldrum) að lesa þessa
grein; hún er bráðskemmti-
leg, eins og raunar flest, sem
Sigurður Nordal lætur frá sér
fara í mæltu eða rituðu máli.
— □
fullorðna fólksins um leika EN ÉG ÆTLA að gera barna-
þeirra. Því hættir við að halda,
að börn séu einfaldari en það
sjálft. Það reynir að stíga nið-
ur til þeirra og gera sig
fcarnalegt. í raun réttri er
heilbrigt og óskemmt barn að
jafnaði miklu vitrara en for-
eldrar þess og kennarar.
HeimskurJn kemur smám
saman, þarf stundum ekki að
gera alvarlega vart við sig
fyrr en um tvítugt. Varla er
hægt að hugsa sér sorglegri
bókmenntir en barnabækur,
þar sem andlegir saltstólpar
eru að gera sér tæpitungu við
bækurnar dálítið frekar að
umræðuefni. Árlega er gefinn
út hér mesti fjöldi slíkra
bóka, einkum fyrir jólin, og
svo mun einnig hafa verið nú.
Það er út af fyrir sig góðra
gjalda vert að gefa út bækur
fyrir börn og unglinga, en
mér finnst gæta of mikils
handahófs í vali þeirra, t.d.
þýddra bóka. Sumt af þeira
bókum, sem árlega koma út, á
mjög vafasamt erindi til ís-
lenzkra barna og unglinga. Þá
tel ég í meira lagi hæpið að
gefa út gamlar þjóðsögur og
ævintýri breyttar og styttarj!
eða á annan hátt aflagaðarj:
frá sinni upphaflegu gerð. I [
Núna fyrir jólin rakst ég t.d. | [
á barnabók, sem bar nafnið: \ ■
Átta ævintýri Grimms, en út-; [
gefanda eða þýðanda var ekki j ■
getið. Þegar ég fór að blaða í1 j
bók þessari, komst ég að raun
um að þessi gömlu, góðu æv-
intýri voru þarna meira og
minna stytt og breytt frá því
sem þau voru, þegar ég las
þau í bernsku, og breytingarn-
ar voru sízt til bóta. Flést
börn hafa heyrt mörg þessara
ævintýra af vörum foreldra
sinna, eða hjá afa og ömmu,
og þeim er enginn greiði gerð-
ur með því að fá þau síðan í
hendur í bók, stytt og af-
bökuð.
-□
EINS OG FRÁ hefur verið
sagt í fréttum, hefur verið
gerð kvikmynd um þjóðsög-
una alkunnu: Gilitrutt. Er
vitanlega gott eitt um það að
segja, og vafalaust má fá
ótæmandi efni í góðar og
skemmtilegar kvikmyndir í
þjóðsögum okkar. En nú hef-
ur kvikmyndasagan Gilitrutt
verið gefin út í bók, og sú
saga er mjög frábrugðin þjóð-
sögunni. Slíkt virðist mér ær-
ið varhugavert. Þjóðsögurnar
okkar verða trauðla umskrif-
aðar án þess að þær láti í ein-
hverju á sjá, t.d. orðfæri".
Latisar siötlur lijá Yega-
ger<i ríkisln§
Tvær stöður IBYGGINGAVERKFRÆÐINGA og ©iu
staða VÉLAVERKFRÆÐINGS eru lausar til umsóknar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Stéttarfé-
lags verkfræðinga við ríkisstjórnina frá 25. júlí 1955.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri.
störf, sendist samgöngumálaráðuneytinu fyrir 25. febrú-
ar næstkomandi.
TILKY
om atvinniileysisskrámngu
Atvinnuleysisskráning samkvæmt ákvörðun
laga nr. 52 frá 9. apríl 1956, fer fram í Ráöninga-
stofu Reykjavíkurbæjar, Hafnarstræti 20, dag’ana
1., 4. og 5. febrúar þ.á., og eiga hlutaðeigendur, er
óska að skrá sig samkvæmt lögunum að gefa sig
fram kl. 10—12 f.h. og kl. 1—5 e.h. hina tilteknu
daga.
Óskað er eftir aö þeir sem skrá sig séu viðbúnir
að svara meðal annars spurningunum:
1. Um atvinnudaga og tekjur síðústu þrjá
mánuði.
2. Um eignir og skuldir.
Reykjavík, 30. janúar 1957.
Borgarsíjóiinit í Reykjavsk.
/»■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ <■■■■■■■