Þjóðviljinn - 30.01.1957, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 30. janúar 1957 — ÞJÖÐVILJINN — (5
Moch heldur háskóiafyrirlesfur i Moskva
Franski sósíaldemókratinn Jules Moch, fyrrverandi landvarnaráöherra Fakklands og
nú fulltrúi lands síns »' afvopnunarnejnd SÞ, var á ferö í Moskva í vetur. í boöi
Moskvaháskóla hélt hann fyrirlestur um afvopnunarmál fyrir kennara og stúdenta
í pjóöréttarfrœði. Moch er í rœðustólnum til vinstri á myndinni.
armanna
LokiÖ er rúmlega þriggja mánaða verkíalli 38.000 málm
íð’naöarmanna 1 Slésvík-Holsetalandi í Vestur-Þýzka-
landi.
Verkfall þetta er eitt hið
’harðasta, sem háð hefur verið í
Vestur-Þýzkalandi síðan á dög-
um Weimarlýðveldisins.
Ileilt um sjúkrapeninga
Aðalkrafa verkamanna, sem
þeir hafa fengið framgengt, er
að fá full laun greidd í allt að
sex vikna sjúkraforföllum. Þetta
eru sömu kjör og skrifstofufólk
nýtur. Verkamenn litu á and-
stöðu atvinnurekenda gegn
þessari kröfu sem tilraun til að
viðhalda hefðbundinni stétta-
skiptingu með þvi að setja erf-
iðisvinnumenn skör lægra en þá
sem vinna andleg störf.
900.00® mjóta góðs af
Málmiðnaðarmenn í Siésvik-
Holsetalandi börðust ekki að-
eins fyrir sjálfa sig, allir
900.000 verkamenn í málmiðn-
aði Vestur-Þýzkalands njóta
góðs af sigri þeirra. Samning-
urinn sem stjórn sambands
máimiðnaðarmanna og samtaka
S jú Enlæ býðst til að hitta Dull-
es hvar og hvenær sem er
Stingur upp á að Bandaríkin og Kína
skiptist á mönnura sem. haldið er
nauðugum
Sjú Enlæ, forsætis- og utanríkisráðherra Kína, bauðst
í gær til að ræða viö Dulles, utanríkisráðherra Banda-
rikjanna, hvar og hvenær sem værí.
Hann sagði þetta í viðtali við
blaðæmenn í höfuðborg Nepals,
Katmandu, en þar hefur hann
dvalizt í fimm daga í boði
stjórnar landsins.
Hann sagði að enda þótt
honum hefði aldrei borizt neitt
svar við fyrri tilboðum sínum
um að hitta Dulles að máli,
vildi hann xtreka að hann væri
fús að ræða við hann hvar og
hvenær sem væri.
Hann sagði ennfremur að
kínverska stjórnin væri fús til
að sleppa þeim bandarísku
þegnum sem nú afplána refs-
ingar í Kína úr haldi, ef
Bandaríkjastjórn vildi leyfa
jafnmörgum Kínverjum sem
hún heldur nauðugum í Banda-
ríkjunum að hverfa heim.
Bandainska utanríkisráðuneytið
sagði í gær, að engum Kín-
vei-ja væiá haldið nauðugum í
Bandaríkjunum og því væri
ekki hægt að fallast á þetta
boð.
Sjú lEnlæ fór frá Nepal í gær
flugleiðis til Kalkútta, en þaðan
mun hann fara heim til Pek-
ing.
Njósnantál
í Danmörku?
Danska stjóniin vísaði í gær
úr landi hermálafulltrúa við
sovézka sendiráðið. Er sagt að
hann hafi komið ótilhlýðilega
fram við danska liðsforingja Og
er lagður sá skilningur í þetta
orðalag að hann hafi reynt að
komast yfir hemaðarlegar upp-
lýsingar.
Júgóslavneska fréttastofan
Tanjúg skýrði frá þvi í gær að
Tító forseti væri hættur við að
fara til Bandaríkjanna. Ástæðan
væri sívaxandi andróður gegn
Júgóslavíu þar í landi.
atvinnurekenda í málmiðnaðin-
um hafa gert með sér gildir
fyrir alla starfsgreinina.
Þegar atvinnurekendur reyndu
að kljúfa raðir verkfallsmanna
með því að gera þeim lélegt til-
boð eftir að vinnustöðvun hafði
staðið í rúma tvo mánuði svöi’-
uðu verkamenn með því að
fella smánartilboðið með 98,98%
greiddra atkvæða. I atkvæða-
greiðslunni tóku þátt 97%
verkfallsmanna.
Auk hækkaðra sjúkrapeninga
fá verkamenn hækkað orlofsfé.
Valdastefnan or-
sök kalda stríðs-
ins, segir Saud
Saud, konungur Saudi Arabíu,
kom til New York í gær í
tveggja vikna opinbera heim-
sókn til Bandaríkjanna. Hann
ávaipaði allsherjarþing SÞ í
gær og sagði m.a. að það væri
valdstefna sumra þjóða sem
væri orsök kalda stríðsins.
Hann og föruneyti hans gisti
í nótt í 65 herbergjum í Wald-
orf-Astoria gistihúsinu, en í
dag heldur konungur tit Wash-
ington til viðræðna við Eisen-
hower forseta.
„Prófessor í dulfrœðum" nýtí
vitni í Montesimólinu
Hin myrta og tveir aðalsakborningar
leituðu tii hans
Sjálfskipaöur „prófessor í du.lfræöum“ hefur öllum á
óvart skotiö upp kollinum í Montesimálaferlunum ítölsku.
í réttarhöldunum í síðustu
viku las foi’seti réttarins upp
bréf, sem honum hafði borizt
frá manni í Mílanó, sem réttu
nafni heitir Enzo de Santis en
kallar sig Orio.
,,Prófessorinn“ skýrði frá því
að Wilma Montesi hafi komið á
sinn fund á útmánuðum 1953,
skömmu áður en hún fannst
látin á ströndinni nálægt Róm.
Samferða henni voi’u að sögn
de Santis þau Gianpiero Picci-
oni, sem nú er fyrir rétti sak-
aður um að hafa valdið dauða
Wilmu, og Anna *Kíaria Caglio,
sem þá var hjákona falsgreif-
ans Ugo Montagna, vinar Picci-
onis, en er nú helzta vitnið
gegn þeim félögum.
de Santis fer þess á leit að
fá að bera vitni, svo að réttur-
inn verði áskynja „alvarlegiar
og óhugnanlegrar vitneskju'*
sem liann búi yfir.
Þegar réttarforsetinn las bréf-
ið rauk verjandi Piccionis upp
og mótmælti því að „loddari
sem kallaði sig prófessor í dul-
fi’æðum" fengi að bera vitni.
Slíkt hlyti að skerða virðingu
réttarins.
Piccioni hefur harðneitað að
hann hafi þekkt Wilmu Montesi.
Réttarhöldum var fyrir he’.g-
ina frestað til 30. janúar. Þá
eiga aðstandendur Wilmu, þar
á meðal unnusti hennar, að
| bera vitni.
Keisaradóttirin reyndist
vera pólsk vinnukona
Dómstóll í Vestur-Berlín úrskurðar að
Anastasía keisaradóttir sé löngu liðin
Dómstóll í Vestur-Berlín úrskuröaði í gær aö enginn
fótur væri fyrir reyfarasögum um að yngsta dóttir Niku-
lásar Rússakeisara, Anastasía, væri enn á lífi.
Á undanförnum árum hef-
ur um fátt verið rætt meira í
þýzkum blöðum og ýmsum
öðrum en roskinn kvenmann,
sem gengið hefur undir ýmsum
nöfnum, en haldið hefur fram,
að hún sé yngsta dóttir Niku-
lásar Rússakeisara, Anastasía.
Hafa margar sögur, ýmsar
mjög reyfarakenndar, verið
samdar um ævi þessarar konu,
allt frá því að hún slapp ein
að sögn undan, þegar keisara-
hjónin og böni þeirra voru líf-
látin í júlí 1918.
Hafa verið færð ýms rök fyr-
ir því að kona þessi, sem nú
kallar sig Önnu Andersson og
býr í Vestur-Þýzkalandi, sé
raunverulega Anastasía keis-
aradóttir og var höfðað mál
til að fá það staðfest.
Dómstóll í Vestur-Berlín úr-
skurðaði í gær, að Anastasía
Æðar og taugctr
saumaðar með vír
Læknar í Sovétríkjunum eru farnir að sauma saman
taugar með örmjóum vír.
Upphaflega smíðaði Vísinda-
í’annsóknarstofa tilraunatækja í
Moskva vél, sem lækna van-
hagaði um til að sauma saman
með mjóar æðar.
Þráðurinn í vélinni er ör-
mjór vír úr tantalum, sem er
mjög fágætur málmur. Vélin
reyndist vel við að sauma sam-
an æðar sem ekki urðu tengdar
á annan hátt.
Það var nánast af tilviljun
að á daginn kom að með vél-
inni var einnig hægt að sauma
saman sundursniðnar taugar.
Dag nokkum var komið á
sjúkrahús í Moskva með mann
sem hafði svo gott sem misst
annan fótinn í umferðarslysi.
Heita mátti að leggurinn væri
sniðinn sundur.
Læknunum kom til liugar, að
reyna að gi’æða stúfana saman.
Var gripið til æðasaumavélar-
innar og hún notuð til að
tengja á ný sundurskornar æð-
ar og taugar. Aðferðin heppn-
aðist svo veí að maðurinn hélt
fæti sínum og getur gengið
hjálparlaust.
hafi ekki verið í tölu lifenda
síðan í júlí 1918, og Anna þessi
Andersson, sem réttu nafni
heiti Anna Tschaikowski sé
pólsk að uppruna og hafi verið
vinnukona þegar hún kom til
Berlínar fyrst árið 1920.
A.m.k. tvær kvikmyndir liafa
nýlega verið gerðar eftir reyf-
arasögum Önnu þessarar og lék
Ingrid Bergman aðalhlutverk
í annarri þeirra, sem lieitir
Anastasía.
Alsír
Framhald af 1. síðu.
vörur sínar.
Franskir menn eru einnig
minna á ferli en endranær. Tug-
þúsundir hermanna eru á verði
í franska hluta borgarinnar,
strangur vörður er utn allar op-
inberar byggingar og almenna
samkomu- og veitingastaði og
vopnaðir menn gæta þeirra fáu
sporvagna sem enn eru í gangi,
Lögreglan í París er á verð|
og ei’u lögregluþjónarnir búnií
kylfum og stálhjálmum. Um 500
Serkir voru handteknir í París
og öði’um borgum Frakklands j
fyrradag og fleiri bættust í þanit
hóp í gær.
Stúdentar
í hungurverkfaHi
Serkneskir stúdentar sem
stunda nárn i París og övrum
frönskum háskólaborgum sækja
ekki fyrirlestra meðan á verk-
faliinu stendur. Margir stúdentar
frá Alsír hafa búið um sig á al-
sírska stúdentagarðinum við
Boulevard Saint Michel og hafið
hungurverkfali. Ætla þeir enr ratj
fæðu að neyta meðan á v:.rk-
fallinu stendui’. Margir félagar
þeirra frá Túnis og Marokkó
hafa gert slikt luð sama.