Þjóðviljinn - 30.01.1957, Síða 7

Þjóðviljinn - 30.01.1957, Síða 7
Miðvikudagur 30. janúar 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (7 Af stofnendum eru aðeins sjö á lífi nú, þau Hallbjörff Þorvarð- ardóttir, Borghildur Níelsdóttir, Bjarnasína M. Oddsdóttir, Albert Kristinsson, Guðmundur Jónas- son, Gunnlaug-ur Hiidibrands- son og Jón B. Pétursson. TXaglaunagreiðsIan var á þessum árum að miklu leyti úr sögunni, en tíma- viiman upp tekin. En eins og fyrr réðu tinnuveitend- ur sjálfir kaupgjaldinu. Verkafólk hafði þar ekkert; urn að segja, varð að taka þegjandi við því sem að því var rétt. Þegar daglaun voru greidd voru þau kr. 2,00 og 2,50 fyrir daginn, : mismunandi eftir dugnaði ' mannsins, en kr. 1,50 fyrir kvenfólk, og voru engin takmörk fyrir því hve íang- ur vinnudagurinn var. Fór |i það eftir geðþótta vinnu- veitanda. Hið sama gilti um tímavinnukaupið. IT'nginn ákveðínn vinnu- " tímí, og sama kaup hvort heldur var unnið að degi eða nóttu. Var þá venjulega greitt fyrir klukkutímann 20—25 aur- ar karlmönnum og 12 og hálfur eyrir kvenfólkL llart var um peninga- * greiðslu að ræða. Mest allt kaup sitt varð fólk að taka út í völrum í búðum kaupmanna, með upp- i sprengdu verði. 17ngan ákveðinn matmáls- tíma var heldur um að : ræða. Fólk varð að stelast til að gleypa i sig matar- bita eða kaffisopa úti undir beru lofti, hvernig sem veð- ur var, undir pakkhús- veggjum og bryggjum, eins og siðlausir menn eða soltn- ar skepnur“. JÓN ÞÓBÐARSON frá Hliði einn þremenninganna. Verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfirði er 50 ára í dag. Það munu fyrst og fremst hafa verið tveir sjómenn er fyrst beittu sér fyrir stofnun hennar. Það er annar þeirra, Jóhann Tómasson, sem lýst hefur ástandinu í Hafnarfirði eftir aldamótin, fram að því er Hlíf var stofnuð, með þeim orðum sem tilfærð eru hér að framan. Á tímabilinu 1900—1907 þrefaldaðist íbúatala Hafnar- fjárðar, úr 500 íbúum i 1500. Ástæðan: vaxandi útgerð. Það þótti borga sig að gera út meðan kjörin voru slik! En með tilkomu f jölmennra vinnu- stöðva varð mönnum tíðrædd- ara um kjörin og áhuginn fyrir að bæta úr þessu ástandi fór vaxandi, — þótt hægt / Núverandi stjórn Hlífar. Standandi frá vinstri:, Sveinn Sveinsson varagjaldkeri, Bjaxni Rögnvaldsson varaformaöur, Yngvi Jónsson gjaldkeri. Sitjandi (frá vinstri!: Helgi S. Guðmundsscm fjármálaritari, Hermann Guömundsson formaöur, en hann hefur veriö formaður Hlífar í 16 ár eöa lengst allrá, Ragnax Sigurösson vararitari og Pétur Krisðergsson ritari. HLIF 50 ARA færi. Um deyfðina segir Jó- hann Tómasson: . „Nokkru kann það að hafa valdið, að flestir þeirra sem hingað fluttust voru hver öðr- um ókunnugir, og flestir þeirra engu félagslegu sam- starfi vanir í sveit sinni. Um frumkvæði og uppörf- un þeirra, sem í Hafnarfirði voru fæddir var vart að ræða, — þótt ýmsir þeirra yrðu sið- ar verkalýðsfélögunum hinar traustustu stoðir. Þeir höfðu alizt upp við takmarkalitla lotningu og undirgefni kaup- mannavaldsins. En kaupmenn voru einu vinnuveitendurnir og varð fólkið allt til þeirra að sækja. í auðmýkt og und- irgefni varð það að knýja á þeirra náðardyr með lánsút- tekt til sinna brýnustu lífs- nauðsynja, því að vinnulaunin hrukku ekki til, þótt kröfur til lifsþæginda væru ærið litl- ar. Bar hugsunarhátturinn lengi furðu miklar minjar langvarandi kúgunar“. Þessi lýsing Jóhanns Tóm- assonar, eins fyrsta braut- ryðjanda Hlífar, af viðhorfi og ástandi fyrir 50 árum, er rifjuð upp hér fyrir ungt fólk sérstaklega. Þess verður stundum vart að ungir menn haldi að kjörin sem þeir búa við í dag hafi alltaf verið eins og þau eru nú. Svo er ekki. Þau eru slík sem þau eru að- eins fyrir þrotlausa baráttu feðra þeirra og mæðra. Arfur sem þeim ber að vernda og viðhalda. Breytingin frá því að atvinnurekandinn skammt- aði kaup, vinnutíma og Hfs- nauðsynjar, eins og var um og eftir síðustu aldamót, til kjara vinnandi fólks í dag, fékkst ekki fyrirhafnarlaust. Atvinnurekendur réttu ekki verkalýðnum kjarabætur á silfurbakka, þær kostuðu bar- áttu, mikla og langa baráttu. Það var einmitt vaxandi skilningur hafnfirzkrar alþýðu JÓHANN TÓMASSON annar aðalhvatamaður að stofn- un Hlífar. Hann átti lengi sæti í stjórn félagsins og gegndi marg- háttuðuni öðrum trúnaðar- störfiun. á nauðsyn samtaka og bar- áttu, eða eins og Jóhann Tóm- asson orðar það: Fólki „var farið að skiljast, að útgerðar- menn og kaupmenn, — sem var eitt og hið sama, — mundu ekki bæta kjör þess á neinn hátt“, sem leiddi til þess að Hlif var stofnuð. Örlögin hafa verið svo grá- SVEINN AUÐUNSSON er tók við formemisku Hlífar haustið 1908 og mun hafa verið formaður til 1918, einn a.f vin- sælustu forustumönnum Hlífar fyrr og síðar. lynd við Hlifarmenn að fyrsta fundargerð félagsins er glöt- uð. Nákvæmar upplýsingar um félagsstofnunina eru því ekki til. í fundargerðabók Dagsbrúnar í Reykjavík er þess getið að á fundi Dags- brúnar 13. janúar 1907 hafi verið lesið bréf frá þrem Hafnfirðingum, þar sem þeir ræði um stofnun verkamanna- félags í Hafnarfirði og óski liðsinnis Dagsbrúnar í því máli. Dagsbrúnarmenn brugðu vel við og sendu Hafnfirðing- um 3 menn til aðstoðar. Hóf- ust Hafnfirðingar handa um fundarboðun. Er talið að margt manna hafi verið mætt á stofnfundinum. Frá Dags- brún er vitað um þá Pétur G. Guðmundsson og Ásgrim Magnússon. Hafnfirðingarnir þrír, sem undirrituðu bréfið til Dagsbrúnar voru þeir Jó- hann Tómasson, Gunnlaugur Hildibrandsson og Jón Þórð- arson frá Hliði. Framsöguræður og hvatn- ingarræður um félagsstofnun voru fluttar, og hreyfði eng- inn mótmælum. En þegar að því kom að stofna félagið fór þó svo að margir voru enn það háðir atvinnurekenda- valdinu að þeir treystu sér ekki til að eiga hlut að svo áhættusömu athæfi sem því að stofna verkamannafélag — „gegn vinnuveitendunum". Og þessir menn þokuðu sér til dyra svo lítið bar á, og hurfu á brott. Eftir voru um 40 manns er gerðust stofnendur félagsins, þar af nokkrar kon- ur. Fyrsti formaður félagsins var kosinn Isak Bjarnason á Óseyri, síðar bóndi í Fífu- hvammi. Næstu daga og vikur sátu forgöngumenn Hlífar ekki auðum höndum, heldur unnu ósleitilega að þvi að skýra fyrir hafnfirzku verkafólki nauðsyn samtaka, og þeim varð vel ágengt. Á fundi í Dagsbrún 13. marz skýrði Ás- grímur Magnússon, er Dags- brúnarmenn höfðu sent til bræðrafélagsins í Hafnarfirði, frá því að félagsmenn Hlífar væru þá orðnir 250 talsins. Um þetta leyti setti Hlíf fyrsta kauptaxta sinn —- því um viðurkenningu á félaginu og samninga við það var ekki að tala — og skýrir Ásgrím- ur Magnússon á Dagsbrúnar- fundinum frá þeim viðbrögð- um atvinnurekenda, að þeir væru að bíndast samtöiuim gegn félaginu — og hefðu í heitingum um að flytja inn verkafólk — frá Noregi! Þegar til kom runnu at- vinnurekendur á öllum sínum heitingum og viðurkenndu taxta Hlifar. Liðu svo næstu ár fremur friðsamlega og sótt- ist í áttina til bættra kjara, þótt hægt færi. Atvinnurek- endur höfðu gefizt upp á að drepa félagið. I þess stað hugðust þeir fara þá leið að eyðileggja það innan frá. Tókst atvinnurekendum að ráða allmiklu í félaginu um skeið — með þeim liætti að vera sjálfir í því! Snenrma vetrar 1914 fengu þeir sam- þykkt í Hlíf að atvinnurek- endur inættu vera í félaginu! Sá sem harðast beitti sér gegn því var Daiíð Kristjánsson, einn af helztu forustumönn- um hafnfirzkrar alþýðu þá, og svo fór að síðar voru sett inn þau ákvæði í lög Hlífar að atvinnurekendur gætu ekki verið í félaginu. Segja má að tímabilið í sögu Hlífar frá 1919 til 1926 hafi verið samfelld sókn. Fé- lagið tók snemma að ræða. margháttuð framfara- og nauðsynjamál bæjarins og reyna að knýja fram fram- kvæmdir í þeim. Það var raun- ar fyrr, eða 1914, sem Hlíf lét stjórn bæjarins til sin taka GUNNL. HILDIBBANDSSON einn hinna þriggja er ieituðu lið- sinnis Dagsbrúnar við stofnun Hlífar. og stuðlaði að kosningu Magn- úsar Jóhannessonar for- manns félagsins, Við bæjar- stjórnarkosningar 1916 fékk Hlíf kosna báða þá bæjar- fullírúa er kjósa átti þá. Við næstu kosningar valt á ýmsu. Hlífarmenn ýmist töiuðu eða unnu. En áfram var haldið og smátt og smátt vannst á, unz verkalýðssamtökin í Hafnarfirði færðu Alþýðu- flokknum meirihluta í bæjar- stjórninni árið 1926. Síðan hefur Hlíf ekki borið fram, lista í bæjarstjómarkosning- um. Á tímabilinu milli 1930 og 1940 fór mest af starfskröft- um Hlífar í bnráttu fyrir aukinni atvinnu, en þennan Framh. á 10. síðu

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.