Þjóðviljinn - 09.04.1957, Síða 9
Handknaitleiksmóíið:
0* __
Armann vann Þrótt 21:17 og KR vann
IR 16:14 eftir skemnitilegan leik
. Leikurinn milli Ármanns og
Þróttar var mikið jafnari en al-
mennt var búist við. Þróttur
hafði forustuna svo að segja all-
an fyrri hálfleik. Þróttur byrjaði
að skora og var Grétar þar að
verki. Stefán jafnaði fyrir Ár-
mann og Hannes skoraði annað
mark Ármanns og var það í eina
skiptið 'sem Ármann komst yfir í
fyrri ihálfleiib. Langskyttumar
Jón Erlendsson og Snorri nutu
sín ekki og Jón skaut of hátt
í nokkur skipti.
Bjöm jafnaði fyrir Þrótt.
Hörður og Guðmundur gera
næstu tvö mörkin en þeir Hann-
es og Jón jafna fyrir Ármann.
Um skéið stóðu leikar 8 og 5
fyrir Þrótt, en í hálfleik stóðu
leikar 8:7 Þrótti í vil.
Til að byrja með höfðu Þrótt-
arar einnig forustuna í síðari
háifleik, en þegar um 8 mínútur
voru liðnar höfðu Ármenningar
jafnað (10:10) og nú tóku þeir
forustuna með langskoti frá Jóni
Eilendssyni, og héldu henni til
leiksloka.
Eins og í fiestum leikjum
Þbóttar gáfu þeir heldur eftir
er á leikinn leið. Þeim tókst ekki
að opna vörn Ármenninga í
síðari hálfleik eins og þeim fyrri.
Ármenningum tókst líka betur
með skotin og nú er það Jón Er-
lendsson sem er búinn að stilla
”kanónu“ sína inn og skorar 5
mörk í þeim hálfleik. Hinsvegar
eru Þróttarmenn farnir að skjóta
meir en þeir hafa gert áður og
nú eru það 5 menn sem skora
Þriðjitdagur 9. apríl 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (»7.
Skúli Tliorarensen stökk L60 í Iiá-
stökki án atrennu á afmælismóti FlRR
mörk.
Allir Ármenningarnir sem léku
frammi skoruðu, þó voru það
Þeir Jón Erlendsson og Hannes,
sem skora 11 af 21 marki sem
liðið skoraði.
Ármannsliðið er ekkl orðið
heilsteypt og virðist það ekki
taka miklum framförum.
Fyrir Ármann skoruðu þessir
mörkin: Jón Erlendsson 6, Hannes
5, Stefán 3, Jón Jónsson 3 Snorri
2 og Friðrik og Ingvar 1.
F.^iir Þrott skoruðu: Hörður 6,
Guðmundur Axelsson 5 og Grét-
ar’ Bi°rn °g Jón Guðmundsson
sín 2 hver.
Dómari var Hörður Jónsson og
voru honum nokkuð mislagðar
hendur.
Framniistaða ÍR-inga góð
Síðari hálfleikurinn milli ÍH
og KR var mjög skemmtilegur
og oft tvísýnn. KR-ingar höfðu
forustuna allan leikinn. ÍR náði
að jafna er 9 mín voru af leik
74:4)
Bæði liðin voru með nokkurn
glímuhroll og sást það þó meir
á ÍR-ingum sem gripu ekki
knöttinn eins vel og þeir gera að
jafnaði, og voru ónákvæmari í
sendingum. Lið KR var líka var-
fæmara en venja er og reyndi
að hætta sem minnstu og fara
að öllú sem gætilegast, þö var
allmjkill hraði í leiknum. ÍR átti
sýnu verr með að komast í færi
á linu, og Hermann sem hefur
verið snillingur á þeim stað,
notaðist ekki að þessu sinni
til að skora, til þess var hans
gætt of vel.
Vörn KR var sterk og skutu ÍR-
ingar full mikið í „harðan múr-
inn“ og mjsstu knöttinn við
það.
Að þessu sinni mun það hafa
verið meiri leikreynsla sem gaf
KR sigurinn, því tæknilega séð
höfðu þeir ekki yfirburði, og
þessi frammistaðá þessa unga
liðs ÍR er-Vmjög góð, því lið KR
er samleikið og hefur gengið í
gegn um marga raun og harða
leiki. f liði KR eru líka margir
snjallir leikmenn, og má þar
nefna Karl, Reynir, Hörð Felix-
son, Þórir, Þorbjörn og Guðjón
í markinu.
Reynir skoraði 3 fyrstu mörk
KR, Gunnar Bjarnason skarst
þar nokkuð í leikinn og skoraði
2 í röð. Karl eykur töluna upp
í 4 fyrir KR. Nú er það Her-
mann sem skorar óverjandi fyr-
ir Guðjón. Karl bætir enn við
6:4. Fimmta mark IR skorar
Matthías með ágætu skoti af
löngu færi, sem hann á vanda til
að gera mjög fallega, og það
oft í leik, en í þessum leik fann
hann leiðina í mark aðeins í
þetta eina sinn.
Hörður og Bergur Adólfs
auka töluna fyrir KR í 8:5.
Gunnlaugur hafði til þessa
verið óheppinn með skot sín,
og skotið i múrjnn, en hann
skorar 6. mark ÍR, Og nú breikk-
ar bilið, Bergur, Þórir og Hörð-
ur skora sitt markið hver
(11:16).
Síðasta mark fyrir leikhlé
skorar Gunnlaugur, og vinna
KR-ingar því fyrri hálfleik með
4 marka mun.'
Gunnlaugur skorar fyrsta
markið í síðari hálfleik, en Þór-
ir jafnar það upp, og enn er þáð
Gunnlaugur sem skorar og enn
svarar Þórir, með hörku skoti
og marki (13:9). Þorleifur Ein-
arsson skorar 10. markið fyrir
ÍR og stuttu síðar er það Karl
sem jafnar (14:10), og 10 mín
eru eftir.
Nú eru það ÍR-ingar sem
minnka bilið svo að aðeins mun-
ar einu marki, Gunnlaugur
skoraði eitt og Hermann tvö.
Karl bætir við fyrir KR og Þor-
leifur fyrir ÍR (15:14), og 4
mínútur eftir.
Hraðinn er nú ekki mikill í
leiknum, öryggið er fyrir öllu.
Áhorfendur láta mikið í sér
heyra. Síðasta markið í 1 þessum
skemmtilega leik setti Þórir fyr-
ir KR og endanleg úrslit urðu
því 16:14. Sennilega mætti bæta
einu marki við fyrir KR, því
sterkur grunur lék á því, að eitt
skot þeirra KR-inga hafi farið
í gegnum netið, en það var ekki
dæmt mark.
Stuttu síðar var leikurinn
stöðvaður og netamaður með
vörpugarn kom og bætti gat,
sem var á þeim stað, sem knött-
urinn kom.
Dómari var Valur Benedikts-
son.
M U N I Ð
■
■
■
■
[ Kaffisöluna í Hafnar-
stræti 16.
Til samanburðar
og minnis
12 manna kaffistell, steintau, 2 skreytingar.
Verð frá kr. 290 kr.
12 manna matarstell. — Verð frá 340 kr.
12 manna kaffistell, postulín, 16 skreytingar.
Verð frá 385 kr.
12 manna matarstell, 12 skreytingar. —
Verð frá 980 kr.
Stök bollapör. — Verð frá 6.80 parið.
Hitabrúsar, kr. 22.00.
Vatnsglös kr. 2.10.
Ölsett, vínsett, ávaxtasett.
Mikið úrval af alls konar glösum.
Borðbúnaður, pólerað stál.
fplervorudeild
Hammagerðarinnar
Hafnarstræti 17.
Á sunnudaginn var efndi
Frjálsíþróttáráð Reykjavíkur til
afmælismóts í frjálsum íþrótt-
um innanhúss í tilefni af 25 ára
afmæli ráðsins.
Mesta athygli vakti árangur
Skúla Thorarensen í hástökki
án atrennu, en hann stökk 1,60
sem er ágætt afrek. Aðrir fóru
ekki yfir byrjunarhæðina.
I öðrum greinum varð þessi
árangur:
Laiigstökk án atrennu:
1. Valbjörn Þorláksson ÍR 3,18
2. Skúli Thorarensen ÍR 3,12
3. Daníel Halldórsson ÍR 3,11
Þrístökk:
1. Daníel Halldórsson ÍR 9,47
2. Valbjörn Þorláksson IR 9,10
3. Björgvin Hólm ÍR 9.00
Kúluvarp:
1. Skúli Thorarensen IR 14,37
2. Guðm. Hermannss. KR 14,05
3. Guðjón Guðmundss. KR 13.57
Hástökk með atrennu:
1. Sigurður Lárusson Á 1.75
2. Sigurj. Þorbergss. UMFR 1.70
3. Valbjörn Þorláksson ÍR 1.65
Þvottaluis til sölu
Til sölu er starfandi þvottahús hér í bænum.
Vélar eru góöar og rúmgott húsnæöi.
Upplýsingar gefur Ragnar Ólafsson hrl.,
Vonarstræti 12.
Þeir, sem æskja aö’ gera
úthlutunarnefnd
listamannalauna
grein fyrir störfum sínum að listum
og bókmenntum, sendi þau gögn tíl
skrifstofu Alþingis fyrir 17. apríl.
Utanáskrift:
Úthlutunarnefnd listamannalauna
Slík gögn eða umsóknir teljast
þó ekki skilyrði fyrir því aö koma
til
við úthlutunina.
V thlutunarnfifnd
Listamannalauna
Myndavél er ávallt
kærkomin
fermingargjöí
að vorinu til
Góðar kassavélar
kosta kr. 238.00
6X9 útdregnar
vélar kosta
kr. 350.00
Verzlun Hans Petersen h.l
BanJcastrœti 4. — Sími 3213.