Þjóðviljinn - 28.08.1957, Síða 4

Þjóðviljinn - 28.08.1957, Síða 4
vjy — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 28. ágúst 1957 Víkmgamynd fyrir 4 milljómr dollara Kirk Douglas er ekki einungis einn af kunnustu og tekjuhæstu leikurum í Hollywood, heldur er hann líka kvikmyndaframleiðandi, sem látið hefur og lætur talsvert að sér kveða. Douglas stofnaði sitt eigið kvikmyndafélag fyrir átta árum og síðan hefur hann, eða félagið, sent frá sér sex myndir; fyrsta myndin hét á ensku „The Indi- an Fighter“, sú síðasta „Paths of Gior y“. í sumar, var svo unnið í Noregi að töku sjö- undu myndarinn- ar, sem nefnist „Víkingamir, Upp- haflega var áæti- að að hún myndi kosta fullgerð 2.5 milijónir dollara, en nú þykir þegar sýnt að kostnað- ufinn verði ekki Kirk Douglas í einni af kvik- minni en 4 millj. myndum sínum, ásamt Dany doliara. Itobin. Kvikmyndin, en í henni ieikur Kirk Douglas aðalhlutverkið, son víkingahöfðingja eins sem lejkinn er af Ernest Borgnine, fjallar að sjálf- sögðu um hina norrænu víkinga á áttundu og ní- undu öld. Aðalhlutj myndarinnar var, eins og fyrr segir, tekinn í sumar í Noregi. Lét kvikmyndafé- lagið reisa í því skyni heilt þorp á óbyggðri eyju í einum af norsku fjörðunum, auk þess sem smíðuð voru nokkur víkjngaskip eftir fyrirmynd Gauk- staðaskipsins fræga. Þrjú þessara skipa kostuðu 60 þús. dollara. Um 600 menn eru með einhverjum hætti við- riðnir kvikmyndatökuna og bjuggu þeir í tveim skipum, sem Kirk Douglas leigði í því skyni og lét leggja við akkeri í nálægri vík. Annað þessara skipa var eitt sinn í eigu milljónaerfingjans Bar- böru Hutton. Allmargir bátar voru hafðir tjl flutn- inga á starfsfólkinu; sumir fluttu það frá ^’'ipi til eyjar þar sem myndatakan fór fram, aðrir voru í förum til næsta bæjar. Leikendurnir, þar með taldir að sjálfsögðu auka- leikarar og statistar, voru nokkur hundruð tals- ins og víðsvegar að úr Evrópu. í bandaríska tíma- ritinu Newsweek er sagt frá því, að myndatakan hafi tafizt mjög við það, að kalla þurfti upp fyrir- mæli og skipanir leikstjórans jafnan á sjö tungu- málum, dönsku, ensku, frönsku, ítölsku, norsku, sænsku og þýzku. Kvikmyndatökumönnunum bandarísku, leikend- um og öðrum starfsmönnum þótti æði votviðrasamt i Noregi í sumar; það var rigning eða súld í 49 daga þá tvo mánuði sem unnið var að töku kvik- myndarinnar. Söcguleg kvikmyndun Hér í þættinum hefur áður verið skýrt frá því að bandarískl kvikmyndafélag hafj ákveðið að gera mynd eftir hinni heimsfrægu skáldsögu Nóbels- verðlaunaskáidsins Hemingways Vopnin kvödd. Hef- ur verið unnið að töku þessarar myndar á Ítalíu í sumar og þá oltið á ýmsu, að því er fregnir herma. Framleiðandinn (producer) David O. Selznik er sagður mjög ruddafenginn og hrottalegur í fram- komu og hann á erfitt með að umgangast venjulegt fólk. Við myndatökuna vill hann t.d. vera einráð- ur um alla hlutj og hann stjórnar samstarfsmönn- um sínum með harðri hendi, ef honum- sýnist svo. Einn daginn fyrir skömmu þótti leikstjóranum John Huston afskiptasemi Selznik ganga svo iangt, að hann lagði niður vinnu í mótmælaskyni og fékk í lið með sér nokkra íleiri samstarfsmenn sína. En David O. Selznik virðist ekki hafa látið sér þetta „verkfall“ að kenningu verða, það sýna átök sem áttu sér nýlega stað milli hans og aðal- myndatökumannsins Arthurs Fellows í Milano. Selznik var eins og fyrri daginn að skipta sér af smæstu atriðum í ;*arfi kvikmyndatökumannanna, er Fellows bað hann að víkja til hliðar. Sló Selzti- ik þá myndatökumanninn kinnhest, en sá síðar- nefndi reiddist og gaf andstæðingi sínum einn á glannann með þeim afleiðingum að gleraugu kvík- myndaframleiðandans brotnuðu. Og nú um skeið hefur enginn aðalmyndatöku- maður unnið að Hemingwaymyndinni. Eftir slags- málin tók hann saman pjönkur sínar og flaug með fyrstu flugvél heim til Bandarikjanna. 1 Flestir Iesenda munu vafalaust kannast við hann þennan. Þetta er hinn snjalli, bandaríski gaman- leikari Danny Kaye. Skrifstofurnar — „Ekki við í augnablikinu Skriffinnska og skrifstofubákn — „Hefurðu bréf upp a það"? VAFALAUST kannast fleiri en ég við það, hversu erfilt getur reynzt að reka erindi sín á ýmsum opinberum skrifstof- um hér í bæ. Það má heita segin saga, að þegar maður kemur fyrst, hittist undantekn- ingalítið þannig á, að „fulltrú- inn sem hefur með þetta að gera er því miður ekki við í augnablik'nu“, — og augna- blikið getur orðið býsna langt. Nú er ekkert við því að segja, þótt menn þurfi að skreppa frá augnabiik, t.d. skjótast í búð eða eitthvað þess háttar En þegar það kemur upp úr dúm- um, að menn eru farnir til Parísar til að kaupa fermingar- kjól á telpuna sína, eða farnir upp í Borgaríjörð að veiða lax, án þess að aðrar skýringar séu gefnar á fjarveru þeirra en þær, að þeir séu ekki við í augnablikinu, þá finnst mér komið helzt til mikið af svo góðu. Skriffinnskan, sem fylg- ir orðið öllum hlutum, er sannarlega svo mikil, að ekki má minna vera en fólk fái eins fljóta afgreiðslu á hverjum stað og frekast er unnt. Mér hef- ur stundum dottið í hug, hvort ekki væri hægt að koma því við að láta ýmsar opinberar skrifstofur, sem almenningur þarf meira og minna að koma á, vera opnar á öðrum tímum en 9—12 og 1—5. Á þessum tíma eiga margir mjög óþægi- legt með að komast frá verki. Væri t.d. ekki hægt að hafa opið í matartímanum frá 12—1 hjá sumum skrifstofum? (t.d. tollstjóraskrifstofu, sjúkrasaml, tryggingunum, Bæjarskrifst.). Eða þá að þessar skrifstofur væru opnar til kl. 7 nokkur kvöld í mánuði. Eg hygg, að slíkt yrði mörgu fólki til hag- ræð.is. — Já, skriffinnskan hjá okkur er orðin mikil, svo mikil, að það er ekkí með öllu ýkt spaug, þótt maður segi, að að- alatvinnuvegur landsmanna sé skrifstofuvinna. Og þótt fjár- veitingar til verklegra framr kvæmda séu skornar við nögl. þá virðist ekkert til sparað í skrifstofuhaldinu, og manni virðist, að það sé hægt að bæta við fóiki á skrifstofunum eins lengi og hægt er að koma þar fyrir stól handa þvi að sitja á. Er öll þessi skriffinnska nauðsynleg? Hefur það verið athugað, hvað af þeim pappír- um og plöggum, sem framreilt er á skrifstofunum, tilheyrir nauðsynlegum hlutum, og hvað af því. er vita tilgangslaust „húmbug“? Væri ekki ráð að rannsaka það rækilega, hvort ekki mætti spara nokkrar mill- jónir króna á ári hverju á vettvangi skrifstofubáknsins, á sinn hátt eins og kaupmáttur verkamannalauna hefur verið hagfræðilega rannsakaðui í v'innudeilum? Eg held, að það væri meira en ómaksúis vert að gera slíka rannsókn. Og ef hún leiddi í 1 jós, að skrifstofu- báknið væri of stórt í hlutfaili við aðra liði í rekstri þjóðar- búsins, þá væri sjálfsagt að draga úr því bákni, en leggja me.iri áherzlu á hagnýtari störf. Eg held að þess væri full þörf að athuga rækilega, hvort ekki er hægt að létta af atvinnuveg- unum einhverju af þessu kostn- aðarsama skrifstofuhaldi. Hing- að til hefur nær eingöngu ver- íð einblínt á vinnulaun verka- fólks og þvi haldið fram af lærðum mönnum, að þau væru að sliga atvinnuvegina. nefur aidrei mátt heyrast nefnt, að dregið væri úr skrifslofu- bákninu, gerð tilraun til að létta drápsklyfjum þess af at- vinnuvegunum. — Það fylgir þessari sknffinnskuöld, að nú þarf maður að hafa bréf upp á alla hluti; „enginn á nejtt néma það, sem hann hefur bréf upp á“. Ef maður sækir um ein- hverja atvinnu, þarf maður að verða sér úti um eitthvert vott- orð um að maður sé svo og svo miklum kostum búinn, og hygg ég að slik vottorð séu oft í al- gerri mótsögn við verkið, sem eftir vottorðshafann liggur. Ef maður ætlar að sanna mál sitt, þarf maður að hafa skrifleg sönnunargögn í höndunum, annars er maður ekki <tekinn <Ú4JI I ,,Þjóðviljanum“ 21. þ.m. birtist grein undir fyrirsögn- inni „Hverk eiga Kópavogsbú- ar að gjalda?“ Er þar meðal annars sagt, að „ef spurt hef- ur verið hvenær þessi 400 númer i Kópavogi komist í samband, hafa engin. svör fengist”. í blaðinu „Visir“ 3. ágúst, skýrði póst- og síma- málastjórnin frá því, að af ó- viðráðanlegum ástæðum mundi dragast, að Kópavogs- búar fengju nýja síma, og var þá gert ráð fyrir nærri 2 mán- aða drætti á því. Þetta stafaði frá því, að fyrst varð dráttur á að innflutningsleyfi fengist trúanlegur. Eg hef oft verið að velta því fyrir mér, hvort þetta skriffinnskustand á öil- unt sviðum á ekki sinn þátt í því hve orðhcldni fólks hefur hrakað frá því sem áður var. Það er leiðinlegt og kannski Ijótt að segja þetta, en því mið- ur rekur maður sig allt of oft á, að það er bókstaflega ekkert mark takandi á bvi, sem manni er sagt. í minu ungdæmi var stundum sagt um menn, að orð þeirra stæði eins og stafur á bók, og merkti það, að óhætt væri að reiða sig á orð þeirra. Orðheldnin var ])á mikilsvirt dyggð. Sú dyggð virtist mér hafa Jækkað í áijti á siðustu timum, og er það illa. farið. fyrir nauðsynlegum jarðsíma milli Reykjavíkur og Kópa- vogs, og þegar jarðsíminn kom til landsins 27. júní sl., dróst i 6 vikur að landssíminn fengi hann afhentan, vegna þess að yfirfærsla fyrir andvirðinu fékkst ekki hjá bankanum, og samkvæmt reglugerðarákvæð- um mátti ekki afhenda. hann fyrr en greiðsla hefði farið fram. Reyndi landssíminn lengi árangurslaust að fá und- anþágu frá þessu skilyrði. Hinn 12. ágúst sl- fékkst jarð- síminn loks afhentur, og er nú verið að leggja hann og tengja, en verkinu verður væntanlega lokið fyrir sept- emberlok. 1 áðurnefndri grein kvartar Kópavogsbúi yfir að greiða fjarlægðargjald kr. 500. Fjar- lægðargjöld hafa ávallt tíðkast hér sem annarsstaðar, þegar um óvenju langar notendalin- ur og kostnaðarsamar er að ræða. Þar á móti fá Kópa- vogsbúar símtöl til Reykjavik- ur (7 km t.il símstöðvar) með sama afnotagjaldi og innan- bæjar, þqtt aðrir verði að greiða 5 kr. fyrir hvert sím- tal milli bæja í svipaðri fjar- lægð. Kópavogsbúar eru því ekki settir skör lægra en aðr- ir við svipaðar aðstæður, held- ur raunverulega hærra, Að lokum skal þess getið að kostnaður bæjarsímans á hvert númer í Kópavogi er ólíkt meiri en í Reykjavík. Bæjarsími Keykjavikur. ) Hitt^. Símamál í Kópavogi Athugasemd írá Bæjarsíma Reykjavíkur Rvík 27/8 1957.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.