Þjóðviljinn - 28.08.1957, Page 9
ÍÞRÓTTIR
KITSTJÓRl FRÍMANN HELGASO*
KR lék sér að Þrótti,
Miðvikudagur 2S. ágúst 1&57 — ÞJÓÐVILJINN — .{9
Bæði liðin komu á óvart, KR
fyrir óvenjuhraðan og nokkuð
virkan leik og Þróttur fyrir
mun lélegi-i leik en nokkru
sinni fyrr í sumar. Þróttarlið-
ið var viljaláust og vantaði alla
leikgleði til þess að geta haml-
að nokkuð upp á móti KR-ing-
unum. Liðið var einnig kyr-
stætt og lét KR-ingana skiija
sig eftir hvað eftir annað, og
oftar var þó að þeir gieymdu
þeim þegar mikið lá við að
gæta þeirra.
Sama var um samleikinn. þeir
voru svo seinir að átta sig og
lítið hreyfanlegir að um sam-
leik þeirra á milli var' varía að
ræða, f síðari hluta fyrri hálf-
leiks brá þó aðeins fyrir svo-
litlum samleik og knattspyrnu,
en það sfóð ekki lengi.
Lið KR var miklu hreyfan-
legra en það hefur verið í sum-
ar og lék hvað eftir annað með
hraða inní vítateig og opnaði
Fiiftiiii dreitglr
í Keflavík hafa tekið
bronsmerkið
Fyrr í sumar var frá því
sagt að tveir drengir ór Kefla-
vík hefðu leyst knattþrautir
KSf, sem gefa bronsmerkið. Nú
nýlega hafa þrír leyst sömu
þrautir, en þeir heita:
Stefán Bergmann KFK, 15 ára-
Árangur: 6—18—26—32,2—4,2.
Hrafn Sigurhansson UMFK, 15
ára. Ár.: 7—15—20—32,5—4,1.
Jón Jóhannsson UMFK, 13 ára.
Árangur: 8—20—16—31—4,0.
Nokkrir eiga aðeins eina grein
eftir til að ljúka við brons-
merkið, og margir hafa leyst
eina eða fleiri þrautir. Verður
sjálfsagt ekki langt þangað til
drengir í Keflavík láta frá sér
heyra.
Ö
svo vörn Þróttar að mörkin vbru
nærri öll óverjandj, og af stuttu
færi.
Þó KR hafi svo. vel tekizt í
þessum leik, er það ekki alveg
að marka því mótstaðan var svo
veik að þeir gátu allt sem þeim
sýndist. Þeir komu með í leik
þennan þrjá unga menn úr hin-
um efnilega öðrum flokki sínum,
og vjrðist sem þeir iífgi upp
liðið. Það er líka sýnilegt að
liðið er í betri æfingxr en það
hefur verið í sumar. Eins og
það lék að þessu sinni ætti því
ekki að verða skotaskuld úr
því að vinna leikinn víð Akui'-
eyri á laugardaginn. Liðið var
líka hreyfanlegt, sérstaklega
framherjarnir senvfóru víða um
og oft æði skipulega og höfðu
oft næmt auga fyrir samleik,
sem kom á óvart og rugíaði.
Þórólfur Beck var miðfram-
herji og gerði margt vel. Sama
er um framvörðjnn Garðar Árna-
son, sem gerði stöðunni góð skil.
Ellert Schfam var einnig virk-
ari en hann hefur verið undan-
farið. Hörður Felixson var mið-
framvörður og átti góðan leik.
Annars var liðið jafnt og sam-
stillt.
Beztir í liði Þróttar voru Bill
og Jens Karlsson.
Færeyingar tóku vel á
Knattspyrnumenn frá Kefla-
vík voru í keppnisheimsókn í
Færeyjum fvrrihluta ágústmán-
aðar og komu heim 16. ágúst.
Iþróttasíðan hitti að máli
Hafstein Guðmundsson, sem
þátt tók í förinni, og bað hann
að segja örlítið frá ferðalaginu,
og fer það hér á eftir.
Farið var héðan með Dronn-
ing Alexandrine 3. ágúst, og
komið með henni heim aftur,
svo tíminn sem við höfðum til
þess að leika 4 leiki var of
stuttur- Keppendur voru 14 alls,
sem var lika of lítið til þess að
hvíla. Fararstjóri var Hermann
Eiríksson skólastjóri.
Félagið sem bauð okkur tii
þessarar ferðar var B-36 úr
Þórshöfn. Tók það vel á móti
flokknum; og allar móttökur,
bæði þar og annarstaðar sem
við komum, voru hinar höfð-
inglegustu í alla staði, og var
allt gert til þess að gera okk-
ur dvölina sem skemmtilegasta.
Fyrsti leikurinn var við
Margíj. munu minnast danska kúluvarparans Axels Thorsagers
frá landskeppni Dana og Islendinga hér í Reykjavík i suinar.
Thorsager hefur oftar en einu sinni í siunar bætt danska metið
t kúluvarpi, nú síðast á meistaramóti Danmerkur í frjálsum
íþróttum, sein háð var um fyrri helgi, en þá varpaði hann
kúlunni 15.45 m.
gestgjafana í Þórshöfn, og fór
hann þannig að við unnum með
5:2 (3:0) Næsti leikur fór
fram í Klakksvík, en þangað er
tveggja tíma sigling frá Þórs-
höfn. Völlurinn þar er slæmur,
bæði harður og á honum stein-
ar. Okkur tókst þó að vinna
leikinn með 2:1. Annars eru
Klakksvíkingar nokkurskonar
Akurnesingar þeirra Færeyinga,
svo sigursælir hafa þeir verið í
leikjum sínum við félög annara
staða. Á síðustu 10 árum hafa
þeir orðið 7 eða 8 sinnum Fær-
eyjameistarar. I síðustu keppni
fengu þeir 13 stig af 15 mögu-
legum.
Það eru fimm lið sem keppa
um tignina og keppa bæði
heima og úti. Klakksvíkingar
eru taldir svo að segja ósigr-
andi heima. Þeir leika ekki sér-
lega vel eða góða knattspyrnu,
en í þeim er mikill kraftur og
flýtir, og meðal fólksins er svo
mikill áhugi fyrir knattspyrnu
að furðu sætir- Allir tala þar
um knattspyrnu og fylgjast
með henni af miklum áhuga.
Þar eru lika sterkir menn, sem
styðja knattspyrnumennina með
fjárframlögum, og sérstaklega
útgerðarmaður einn sem hefur
hjálpað þeim til þess að byggja
sér gott félagsheimili.
Það var líka svo að þeir
virtust ekki átta sig á þessum
nýju gestum tii að byrja með,
því við höfðiim sett 2 mörk áð-
ur en fyrri hálfleik var lokið
en þeir ekkert. En í þeim siðari
skoruðu þeir eitt en okkur tókst
ekki að bæta við. Héldir* þeir
Klakksvikingar okkur veglega
veizhi að leik loknum og leystu
flokkinn út með gjöfum.
Þriðji leikurinn var bæja-
keppni milli Keflavíkur og Þórs-
hafnar, og fór hann fram í
Þórshöfn. Var það úrval úr
B-36 og Havnar boldfelag, og
lauk þeirri viðureign með jafn-
tefli 1:1 (0:0) og var það
sterkasta liðið sem við lékum
við í ferðinni.
Síðasti leikurinn var við
Tramhald á 10. aíðu
Hér fyrir ofan birtast myndir af fjórum heimskunni m
evrópskum frjálsíþróttamönnum. Á efstu myndumi se?t
heimsmethafinn og olympíusigurvegarinn í spjótkas'i,
Norðmaðurinn Egil Danielsen. Nœsta viynd er af Pólverj-
anum Janus Sidlo. Neðstu myndirnar eru svo af Finn-
anum Voitto Hellsten (til vinstri) og Rússanum Ignatéff,