Þjóðviljinn - 12.09.1957, Blaðsíða 1
Þjóðviljann vantar nokkrai
unglinga til blaðburðar a
næstunni, bæði í KeykjavífeL
og Kópavogi.
Firanitudagur 12. september 1957 — 22. árgangur — 204. tölubl.
1
irnar fylkja sér
baki Sýrlendingum
Forseti Libcmons varar Bandarikin viS
aS œtla aS reyna aS beita þá valdi
Ljóst þykir nú að vesturveldunum, og þá fyrst og
fremst Bandaríkjunum, ætlar ekki að verða kápan úr
því klæðinu aö stofna til óvildar — og jafnvel ófriðar —
milli Sýrlendinga og annarra Arabaþjóða, þó að svo hafi
getað litið út að undanförnu.
Fréttamenn í' Eeirut, höfuð-
borg Líbanons, segjast hafa það
eftir góðum heimildum, að Cha-
moun, forseti Líbanons, hafi
sent E'senhower Bandaríkjafor-
seta persónulegan boðskap, þar
sem hann varar hann við því
að beita Sýrlendinga valdi. Mal-
ik utanríkisráðherra. sem ieggur
af stað í dag til New York að
sitja allsherjarþing St>, er sagð-
ur hafa þennan boðskap með
sér.
Chamoun er sagður tilkynna
Banda.ríkjaforseta, að vopnuð á-
rás á Sýrland muni óhjákvæmi-
lega verða til þess að öll Araba-
ríkin gangi í lið með Sýrlending-
um.
Stáhlberg
I kvöld er fyrsta
umf. skákmótsins
Fyrsta umferðin á skákmóti
Taflfélagsins verður tefld í
kvöld. Eins og áður hefur ver-
ið sagt er mótið háð í Lista-
mannaskálanum og hefst
keppnin klukkan 7.30.
I kvöld eigast við þessir
menn og leikur sá hvítu mönn-
unum, er fyrr er talinn: Guð-
mundur Pálmason og Ingvar
Ásmundsson, Björn Jóhannes-
son og Guðm. S. Guðmundsson,
Hermann Pilnik og Guðmundur
Ágústsson, Gunnar Gunnarsson
og Friðrik Ólafsson, Pal
Benkö og Gideon Stáhlberg,
Ingi R. Jóhannsson og Arin-
björn Guðmundsson.
Vafalaust mun skák þeirra
Benkös og Stáhlberg vekja
mesta athygli mótsgesta að
þessu sinni, en margt fleira
getur þó skemmtilegt skeð í
Listamannaskálanum í kvöld
Það er einnig haft eftir sendi-
herra Saudi-Arabíu í Beirut að
land hans muni koma Sýrlandi
Ú1 aðstoðar ef á það verði ráð-
izt. Saud konungur kom fyrir
helgina í óvænta he:msókn tii
Beirut og ræddi við Chamoun
forseta og aðra ráðamenn. en
ekkert var þá látið uppi um
hvað þeim hefði farið á milli.
Batnandi sambúð
Aðrar fréttir benda e:nnig til
þess að sambúð Sýrlands og
sumra annarra Arabaríkja, sem
verið hefur heidur erfið upp á
síðkastið, sé nú aftur að batna.
Stjórn Líbanons er sögð hafa
boðið sýrlenzku stjórninni að
miðla málum milli hennar og
stjóma Jórdans og fraks og hafi
því boði verið tekið fegins
j hendi.
Sýrlenzka stjómin hefur sent
; stjórnum Líbanons, Jórdans og
r /
. Iraks samhljóða orðsendingar,
j bar sem hún spyrzt fyrir um.
j hvort þær hafi látið í Ijós ótta
j við vopnasendingar Sovétríkj-
| anna til Sýrlands, þegar fuíltrú-
I ar þeirra ræddu við sérlegan
sendlmann Bandaríkjaforseta,
Loy Henderson, á dögunum.
Sovétríkjonum þakkað
Sabri el Assali, forsætisráð-
herra Sýrlands, sagði í gaer
vegna yfirlýsinga Gromiko. ut-
anríkisráðherra Sovétríkjanna, á
blaðamannafu'ndi í Moskva í
fyrradag, að sýrlenzka þjóðin
og allar Arabaþjóðirnar væru
Sovétríkjunum þakklátar fyrir
aðstoð þá sem þau veittu þeim
í baráttunni gegn hinni vest-
rænu heimsvaldastefnu.
Seint í gærkvöld barst sú frétt
frá Kaíró, að þeir Bizri, for-
maður herforingjaráðs sýrlenzka
Ncliru vel fagnað
af Kasmírbúum
Nehru, forsætisráðherra Ind-
lands, var fagnað ákaflega þeg-
ar hann kom til Srinagar, höf-
uðborgar Kasmír, í gær í fyrsta
sinn í rúmlega 4 ár. Fréttarit-
ari brezka útvarpsins sagði að
vafasamt væri að Nehru hefði
nokkru sinni á undanförnum
árum verið tekið af jafnmikl-
um fögnuði og þegar hann ók
12 km leið frá flugvellinum til
höfuðborgarinnar. Nehru dvelst
í Srinagar í 2 daga.
hersins, og Serraj ofursti, yfir- i
maður leyniþjónustu hersins, í
hefðu komið skyndilcga þang- i
að til viðræðna við Nasser for-
seta og yfirmenn egypzka bers-
Góiur aOi rá-
uetabáta í gær
í gær öfluðu margir rekneta-
bátanna við Suðvesturland vel.
Til Grindavíkur komu 25 bát-
ar með um 17ð0 tunnur og var
Sæborg með mestan afla. Marg-
ir Keflavíkurbátar komu að,
helmingur þeirra með sæmilega
góðan afla, allt upp í 180 tunn-
ur á bát. Til Sandgerðis komu
12 bátar með um 800 tunnur
síldar. Meðalafli á bát var 40—
85 tunnur, en aflahæstur var
Muninn með 166 tn.
Afli reknetbáta af Akranesi
hefur verið tregur að undan-
förnu, þar til í fyrradag að 8
bátar komu að landi með rúm-
lega 700 tunnur. Aflahæstu bát-
arnir voru Svanur með 174
tunnur og Skipaskagi með 168
tunnur. í gær komu svo 11 bátar
til Akraness og var aflinn 40—
120 tunnur á bát.
Túnis ítrekar
mótmæli sín
Bourguiba, forseti Túnis,
kallaði í gær sendiherra Frakka
í Túnis á sinn fund og ítrekaði
mótmæli Túnisbúa út af árás-
um franskra herflokka inn í
Túnis frá Alsír. Sagði hann,
að Túnisbúar væru reiðubúnir
að grípa til vopna til að verj-
ast slíkum árásum.
Jón Helgason prófessor á Árnasafni. Á borðinu ert
bunki af handritum, sem búin eru til prentunar, en
fjárveiting er ekki rausnarlegri en svo, að pað mun
taka 20 ár að gefa þau út. Sjá greiv á 7. síðu. (Ljósm.
* Bjöm Þorsteinsson.)
Nýtt verð á landbúnaðar-
vörum upp ur næsf u helgi
Verðlagsgrundvöllurinn hækkar sera
nemur einu vísitölustigi
í fyrrinótt varð samkomulag um nýjan verðlagsgrund-
völl á afurðum bænda í sex manna nefnd þeirri sem
skipuð er fulltrúum neytenda og bænda samkvæmt lög-
um. Varð samkomulag um aö verðlagsgrundvöllurinn,
skyldi hækka um 1,8%, en þaö mun hafa í för með sér
smávægilega hækkun á landbúnaöarafuröum, og telur
hagstofustjóri að hún jafngildi einu vísitölustigi.
Eins og kunnugt er á verð hálfan mánuð, og lauk þeim
landbúnaðarafurða oð breytast eins og fyrr segir í fyrrinótt
þannig samkvæint lögum að með þeirri málamiðlun að verð-
bændur fái vissa hliðstæða grundvöllurinn skyldi hækka
hækkun á kaupi sínu og verka^ um 1,8%.
menn hafa fengið, en einnig^ Fulltrúar neytenda í sex
koma fleirí aðstæður til greina.1 manna nefndinni eru Sæmund-
Hefði fyrri grundvöllur haldizt ur Ólafsson, Þórður Gíslason
óbreyttur hefði hækkunin átt 0g Einar Gíslason en fulltmair
að nema 2,57%. Hins vegar^ bænda Sverrir Gíslason, Stein-
sögðu fulltrúar neytenda grund- grímur Steinþórsson og Sigur-
vellinum upp og báru fram þá jón Sigurðsson.
kröfu að verðlag lækkaði lítil-l
lega. Fulltrúar bænda sögðu þá
einnig upp grundvellinum og
báru fram þá tillögu að grund-
völlurinn hækkaði um 3,85%.
Hefur síðan staðið í samning-
um um þetta atriði undanfarinn
anna f ilhæfulau
Vísir flytur lesendum sínum enn í gær slúðursögu
íhaldsblaðanria um lausn bakaraverkfallsins, segist geta
„upplýst að þeir (bakarameistarar) telja sig hafa Ioforð
verðlagsyfirvaldanna fyrir því að þeim verði bættur skað-
inn, annaðhvort með hærra verði eða niðurfelling útflutn-
ingssjóðsgjalds.“
Eins og áður hefur verið skýrt frá hér í Þjóðviljan-
um, er enginn fótur fyrir þessu slúðri Vísis og Morgun-
blaðsins; við lausn bakaradeilunnar vom samningar milli
sveina og meistara gerðir með sama liætti og venjulega
tíðkast í vinnudeilum og engir Ieynisamningar gerðir né
loforð gefin um liækkun á brauðverði. Samningar voru
undirritaðir milli deiluaðila án nokkurra afskipta stjórn-
arvaldanna.
Nýtt verð eftir helgi.
Endanlegt haustverð á land-
búnaðarvörum verður ekki á-
kveðið fyrr en upp úr næstn
helgi, að því er Sveinn Tryggva-
son framkvæmdastjóri Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins tjáði
Þjóðviljanum í gær. Er það
Verðlagsráð landbúnaðarins er
ákveður hvernig hækkunin á
! grundvellinum skiptist á hinar
einstöku vörutegundir, mjólkur-
afurðir, kjötvörur og kartöflur.
Hins vegar munu verðbreyting-
' arnar ekki verða miklar, og á-
1 ætlaði hagstofustjóri að breyt-
ingin myndi jafngilda 'sem
næst einu vísitölustigi.
Kaííi lækluir
t vereli
Samkvæmt tilkynningu verð-
lagsstjóra, sem birt er á öðr-
um stað í blaðinu í dag, verður
nokkur verðlækkun á brenndu
og möluðu kaffi. Kostar kílóið
nú í heildsölu kr. 38,60 og í
smásölu kr, 44.40,