Þjóðviljinn - 12.09.1957, Qupperneq 12
myndir efffr íslemka listamenn
utabon
19 íslenzkir listamenn eiga verk á hinni veglegu sýningu
Þann 12. október næstkomandi veröur opnuð í Gauta- j myndir á sýninguna senda Sig-
borg norræn listasýning og senda 19 íslenzkir listamenn ; urjón Óiafssön. Ásmundur
78 verk á sýninguna og hafa þeir til umráða 65 lengdar-, Sveinsson og bræðurnir Jón og
metra til uppsetningar. Verkin verða send út einhvern Benedlkt Guðmundssynir.
, , Norræna listastefnan stendur
næstu daga með flugvel.
Það var líflegt um að litast í
Listamannaskálanum í gær, er
verið var að ganga frá verkum
þeim, sem á sýninguna eiga að
fara.
Pélagamir í Félagi íslenzkra
myndlistannanna er sjá um
'undirbúning sýningarinnar eru
þeir Þorvaldur Skúlason, Svav-
ar Guðnason, Sigurður Sigurðs-
son, Sverrir Haraldsson, Jó-
ihannes Jóhannesson, Ásmundur
Sveinsson, Sigurjón Ólafsson \
og Magnús Árnason. Flestir;
þeirra voru þarna viðstaddir að
fylgja myndunum úr hlaði, en
það er að sjálfsögðu mikið verk
að búa svo um myndirnar, að
engin hætta sé á skemmdum af
völdum flutnings.
Þarna voru fimm nýjar
myndir eftir Kjarval og var á
þeim dálítið annað 'handbragð
en maður á að venjast, feikna-
stór mynd eftir Gunnlaug Sch-
eving vakti óðara athygli
manns: bóndi og kona hans
sitjandi með telpu á hnjám sér
og kú úti í náttúrunni, sterk
mynd í litum og formi. Kristján
Davíðsson átti þama 5 glettn-
ar mannamyndir; fjórar af
kunnum mönnum hérlendum og
ein er heitir „The stupid in-
tellectual".
Myndir eftir Sverri Haralds-
son og Hjörleif Sigurðsson
ihöfðu verið settar saman, mjög
ölíkar þótt þær séu allar ab-
strakt — Valtýr Pétursson átti
þarna 5 abstraktmyndir í mós-
aik, skemmtilegar myndir.
Myndirnar eftir Snorra Arin-
bjarnar voru fyrir enda salar-
ins og létu ekki mikið yfir sér,
en alltaf leit maður á þær aft-
ur og aftur — eitthvað svo
mjúkar og tilfinninganæmar
Bakaraverkfall í
Frakklandi
Bakarar í öllu Frakklandi
hófu í gær tveggja sólarliringa
verkfall til að mótmæla þeirri
ákvörðun ríkisstjórnarinnar að
foanna verðhækkanir á brauði.
Fréttamenn segja þó að víða i
París a. m. k. hafi bakarar
selt viðskiptavinum sínum
brauð út um bakdyrnar á því
verði sem ríkisstjórnin hefur
ákveðið.
myndir. Og maður fær þá til-
finningu að þessar myndir hljóti
allsstaðar að vekja athygli.
fyrir þessari sýningu og eru
þær haldnar annaðhvert ár og
mun næsta sýning verða haldin
hér í Reykjavík 1959. Sýningin
HiðomuiNM
Fimmtudagur 12. september 1957 — 22. árgangur — 204. tölubl.
Páfi vill siðbæta útvarp,
sjónvarp og kvikmyndir
Hvetur í hirðisbréíi alla kaþólska biskupa
til að standa þar vel á verði
Pius páfi hefur nú sent öllum biskupum rómversk-
kaþólsku kirkjunnar hiröisbréf þar sem hann býður þeim
aó' stofna til samtaka til að lcoma í veg fyrir siðspillandi
áhrif útvarps, sjónvarps og kvikmynda.
Páfi segir í hirðisbréfi sínu
að brýna nauðsyn beri til þess
að komið sé á fót slíkuni sam-
tökum, bæði meðal einstakra
þjóða og á alþjóðavettvangi,
til að gæta kristilegs siðgæðis.
„Alveg eins og mikill ávinn-
ingur getur verið að hinum
dásamlegu framförum sem orð-
ið hafa í kvikmyndum, útvarpi
og sjónvarpi, geta þær haft
miklar hættur í för með sér.“
Með þessum nýju tækjum má
hafa gífurleg áhrif á hugi
manna, segir páfi, en þau á-
hrif geta bæði verið til góðs
eða ills, eftir því hvernig á er
haldið.
Hér ern tveir þeirra er sjá um undirbúning sýningarinnar hér,
Jóhaunes Jóliannesson og Sigurður Sigurðsson, þar sem |»eir
eru að skoða hvernig gríðarstór mynd eftir Gunnlaug Scheving
fer í rainma. (Ljósm. Sig. Guðm.)
Þarna voru og aðrar ágætar
myndir eftir Braga Ásgeirsson,
Karl Kvaran og Veturliða.
Einnig eiga eftirtaldir listamenn
rnyndir er ekki voru þarna sjá-
anlegar: Júlíana Sveinsdóttir,
Nína Tryggvadóttir, Barbara
Árnadóttir Jón Engilberts og
Ásgerður Búadóttir. — Högg-
hefst 12. október og mun standa
yfir í mánuð. Þess má geta að
engin sérstök íslandsdeild verð-
ur á sýningunni heldur verður
öllum myndunum raðað saman
eftir stefnum. Ekki er enn ráð-
ið hver verður valinn sem full-
trúi myndlistarmanna á þessa
sýningu.
Fundi Gomulka og Títós í
Belgrad fagnað í Moskva
Yíirlýsingu Títós um Oder-Neisse landa-
mærin illa tekið aí ráðamönnum í Bonn
Fréttaritari frönsku fréttastofunnar AFP í Moskva
skýrir svo frá að ráöamenn þar eystra fagni mjög við-
ræðum þeirra Títós og Gomulka, sem hófust í Belgrad
í gær.
Fréttaritarinn segir að það að Pólland og Júgóslavia teng-
sé fjarri því að sovézkir ráða-
menn hafi nokkuð á móti því
IptnIeYsI Eisemhowers af
h’fmbéáfmúmhjm. tisit gcsgurýmt
r *
öfriðlegt enn i Nashviile i Tennessee,
ótti v/ð oð óeirðirnar breiðist út
i j*-
Fulltruar á
þingi SÞ
12. allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna hefst í New York 17.
þ. m. Fulltrúar Islands á þing-
inu hafa verið skipaðir Thor
Thors, ambassador og Þórarinn
Þörarinsson, ritstjóri. Utanrík-
isráðherra Guðmundur í. Guð-
anundsson mun verða viðstadd-
tir opnun þingsins og sækja
ífundi þess fyrst framan af. —
[(Frá utanríkisráðuneytinu.)
Eeisenhower Bandaríkjaforseti sætir nú mikilli gagn-
rýni í bandarískum blöðum fyrir afskiptaleysi sitt af kyn-
þáttadeilunum í suöurfylkjunum, sem stöðugt verða al-
varlegri. Mikil hætta er talin á að óeirðirnar vegna skóla-
göngu blökkubarna við hlið hvítra muni breiðast út, ef
stjórnarvöldin í Washington grípa ekki í taumana.
Aðalritstjórnargrein New York
Times í gær fjallaði um kyn-
þáttadeilumar og komst blaðið
m. a. svo að orði, að þetta
vandamál væri svo flókið og
alvarlegt, að bandaríska þjóðin
og einnig aðrar þjóðir heims
ættu heimtingu á að forseti
'Bandaríkjanna segði skýrt og
afdráttarlaust hver væri af-
staða hans til málsins, í stað
þess að láta sér nægja loðnar
yfirlýsingar blaðafulltrúa síns.
Handtökur í Nashville
Um 40 menn hafa verið hand-
teknir í Nashville í Tennessee
eftir óeirðirnar sem þar urðu
þegar blökkubörn hugðust
neyta réttar síns til að sitja á
skólabekk með börnum hvítra
manna. Það var í Nashville að
hluti af barnaskólabyggingu
eyðilagðist, þegar sprenging
varð í kjallara hússins skömmu
eftir að blökkubörnum hafði
verið hleyþt inn í skólann.
Meðal hinna handteknu er
maður að nafni John Caspar,
sem hefur verið einn helzti for-
sprakkinn í kynþáttahaturssam-
tökum hvítra manna í suður-
fylkjunum.
Einnig í Kentucky
Fréttir frá Little Rock, höf-
uðborg Arkansasfylkis, þar sem
fjölmennar sveitir úr þjóðvarn-
arliði fylkisins hafa nú á aðra
viku haldið vörð um gagnfræða-
skólann til að meina svertingja-
börnum að komast í liann,
hermdu í gær, að allt væri þar
með kyrrum kjörum.
Frá borginni Sturgis í Ken-
tuckyfjdki, þar sem miklar kyn-
þáttaóeirðir urðu í fyrrahaust,
berast hins vegar þær fréttir
að fjölmennt lögreglulið hafi
orðið að ryðja börnum blökku-
manna braut í skóla.
Aðeins 30 af hundraði skóla-
skyldra' barna voi'u í skólum
Nashville í gær og af þeim
voru aðeins 10 börn blökku-
manna.
Davis, sambandsdómari í Ar-
kansas, hefur stefnt Faubus
fylkisstjóra, yfirmanni þjóð-
um liðsforingja í liðinu fyrir
rétt 20. þ. m. til að hlýða á úr-
skurð vegna kröfu dómsmála-
ráðuneytisins í Washington að
þeir hætti að hindra að börn
svertingja sæki opinbera skóla
með öðrum börnum. Faubus
hefur svarað því að hann muni
ekki Irlýða neinum fyrirmælum
frá Washington um að hætta
að skipa þjóðvarnarhermönnum
umhverfis skólann í Little
Rock.
Mæti hann hins vegar ekki
fyrir rétti, <;ða óhlýðnist úr-
skurðinum, má dæma liann i
fangelsi eða sektir fyrir lítils-
virðingu á dómstólunum. Hann
getur þó áfrýjað úrskurðinum
og það getur því dregizt á
langinn að til úrslitaátaka komi
í Little Rock,
ist traustari böndum, þeir telji
það þvert á móti munu efla
eininguna meðal allra sósíal-
istískra ríkja.
Óánægja í Bonn
Þeirri yfirlýsingu Títós for-
seta í veizlu sem hann liélt
Pólverjunum í fyrrakvöld, að
Júgóslavar áliti vesturlanda-
mæri Póllands meðfram ánum
Oder og Neisse endanleg, hef-
ur verið illa tekið í Bonn, höf-
uðborg Vestur-Þýzkalands.
Von Hallstein utanríkisráð-
herra vesturþýzku stjórnarinn-
ar kallaði sendiherra Júgóslav-
íu á sinn fund í gær og bað
hann um nánari skýringu á
þessari yfirlýsingu Títós. Sjálf-
ur lýsti von Hallstein yfir því
að vesturþýzka stjórnin myndi
hvorki nú né nokkru sinni fall-
ast á Oder-Neisse landamærin
sem endanleg.
Haldið áfram í Brioni
Þeir Gomulka, Cyrankiewicz
forsætisráðherra, Ochab land-
búnaðarráðherra og fylgdarlið
þeirra fóru til borgarinnar
Ljubljana að loknum viðræðun-
um við Tító í gær. Viðræðunum
verður haldið áfram í dag í
Brioni á strönd Adríahafs.
Síærsía liafnargeréarsteaii-
kerill steypÉ á Akranesi
varnarliðsins í fvlkinu og ein- steinkerum. Var annað þeirra
í fyrradag var sjósett á Akranesi stærsta steinker, seni
steypt hefur verið hér á landi.
steypt í fyrra, en á hinu verður
byrjað bráðlega í dráttarbraut-
inni.
Enn er mikil vinna eftir við
höfnina á Akranesi, en gert er
ráð fyrir að ljúlca henni að
mestu fyrir áramót.
Steinker þetta er 12,5x18
metrar að flatarmáli og 4,5 m
á hæð, eða liðlega þúsund rúm-
metrar. Verður það notað við
lengingu Bátabrvggjunnar svo-
nefndu ásamt tveim öðrum