Þjóðviljinn - 16.10.1957, Blaðsíða 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 16. október 1957 -
Nýja tunglið
Framhald af 6. síðu.
Að tveimur árum liðnum er
sagt að send munu verða
skeyti til tunglsins, í fyrir-
sjáanlegri framtíð verður
reist þar stjörnuathugunar-
stöð, því þar er ekkert í loft-
inu sem skyggir á hina daufu
gömlu geisla frá fjarlægum
vetrarbrautum, né frá nálæg-
ari stjörnum, stjörnufræðin,
sem orðin er að voldugri vís-
ingagrein, verður enn vold-
ugri, það verður skorið úr
um það hversu hófst og hvað
var áður, og hvað við taki.
Vel getur verið að sá piltur
sé þegar fæddur eða sú stúlka
sem skoða mun í stjörnukíki
uppi á tungli, þér sem trúið
stjörnuspádómum, látið nú
stilla hóróskóp þegar barn
fæðist, — strange things are
happening, mellonta tauta.
Hvernig tekur fólkið þessavi
nýjung, gervitunglinu ? Finnst
því gaman, hlakkar það til að
fá nýjar fréttir? Ekki hef ég
orðið vör við það, nema hjá
ungum mönnum fáeinum, vel
viti bornum og vel að sér.
Þeir tala fallega um þessa
hluti, og það er gaman að
hlusta á þá. Hlustið á þá!
Hlustið ekki á gamalt fólk og
miðaldra, sem veltir vöngum
af drýldni, eða fyllist ólund
og segist óska að hnötturinn
hrapi sem fyrst, eða skáld
sem afsegja að yrkja um
þetta nýja tungl og kjósa
heldur að yrkja upp í þúsund-
asta sinn kvæðið um hið
gamla. Ekki veit ég hvort er
skáldlegra. Sumir vilja hvorki
sjá né heyra þennan hnött af
því að hann se rússneskur,
öðrurn finnst það kjánaleg
hótfyndni. Já, einhver gat
þess til, að hann mundi vera
samansettur úr ryðguðu úr-
gangsjárni, og til einskis nýt-
ur úr því að hann er gerður
fyrir austan tjald.
Hnötturinn er fagur og
fínn, og hann haggast ekki á
braut sinni. Við sátum hér
þrír menn í stofu í gær og
sögðum hvert öðru að okkur
stæði á sama hvorum megin
við tjaldið hann hefði verið
smíðaður og sendur upp. Það
sem máli skipti væri það að
unnizt hefði frægur vísinda-®*
sigur, að afrek sem til hefði
þurft óhemjulega þekkingu,
þrautseigju og átak, hefði
verið til lykta leitt, að ný
öld væri að hefjast, öld geim-
flugs, og mjög bættra skil-
yrða til að afla þekkingar á
stjörnugeiminum, væri hafin.
Auk þess fylgdi þessu ekki sá
óhugnaður og voði sem beizl-
un kjarnorkunnar. En eftir á
að hyggja, Bandaríkjamenn
hefðu vel getað orðið á und-
an, ef þeir hefðu ekki látið
McCarthy hafa sig til að reka
Oppenheimer: Nú hefnir þetta
sín, segir New York Herald
Tribune.
Þeir koma nú bráðum með
gervitunglin sín, Bandaríkja-
menn. Og þá þykja þetta
falleg tungl í Reykjavík, gull-
tungl og demantstungl, og
allir vilja vaka og horfa á.
Politiken spurði hitt og
þetta fólk hvað það hefði að
segja um tunglið. Jakob Palu-
dan, rithöfundur og mikill
vinur fljúgandi diska, sagðist
óska að það dytti sem fyrst.
Einhver frú, lögfræðingur og
þingmaður, virtist uppfull af
ólund, og sagði að sér geðj-
aðist ekki að þessu tungli,
hún sagðist ekki geta að því
gert. Forsætisráðherrann sagð
ist ekki hafa mikið vit á
þessu, en hann sagðist samt
vera hissa. Einhver málsmet-
andi maður, sem ég man ekki
að greina, sagði að sér þætti
gaman að þessu, og hann
sagðist 'hrósa happi að lifa á
þessari öld, en ekki þeirri
átjándu, hinn mjög dásömuðu.
Og svo framvegis.
8. október,
Málfríður Einarsdóttir.
Þjóðleikhusið
Framhald af 7. síðu.
verið sóttar og valdið leik-
húsinu tapi og óþægindum.
Á frumsýningar hefur frá
upphafi verið tekið á móti
pöntunum fyrirfram og trygg-
ing fyrir greiðslu fyrir
minnst 2 sýningar tekin, og
auk þess er hærra verð á þær.
Hafa að mestu verið sömu
frumsýningargestir frá upp-
hafi. Auk hinna fyrirfram
seldu miða eru um 150 mið-
ar að jafnaði til sölu á hverja
frumsýningu. Leikhúsið getur
þó ákveðið, að hinar föstu
fyrirframpantanir á frumsýn-
ingar gildi ekki þegar sérstak-
lega stendur á, og er þá aug-
lýst.
Þjóðleikhúsið ákveður hve-
nær skólanemendum er gefinn
kostur á að sjá leiksýningar
fyrir hálfvirði og tilkynnir
skólunum það.
12 vinmngai
Happdrœtti Þióðviðjcsns 1957
Fíai—1400 B er ein eftirsóttasta bifreiðin í dag — Verð kr. 85.000.00
Aðalvinningur í Happdrætti Þjóðviljans.
Miðinn kostar 10.00 krónur. Dregið 23. deseiaber n.k.—
Verölaunakrossgáta íylgir hverri blokk. Verðlaun samtals kr. 2000.00.
Afgreiðsla happdrættisins er á Skó lavörðustíg 19 — Dragið ekki að
kaupa miða í von um góðan vinn ing.
Fagnar vinstra samstarfi
Framhald af 3. síðu,
mest, svo að sýslan fái sem
fyrst samband við akvegakerfi
landsins.“
Vitar og skipbrots-
mannaskýli
„57. þing- og héraðsmálfund-
ur Vestur-ísafjarðarsýslu beinir
þeirri eindregnu ósk tii vita-
málastjómarinnar, að hún láti
áuka að mun Ijósmagn Selvogs-
vitans og hraða stækkun Galta-
vita og ramnsókn á vitastæðj á
Sauðanesi, með það fyrir aug-
um að þar geti einnig verið
fikipbrotsmannaskýli“.
tJndirbúi móttöku
liandrltaiuia
„Þing- og héraðsmálafundur
Vestur-ísafjarðarsýslu fagnar
því að handritamálið er nú aft-
ur á dagskrá, og vonar hið bezta
um lausn þess í náinni framtíð.
Um leið og fundurinn þakkar
öllum þeim er unnið hafa þessu
máli fylgl heima og heiman,
beinir hann þeim ejndregnu til-
mælum til ríkisstjómarinnar, að
eigi verði vanrækt að undirbúa
móttöku handritanna og varð-
veizlu þeirra hér heima".
Móti réttindaskerðingu
„Fundurinn telur að ýmsar
breytingar, sem gerðar voru á
aimannatryggingarlögunum 1956,
séu vafasamar og bendir þar
sérstaklega á þá réttindaskerð-
ingu, að sjúkrasamlögum er ekki
heimilað að greiða nema %
hluta rannsóknar sérfræðinga
samkvæmt tillögum samlags-
læknis“.
"i
Orkuveri fagnað
„Fundurinn lýsir ánægju
sinni yfir því sem vinnst við
byggingu orkuvers Vestfjarða og
væntir þess að stöðin geti tekið
til starfa á komandi vori og að-
alleiðslum verðj lokið næsta
sumar og unnið verði mark-
visst að því að fullnægja raf-
orkuþörf héraðsins.
Jafnframt treystir fundurinn
því, iað unn:ð verði sleitulaust að
því að auðvelda þeim heimil-
um sem ekki fá rafmagn frá
rafveitu að koma sér upp heim-
ilisstöðvum.
Ennfremur skorar fundurinn
á Alþingi og ríkisstjóm að
vinna að því að rafmagn sé selt
með sem jöfnustum kjörum hvar
á landinu sem er“.
I
Vélritunarstúlka
óskast. Umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist skrifstofu Alþiagis
fyrir 20. þessa mánaðar1.
1
Fíat-biíreið,
5 manna
kr. 85.000.00
Útvarpsíónn,
Philips
kr. 25.200.00
3—8
Segulbandstæki
kr. 30.000.00
9—12
Ferðaútvarpstæki
kr. 10.000.00