Þjóðviljinn - 21.11.1957, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 21. nóvember 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (3
trumsýnir
Rom-
anoff og Júlíu n.k. laugardag
Leikstjóri er Walter Hudd frá London
N.k. laugardag verður frumsýning á gamanleiknum
„Romanoff, o'g Júlía“ í Þjó'öleiklrúsinu. Höfundur leikrits-
ins er Peter Ustinov, en leikstjóri Walter Hudd.
Peter Ustinov er fæddur í
Lundúnum, en af rússnesku
’bergi brotinn. Hann tók
enemma að snúa sér að leik-
•3ist. Fyrsta leikrit hans,
„House of Regrets“ var sýnt
í London 1942, þegar höfundur-
jnn var ekki nema 21 árs.
Næsta ár var annað leikrit
eftir hann sýnt á Old Vic
leikhúsinu, „The Banbury
Nose“. Hefur hvert leikritið
Strákarnir
sem struku
„Strákarnir sem struku“
ne.fnist drengjabók sem Setberg
Jiefur gefið út. Höfundur er
Böðvar frá Hnífsdal, og kom
hókin upphaflega út fyrir ald-
arfjórðungi eða svo, og hlaut
’þá miklaiy vinsæfdir. I þessari
nýju útgáfu eru teikningar eft-
ir Halldór Pétursson. Hún er
120 síður á stærð, préiituð í
Odda.
2. bókmennta-
kynning Helga-
fells
Bókaútgáfan Helgafell hefur
aðra bókmenntakynningu for-
ilagsins í Þjóðleikhúsinu n.k.
sunnudag kl. 3. Björn Th.
Björnsson stjórnar þessari
hókmenntakynningu en flutt
verða verk eftir Gunnar Gunn-
arsson, Guðmund Kamban,
Magnús Ásgeirsson, Jakob
Thorarensen, Thor Vilhjálms-
eon, Þórberg Þórðarson, Hall-
dór Kiljan og loks verður lesið
úr hinni nýju ævisögu Laxness
eftir Hallberg. Rögnvaldur Sig-
urjónsson leikur islenzk píanó-
verk.
Aðgangur er ókeypis og eru
aðgöngnmiðar afheiitir þeim er
óska í Unuhúsi (Helgafelli)
Veghúsastíg.
rekið annað, en auk þess hefur
Peter Ustinov skrifað kvik-
myndahandrit og leikið í kvik-
myndum, og jafnframt stjórnað
kvikmyndatökum.
Gamanleikurinn „Romanoff
Júiía“ gerist í ónefndu smá-
ríki. Róbert Arnfinnsson leikur
hér hlutverk það, sem Peter
Ustinov lék sjálfur í London,
forseca og hershöfðingja þessa
ríkis, sem Rússar og Banda-
ríkjamenn keppast við að vinna
á sitt band. Þegar hinn rúss-
neski Romeo verður ástfang-
inn af hinni amerísku Júlíu, fer
ekki hjá því að þetta litla
riki minni á Verónu (Veróns-
borg) og það gætu alveg eins
verið Montagsfjölskyldan og
KajDÚlettar, sem búa þarna í
sendiráðum Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna.
Titilhlutverkið, Romanoff og
Júlíu leika þau Bryndís Péturs-
dóttir og Benedikt Árnason og
foreldra þeirra Inga Þörðar-
dóttir, Valur Gíslason, Regína
Þórðardóttir og Rúrik Haralds-
son. Tveir hermenn eru leiknir
af Baldvin Halldórssjmi og
Bessa Bjaraasyni, og kveniiðs-
foringi, Herdís Þorvaldsdóttir.
Þá leikur Indriði Waage erki-
biskupinn og Klemenz Jónsson
ungan amerískan pilt.
Leikstjórinn, Walter Hudd,
sem stjórnaði sýningum á
„Kirsuberjagarðinum" og „Jóns
messudraumi* á jólum ’55 hef-
ur sett gamanleikinn á svið.
Walter Hudd er senn á förum
héðan, enda bíða hans verkefn-
in í London. — Er hann kom
hingað í haust, varð hann að
fá sig lausan úr sýningum á
Siglingum sé skipt
jafnt milli skipa
Á fundi stjómar og trúnað-
arráðs Sjómannafélags Hafnar-
fjarðar var eftirfarandi álykt-
an varðandi siglingar togar-
flotans sartiþykkt samhljóða.
Vegna ályktana er nokkur
verkalýðsfélög hafa gefið út um
siglingar togaraflotans, vill
stjórn og trúnaðarráð Sjó-
mánnafél. Hafnarfjarðar taka
fram að í tregfiski eins og
verið hefur undanfarið eru
tekjur sjómanna minni þegar
afla er landað heima. Þess
vegna er eðlilegt að sjómenn
æski frekar eftir að sigla með
aflann.
Ef úni takmarkanir á sigling-
tirti er að 'ræða krefst stjórn
og trúnaðarráð Sjómannafélags
Hafnarfjarðar þess að sigling-
um sé skipt jafnt á milli skipa
hvort sem um er að ræða tog-
ara Bæjarútgerða eða einka-
aðila.
(Frá stjóm Sjómanna-
tý félags Hafnarfjarðar).
Handa yngstu
lesendunum
Setberg hefur hafið útgáfu á
smábókum handa yngstu les-
endunum, þeim sem eru 6-9
ár að aldri. Heita aðalpersón-
urnar Snúður og Snælda og eru
kettlingar. LitDrentaðar teikni-
ingar eru í bókunum og gerði
þær franskur maður Pierre
Probst, en VDbergur Júlíusson
kennari hefur islenzkað text-
ann. Fjórar bækur eru þegar
komnar út í þessum flokld.
Peter Ustinov
leikriti Jean Anouilh, „The
Waltz of the Tlioreadors“, er
hann hafði leikið í í rúmlega
li/2 ár, eða síðan liann fór
héðan í ársbyrjun 1956. Nú
þegar hann kemur heim, tekur
Walter Hudd að æfa hlutverk
í leikriti eftir Grahame Greene
„The Potting Shed ‘. Hefur það
leikrit verið leikið i New York
við miklar vinsældir og mun
nú verða tekið til sýninga í
Löndon. í þeirri sýníh^ú munu
leika margir þekktir ieikarar,
þar á meðal Sir John Gielgud.
íslendingar sœkja í fyrsta i
sinn norrœnt Ijéstœknimót
Umíerðalýsing aðalumræðueínið á næsía
íundi Ljóstækniíélags íslands
í sept. sl. var haldið norrænt ljóstæknimót 1 Stokk-
hólmi, hiö fimmta í röðinni. íslendingar tóku nú í fyrsta
sinn þátt í slíku móti, en Ljóstæknifélag íslands var
stofnaö 1954.
Þátttakendur voru ails um
150, þar af 3 íslendingar:
Kristinn Guðjónsson forstjóri,
Gísli Jónsson verkfræðingur
og Aðaisteinn Guðjohnsen
verkfr. Flutti sá síðastnefndi
erindi á mótinu, skýrði frá á-
standi í lýsingarmálum hér á
landi og ræddi um .'kefni
Ljóstæknifélags Islands. Sýnd-
ar voru skuggamyndir af lýs-
ingu á ýmsum stöðum í Rvík,
svo sem í nokkrum verzl-
unttm, skólum, einu heimili, svo
og nokkrar myndir af götu-
lýsingu.
Önnur erindi á mótinu voru
þessi: Lamparnir og umhverfi
vort, flutt a.f ;.Lisa Johansson-
Pape ’ innanhússarkitekt frá
Finnlandi; Þróun ljósgjafanna
Uppkasf fríverzlynarsamn-
ingi langt framundan
— segir dr. Jóhannes Nordal hagíræðingur
Enn er langt 1 land áöur en fyrir liggur uppkast aö.
fríverzlunarsamningi, sem íslendingar geta tekiö endan-
lega afstööu til.
Þannig komst dr. Jóhannes imikilvæg, að íslendingar þurfi
Nordal hagfræðingur að orði í Áð fá undanþágur frá afnámi
flutt af Georg Weber prófess-
or frá Danmörku; Ljós og lit-
ir í iðnaði, flutt af Eivind
Hellern arkitekt frá Noregi og
Góð lýsing í umferðinni, fiutt
af Ivar Folcker verkfræðingi
frá Svíþjóð.
I síðastnefnda crindinu var
lögð áherzia á, að gðtulýsing
umferðargatna þurfi að vera
þannig að góð sjónskilyrði séu
á svæði innan ca. 300 m frá
ökutæki, enda er gert ráð fyr-
ir að bi.freiðir aki með park-
ljósum eingöngu,- Þetta atriði
er mikilvægt. Fræðilegar at-
huganir sýna, að lægri aðal-
ljós trufla ca 30 sinnum meira
en flestar tegundir götplampa í
8 métra hæð. ‘ ’
Þess má geta í þessu sam-
bandi, að á næsta fundi í
Ljóstæknifélagi Islands, sem
væntanlega verður haldinn í
þessum mánuði, verður um-
ræðuefnið umferðarlýsing. Er
ætlunin að bjóða ýmsum að-
ilum utan félagsins á fund-
inn.
Norræn Ijóstæknimót eru
haldin fjórða hvert ár. Næsta
mót verður að öllum líkindum
loaldið í Helsinki 1961.
fréttaauka útvarpsins í gær-
kvöld, en þar skýrði hann frá
störfum fyrsta fundar ráð-
herranefndar þeirrar sem sett
var á fót á ráðherrafundi
Efnahagssamvinnustofnunar
Evrópu 17.-19. f.m. til að vinna
að fríverzlunarsvæði fyrir Evr-
ópu. Nefndarfundur þessi var
haldinn í París dagana 14.-16.
þ.m. og sóttu hann af íslands
hálfu Agnar K. Jónsson sendi-
herra og Jóhannes Nordal.
Jóhannes sagði í lok frá-
sagnar sinnar, að það væri ekki
aðeins nauðsynlegt að sjá um
að full grein sé gerð fyrir
hagsmunum Islands við samn-
ingaborðið, heldur verða menn
hér heima fyrir að taka hin
nýju viðhorf ' til rækilegrar
yfirvegunar.
Hverjir eru hagsmunir út-
flutningsins, ef til málamiðlun-
ar þarf að koma varðandi frt-
verzlun með fiskafurðir? Hvaða
verndartollar og höft eru svo
Vb. Sœfinnur strandaði og
brotnaði í spón í fyrrinótt
Verðmætur íarmur nær allur ónýtur
Horaafirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Eins og skýrt var frá hér í blaöinu í gær, strandaöi
vélbáturinn Sæfinnur frá Reykjavík í Hornai'fjaröarósi
í fyrrakvöld og brotnaöi í spón um nóttina. Mannbjörg
varö en farmurinn ónýttist.
þeirra? Hverjar eru þær nýju
iðngreinar, sem íslendingar
ættu að leggja áherzlu á að
byggja upp með hugsanlegum
lánum frá þátttökuríkjum frí-
verzlunarsvæðisins ? Slíkum
spurningum þurfa Islendingar
að geta svarað áður en langt
um líður. Fríverzlun opnar nýja
framtíðarsýn fyrir islenzku
þjóðina, en myndin er enn þá
óskýr. Það er hlutverk okkar
sjáífra að draga ýmsa helztu
drættina, sagði dr. Jóhannes
Nordal að lokum.
Sæfinnur var gamáll bátur,
ríunlega 100 bráttó lestir að
stærð og í eigu Jóns Frank-
líns útgerðarmanns í Reykja-
vík. Báturinn hafði verið leigð-
ur til flutnings á ýmiskonar
vörum og vamingi til Horna-
fjarðar, alls um 70 lestir. Var
verðmæti farmsins mikið.
Sæfinnur kom til Hornafjarð-
ar um kl. hálf sex síðdegis í
fyrradag og kom þá hafnsögu-
maður \im borð. Á leiðinni inn
í Hornaf jarðarós strandaði bát-
urinn í Austurfjörutanga. Á-
höfnin og farþegi, sem með
var yfirgáfu þó okki bátixui
fyrr en klukkan hálf níu um
kvöldið. Upp úr miðnættinu
kubbaðist skipið í tvennt og í
gærmorgun var það spónbrotið.
Farmurinn fór allur í sjóinn
og er langmestur hlutí hans
ónýtur.
Koitiimt til
meðvitunclar
Eins og skýrt var frá í blað-
inu í gær varð umferðarslys á
Hringbrauíinni í fyrrakvöld.
Siysið varð með þeim hætti,
að bifreið var að aka fram hjá
strætisvagni gegnt Landspítal-
anum og ók þá á mann, Lúther
Bjarnason til heimilis að Berg-
staðastrætj 33.
Maðurinn var fluttur rænu-
laus á Slysavarðstofuna og sið-
an á Landakotsspitalann. Mun
hann hafa komizt fljótt til með-
vitundar, en ekki er kunnugt um
önnur meiðsli en allmikinn á-
verka á höfði.
Aðalf undur Líl
hefst í dag
Aðalfundur Landssambands
íslenzkra útgerðarmanna hefst
kl. 2 síðdegis í dag í Tjarnar-
kaffi. Sverrir Júlíusson, for-
maður sambandsins, setur fund-
inn og ávarpar fulltrúa, en að
öðru leyti verður ‘ dagskrá
fundarins í dag, auk kosning-
ar fundarstjóra og nefnda, á
þá leið, að flutt verður skýrsla
sambandsstjórnar og síðan um-
ræður um bana. Þá flytja full-
trúar útvegsmannafélaga víðs-
vegar af landinu skýrslur um
starf félaganna á liðnu starfs-
ári.
Lúðvík Jósepsson sjávarut-
vegsmálaráðherra mun ávarpa
fundarmenn á morgun. Búizt er
við að fundurinn standi yfir í
þrjá til fjóra daga.
Skyndivinátta endar
með höggum
Aðfaranótt s.l. þriðjudags kom
til átaka milli íslendings og
hjóðverje um borð í þýzku skipi
er lá í Hafnarfirði. Allt mun
hafa farið fram í bróðerni fyrst,
en svo sinnaðist mönnunum
hvorum við annan, börðust þeir
svo sá á báðum. Við rannsókn
reyndist ógerlegt að fá vitneskju
um hvor þeirra hefði átt upptök-
in.
Brezkur togari
strandar en er
dreginn á flot
Togarinn Afridy frá Grims-
by strandaði skammt frá ísa-
firði í fyrradag. Skipstjórinn
sendi út hjálparbeiðni og fór
brezka herskipið Brambell á
vettvang og kom á strandstað-
inn snemma í gærmorgun. Tókst
því að draga togarann á flot
á háflóði og er hann kominn til
ísafjarðar. Skipstjór'.nn telur að
litlar skemmdir hafi orðið á
skipinu.
Þegar herskipinu hafði tekizt
að ná togaranum á flot barst
því bejðni um læknishjálp frá
brezka togaranum BúrfeUi frá
Grimsby og hólt þegar a£ stað
til hans.
í