Þjóðviljinn - 21.11.1957, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 21.11.1957, Blaðsíða 5
Fimmtudagui’ 21. nóvember 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (5 Aðalgata í stórborg j Fimm sentimetrum meiri gildleiki um kvið en br]óst stóreykur banalikur Offita er einhver algengasta orsök dauðsfalla fyrir aldur fram, og þegar menn safna holdum úr hófi fram er nær undantekningarlaust ofáti um að kenna, segir danski læknisfræöiprófessorinn N. B. Krarup. Pi’ófessorinn hefur skrifað bækling um offitu, sem danska tryggingarfélagið Thule hefur gefið út og dreifir ókeypis. Eftir munu fylgja bæklingar nm fleiri heiibrigðisvandamál. Yfir fertugt Rannsóknir hafa sýnt, segir prófessor Krarup, að fólk sem er 15—25% þyngra en eðlilegt getur talizt miðað við líkams- 'byggingu, hefur 50% hærri dánartölu en jafnaldrar þess sem eru í eðlilegum holdum. Munurinn á dánartölu feits fólks og granns er ekki ýkja mikill framan af aldri, en eftir fertugt er hann mikill og stöð- ugur. Meðal kai'lmanna á aldrinum 45 til 50 ára hefur fimm kílóa ofþungi í för með sér 8% hækkun dánartölunnar. Nái of- þunginn 10 kílóum aukast banálíkurnar um 18%, við 15 kg er aukningin 28%, 20 kg 45% og við 45 ára aldur er 25 kg ofþungi jafn hættulegur lífi manna og alvarleg hjarta- bilun. Eiga þrefalda tölu kafbóta Bandaríski aðmírállinn Wríght, yfirflotaforingi A-banda- lagslns, sagðj á fundi þingmanna frá bandalagsrikjunum í París um daginn, að Sovétríkin ættu nú jdir 500 kafbáta, þrefalt fle:ri en öll A-bandalagsríkin til samans, og smíðuðu 70 nýja á hverju ári. Kvað Wright aug- Ijóst, að sovézka flotanum væri ætlað það hlutvei'k að slíta all- ar samgöngur á sjó milli Evrópu og Ameríku, ef til styrjaldar kæmi. Bandaríski öldungadeildar- maðurinn Jackson lagði til á fundnum, að komið yrði upp flota kjarnorkukafbáta, sem yrðu sífellt á vakki úti fyrir ir ströndum Vestur-Evrópu, bún- ir flugskeytum sem drægju 2500 kílómetra. Ekki sama hvar spikið safnast Heilsutjón af völdum offitu fer nokuð eftir því, hvar á lík- amann menn safna spiki. Sé maður fimm sentimetrum gild- ar um kviðinn en brjóstið við útöndun, aukast banalíkurnar enn um 50% yfir það sem of- þunganum fylgir. Nokkrir sjúkdómar eiga mestan þátt í þvi að hækka dánartölu feits fólks. Því er hættara við kransæðastíflun en grönnu lólki, læknar telja sannað að samband sé milli of- fitu og hás blóðþrýstings, feitu fólki er hætt við sykursýki og gallsteinum. Þá eru banasiys á feitu fólki algengari en á grönnu og feitt fólk þolir illa uppskurði, meðal annars vegna þess að því er hætt við lungnabólgu, æðastífl- um og kviðsliti. Orsökin er ofát Prófessor Krarup slær því föstu að menn safni ofur ein- faldlega fitu af því að þeir borði of mikið, láti meira i magann en líkaminn hefur þcrf fyrir. „Svona einfalt er þetta, hversu erfitt sem mönnum reynist að skilja það og sætta sig við það“, segir hann. 1 bæklingunum segir, að eng- inn fótur sé fyrir þeirri skoðun, að algengt sé að menn nýti matinn mjög misjafnt, margir séu þannig gerðir, að þeim komi maturinn að meira gagni en öðrum. Þetta mál hefur ver- ið rannsakað vandlega, og kom- ið hefur í Ijós að grannt fólk og feitt nýtir matinn nákvæm- lega eins, nema um sé að ræða ákveðna sjúkdóma, sem eru mjög fátíðir. Sú afsökun feits fólks, að það hljóti að þjást af efna- skiptasjúkdómi, finnur ekki heldur neina náð fyrir augum Krarups prófessors. Hann segir það fullsannað, að efnaskipta- sjúkdómar eigi ekki sök á of- fitu nema hjá hverfandi fáum. Langflestir þeirra sem þjást af offitu geta engu öðru um kennt en sinui eigin mat- græðgi, segir þessi danski pró- fessor. Geimbiskup myndi hressa trúna víð Kirkjan æti að senda spútnik út í geiminn með biskup inn- an boi-ðs, til þess að beina at- hygli milljóna að guði, sagði Alástair lávarður á þingi ensku biskupakirkjunnar í siðustu viku. Hann sagði að uppvaxandi kyrtslóð, sem alin væri upp á íækni og vísindum, legði eyrun 'betur að tístinu í gervihnött- unum en boðskapnum úr préd- íkunárstólnum. Skólum lokað á Malakkaskaga Lögreglan í borginni Ipoh á Malakkaskaga hefur undanfarna daga hvað eftir annað orðið að beita kylfum til að dreifa hópum ungs skólafólks sem farið hefur fylktu liði um götur borgarinn- ar til að mótmæla þeirri ákvörð- un menntamálaráðuneytisins að banna stúdentum sem komn'r eru yfir visst aldurstakmark að stunda nám. Fjórum kinverskum skólum hefur verið lokað og öll- um þeim sem tekið hafa þátt i óeirðunum hefur verið hótað brottrekstri úr skóla. Dómur um list Armstrongs Tónlist Louis Armstrongs hefur ekki „verulegt listgildi til að bera“ og hann fær því enga ívilnun um skemmtanaskatt af tónleikum í Miinster í Vestur- Þýzkalandi, segir í dómsúr- skurði, sem þar var kveðinn upp á mánudaginn. Dómarinn bætti því við í sárabætur, að það væri ekki sjálf tónlistin, heldur aðferðin við flutning hennar, sem hann teldi ólistræna. Kvaðst hann hafa heyrt að trombónleikarar Armstrongs ættu það til að halda hljóðfæri sínu milli fót- anna og trumbuieikarinn henti kjuðana á lofti. Um daginn rigndi svo ákaft á Spáni, að flóð í ánni Guadala- viar færði mikinn hluta stórborgarinnar og næsta nágrenni henn ar í kaf. Myndin er teltín á aðalgötunni í Valencia, þegar flóð- ið stóð sem hæst. Maður hefur vaðið í klyftir út að bíl sínum. til að líta á viðurstyggð eyðile.ggingarinnar. Talið er að á annað hundrað manns hafi drukknað í flóðinu, flest í fátækra- hverfuin í útjöðrum Valencia, og þúsundir misstu heimili sín. Mannæfa sláfrar 10 konum Hroðalegt morðmál á döf inni gegn bandarísknm bönda Nöguð mannabein í eldhúsi á bóndabæ urðu til þess .aö böndin bárust að einhverjum stórvirkasta moröingja sem lögregla Bandaríkjanna hefur komizt í tæri viö á síöari árum. Alger sameining Egyptalands og Sýrlands Á fundi í sýrlenzka þinginu sem 70 egypzkir þingmenn sátu líka var samþykkt ein- róma að beina því til ríkis- stjóma Sýrlands og Egypta- lands að undinn yrði bráður bugur að því að koma á sam- emingu ríkjanna í bandalagi. Fimmtugur bóndi og einbúi, Ed Gein að nafni, játaði þeg- ar honum voru sýnd tannaför- in á beinunum, að hafa myrt tug kvenna. Ekki neitaði hann að hafa lagt sér nokkrar þeirra til munns, og að lík hinna hefðu átt að fara sömu leiðina. Lögreglan í bænum Plainfield Vægur dómur yfir hermanni í Japan Bandarískur hermaður, Willi- am Girard að nafni, var í gær dæmdur af dómstól í Japan í Þriggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa orðið að bana japanskri konu sem hann skaut þeggr hún var að hirða brotajárn á bandarískum skot- æfingavelli. Mál lians hefur valdið mikl- um deilum í Japan og (Banda- ríkjunum. Bandarískur dóm- stóll kvað upp úrskurð um að Girard skyldi dreginn fyrir bandarískan herrétt, en Hæsti- réttur Ba.ndaríkjanna féllst ekki á það og úrskurðaði hann í hendur Japana. Búizt er við að dómnum verði áfrýjað. í Wisconsinfylki gerði húsleit á bæ Geins eftir hvarf frú Bern- ice Worden, kaupkonu í sveita- verzlun. Þegar lögregluþjónarn- ir komu inn í hlöðuna hjá Gein blasti við þeim höfuðlaust konulik, liengt upp á hásinun- um á kjötkróka. Líkið hafði verið flegið og meðhöndlað á annan hátt eins og slátrarar fara með kroppa alidýra. Við nánari leit í hlr'ðunni fundu lögregluþjónarnir fimm ! honuhöfuð, vafin í plast og geymd í ís. Þar fundust einn- ig fjórir höfuðlausir konubúk- ar í viðbót. I bænum og öðrum útihús- um fundust síðan fimm höfuð í viðbót, mannabein^ og hlutar af brytjuðum mannabúkum. Lög- reglunni telst svo til að þarna hafi alls fundizt leifar af lík- um tíu kvenna. Eftir 30 klukkutíma óslitna yfirheyrslu játaði Gein að hafa ráðið frú Worden bana og búið líkama hennar til geymslu í hlöðunni. Þegar hann var spurður, hvort hann hefði ætl- að: að leggja sér konuna til munns, svaraði hann að sér væri það ekki vel ljóst. Eftir að honum höfðu verið sýnd nöguð mannabein, sem fundust í eldhúsi hans og svefnstofu, játaði hann að hafa stundað morð árum saman. Auk þesa kvaðst hann hafa grafið haus- kúpur og önnur maimabein upp úr kirkjug"rðum. Lögreglan i Plainville minnii' á að þar hefur um skeið hver konan af annarri horfið á dul- irfullan hátt. Suðurskautsstöð t 3169 metra hæð Tassfréttastofan skýrir frá því að sovézki vís'ndaleið- angurinn á Suðurskautslancl- inu hafi komið sér upp nýrri bækistöð uppi á 3500 metra hárri jökulsléttu. Kornust leiðangursmenn þangað á beltabílum. 1 fjalla- stöð þessari verðar gerðar veðurathuganir. Rannsóknir allar á . Suðurskauts'and nu eru þáttur í alþjóðlega jarð- eðlisfræðiárinu. 28 nienn fórufet og 19 hititfl alvarleg meiðsl þegar farjx'ga- lest rakst með miklum hraða á vöruflutningalest nálægt bæn- !um Chantenay í Frakklandi. 1

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.