Þjóðviljinn - 15.12.1957, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 15.12.1957, Blaðsíða 15
Sunnudagur 15. desember 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (15 Hugleiðingar uiii liandknattleik Framhald af 11. síðu. „primitív'* og slæm. Hitt ei rétt að fæstir liafa haft tæki- færi að keppa á stórum völlum Snnanhúss. Og um æfingu á stórum velli er ekki að ræða, nema utanhúss. Á meðan við höfum ekki stóran sal, verðum við að leggja kapp á að fá góð lið til keppni utanhúss. Heimsmeis tarakeppnin 1 sambandi við það, að við ætlum að senda í heimsmeist- arakeppnina á næsta ári vil ég segja þetta: — Þó að þau fé- lög, sem hafa farið til annarra landa og keppt þar, hafi stað- ið sig vel í keppni við einstök félög, má ekki bera það sam- kn við landslið stórþjóða. Þær geta valið úr þúsundum manna Og í þeim riðli sem Islendingá'r eru, keppa hálfgerðir atvinnu- menn að sögn. Og sagt er að þeir þurfi sumir hverjir ekki annað að gera en æfa. Og þjálfun annast að sjálfsögðu eingöngu atvinnuþjálfarar. I slíkt mót, þýðir ekki að senda aðra en harða menn og þrek- mikla. En það, sem gæti gefið okkur von, um að tapa ekki mjög mikið, er eingöngu það, ef við getum komið eitthvað á óvart með einstaklinga-lið sem heild, en þó fyrst og .fremst leikaðferð. Nú fer að hefjast mót þar sem fjögur lið keppa, Hafnfirð- ingar og tvö beztu lið úr Rvík og úrval úr liinum félögunum. Þetta hiót verður áreiðanlega skemmtilegt og fjölsótt því að engu er hægt að spá um úr- slit. Félögin eru að verða svo lík, a. m. k. í Hálogalandi. Eft- ir það mót mun landsliðsnefnd skila áliti sínu um það, liverja velja ber í landsliðið. Maður vonar að valið takist vel, en það er vandasamt. En áreiðan- lega gerir nefndin eins vel og hún getur. Undanfarin ár hefur verið valið landslið og pressulið. 1 landslið hefur verið valið fyrst, áreiðanlega af mönnum sem talið hafa sig færa í þetta, og engin ráð þurft að sækja til annarra. En reynslan hefur nú bara orðið sú að landsliðið hef- ur ekki unnið ennþá. Annað- hvort hefur það verið illa val- ið, eða illa stjórnað í leik, nema hvorttveggja hafi skeð. Landslið getur öðru hvoru tap- að, en ekki má það vera föst regla. Það sem svo háir mest æf- ingum og undirbúningi er að við eigum ekki stórt hús. Við skulum samt ekki gefast upp og vona liið bezta. Hallsteinn Hinriksson. Hver var Snorri Sturluson? Framhald af 9. síðu. þekkustu, ef maður les ekki meira út úr heimildunum en í þeim stendur“. Knúinn ■ af ■ þeirri sannfær- ingu, að.,.þetta.sé rét.tur dóm- ur um Snörrá Sturíuson, ræðst Gunnar Benediktsson 1 það að rita bók sína um hann. Þettá er várnarrit fyrir minn- ingu mesta stórmennis, sem ísl. þjóð hefur alið. Gunnar er á- kafur og harður málflytjandi, og lætur þá, sem nítt hafa minningu Snorra, rífa niður hvern fyrir öðrum rök dóma sinna. En hann rífur ekki ein- ungis niður forna sleggju- dóma um þennan mann, held- ur leitast einnig við að leggja drög að heilsteyptari persónulýsingu hans, en þá verður hann einnig að lesa „meira út úr heimildunum en í þeim stendur". Ég hef heyrt nokkra menn hafa það á orði, að „Snorri skáld í Reykholti“ sé bezto bók, sem Gunnar hefur samið Mér er nær að halda að svo sé. Með þessu riti hefur hann lagt fram drjúgan skerf til skýringar á mikilhæfustu per- sónu íslenzkrar sögu. Gunnar er tómstundafræði- maður, eins og sumir telja Snorra, og ekki alltaf ná- kvæmur í tilvitnununum, t.d. íslenzkar ártíðaskrár nefnir hahn .annálaskrár bls. 79, þjóðveldi verður lýðveldi bls 121, knésetja verður knásetja bls. 106 o.fl. þess konar mætti telja. Ég hefði viljað rita betur og ýtarlegar um þessa bók, en þetta verður að nægja, og bið ég Gunnar og aðra vel- virðingar á því, að þarft verk blýtur hér óverðuga umsögn. Björn Þorsteinsson. í verzlun okkar í Austurstræíi 10. J erseyk jólar, prjónakjólar, pils, og hollenzkum vetrarkápum. . Nýfar bækur eítir Þórunni Elíu Magnúsdóttur: Eldliljan er nýstárleg og bráðspennandi skáldsaga um unga og glæsilega Reykjavikurfrú. er hugnæm saga um átthagatryggö og unaö fagurrar dalabyggöar. Saga jafnframt viö hæfi ungra og aldinna. Barnasögur: Litla stúlkan á snjólandinu Liíli í sumarleyfi eru nýung í íslenzkum barnabókmenntum. Hiö lifandi, sanna mál barnsins bóktest. Bókaútgáfan Tíbrá. og bókin fæst hjá okkur Munið eftir S tafla kössunum á aðeins krónur 61.95. Ennfremur mikið úrval af jólakortum, jólapappír, jólamerki- miðum , jólalímböndum o. fl. BÓKABÚÐ MÁLS OG MENNINGAR Skólavörðustíg 21. — Sími 1-50-55.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.