Þjóðviljinn - 25.03.1958, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 25.03.1958, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 25. marz 1958 ÞJÓÐVILJINN (5 Það skiptir öllu máli hvaðan „pólitískir flóttamenn” koma Alltaf við og við birtast (Fregnir um að menn hafi fengið griðastað í löndum í Vestur- Evrópu, ekki sízt á Norður- löndum, sem pólitískir flótta- menn, og ævinlega eru þessir menn komnir frá löndum Aust- ur-Evrópu. Oft er hér um að ræða ótínda glæpamenn sem flúið hafa fangelsisdóma í lieimalöndum sínum, stundum aðeins fólk sem gerir sér von- ir um að þvi muni végna betur í öðrum löndum en heimaland- inu. Langsjaidnast mun vera um pólitíska flóttamenn í eiginleg- um skilningi þeirra orða, og er það enda viðurkennt af stjórnarvöidum í viðkomandi iöndum, sem láta þó aldrei standa á því að veita fólki þessu griðastað. En nú er komið á daginn, einsog reyndar var við að bú- azt, að þessum stjórnarvöldum gengur annað til en mannúð þegar þau taka við útlendum flpttamönnum. Fyrir nokkrum dögum reyndu tveir alsírskir stúdentar, 21 og 26 ára, að laumast inn í Dan- ! mörku yfir þýzku landamærin. ! Landamæraverðir gripu þá. | Stúdentamir skýrðu þeim frá þvi að þeir hefðu tekið þátt J í baráttu þjóðfrelsishreyfingar ; Serkja og fi-anska lögreglan væii á hæiunum á þeim. Þeii fóru því fram á að fá griða- stað í Danmörku sem póli- tískir flóttamenn. Það var ekki tekið í mál og' stúdentamir voru afhentir þýzku lögregl- unni sem sennilega sendir þá til Fi'akklands. Telja má víst að þaðan verði þeir sendir ! hendur frönsku böðlanna í Al- sír. _ ___ Kaupmannahafnarblaðið In- formation, sern skýrir frá þessu, átti viðtal við þá deild dönsku lögreglunnar sem ann- ast eftirlit með útlendingum. Lögreglumaðurinn lýsti yfir, að lögreglunni væri skylt að vísa flóttamönnum sem þessum Alsírmönnum úr landi. Það væri ekki thægt að líta á þá sem pólitíska flóttamemi af því að þeir kæmu frá Frakklandi. „Morð án líks5' veldur mlkilll ytgerðarmeim Ný gerð netadreka íyrirliggjandi. Jón Heiðberg keildverzlun Sími 13585. SK r r m i O* Fundur verður haldinn í Tjamarcafé niðri miðvikudaginn 26. marz 1958, kl. 15.30. Fundarefni (að lokinni kaffidrykkju): Umræður um reglur rafmagnseftirlits ríkisins varðandi þrifasa fjögurra víra 380/220 volta kerfi og aðrar nýlegar tiikynningar frá rafmagnseftirlitinu. Rafmagnseftirlitsstjóri og verkfræðingur rafmagns- eftirlitsins munu hefja umræður. iSýnd verða sýnishorn af nýrri gerð rafspjalda, sem Raftækjaverksmiðjan í Hafnarfirði hefir gert. Stjóm félags löggiltra rafvirkjameistara í Reykjavík I Bæjarskrifstofurnar I Austurstræti 16 verða lokaðar frá hádegi í dag, þriðjudaginn 25. marz, vegna jarðarfarar. Loftpressa óskast leigð eða keypt. Viimuþrýstingur minnst 18 kg á fercentimeter eða 250 lbs. á fertommu. Oóðfúslega hringið í síma 17-400 eftir kl. 13 í dag eða fyrir kl. 12 á morgun. Jtafmagnsveitur ríkisins. 26 ára gamall vélíræðingur skar sundur púlsana á báðum höndum, en liíði það aí „Morð án líks“ olli fyrir skömmu miklum óróa meöal íbúa og lögreglu Vínarborgar. Gátan leystist á óvæntan hátt í fyrri viku. ÞaÖ var ekki morö, heldur misheppnaö sjálfsmorð. Það byrjaði þannig, að lög- regla fann margar niðursuðu- krukkur fullar af blóði í sum- arhúsi einu í grennd við Vín. Við rannsókn kom í ljós, að blóðið hlaut að vera úr einum og sama manninum, og þar sem slíkur blóðmissir hlýtur að valda dauða venjulegs manns, hóf lögreglan þegar í stað leit að morðingjanum og fórnardýr inu. Leitað var dyrum og dyngjum, og meira að segja var slætt í Dóná. En öll fyrir- höfnin bar engan árangur. stund, missti hann meðvitund, og skömmu síðar mun blæðing- in hafa. hætt. Þegar hann vaknaði aftur kenndi hann ofsalegs þorsta, þambaði mikið af vatni og yfirgaf húsið! Daginn eftir fór hann aftur til suinaibústaðarins og skar nú í sundur púlsinn á hægri hendi. En ermþá misheppnaðist til- raunin. Vísidnamenn segja að aðeins eixm maður af tíuþúsund geti lifað af slika meðhöndlun sem vélfræðingurinn veitti sjálfum Að nokkrum dögum liðnum • sér. Það er aðeins að þakka gaf sig fram 26 ára gamall bílavélfræðingur við lögregl- una. Hann kvaðst hafa brot- izt inn í sumanhúsið í þeim til- gangi að stytta sér aldur, þar sem hann væri fullur heims- hryggðar og lífsleiða. Foreldr- ar vinstúlku hans bönnuðu honum sámvistir við haná, og hann hafði þessvegna ekki kært sig um að lifa lengui’. Haxm tók sér því rakblað í hægri hönd og skar sundur púlsimx á vinstri hendi. Hann hafði alltaf verið þrifinn og þessvegna hélt hann hendinni yfir niðursuðuglösunum til þess „að sulla ekki neitt út í hús- inu“, eins og hann orðaði það. Þegar blóðið hafði runnið góða því, að hann skar púlsinn með millibili og drakk mikið vatn á milli, að þaklta, að hann gat lifað þetta af. Ungi maðurinn liefur nú, samkvæmt fréttum lögreglunn- ar, öðlazt trúna á lífið á ný, og hefur orðið sér úti um stöðu. Árið 1957 var xnetár í út- flutningi brezkra bíía. Flutt- ir vorii út 550.00!) bíliir. Bandaríkjamenn hafa aðra sögu að segja, þar var mik- il kreppa í bííaiðnaðinum. Jafnframt þ\í sexn sala bandarískra bila mtnnlíár eykst stöðugt mnflutningár þeirra á bílum. Stöðu^t fleiri Bandarílíjaincnn kjósa heldur að kaupa bxla írá JSyrópu. Þykja þeir bæði sparneytnari, fallegri og ó- dýrari. Á myndinni eru hundruð brezkra bíla, sem bíða á hafnarbakkanuxn eftir út- flutningi til Baudaríkjanna og Kanada. Mest af bí laútf'u tningi Englands fór til Kandarikj- anna. alls 100.000 bílar, en árið 1956 voru fluttir jiaiig- að 32.000 bílar. ágéslivín lokið Kosningar fóru fram til neðri deildar þingsins í Júgóslavíu i fyrradag. Kosinn var 301 fulltrúi og voru þeir allir studdir af Sósialistabandalaginu sem komm únistar eru öflugasti aðiiinn i. X mörgúm kjördæmum voru þó fleiri en einn frambjóðandi í kjöri. LíSaii Churchills Heilsu Winstons Churchills sem var nýlega búinn að ná sér eftir lungnabólgu hrakaði aft- ur á laugardaginn og var einka- læknir lians kallaður að sjúkra- beði hans. Honum leið þó aftur skár í gær og hætta er ekki talin á ferðum. 11 ára dreugur fremur tvö morS Ellefu ára gamall drengur í New-York, George Jones, hef- ur játað að hafa hrint sjö ára leikfélaga sínum Louis Diam- ant í Hudsonfljótið svo að hann drukknaði. Louis hafði | lofað George tveim krónum ef hann vildi leika sér við hann, og þegar Louis svo neitaði að boi’ga, varð George svo reiður að hann hrinti leikfélaga sín- um út í fljótið. Það var hrein tilviljun að lögreglan hafði upp á morð- ingja drengsins. Þegar George var yfirheyrður sem vitni, minntíst einn lögreglumann- anna þess að svipað tilfelli um drukknun hafði komið fyrir árið áður. í skjöium varðandi það mál sást að George hafði einnig verið sem vitni að því. Hálftíma seinna játaði hann að vera sekur um báða glæp- ina. í dag er þjóðhátíðardagur Grikkja. í fyrsta sinn í tvö ár hefur grískættuðum Kýpurbúum verið leyft að halda daginn há- tíðlegan með útifundum. Öll kröfuspjöld exu þó bönnuð. Kjarnorkumálanefnd Banda- ríkjanna tilkynnti í fyrradag að á laugardaginn hefði kjarna- vopn verið reynt í Sovétríkjun- um. Ilefði þar verið um að ræða vopn af meðalstærð. Þetta var að sögn nefndarinnar í þriðja sinn á þrem dögum sem slik til- raun var gerð í Sovétríkjunum og níunda tilraunin á einni viku. Veðurstofan í Tokíó sagði í fyrradag að .athuganir hennar hefðu leitt í Ijós að geislaverk- un í andrúmslofti borgarinnar hefði tvöfaldazt frá því í fyrra og væri nú orðin 10—20 sinnum rneiri en hún var árið 1955, þegar vetnissprengjutilraunirnar hófust. staddur í Dag Hammarskjöld, fram- kvæmdastjóri SÞ, kom til Moskva í fyrradag í boði sovét- stjórnarinnar. Hann ræddi í gær við Krústjoff, framkvæmdastjóra Kommúnistaflokks Sovétríkj- anxia, og Gromiko utanríkisráð- herra. Á dagskrá voru ýms al- þjóðleg vandamál, svo sem af- vopnunai’málið og undirbúning- ur að fundi æðstu manna. Hammarskjöld mun dveljast í Moskva í nokkra daga, en á heimleiðinni til New York mim- hann koma við í London til við- ræðna við brezka ráðamenn.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.