Þjóðviljinn - 25.03.1958, Blaðsíða 10
ÞJÓÐVTLJINN — Þriðjudagur 25. marz 1958
10) —
1 héraðsdómstól voru endur-
kosnir þeir: Hermann Eiríks-
son skólastj. form. Tómas
Tómasson lögfræðingur, Ragn-
ar Friðriksson fulltrúi.
, _ W _ ^
SKIPAUTGCRB RIKISINS
Auglýsið
í Þjóðviljanuni
22. dagur.
Þórður hélt í áttina til skonnortunnar og sóttist ferð-
in vel. Er hann átti ófarna um 40 metra að skip-
inu, fór hann að undir búa sig að koma kaðli um borð,
til þess að draga línu á milli skipanna. Er hann leit
upp sá hann sér til mikillar undrunar, að kona stóð
á þilfarinu og var að horfa á þá. „Hmmmm!" hugsaði
hann, „þetta er skrítið. Skonnortan er auðsjáaniega
elcki 'kaupskip eða skemmtiferða skip.. Hvemig í
ósköpunum stendur á því að kona er um borð í
slíku skipi?“
Þórður
sjóari
1 þróttir
Framhald af 9. síðu
100 manns æfi þar íþróttir á
ihverju kvöldi.
Lokaorð skýrslunnar voru:
— Hér að framan hefur verið
stiklað á því helzta, sem frá-
farandi stjórn íþróttabanda-
lagsins hefur fjallað um á s.l.
starfsári. Störfin hafa verið
margvísleg og unnið hefur ver-
að þeim eftir beztu getu.
Stjórnin skorar á alla- Kefl-
víkinga, sem íþróttum unna að
taka höndum saman og vinna
að eflingu íþrótta hér í Kefla-
vík. Verkefnin eru næg og með
sameinuðu átaki er mikið hægt
að gera.
Takmark okkar er að gera
æsku þessa bæjar að dugmikl-
um og nýtum borgurum. Með
auknum íþróttaiðkunum stuðl-
um við að því að svo megi
verða. Að lokum þakkar stjórn
íþróttabandalags Keflavíkur
öllum þeim, sem á einn
eða annan hátt hafa stuðl-
að að framgangi íþrótta 'hér í
Keflavík, og vonar að þeir
leggi áfram málefnum banda-
lagsins lið á komandi árum.
Nokkrar umræður urðu um
skýrslurnar og reikningana.
Á fyrri degi þingsins var
kosið í nefndir en mörgum mál-
um hafði verið vísað til þeirra.
Á seipni degi þingsins skiluðu
nefndir' áliti og skal hér getið
nokkurra ályktana sem sam-
þykktar voru á þinginu:
1. Skorað var á bæjarstjórn
Keflavíkur að hefja nú þegar
undirbúning, að byggingu bað-
og búningsklefa við íþróttavöll-
inn. Jafnframt var þeim til-
mælum beint til bæjarstjórnar
að hafa fullt samráð við í-
þróttabandalag Keflavíkur um
þær framkvæmdir.
2. Stjórn I.B.K. falið að at-
huga möguleika á að ráða
fastan þjálfara yfir sumarmán-
uðina.
3. Stjórn I.B.K. falið í sam-
ráði við bæjarstjórn, að reyna
að bæta aðstöðu frjálsíþrótta-
manna til íþróttaæfinga.
4. Bæjarstjórn þökkuð veitt
fjárhagsleg aðstoð á liðnum
árum og þess vinsamlegast far-
ið á leit við hana að hún hækki
hinn árlega styrk til banda-
lagsins, vegna hins sivaxandi
starfs I.B.K.
Stjórnarkosning
Formaður I.B.K. kosinn á
ársþingi. Var Hafsteinn Guð-
mundsson endurkosinn. Aðrir í
stjórn: Þórhallur Guðjónsson
tilnefndur af UMFK. Hörður
Guðmundsson tilnefndur af
UMFK, Hjalti Guðmundsson
tilnefndur af KFK, Svavar
Ferseth tilnefndur af KFK.
HVOR TVÍBURANNA NOTAR TONT?
Sú til hægri er með TONI, en hin
systirin er með dýrt stofu-permanent.
t»að er ekki hægt að sjá neinn mun, —
og miklir peningar sparaðir.
Super fyrir hár sem erfitt er að liða.
Regular fyrir venjulegt hár.
Gentle fyrir hár, sem tekur vel liðun.
Jfekla
Reykjavík.
Utanríkisverzlun
Framhald af 7. síðu
hefur 17 sinnum verið að ræða
og 25 sinnum um aukningu.
Sakir vaxtar fiskiskipastólsins
og framleiðslumagns ár þessi
hefur oftar verið um aukn-
ingu heldur en minnkun að
ræða. Ef litið væri hins vegar
á málið' frá sjónarhóli miðl-
ungs fiskiskips mun án efa á-
líka oft hafa gætt minnkunar
sem aukningar. Árlegar sveifl-
ur í verðgildi innflutnings á
'mann árin 1914—1938 námu
að meðaltali 15% og fyrir árin
1938—1956 um 21%. Þar sem
samdráttur í verðgildi bæði út-
flutnings og innflutnings varir
oft bæði tvö eða þrjú ár, geta
sveiflur þessar skapað erfið
vandamál bæði í sjávarútveg-
inum og innflutningsverzlun-
inni.
Reykjavík, í marz 1958.
Haraldur Jóhannsson.
Landlielgin
Framhald af 1. síðu
varðar fiskveiðilögsögu strand-
ríkis. Ef lögsagan yfir fiski-
veiðunum er hæfilega tryggð
getur sendinefndin íslenzka
fallizt á þrönga landhelgi. Við
lítum einnig svo á að yFirleitt
muni 12 mílna svæðj vera sann-
gjarnt hámark fiskveiðilög-
sögu. að því er ísland varðar
myndu slík fiskveiðitakmörk
að miklu leyti reynast full-
nægjandi hvað þarfir Islend-
inga snertir, og munnm við
styðja þessa tillögu sem al-
menna re,glu.“
LFSÍÐ EKKI ÞESSA AUGLÝSINGU
eí þér emð í einlægni ánægðar með hár yðar
Draiiffalestin
Framhald af 6. siðu
áherzlu. Henni hefur vaxið
öryggi í léttleika sínum til
orðs og æðis. Ragnar leikur
stöðvarstjórann, og fær þar
hlutverk mjög frábrugðið
þeim sem hann hefur áður
haft með höndum, og þótti
áhorfendum þó, sem hann
mundi ekki fyrr hafa leyst
hlutverk betur af hendi en að
þessu sinni. Rögnvaldur Guð-
jónsson sést nú í fyrsta sinni
á sviði í hluverki, sem er
næsta erfitt byrjanda, alltaf
á sviðinu frá upphafi til enda
og oftast aðgerðalítill. En
það leynir sér ekki, að með
honum er efnilegur leikari
kominn á sviðið, sem mikils
má af vænta. Hann er ungi
maðurinn í brúðkaupsreisunni
og konu hans leikur Guðrún
Magnúsdóttir yngsti leikand-
inn. Hún kemur vel fyrir,
lék smáhlutverk í fyrra og
styrkir nú vonir, sem þá vökn-
uðu um efnilega leikkonu.
Með leik þessum hefur Leik-
félag Hveragerðis sýnt, að
það tekur hlutverk sitt alvar-
lega. Það lætur sér ekki nægja
minna en það bezta, sem í
valdi þess stendur að ná, og
leikendur láta mjög erfiðar
aðstæður að tjaldabaki ekki
hindra sig í að fóma kröft-
um sínum merkilegu menn-
ingarstarfi fyrir hérað sitt,
Það lætur ekkert til sparað
að starf þess verði sem hezt.
Það fær sér lærða leikstjóra
og nú fékk það sér til að-
stoðar við leiksviðið sérfræð-
ing í þeirri grein, og átti liið
meistaralega, óhrjálega stöðv-
arhús sinn þátt í þeim drauga-
lega undirstmum, sem leikn-
um er nauðsynlegur, evo hann
njóti sín.
Hafi Leikfélagið þökk fyrir
sinn leik, og þá má í sann-
leika segja að laun heimsins
eru vanþakklæti, ef Hvergerð-
ingar sjá því ekki fvrir betri
aðstöðu til starfs sins áður
en langir tímar líða.
Guiinar Jlenedilítsson
HEKLA
austur um land til Akureyrar
hinn 30. þ.m. Tekið á móti
flutningi til Fáskrúðsfjarðar,
Reyðarfjarðar, Eskifjarðar,
Norðfjarðar, Seyðisfjarðar,
Þórshafnar, Raufarhafnar,
Kópaskers, Húsavíkur og Ak-
ureyrar á morgun, miðvikudag.
Farseðlar seldir á föstudag.
Góð hárgreiðsla byggist á fallegum
bylgjum.
Er það ekki kosnaðarsamt ?
Ekki með TONI HEIMAPERMANENTI.
Hvaða kosti hefur TONI umfram
önnur heimapermanent?
TONI er endingargott, það er auðvelt,
fljótlegt og skemmtilegt í notkun.
TONI er með hinum nýja ,,Ferksa“
hárliðunarvökva (engin römm
amoniak-lykt).
Hárbindingin er nú jafn auðveld
öf vénjuleg skolun.
Getur TONI liðað mitt Iiár?
Auðvitað. Þér veljið aðeins þá tegund.
hárliðunarvökvans, sem hentar hári
yðar, fylgið leiðbeiningunum, sem fylgja.
hverjum pakka og þér getið verið
öruggar um árangurinn.
Það er því engin furða, að TONI er
eftirsóttasta heimapennanentið.