Þjóðviljinn - 23.04.1958, Qupperneq 5
Miðvikudagur 22. r.príl 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Forsíðurnar á Iiinum tveim útgál'um: Xi? vinstri cr upprunalega íorsíðan með greininni eftir
Priestlcy og myndunum af kjarnasprenginguin o.fl. Til hægri er svo forsíðan, sem Vestur-:
Þjóðvorjar fengu að sjá. I staðinn fyrir greinina; som ckki fékkst birt, voru settar greinar
um sjúkratryggirv*ar og fyrirmyndir hjá Picasso.
Vegna kfoiu aoaiuiiímarans, sem er
þingmaðiir ár flokki Adenauers
Þetta blaðahneyksli hefur vakið raikla ólgu undan-
fariö í Vestur-Þýzkalandi. Hiö stóra vesturþýzka. viku-
blað „Der Stern“ birti í síöasta mánuöi finrai síðna
grein frá brezku sjónvarpssendingunni „Dómsdagur
herra. Dysons“, en í henni sýndi höfundurinn, John
Priestley, Englendingum fram á ógnir kjarnasprengjunn-
ar og eina svariö við þeim.
Þii ert sá seki
Það var útgefandinn og þing-
maðurinn Gerd Bucerius, sem
kom í veg fyrir birtingá grein-
arinnar, en byrjað var að
prenta blaðið, þegar hún var
tekin út. Eins og venja er
til fékk hann sem hluthafi eitt
af fyrstu eintökunum í hendur,
og vai'ð hann þá mjög skelfd-
ur yfir greininni um kjarna-
sprengjnna. Ástæðan fyrir ótta
híins var sú, að umræður um
kjamavopn handa vesturþýzka
hernum, stóðu fyrir dyrum í
þingihu í Bonn.
Greinin í „Stern“ var birt á-
samt. myndum úr sjónvarps-
sendingpm Priestleys undir fyr
irsögninni „Af misgáningi" Þar
er sýnt þegar Dyson venjulegur
Lundúnabúi kemur, að lokinni
kjarnasprengjuárás á London,
fram fyrir hinn liimneska dóm-
ara. Hann gerir mikið úr sak-
leysi sínu, og fær þá leyfi til
að finna. þann hinn seka. En
hann verður að gefast upp:
Kjamasprengjan, sem olli gjör-
eyðingunni, féll af misgáningi.
Og úrskurður hins himneska
dómara hljóðar: Þú ert sá
séki, því að þú gerðir ekkert
til að hindra kjarnasprengjuna.
24 stundmn seinna
Síðan segir frá því í grein-
inni er tveir stjórnmálamenn,
sósíaldemókratinn Shinwell og
íhaldsmaðurinn Thorneycroft
koma fram á sjónvarpstjaldinu
og segja: „Afneitun kjarna-
vopna eins aðila væri sjálfs-
morð. Við verðum að halda á-
fram að framleiða vetnis-
sprengjur okkar, fá fjandmenn-
ina til að hörfa í árás“ —
Þetta em nákvæmlega sömu
orðin, sem stjómmálamennirn-
ir í sjónvarpsleikriti Priestleys
höfðu afsakað sig mcð frammi
fyrir Dyson. )
Dcr Stern lýkur greininni
mcð þn að ræða um það, sem
skeði 24 klukkustundum seinna.
Þá missti bandari.sk flugvél
kjarnasprengju af misgáningi.
Priestley hafði reynzt spámað-
ur. Sá misgáningur leiddi í
það sinn ekkj til gjöreyðilegg-
ingar, en atburðurinn sánnaði,
að hugmyndaflug manna um
þessi hræðilegu vopn getur
hvenær sem er orðið að veru-
leika.
Algjörlega óháð blað
■ Þetta. var meira en stærsti
hluthafi blaðsins gat þolað.
Þetta gat orðið hindrun í bar-
áttu hans og flokksbræðra
hans til þess að búa vestur-
þýzka herinn kjamavopnum.
Hann greip símann í skyndi
og stöðvaði prentun blaðsins.
Síðan fékk hann því til leiðar
komið að þessar fimm síður
voru teknar úr blaðinu og ann-
að efni sett í staðinn. Það
skeði dagimi eftir að ritstjóri
blaðsins, Henry Nannen, liafði
lýst yfir því í sjónvarpi, að
blaðið væri fullkomlega óháð.
Þegar málið varð uppvíst,
reyndj Bucerius að koma af
sér sökinni, með því að segja
að ritstjórinn hefði sjálfur vilj-
að hætta við birtingu greinar-
innar. En þessi afsökun har.s
mistókst algjörlega, þvi sta.rfs-
menn blaðsins mótmæltu, sendu
honum bréf og heimtuðu skýr-
ingu á. framfei’ði hans. Einn
blaðamannanna, dx’. Keller-
mann, var svo heiðarlegur, að
segja þegar upp stöðu sinni
við blaðið í mótmælaskyni.
Frelsi handa milljóneriun
Dr. Kellermann segir í upp-
sagnarbréfi sínu til Buceriusar:
„Þér gerið meira en þnð sem
þér hafið heimilcl til, og grípið
frammí fyrir hendurnar á
blaðafx’elsinu og skoðanafrels-
inu . . . Iíinn gegnumsæi rök-
stuðningur yðar, að fjallað hafi
verið um mál án næg'ilegra
upplýsinga, virðist ætluð
heimskingjum en ekki skyn-
samlega hugsandi fólki, sem
þeþkir samlxengi málsins . . .
Þetta sem skeði í dag getur
líka skeð á morgun, og ég fyrir
mitt leyti hef enga löngun til
að standa þegar þar að kem-
ur frammi fyrir æðsta dómára
|og láta segja við mig líkt og
jDyson, söguhetju Pi-iestleys:
I Þú hefur látið þetta óátalið,
þú hefur ekkex-t aðhafzt.
I Vestur-Þýzkalandi er nú
mikið rætt um skoðanafrelsi
og tjáningafrelsi blaðamanna
gagnvart almætti hluthafanna
í útgáfufyrirtækinu.
Það eru bráðum hundrað ár
síðan hinn mikli rússneski rit-
höfundur Dostojevskí snéri
'heim frá Vestur-Evrópu og
lagði sín orð til samskonar um-
ræðna: „Hvað er liberté?
Frelsi. Hverskonar frelsi? -—
Sama fresli fyrir alla til að
gera allt, sem mann fýsir að
gera innan vébanda laganna.
Framhald á síðu.
Happdrættisskuldabréf Fluq-
télagsins til fermingargjafa og
annarra tækifærisgjafa.
Þau kosta aðeins
100 fcrónur
og endurgreiðast 30. des. 1963
með 5% vöxtum og vaxta-
vöxtum.
*
O
»
»
0
0
■' Auk þess hefur eigandi happ-
drættisskuldabréfsins vinninqs-
von næstu sex ár.