Þjóðviljinn - 22.06.1958, Qupperneq 3
Sunnudagnr 22. júní 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Frétíabréf frá Frlmanni Helgasyni:
Suður-Anieríkuinaður tapaði
veðmáli sínu oa lét eyrað!
Gautaborg, 17'. júní.
Það sýnir bezt hve keppnin
hér er jöfn að af 8 leikjum i
þriðju umferð fyrstu lotunnar
enduðu fjórir með jafntefli.
Þetta leiddi líka til þess að
leika varð þrjá aukaleiki, þ. e.
England-Rússland hér á Ul-
levi, Ungverjaland-Wales á
Rásunda í Stokkhólmi og
Norður-írland og Tékkósló-
vakía í Malmö.
FórU þeir leikir fram í
kvöld og enduðu þannig:
Rússland-England 1:0, Wal-
es-Ungverjaland 2:1 og Norð-
ur-írland-Tékkóslóvakía 2:1.
Annars urðu úrslitin í hin-
um einstöku hópum þessi:
1. riðill:
V.-Þýzkaland 3 1 2 0 7-5 4
Tékkóslóvakía 3 1 1 1 8-4 3
Norður-Irland 3 1 1 1 4-5 3
Argentína 3 1 0 2 5-10 2
2. riðill:
Frakkland 3 2 0 1 11-7 4
Júgóslavía. 3 1 1 1 7-6 3
Paraguay 3 1 1 1 9-12 9 O
Skotland 3 0 1 2 4-6 1
3. riðill:
Svíþjóð 3 2 1 0 5-1 5
Ungverjaland 3 1 1 1 6-3 3
Wales 3 0 3 0 2-2 3
Mexikó 3 0 1 2 1-8 1
4. riðiii:
Brasilía 3 2 1 0 5-0 5
England 3 0 3 0 4-4 3
Sovétríkin 3 1 1 1 4-4 3
Austurriki 3 0 1 2 2-7 1
Fjórðungs-úrslit, eins og
það er kallað, fara svo fram
á fimmtudaginn og keppa þá
! Rásunda Svíþjóð—Rússland,
í Gautaborg, Ullevi, Brasilía—
,Wales, í Malmö, V-Þýzkaland
—Júgóslavía og í Norrköbing,
Frakkland—Norður-írland.
Lönd þau sem þegar hafa
verið slegin út eru farin heim
og verða að láta sér nægja að
horfa á það sem eftir er, í
sjónvarpi.
íiott samkomulag.
Þau erlendu lið sem gista
Sviþjóð, láta mjög vel af vist-
inni hér og öllum viðurgern-
ing. Margir búa rétt utan við
bæina á rólegum stöðum þar
sem þejr verða ekki eins fyr-
ir átroðningi gesta og gang-
andi. Á milli leikjanna er lifað
eftir kúnstarinnar reglum og
í fullum aga, Það virðist sem
reynt sé að slappa af og losna
við alla spennu. Þeir róa á
Ferðaskrifstofa
PÁLS
ARASONAR
Hafinarstræti 8.
Sími 17 . 641.
8 daga ferð um Norður- og
Austurland, hefst 28. júní,
14 daga hringferð um land-
ið, hefst 28. júní.
vötnum og dorga ef fiska er
von, leika golf í mestu ró.
Stundum mega }>eir fá sér
gönguferðir um bæinn og
skoða búðarglugga. Það er
bara verst að margir glúgg-
anna eru fullir af allskonar
auglýsingamyndum um ' HM-
Garrincha
keppnina og víða eru mvnda-
samstæður frá leikjum og lið-
um í gluggum. Hugsað er vel
jim mataræði og svefn.
Aðeins er knattspymu-
mönnum leyft að skemmta sér
því að eftir sigurinn yfir
Rússum vildu Brasilíumenn
lyfta sér svolítið upp, og var
það leyft. Leikmenn gerðu það
að skilyrði að þangað fengju
engir ljósmyndasmiðir að
koma og var það samþykkt.
Þó komust þangað inn nokkr-
ir brasilískir myndatökumenn
— en viti menn, Dansinn
hættir. Hljómsveitin leikur
dillandi lög en allt kemur fyr-
ir ekki. Myndasmiðirnir urðu
áð fara. Leikmönnunum, sem
flestir eru giftir, leizt ekki
á það að myndir kæmu í blöð-
um ÍBrasilíu af þeim í faðm-
inum á sænskum ,,flickum“!
Óvænt heimsókn til Rússa.
Á mánudagseftirmiðdaginn
fengu Rússar óvænta heim-
sókn í dvalarstað sinn, en
það var einn af varamönnum
Brasilíu, Zosoimi að nafni.
Hann var kominn þama sem
fulltrúi brasilísku knattspjTnu
mannanna til þess að færa
þeim að gjöf stóran oddafána
og 10 minni, ásamt fjölda
merkja, sem minjagripi um
leikinn daginn áður. Veitti
þjálfari Rússanna þessu mót-
töku, en hann heitir Jakosjin.
Varð hann næsta hrærður
yfir þessum vinarhug og vissi
varla hvernig hann átti að
þakka. Hann áttaði sig þó
strax og safnaði saman jtus-
um minjagripum rússneskum
og. sendi til baka.
Jakosjin spurði mjög um
Brasilíumennina sem höfðu
hrifið hann mjög með leik
sínum daginn áður.
Þjálfarinn spurði m. a.
hversvegna þeir hefðu ekki
haft Garrincha í liðinti á
móti Englándi um daginn.
(Garrincha er mest um tálaði
leikmaðurinn hér í dag eftir
frammistöðuna við Sovét) þá
hefðum við sloppið við að
leika við ykkur á morgun. Já,
þá hefðum við unnið þá, en
nú verðið þið sjálfir að gera
það og það verður gaman að
sjá hve mikið það verður. —
Jakosjin klappar á öxlina á
Suður-Amerikumanninum og
segir: Við gerum betur en á
móti ykkur, og svo brostu
báðir.
Órói í Suður-Ameríku.
Sigur Tékka yfir Argentinu
hefur valdið miklu róti í Ar-
gentinu og víðar í Suður-Am-
eríku. Brasilíumaður þar
syðra varð að missa eyrað
vegna tapsins; hann hafði
veðjað og lagt eyrað að veði,
ef Argentína tapaði, og auð-
vitað varð hann að láta eyr-
að; de * Tal sem veðjaði á
móti honum beit það af hon-
um!
1 Argentínu gengu hinir
æstustu fylktu liði um götur
höfuðstöðva knattspyrnusam-
bandsins. Gluggar og glerdyr
voru mölbrotnar með grjót-
kasti, en það tókst að hindra
að lýðurinn kæmist inn í
bygginguna. Starfsmenn stofn.
unarinnar földu sig og forð-
uðust að koma út í gluggana.
Blöðin þar eru full af gagn-
rýni á knattspyrnusamband-
ið og einstaka leikmenn.
Leikur nr. 22.
Bretar náðu jafntefli við Aust-
urríki 2:2;
Fyrirfram var talið að þetta
væri auðveldur leikur fyrir
Breta og að þeir myndu vinna
auðveldlega, en það fór nú
á aðra lund. 1 fyrri hálfleik
náðu Austurríkismenn svo
góðum leik að Englendingar
máttu hafa sig alla við. Þeir
léku í kring um Bretana eins
og þeim sýndist, og þéir voru
eins og stórir og þungir
strákar í miðjum hringnum,
eins og eitt blaðið orðaði það.
Austurríkismenn vildu sýna
að þeir gætu leikið knatt-
spyrnu, og þó höfðu þeir ekki
til neins að vinna nema sýna
góðan leik, þeir voru búnir
hvort sem var. Þeir flugu
fram og aftur fyrir framan
mark Bretanna, þeir léku af
lífi og list og ógnuðu hvað
eftir annað. Miðherjinn Buzek
skallar á mark en aðeins Mc
Donald liefði bjargað. Þó var
það ekki fyrr en á 15. mín.
að Buzek skaut hörðu skoti
sem hinn ágæti McDonald
fékk ekki varið.
Bretarnir virtust ekki fylli-
lega átta sig á því hvað í
veði var, leikur útherjanna
# ÍÞRÓTTIR
enrrsTJöxn rni*A** utLGASae
var tekinn í notkun og allt
lenti í þröng upp við mark
Austurríkis þegar þeir gerðu
áhlaup.
Um miðjan hálfléikinn er
það Buzek sem er í færi en
MoDonald tekst með snilli að
verja. Þegar 10 minutúr eru
eftir af hálfleiknum taka
Bretar að skjóta af miklum
móð en tekst ekki að skora.
Eftir þennan hálfleik hefðu
leikar getað staðið 2—3:0
fyrir Austurríki.
En það er gamla sagan með
Breta, þeir batna þegar fer
að liða á daginn, og þegar
þeir koma út eftir hálfleik
var sýnilegt að þeim hafði
verið komið í skilning um það
hvað þess; leikur þýddi fyrir
þá. Nú eru það þeir sem taka
leikinn í sínar hendur, og
leika nú eins og þeir ætli að
vinna. Eftir 11 mín. tekst
Haynes að jafna. Sóknin helzt
og er of mikil, það lokast allt.
En Austurríkismenn voru ekki
af baki dottnir. Buzek hleyp-
ur fram vinstra megin með
knöttinn, sendir hann síðan
yfir til Körner sem skorar,
2:1. Aðeins 4 mín. siðar jafna
Bretar. Var það Kevan sem
lék í gegnum vörnina og
skoraði, en markmaður greip
aðeins of seint inní.
Bretar settu eitt mark úr
rangstöðu. Bretar sóttu fast
en ekki tókst að ná sigur-
markinu. Það voru Austur-
ríkismenn sem á 44. minútu
höfðu tækifærið. Kozlicek
komst í gegn um vörn Eng-
lendinga, en þeir hættu,
héldu að hann væri rangstæð-
ur, en með snarræði tókst Mc
Donald að trufla svo að skot-
ið fór framhjá.
Þetta jafntefli gaf Bretum
færi á Rússum aftur.
Leikur nr. 23.
Heimsmeistararnir, Þýzka-
land, náðu jafntefli við
Norður-íra. 2:2
Þegar í byrjun leiksins
settu Þjóðverjar upp feikna
hraða og virtust ætla að
knýja fram forustu í mörkum
en írarnir voru seigir og létu
engan bilbug á sér finna, og
sýndu nú loks að þeir geta
leikið góða knattspyrnu sem
þeir hafa ekki sýnt til þessa.
Innframherji Þjóðverja, Rahn,
var mjög hættulegur og átti
snemma skot í þverslá. Harry
Gregg í marki íranna varði
af mikilli prýði það sem á
markið kom.
Brátt kom að því að mark-
maður Þjóðverjanna yrði lika
að láta til sín taka því að
leikurinn jafnaðist og írar
tóku að sækja líka. Á 18. mín.
á miðherjinn irski gott skot
á mark Þjóðverja, en Herk-
enrath hálfver og fer 'knöttur-
in-n,.' til rútherjans .p.ingl'om
sem strax sendir hann yfir
til McParlands sem skorar
þegar. Þjóðverjar jafna eftir
tvær mínútur, Rahn skorar
með skoti sem fer innan á
stöng og þaðan i markið.
Síðari hálfleikur byrjaði
með sókn Þjóðverjanna, og
enn fékk Gregg að sýna hvað
í honum bjó. En nú höfðu
írarnir áttað sig á hinni
nokkuð þungu vörn Þjóð-
verja og tóku að leika stutt
og hratt sem ruglaði vörnina
þýzku; það var eins og mark-
ið lægi í loftinu. Á 15. mín.
kom það eftir horn. Bingham
spymti til baka yfir til Mc
Parland sem skoraði þegar.
Það var ekki fyrr en á 35.
mín. sem Þjóðverjum tekst
að jafna. írar halda áfram
sókninni, en sigurviljinn eða
að minnsta kosti það að ná
sínu stigi, var ofar öllu í
hugum Þjóðverjanna, og átti
það sinn þátt í að það tókst
í þetta sinn. Var það hinn
vinnusami Uwe Seeler sem
átti hörku skot á 'markið sem
Gregg fékk ekki við ráðið.
Fritz Walter lék með og var
afturliggjandi innherji sem
stjórnaði þaðan áhlaupum
með mikilli prýði; hann er 38
ára gamall.
Frímann.
Vesfnrþpk! herinn fær
kþraavopn til umráða
Þýzkir hernaðarsinnar íá stórvirkustu
kjarnavopn í hendur eins og stórveldin
Það hefur nú verið tilkynnt opinberlega í Vestur-
Þýzkalandi að nú sé sú stefna að verða að veruleika, að’
búa vesturþýzka herinn kjarnorkuvopnum.
Josef Strauss hermálaráðherra
Vestur-Þýzkalands flutti nýlega
neðri deild vesturþýzka sam-
bandsþingsins skýrslu um víg-
búnað hins nýstofnaða vestur-.
þýzka hers.
Strauss sagði að nú væri haf-
in undirbúningur að því að búa
þennan her kjarnavopnum, og
ekki- aðeins minniháttar vopnum
heldur einnig stórvirkum kjarna-
vopnum. Hermálaváðherrann
sagði að Vesturþjóðverjar
mættu til að vígbúast .á þennan.
hátt og rökstuddi það með þvi
að tvö aðalríki Atlanzhafsbanda-
lagsins og Sovétríkin væru nú
,að vígbúast af kappi, eða búin
að þvi.
Hann sagði að megináherzlan
myndi lögð á 300 til 400 manna
herdeildir og myndu þær allar
búnar skriðdrekum. Komið yrði
á fót allt að 18000 manna her-.
fylkjum.