Þjóðviljinn - 22.06.1958, Page 4
4) — ÞJÖÐVILJINN — Sunnudagur 22. júní 1958
Þióðviliinn
i í m * a « f
Utsefandl: Sameiningarflokkur alÞýSu - Sósíalistaflokkurinn. - Ritstjórar:
Magnús Kjartansson (áb.), SigurSur Guðmundsson. — Fréttaritstjóri: Jón
Bjarnason. — Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Guðmundur Vigfússon,
Ivar H. Jónsson, Magnús Tórfi Ólafsson. Sigurjón Jóhannsson. Sieurður V.
Friðbiófsson. — Auglýsing'astjöri: Guðgeir Magnússon. — Ritstjórn, aí-
greiðsía. atiglýsingar, prentsmiðja: Skóiavörðustíg 19. - Simi: 17-500 (5
línurj. — Askriftarverð kr. 25 á mán. i Reykjavík og jiágrenni: kr. 22 ann-
arsstaóar. — Lausasöluverð kr. 1.50. — Prentsmiðja Þjóðviijans.
Efnahagsaðstoð til Grimsby
ogHull
T umræðum um landhelgismál-
in erlendis skýtur sífellt
upp tillögum um það að nauð-
synlegt sé að veita íslendingum
efnahagsaðstoð. Segja tillögu-
menn að hörmulegt sé til þess
að vita hversu háðir fslending-
ar séu fiskveiðum sínum, ,það
þurfi að aðstoða þá til að koma
upp einhverjum öðrum iðnaði
svo að þeir þurfi ekki ,að hugsa
eins mikið um fiskinn, Þá
mundi áhugi þeirra fyrir
stækkun landhelginnar dvina,
og brezkir og aðrir erlendir
togarar geti haldið' áfram að
eyða íslandsmið alveg upp
undir landsteina.
Tjetta eru vægast sagt hjákát-
■*■ legar tillögur. fslendingar
hafa að vísu hug á að gera at-
vinnulíf sitt fjölbreyttara og
munu framkvæma það, en þeir
munu ekki kaupa það því verði
að farga sjálfum fiskimiðun-
um, arðbærustu auðlindum
landsmanna. Miðin umhverfis
landið, yfir landgrunninu, eru
hluti af auðlindum íslendinga,
og þau munu um ,alla framtíð
vera einn af hyrningarsteinum
íslenzks atvinnulífs. Og þau
eru ekki aðeins mikilvæg fyrir
okkur, milljónir manna um
mikinn hluta heims eru háðar
þ.ví í neyzlu sinni að við veið-
um og vinnum okkar ágæta
fisk og seljum hann úr landi.
Það gefur auga leið að í efna-
hagskerfi heimsins er það hag-
kvæmt að íslendingar nýti
sjálfir miðin umhverfis land
sitt og selji öðrum' þjóðum
matvæli; • við höfurn langbezta
aðstöðu til þess að veiða og
vinna fjskinn nýjan í stórum
stíl, og það er aðeins skynsam-
leg verkaskipting að aðrar
þjóðir kaupi fiskinn af okkur
fullunninn og selji okkur í
staðinn sína framleiðslu, í stað
þess að þær sendi skip sín
langar leiðir til þess að veiða
sjálfar á miðum okkar,
¥?ngu að síður kann hugmynd-
in um efnahagsaðstoð að
geta orðið til þess að leysa
deiluna. Hana á aðeins. ekki að
bjóða okkur, heldur þeim aðil-
um erlendum sem þykjast
verða fyrir mestu áfalli við
stækkun landhelginnar. Þar
eru háværastir útgerðarmenn í
Grimsby og Hull og segja að
borgir sinar verði fyrir lam-
andi skakkaföllum er landhelg-
in stækkar í haust. Að vísu
draga ýmsir í efa að þessi bar-
lómur eigi við rök að styðjast,
en ef svo er, virðist einsætt að
efnahagsaðstoðinni verði ein-
mitt beitt til þess að leysa
vandkvæði staða eins og
Grimsby og Hull. Ættu Atl-
anzhafsbandalagið eða Efna-
hagssamvinnustofnun Evróþu
að skipuleggja fjárframlög til
þess að Grimsby og Hull geti
komið upp einhverjum iðnaði
í stað þess sem glatast er ís-
landsmið lokast í ríkara mæli
en verið hefur. Myndu fsíend-
ingar eflaust fúsir til að leggja
fram sinn skerf til að efla
þessa vanþróuðu brezku bæi,
annaðhvort með almennum
samskotum hér á landi éða á
annan hátt.
Ný aðvörun
Tvegar efnahagsfrumvarpið
kom fram varaði verklýðs-
hreyfingin mjög alvarlega. við
þeirri stefnu sem í því felst,
og sú aðvörun hefur nú verið
ítrekuð á eftirminnilegan hátt
af Verkamannafélaginu Dags-
. brún. Dagsbrúnarfundurinn á
fimmtudagirin v,ar komst þann-
ig að orði í ályktun sinni:
„Fundurinn telur að lögin um
útflutningssjóð o. fl. sem Al-
’þingi. hefur nýlega samþykkt,
feli í' ser ráðstafanir, sem á
ýmsan hátt hafi hliðstæð áhrif
og gengislækkun og muni leiða
til aukianar verðþenslu og
mikilla verðhækkana og brjóti
því í bága við þá stefnu, verð-
stöðvunarstefnuna, er verklýðs-
hreyfingin hefur márgsinnis
lýst fylgi sínu við. Af þessum
ástæðum lýsir fundurinn yfir
andstöðu sintti við fyrrgreinda
lagasetningu og telúr að verk-
lýðshreyfingia verði að vera
Véi á verði til að .fyrirbyggja
fcjaraskejúú'-g^-" •
T samræmi við þetta hefur
Dagsbrún ákveðið að gera
nú þá meginkröfu í sambandi
við framlengingu samninga að
þeir verði uppsegjánlegir hve-
nær. sem er með eins iriánaðar
fyrirvara. Með því lýsir Dags-
brún yfir því að hún telji horf-
umar svo ískyggilegar að óhjá-
kvæmilegt sé ,að félagið sé til-
búið til kjarabaráttu með lág-
marksfyrirvara, og hliðstæð
eru viðhorf annarra félaga sem
hafa sagt upp samningum sín-
um hér í Reykjavík og annars-
staðar. 'Félögin , vilja láta
reynsluna skera úr um áhrif
efnahagslaganna nýju, en þau
telja hórfurnar slíkar ,að ekki
megi hafa samninga bundna til
langs tima, ef félögin eigi að
geta fuUnægt því verkefni sínu
að gæUi kjara íélagsmanna
sinna. Að þessu þarf ríkis-
stjómin vandléga að hyggja,
ekki sízt Framsóknarflokkurinn
sem knúði fram hina alvarlegu
stefnubreytingu sem felst í
nýju lögunum.
.VA‘
AW
■V.V
SKAKÞÁTTrR
Ritstjórl:
Sveinn Knstinsson
<*>-
Svisslendingar sigursœlir
1 vor fór fram í Sviss skák-
keppni milli 6- landa í Mið-
og Vestur-Evrópu. Lönd þessi
voru Austurríki, Holland, í-
talía, Spánn, Sviss og Þýzka-
land. Löndin tefldu innbyrðis
hvert gegn öðru á fjórum
borðum og voru mögulegir
vinningar hvers lands þannig
20. Úrslitin komu nokkuð á
óvart en þau urðu þessi:
1. Sviss 13 vinningar.
2. Snánn Í2ý2 vinningur
3. Þýzkaland 12 vinningar
4. Austurríki 8l/> vinningur
5. Holland 8y2 vinningur
6. ítalía 51/2 vinningur
Flestir munu hafa talið
Þjóðverja eða jafnvel Hol-
lendinga líklegri til sigurs en
Svisslendinga.
Svisslendingar töpuðu með
eins vinnings mun gegn Þjóð-
verjum og Spánverjum, en
urinu hinar þjóðirnar með yf-
irhurðum. Spánverjar unnu
Þjóðverja óvænt með 3:1.
Af einstökum keppendum
náði þýzki meistarinn Lothar
Schmid beztri útkomu, hlaut
3i/2 vinning af 4 mögulegum.
Hollendingurinn • dr. Max
Euwe fyrrverandi heimsmeist-
ari, varð hins vegar að sætta
sig við iy2 vinning af 4.
Leifturárás, uppgjöf!
Eftirfarandi skák, sem fær
mjög sögulegan og snoggan
endi, var tefld í keppni milli
Hamborgar og Berlínar um
páskana í vor.
Lesendur munu a. m. k.
kannast við þann sem stýrir
svörtu mönnunum, Darga, því
hann hefur oftar en einu sinni
teflt við Friðrik Ólafsson á
alþjóðlegum vettvangi, og er
öflugur alþjóðlegur meistari.
Andstæðingur hans, sem bar
sigur úr býtum, er einnig-
ungur skákmaður, en lítt
þekktur utan heimalarids síns :
Hvítt: Martíus Svart: Dárga
(Hamborg) (Berlin)
Sikileyjarvörn
1. e4 c5
2. Kí3 d6
3. (14 cxd4
4. Dxd4
(Langalgengast er að drepa
hér með riddara. Þessi leikur
var þó talsvert tefldur fyrir
um það bil tuttugu árum síð-
an einkum af ungverskum
meisturum).
4. Ttc6
5. Bb5 Bd7
6. Bxcö Bxc6
(6. — bxcB er að mörgu
leyti eðlilegri leikur, til að
styrkja peðamiðborðið).
7. Rc3 e6
8. Bg5 Rf6.
9. o—o—o
(Byrjunarkerfrð er þá eftir
allt saman ekkj óáþekkt hinu
venjulega Richter árásar-
(kerfi).
9. Be7
10. e5 dxe5
11. Dxe5 Db8
Darga íeitar drottninga-
kaupa, þar sem endataflið
væri honum hagstætt ve^na
biskupaparsins),
12. De2 o—o
13. Re5 Dc7
14. Hd3 Rd5
15. Bd2!
(Auðvitað ekki 15. Bxe7?
vegna Rf4)
15. Ha-c8
16. Hh3!
(Með þessum leik tekst
Martíusi að leiða andstæðing
sinn á villigötur).
16. Rxc3
Betri leikur var 16. — Bf6
því eftir þessi uppskipti verður
drottningarbiskup hvits all-
ógnandi).
17. Bxc3 Bxg2?
(Darga hefur fengið þá
grillu í höfuðið, að hanra
geti unnið heilan hrók, en
komst brátt að raun um að
þar fer hann villur vegar,
.17. — Bf6 var nauðsynlegur
leikur).
Svart: Darga
ABCDEFGH
Wsí s iHs , W&. ^ m..
mm «iii
'i
ABCDEFGH
Hvítt: Martíus
18. Hg3! Bxhl
19. Hxg7!f
(Svartur er nú óverjandi
mát, í sí'ðasta lagi í 5. leik.
Ef 19. — Kxg7 kemur 20.
Dg4f og mátar síðan með
21. Rd7ft. 21. Rxf7ff eða 21.
Bd2 f, eftir því hvort svarti
kóngurinn fer til f6, h8 eða
Framhald á 7. síðu.
Ritsljóri: Sveinbjörn Beinteinsson
Enn er hér til umræðu
skáldskapurnútímaris, tilgang-
ur hans og boðskapur, form
og stíll. Að þessu sinni lagði
ég nokkrar spurningar fyrir
ungt skáld, Ara Jósefsson.
Ari er Húnvetningur að ætt
og uppruna, var í vetur við
nám í Menntaskólannm á Ak-
ureyri. Nokkur . kvæði eftir
Ara hafa komið í blöðum og
tímaritum, m.a. í síðasta jóla-
blaði Þjóðviljans. Ari yrkir
jöfnum höndum rímað og ó-
rímað.
Heldur þú að íslenzk ljóð-
list sé i afturför?
Nei hreint ekki. Við éigum
marga stóra spámenn á borð
við heztu fyrri alda skáld;
nægir að nefna Stein, Snorra,
Jóhannes og Guðmund. Ungu
mennimir eru efnilegir og
sumir hverjir eru þegar orðn-
ir gæðaskáld. ........
En það sem mestu máli
skiptir er að líf er í listinni.
Skáldin eru leitandi eftir nýj-
um leiðum, og leitin er oft
ekki minria virði en takmark-
ið. - - / ' ’ ' - ■
Virðist þér áð fólk hafi
lítinn áhuga á.ljóðum?
Því. miður virðist mér ljóð-
ást Islendinga grátlega lítil.
Margir láta sér nægja að lít-
ilsvirða ungskáldin. Þeir
segja gjarna, að ljóð geti ekki
verið rímlaust, enda þótt þeir
sjálfir séu algerlega sneyddir
rímskynjun. Og nú er illa
komið með ferskeytluna okkar
góðu. Hún er, að mér virðist
hætt að vera ‘almenningseign.
Þetta verður. að laga.
Bönnum sorpritin. Hættum að
iesa óþverra i útvarp. Og
f yrst og síðast: Kennum
hörnunum að njóta góðra
ljóða í skólum og í hama-
hókum. Vitur maður hefur
sagt: Listin er einsog Himna-
riki; hver sem ekki meðtekur
hana sem bam mun aldrei
njóta hennar.
Hvort mundi það vænlegra
fyrir íslenzk skáld að leggja
ræfct við sérkenni íslenzks
ljóðforms eða laga ljóðagerð
sina meir eftir tizku?
tíyer og éinri verður að
ákveða sjálfur hvaða tjáning-
• baiui kús sér. Mér
þykir það litlu skipta hvort
Ijóð er rímað eða rímlaust.
Það sem úr sker er hvort
Ijóðið er góður skáldskapur
eða leirhnoð.
Aftur á móti er tízka f
1 jóðagerð hættuleg ef hún nær
að rugla dómgreind skáldsins,
og rýra sjálfstæði. En þá
gildir einu hvort i tízku eru
sléttuhönd eða háttlevsur.
Er ljóðlistin þjóðinni til
gagns á horð við t.a.m. út-
færslu landhelginnar eða
virkjun Þjórsár, eða er þetta
aðeins hégómlegt föndur?
Eigi nærist maðurinn á
einu saman brauði. Hin svo-
nefnda sál okkar þarfnast
líka næringar eigi hún ekki að
veslast upp, og mennimir að
verða að lifandi vélum. Hvað
stoðar það Islendinga að
eignast 12 mílna landhelgi en
fyrirgert sálu sinni?
Eigi svo hörmulega að fara
að Islendingar kasti ljóðlist-
inni fyrir róða, verður Þjórsá
til einskis virkjuð. Rafmagn
getur aldrei orðið okkur
„langra. kvelda jólaéldur".
HUGSUÐURINN
1 hundrað þúsund ár
hef ég Iegið á meltunni
og| hngsnð.
Og nú veit ég>
að betra- er r
að liggja / ,.
á bákinu en magannm,
Ari Jóséfesön