Þjóðviljinn - 06.07.1958, Side 3

Þjóðviljinn - 06.07.1958, Side 3
Sunduangur 6. júlí 1958 ÞJÓÐVILJINN (3 Frétfabréf frá Frimanni Helgasyni: Hinní iöngu leið til úrslita í H.M. lauk á Raasunda Gautaborg 30. júni 1 gær, sundarfjórðungi fyrir M. 17 eftir sænskum tí.ma lauk hinni löngu og erfiðu leið að úrslitunum’ í H.M.-keppn- inni 1958. í þessu mikla kapp- hlaupi vildu 53 þjóðir taka þátt og höfðu tilkynnt það áður en tíminn sem settur var rann út, og kapphlaupið átti að standa ár og vel það. Fljótt tóku löndin samt að skerast úr leik, og það áður en tii sjálfra átakanna kom á vellinum. Kýpur, Formósa, Egyptaland, Tyrldand og Venezúela drógu sig til baka áður en til kennni kom, og voru þá 48 þióðir eftir. Sví- ar og Þjóðverjar þurftu ekki að leika i undanrásum, þeir gátu farið beint í keppnina. Enn dróa-u síg til baka án þess að til leikja kæmi: Guate- mala, Indónesia og Súdan af ýmsum ástæðum. 89 leikir í forkeppni. 5.5 millj. hoTft á Áður en leikirnir hófust hér i Svíbjóð voru leiknír 89 leikir viða um heim i for- ' kepnni. Talið er að um fimm og ihálf millión hafi horft á leikina af áhorfendapöllum, og það líka talið með hér í, Sviþjóð. Til jafnaðar kemur þá á leik um 45 þús. manns. Á kennnina í undanrásun- um horfðu um 4.550.000 manns eða að meðaltali vim 50 þús. á leik. Leikirnir hér hafa því heldur dregið niður meðaltöluna, þar sem hér eru minni leikvangar, en t.d. í Brasiliu þar sem um 200 þús. horfðu á Brasilíu—Perú! tír- slitaleikinn hafði Sviþjóð dregið 182.021 áhorfanda, Sovétrikin 176.597 og Bras- ilia 164.346. 12 milljónir kornu inn Léikvangurinn hér, Ullevi, dró að sér flesta áhorfendur eða tæp 300 þús. Rásunda var næst með rúm 230 þús. Flest- ir komu til að horfa á Sovét- ríkin—Bra'siliu eða 50.928 og er það met í Svíþjóð. Eru brúttótekjur nokkru meiri en þær voru taldar vera Brasilíu 1950, en til bess tíma voru það hæstu brúttótekjur af H.M. móti. Er talið að sam- bandið græði eitthvað á aðra milljón á fyrirtækinu. _______ 126 mörk skoruð í lokakeppninni T lokakeppninni hér hafa alls verið skoruð 126 mörk í þessum 35 leikjum sem fram fóru. Fimmtíu og níu leikmenn hafa skorað mörk á mótinu hér. Flest hafa þessir skorað: hér. Flest hafa þessir skorað: Fontaine 13, Rahn V-Þýzka- Iandi og Pele Brasilíu 6 hvor. Fimm mörk hafa skorað: Mc Parland Norður-írland, Vava Brasiliu, Agne Simonsson Svíþjóð. Fjögur mörk hafa skorað: Tichi Ungverjaland, Kikan Tékkcslóvakía, Hamrin Svíþjóð. Á fyrsta H.M.-mótinu sem haldið var í, Uruguay 1930 voru skoruð 70 mörk. Þegar það var á Italíu 1934 og ítalir unnu, voru skoruð 65 mörk. I Frakklandi fór mótið fram 1938 og voru þá skoruð 86 mörk, og Italir unnu þá líka. í Brasilíu 1950 voru skoruð 80 mörk en þá vann Uruguay, og 1954 vaoru skoruð 131 mark, en þá unnu Þjóðverjar sem kunnugt er. Pele fékk rússneskan bikar Nokkru á£ur en keppnin hér hófst var það tiikynnt op- inberlega að rússneska blaðið Trud ætlaði að gefa bikar yngsta þátttakandanum í því liði sem sigraði. 1 hófi á eftir leikinn var Pele formlega af- hentur bikarinn, en hann er 'sem kunnugt er aðeins 17 ára, leikur fyrir Santos og er tal- ið mesta knattspyrnumanns- efni sem komið hefur fram. Brasilíumenn fara heiin á morgun í eoinkaflugvél forsetans Á morgnn leggja hinir hamingjusömu heimsmeistarar af stað heim til sin og gera ráð fyrir að koma heim á fimmtudaginn. Þegar sigurinn varð heyr- um kunnur í Brasilíu var flug- eldum skotið um gjörvallt landið, fánar dregnir að hún hvarvetna. Götur höfuðborg- arinnar voru einn gleðileik- vangur, og víða annarsstaðar. Forseti landsins ætlar að senda flugvél sína. til að sækja piltana til Sví.þjóðar, og flytja þá til Rio, en þar verð- ur tekið á móti þeim með kostum og kynjum. Þeir hafa þegar fengið fjölda gjafa, eins og sjónvörp, ársforða af benzíni á bila sína, en þeir eiga allir bíla. Þeir hafa einnig fengið fyrirheit um stórgjafir þegar þeir koma heim frá stórfyrirtækjum' sem nota þetta í auglýsingaskyni. Sænfeka landsliftið fær orftu 1 dag var tilkynnt hér að ríkisstjórn Sviþjóðar hefði á- kveðið að heiðra landsliðið sænska fyrir frábæra frammi- stöðu i heimsmeistarakeppn- inní. Er það orða af 5 gráðu og skulu aílir þeir sem hafa leikið í undanúrslitum og úr- slitum vérða þessa heiðurs að- njótandi. Hvenær orðan verður afhent Pele var yngsti maðurinn í Brasilíuliðinu, og fékk sérstök lieiðursverftlaun frá Moskvu- blaðinu Trud. formlega er ekki enn ákveðið en það verður tilkynnt síðar opinberlega. Sex létu lífið í Brasilíu er fréttin barst Mikið vr um dýrðir þegar úrslitin komu, en það hafði líka þá sorglegu hlið að 6 menn létu lífið í sambandi við fréttina. Milljónamæringur nokkur var svo yfir sig hamingju- samur að hann mátti til með að sparka utan í bifreið sem nærri honum var, en eigandi bifreiðarinnar var ekki eins mikill áhugamaður um knatt- spyrnu. Tók upp skammbyssu sína og skaut hinn hamingju- sama milljónamæring. Ricife lauk lífi blaðamanns nokkurs með því að hann fékk kúlu í sig, en þeir tveir kýttu um það hver hefði verið nyt- samasti maðurinn í liði Brasil- í,u í keppninni i Sviþjóð. Tvö börn, 4 og 14 ára, urðu fyrir kúlum sem sluppu einhvern veginn fram úr hlaupinu, en ekki er nefnd ástæðan eða hvernig það vildi annars til. Herramaður nokkur hafði í tilefni af sigrinum fengið sér glas, en varð víst heldur mik- ið úr og i viðureign við lög- regluna fékk hann skot og þar með var það búið. Sjóliðsforingi nokkur 58 ára gamall dó með nokkuð öðrum og kannski eðlilegri hætti. Hann fékk hjartaslag þegar Brasilíumenn skoruðu 4 markið. Og knötturinn veltur og veltur og Áður en blístra dómarans á Rásunda kvað síðast við, Var byrjað að undirbúa næstu heimsmeistarakeppni, en hún á að fara fram í Chile árið 1962, og er undirbúningurinn í fullum gangi. Fulltrúí frá Chile hefur verið hér síðan í mai til þess að kýnna sér framkvæmdina eins og Svíar hafa hána. 1 Chile er mikill áhugi á knattspvrnu og er því. spáð að þar komi fleiri til þess að horfa á en nokkru sinni fyrr. Þar eru ekki taldir möguleik- ar að nota sjónvarp að ráði, það hindraði mjög að fólk kæmi til að horfa á leiki og telja Svíar að þeir hafi tapað 2 millj. króna á sjónvarpinu. Chile er of fjöllótt fyrir sjón- varp. 1 Chile eru um 7 milljónir íbúa, og framkvæmdanefndin þar gerir ráð fyrir að sam- keppnin verði mikil um knatt- spyrnuunnendurna. Gert er ráð fyrir þegar að 1.4 millj. komi til að horfa á leikina á H.M. þar (970 þús. í Brasil- íu). Þegar reiknað er með þessari tölu er gert ráð fyrir að mikill fjöldi manna frá hinum Suður-Ameríkulöndun- um fari til Chile, og þá sér- staklega frá Brasilíu og Arg- entínu. Þeir gera ráð fyrir að fá inn allt að sem svarar 15 millj. sænskra króna, en það er það sem gera má ráð fyrir að það kosti að sjá um keppnina. Engir smápeningar. Aðalleikvangurinn er í höf- uðborginni Santiago sem hef- ur 1.8 millj. íbúa og sá leik- vangur á að geta tekið á móti 100.000 áhorfendum. Fram- kvæmdin á leikjunum er talin munu verða með sama sniði og var í Svíþjóð, þannig að þar fari fram að lokum 32 leikir. Ákveðið er að leikirnir fari fram i þessum stöðum og eru tölurnar ibúafjöldinn og áætl- aður fjöldi sem kemur til að horfa á leikina. Antofagasta 186.000 25,000 La Serena 266.000 25.000 Santagio 1.800.000 100.000 Valparíso 500.000 45.000 Garancaua 25.000 Vino del Mar 25.000 Talca 175.000 25.000 Concepcion 414.000 40.000 Vegalengdir eru miklar í landinu, þar sem það er um 4200 km á lengd, en milli nyrzta og syðsta keppnisstað- ar eru um 2000 km, og er það nú allt nokkuð. Þeir þar syðra eru ekkert hræddir við þessar vegalengd- ir, þó hafa þeir gert ráð fyr- ir að flestir leikirnir fari fram í höfuðborginni og borgunum næst henni, eða 13 leikir í Santiago. Allir vellirnir fyrir utan Santaigo eru í um 300 m hæð yfir sjó svo Evrópumenn þurfa ekki að óttast loftslags- breytingarnar. Loftslagið er mjög gott, dagar hlýir, en svalar nætur og þvi gott að sofa þar, sagði fulltrúi þeirra er hann skýrði frá þessu hér, en hann heitir Charles Ditt- born. Keppnin á að fara fram i maí og júni 1962. I Chile eru tvö knattspyrnu- sambönd annað fyrir áhuga- menn en hitt fyrir atvinnu- menn. 1 fyrstu deild leika 14 lið en í annarri 10 iið. Áhugamannasambandið sam- anstendur af 174 héraðssam- böndum og hvert þeirra hef- ur minnst 10 féirig. Mestur fjöldi áhorfenda á venjulegan leik er 60.1000 Chile hefur aldrei sigrað Arg- entínu en það hefur unnið Brasiliu i knattspyrnukeppni. TIL liggnr leiðÍD Hjólbarðar og j slöngur r| Klapparstíg 20, ^ sími 17373, frá Sovétríkjunum fyrir- 1 liggjandí í stærðunum: 560x15 i 700x15 t 500x16 600x16 650x16 750x16 i 750x20 ’ "! 825x20 ' ' "1 100x20 : -rrj 1200x20 "** Mars Trading Company, i » ÍSLANDSMÓTIÐ Alltaf skeftur eitthvaft nýtt, — Allir út á völi, Dómari: Magnús Pétursson. Línuverðir: Gunnar Aðalsteinsson og Valur Benediktsson. MÓTANEFNDIN. í kvöld kl. 8.30 leika FRAM - K. R. á Melavellinum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.