Þjóðviljinn - 06.07.1958, Side 5
Suður í Evrópu miðri andað-
iát fyrir skömmu ein merkust
íslenzkra kvenna. Barónsfrú
Ásta von Jaden lézt að heimili
sinu Wallrisstrasse 72 í Vínar-
borg, Austurríki, þann 12. júní
þessa árs, og hefur verið graf-
in í „Grinzinger Friedhof" þar
í borg.
Auðvitað hlaut hún að bíða
dauða sem annað fólk, þótt
annars væri einstök um flest.
Saga hennar var orðin löng
og svjð þeirrar sögu nú í hart-
nær sextíu ár fjarri okkar
gamla landi, er átti þó alla
dýpri strengina í því brjósti,
sem nú er hætt að vera.
Fædd var Ásta i Reykjavik
5. dag októbermánaðar árið
1876. Voru foreldrar hennar
þau hjónin Pétur Pétursson
síðar bæjargjaldkeri og bruna-
málastjóri í Reykjavík, er ætt-
aður var úr Skagafirði, og
kona hans Anna Sigríður Vig-
fúsdóttir Thorarensen. Móður-
amma Ástu var Ragnheiður
systir Páls sagnfræðings Mel-
steð og þeirra systkina, sem
aftur voru dótturbörn Stefáns
amtmanns Þórarinssonar á
Möðruvöllum. Var sá frænd-
garður fjölmennur og þar
margt góðra manna.
★
Bernsku- og æskuár sín átti
Ásta í foreldrahúsum. Stóra
húsið á Smiðjustíg 5, þar sem
móðirin talaði frönsku til jafns
við hvem erlendan hefðargest,
— og Reykjavík siðasta fjórð-
ungs 19.' aldar með rennandi
læknum, fáeinum krambúðum
og Vaknandi menningarþorsta.
Hér óx sú verðandi barónsfrú.
Á barnsaldri skauzt hún til
að lesa fyrir frænda sinn Sig-
urð Melsteð prestaskólakenn-
ara í Biflíunni, en hann var þá
blindur orðinn, og það var
sama hvar telpan nam staðar
— gamii frændi kunni alltaf
framhaidið. Svo var þetta orð-
in fallegasta stúlkan í Reykja-
vík, því að það hlýtur hún að
hafa verið.
Og hingað kemur einn glæsi-
legur barón úr fjarlægu landi.
Þá var Ásta tuttugu vetra.
Máske hafa þau mæzt á Lauf-
ásveginum. Um slíkt veit auð-
vitað .enginn. En frá þessu
sumri var Ásta manni bundin.
Ævintýri, dettur manni í hug,
en veruleiki þó, því að þegar
stórskáldið og glæsimennið,
sem aiiar konur vildu átt hafa,
biður um hönd hennar á næsta
vetri, þá veifar heimasætan á
Smiðjustig 5 bréfum frá sínum
góða barón Hans, svo að ekki
tjáir eftir að leita.
Skömmu síðar, þá er tæpt ár
lifði 19. aldar, stóð brúðkaup í
Frúarkirkju í kóngsins Kaup-
mannahöfn. Þar var Ásta Pét-
ursdóttir gefin barón Hans von
Jaden frá Vínarborg, og flutti
hann nú sína ungu brúði til
síns heima.
Þaðan í frá renndu stórskáld
og spekingar Reykjavíkur
sjaldnar augum sínum um
Smiðjustíginn.
★
En hvað segir af hinni burt-
numdti mær, er nú var orðin
barónsfrá vön Jaden? Verður
. ekki það, sem er stórt á
Sunduangur 6. júlí 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Smiðjustíg um aldamótin,
smátt á hringstrætum milljóna-
borga? — Vissulega ekki. Því
til sönnunar hefur sú kona lif-
að, sem nú er gengin. Nær sex-
tíu urðu árin, sem barónsfrú
Ásta von Jaden hélt merki á
lofti í borginni við Dóná.
Það var merki Islands.
Þar var á haldið með þeim
glæsibrag að vel sómdi því
landi, sem bezt var alíra landa.
í sölum erlendra stórmenna
gekk þessi íslenzka koná við
hlið mauns síns. Þar leit marg-
ur íslending í fyrsta sinn. Og
ef einhver hefur áður álitið,
að hér byggi lítilsigld þjóð,
heimskt fólk, Ijótar manneskj-
ur eða vondar — þá er eitt
vist, að allir slíkir þankar hafa
hverfst í andstæðu sína við
kynni af þessum keika merkis-
bera.
Þá, sem koma úr óbrotnu
umhverfi í tignari og verald-
arvanari manna félag, hendir
tíðum að verða annað tveggja
lítilþægir eftirapar ellegar út-
úrborulegir sérvitringar. Ákaf-
lega var það langt frá Ástu
von Jaden að steita á slíkum
skerjum. Hún kunn full skil á
háttvísi og siðum tiginna
manna, svo sem henni hefði
ætíð verið slíkt í blóð borið,
en um uppruna hennar gat
heldur enginn villzt. Þvilíkur
skapgerðarstyrkur er fáum
gefinn.
Frá því Ásta settist að í Vín- .
arborg 1899, kom hún aðeins
tvisvar heim til stuttrar dvalar
dómari við landsréttinn i Vin-
arborg, lézt fyrir allmörgum
árum. Þeim hafði ekki orðið
barna auðið, og bjó Ásta ein
hin síðustu ár.
Alla þá áratugi, ér Ásta var
búsett í Vínarborg, var heimili
hennar opið því íslenzku fólki,
sem að garði bar. Varð sá hóp-
ur allfjölmennur áður en lauk,
og hygg ég, að margir hafi
orðið manneskjur nokkru að
meiri við kynni af húsmóður-
innj á þeim bæ.
Nú síðustu árin var jafnan
nokkur hópur íslenzkra náms-
manna í Vínarborg. Ýmsii
skamman tíma, aðrir lengur,
og gerðist hver einn góðvin-
ur þessarar öldnu heiðurskonu.
Þá var hún um áttræðisaldur,
en af henni fóru þær spurnir,
að hennar vegna varð ungum
mönnum héðan úr norðri kom-
an þangað suður hálfu eftir-
væntingarfyllri en ella hefði
verið. Enda var það svo, að
við hliðina á Ástu von Jaden
virtust flest stórborgarundur
sem hjóm og aska.
Okkur öllum var Ásta þjóð-
ernislegur helgidómur, öryggis-
stólpi og vonargjafi á hverful-
um tímum Hana var aðeins
Vegna dauða barónsfrúar Ástu von Jaden
„Eg kenndi peim að
hafa respekt á íslandi”
og aldrei efíir heimstyrjöldina
fyrri. Samt heyrði það enginn,
er þessi kona mælti á íslenzka
tungu, að sú hefði verið lengur
úr heimahögum en nokkrar
vikur. Svona mikil var ást
hennar á því, sem íslenzkt er,
og ef til vilL var það einmitt
þess vegna, að hún dó án þess
.að gera ferð sína enn á ný
hingað á norðurslóðir.
Auðvitað hlýtur svo greindri
konu að hafa verið Ijós áhætt-
an- sem í því getur falizt, að
leggja sina dýrustu hugarsýn
undir harðneskjulegan dóm
veruleikans.
„Okkar tunga er elzta lifandi
tunga í Evrópu“, voru töm orð
Ástu von Jaden. Af vörum
slíkrar konu hlaut sú setning
að hljóma með auknum styrk.
Hér fór íslendjngur, sem með
eigjn ævigöngu gerði skiljan-
legan leyndardóminn við varð-
veizlu þjóðernjs okkar og
tungu um aldimar. .
Eiginmaður Astu, ba’roirTIans
von Jaden, sém .ýérið ' líáfðí-
hægt að nálgast í auðmýkt.
Veruleiki hennar var öllum
rökum æðri.
Litli íslendingahópurinn var
vanur að koma saman í boði
hennar við eitt borð. Menn
skipfust á um að sitja hið
næsta hennl. Ræðuhöld voru
henni ekkl eiginleg, en hún
þurfti að tala við hvem og
einn, og allir þurftu að tala
við hana. Tungutak Ástu var
íslenzkt mál 19. aldar. Eitt og
eitt danskt orð, — sími eða
bíll voru jú ekki til á fslandi
á hennar heimaárum. Svona
lengi hafði hún verið í burtu.
H'vað hún hafð'i að segja
verður ekki rakið hér. Og það
var máske ekki aðalatriðið,
heldur nærvera hennar ein. Ég
vona að þetta hafi einnig verið
hennar góðu stundir. Hún var
líka smávegis hreykin af okk-
ur. Við vorum jú svo stór og
myndarleg — öll yfjr einn og
áttatiu og mörg jafnvel ekki
laus við að vera pínulítið gáf-
uð.
Svo þegar upp var staðið sat
barónsfrú Ásta von Jaden á-
'• valt éin eftir. Við hittumst á
Vertshúsi, en enginn mátti
fylgja henni heim. Þannig voru
þær reglur, sem skapazt höfðu
í samskiptum hennar við landa
sína.
Hlutu ekki allir að sjá, að
þá sem eftir sat þekkti í raun-
inni enginn þrátt fyrir allt?
★
Ég var síðast gestur á heim-
ili Ástu von Jaden fáum dög-
um fyrir dauða hennar. Henni
var þá hvergi brugðið. Hér var
safn muna og mynda. í köldu
stofunni horfðust þeir í augu
Skagfirðingurinn Baldvin Ein-
arsson og líflæknir síðasta
konungsins af Póllandi, því að
hér höfðu hjónin bæði verið
stórrar ættar. íslenzka fálkann,
skjaldarmerki Lofts ríka, hafði
húsbóndinn skorið í stól konu
sinnar. Dómarinn látinn, barón
Hans von Jaden, hafði verið
þjóðhagasmiður, og vitnar um
það fjöldi dýrmætra tnuna úr
búi þeirra,
Og sem ég sat þar í stofUnni
kom þar spjalli okkar, að við
ræddum Um skandinaviska
klúbbinn I Vínarborg. í því
samfélagi höfðu víst ýmsir
herramenn haft tilhneigingu til
að virða ísland lítils eins og
oft vill- verða. Hafði Ásta hér
um nokkur orð og bætti síðan
við: — „En ég kenndi þeim að
hafa respekt á íslandi".
Það voru sönn orð, og urðu
margir hennar lærisveinar. Nú
verða þeir ekki fleiri. Baróns-
frú Ásta von Jaden er dáin.
En þar með er ekkj sagan
811. Ekki öll, af því að fyrir
okkur, sem vorum samvistum
henni, var hún meira en ein
kona, sem lifir og deyr. Hún
var tákn þess, sem hafið er
yfir kynslóðimar, er koma og
fara, hinna varanlegu eðlis-
þátta, er markað hafa ásýnd
okkar þjóðar í þúsund ár.
Hitt er nú harmsefni, að ekki
munu fleiri ungir rnenn og
konur eiga fund með baróns-
frú Ástu von Jaden, því að
nú þarf margar hendur til að
lyfta því merki, sem hún bar.
Einlæga þökk og djúpa
virðingu okkar hennar yngstu
vina ber ég fram hér að leiðar-
lokum.
Kjartan Ólafsson.