Þjóðviljinn - 02.08.1958, Page 8
Bandaríkin halda enn áfram 'Pdtur sksast
* i • ^ i i r Y n ií Neskaupstað
ao skipa iiði a land i Libanon
Bandaríkjemenn skipuðu enn I gær liði á iand í Líb-
anon. Um 1800 bandarískir hermenn gengu á land við
Beirut, en til landsins voru áður komnir um 10.000
Þessir liðsflutningar benda þess að Bandaríkjamenn flyttu
ekki til þess að Bandaríkja-; burt allan her sinn. Uppreisn-
menn ætli sér að hætta af-
skiptum sínum af innanlands-
málum Líbanons, enda þótt
armenn hafa enn , einu sinni
boðað vopnahié, en taka þó
jafnframt fram að þeir muni
dvöl þeirra í landinu sé aðeins ekki leggja niður vopn, fyrr
til þess fallin að koma í veg
fyrir samkomulag milli deilu-
aðila þar.
Saeb Salam, leiðtogí upp-
reisnarmanna, sagði í gær að
hann bæri fyllsta traust til
Shehabs, liins nýkjörna forseta,
en forsetinn yrði að krefjast
en Bandaríkjamenn séu á brott.
Fréttaritarar í Beirut telja
sig hafa ástæðu til að ætla
að Shehab muni láta það verða
fyrsta embættisverk sitt að
skipa Bandarikjamönnum úr
landi.
Mikið tjón af völdmn roks
og flóða í Mið-Evrój)H. - ,
A.m.k. 16 menn biðu bana og mikið tjón varð á mann-
virkjum þegar vöxtur hljóp í fjallalæki 1 héraðinu Kárn-
ten í suðausturhluta Austurríkis I fyrradag.
Við bæinn Millstatt gekk flóð
yfir tjaldborg ferðamanna og
sópaði mörg hundruð tjöldum
og um tíu bílum út í vatnið
Millstátter See.
Miklar flcðbylgjur gengu
annars staðar á land við vatnið
og skoluðu burt tjöldum. Flóð-
dn urðu mjög skyndilega, um
það leyti sem ferðamenn voru
að snæða kvöldverð. Vitað er
um átta tjaldbúa sem drukkn-
uðu, þaraf tveir í Bodendorf
og fjórir í Radenthein.
Flóðin eyðiVigðu einnig
mannvirki, skoluðu burt sex
ihúsum, en skemmdu um 150.
Trjábolir sem rifnað höfðuupp
með rótum ultu með ofsahraða
niður fjallshlíðarnar og eyði-
lögðu allt sem á vegi þeirra
varð. Miklar skemmdir urðu á
vegum og brúm, en samtals er
eignatjónið metið á um 50 millj-
ónir schillinga.
Mikið óveður geisaði í gær í
Þýzkalandi. Fellibylur gekk yf-
ir Bonn og olli miklu tjóni.
Ofsarok var einnig í Frankfurt
og stöðvaðist öll umferð um
borgina um stund.
Miklir hitar voru víða á meg-
inlandinu í gær. Þeir mestu á
sumrinu. I Frankfurt var hit-
inn 31 stig, og enn meiri suður
á ítalíu.
Leiðangur að Þórisvatni til
jarðfræðilegra atliugana --
í sambandi við lyrirhugaðar virkjunar-
íramkvæmdir
Á vegum Raforkumálaskrifstofunnar er nú áö leggja
upp leiðangur að Þórisvatni, sem mim dvelja þar í 1—2
vikur við jarðfræðilegar athuganir og leit að stein-
steypuefni í sambandi við fyrirhugaðar virkjanir á því
svæði.
Þjóðviljinn hafði í gærkvöldi
tal af Jakobi Bjömssyni, verk-
fræðingi hjá Raforkumálaskrif
stofunni, og skýrði hann svo
frá, að í leiðangri þessum yrðu
9, menn, þ.á.m. Sigurður Thor-
oddsen verkfræðingur, Guðm.
Kjartansson, jarðfræðingur og
Neskaupstað í gærkvöld. Frá
fréttaritara Þjóðviljans.
Laust fyrir kl. 5 í dag varð
það slys, að 14 ára drengur,
Friðrik Guðmundsson Hafnar-
braut 36, féll af palli á lönd-
unarkrana síldarverksmiðjunn-
ar, þegar verið var að landa
síld. Féll Friðrik á færibönd-
in og slasaðist mikið, en ekki
er enn vitað hve meiðslin eru
alvarleg. Friðrik var fluttur í
sjúkrahúsið þegar er honum
hafði verið náð úr böndunum.
Nokkur skip landa
Neskaupstað í gærkvöld.
Frá fréttaritara Þjóðv.
I gær lönduðu hér Gullfaxi
NK 200 tunnum og Glófaxi NK
400. 1 dag lönduðu Víðir II.
GK 500, Suðurey VE 300, Gló-
faxi NK 400, Langanes NK
200, Þorlákur 150, Gissur hvíti
150 og Þorbjörn GK 300. —
Síldin veiddist á Reyðarfirði.
g>fðÐVUJTNN
Laugardagur 2. ágúst 1S58 — 23. árgangur — 171. tölublað.
Rústir Eyvindarkofa.
íhÍÍhiiÍJQ 010
Ef litið er upp
Spreopani ödáðafaraim og Öskju
Guðmundur Jónasson, sem opnaði þessa leið
íyrir 8 árum leggur aí stað n.k. laugardag
Eftir viku, eða 9. þ. m. leggur Guðmundur Jónasson
af stað í för um skemmtilegustu leiðina yfir öræfi íslands.
ÞJÖÐVILJANN
vantar ungling til
blaðburðar við
SÓLVALLAGÖTU
Guðmundur Pálmason, verk-
fræðingur, sem mun kanna
dýpi á klöpp með jarðeðlis-
fræðilegum mælingum, sem
framkvæmdar eru á svipaðan
hátt og þegar leitað er eftir
heitu vatni. Það er mikilsvert
að kynna sér , hvort nægilegt
steinsteypuefni er þarna fyrir
hendi, sagði Jakob til að gera
sér Ijósan kostnað við virkjun-
ina, því það er mikilvægt át-
riði, að ekki þurfi að flytja
byggingarefni langan veg. Sig-
urjón Rist er einnig með í þess-
ari för og mun hann mæla bet-
ur einstaka staði í Þórisvatni
í sambandi við virkjanirnar, en
hann hefur þegar gert mæling-
ar þar, sem kunnugt er.
Leiðangur, sem var á Jök-
ulsá á Fjöllum, vann að svip-
uðum rannsóknum, sem nú er
verið að vinna úr. Þeir munu
hafa fundið eitthvað steypu-
efni. Þessi sama leiðangur,
sem nú er að fara til Þóris-
vatns, mun síðar í sumar gera
samskonar athuganir við Hvít-
árvatn, sagði Jakob að lokum.
Ef menn gefa sér tíma- til
að líta upp þegar þeir eru á
gangi í hænum, þá má sjá
marga skrýtna hluti. Hér er t.
d. mynd af húsparti og sýnir,
hvað mikið var lagt upp úr
ytra útliti húsa á vissu tííma-
bili í byggingasögu okkar. Það
er ékki svo lítil vinna sem ligg-
ur í svo kostbærum útskurði
— Hvar skyldi svo þetta hús
vera?
Fyrst liggur leiðin í Land-
mannalaugar, þaðan yfir
Tungnaá og á Veiðivatnasvæð-
ið, með Þórisvatni, yfir Köldu-
kvísl, um Illugaver og Ejvind-
arver í Jökuldal, og Vonarskarð
og Sprengisand og austur að
Gæsavötnum. Þaðan liggur
leiðin um Ódáðahraun, austur
með Vatnajökli að Kistufelli, en
þvínæst skemmstu leið í Öskju.
Forsetahjóniii
heimsækja Norð-
ur-Isafjarðarsýslu
Ásgeir Ásgeirsson forseti Is-
lands og Dóra Þórhallsdóttir
forsetafrú fara í opinbera
heimsókn til Norður-Isafjarðar-
sýslu nú um helgina. Munu
þau koma að Reykjanesi við
ísafjarðardjúp á morgun,
sunnudag, og verður þar opin-
ber móttaka kl. 4 síðdegis, en
í Bolungarvík verður móttaka
á mánudag.
1 fylgd með forsetahjónunum
á þessu ferðalagi verður Har-
aldur Kröyer forsetaritari-
nm 214 millj. á fpa árskelmingi
I júní s.l. nam útflutningurinn 104,2 millj.
en innflutningur 101,8 milljón krónum
Vöruskiptin viö útlönd voru íslendingum hagstæð í
júnímánuði s. 1. um 2,4 millj. kr. Út voru fluttar vörur
fyrir 104,2 millj. en inn fyrir 101,8 millj. kr., þar af voru
flutt inn skip í mánuðinum fyrir 38,4 millj. kr.
1 júnímánuði í fyrra var
vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæð
ur um 80,9 millj. kr. Þá voru
fluttar út íslenzkar afurðir
fyrir 58,5 millj. kr., en inn-
flutningurinn nam 139,4 millj.,
þar af voru skip flutt inn i
mánuðinum fyrir 19,5 millj. kr.
Á fyrra helmingi þessa árs
hefur vöruskiptajöifnuðurinh
við útlöiui orðið óhagstæð-
ur mn samtals 214,2 inillj.
liT. Út hafa verið fluttar
vörur fyrir 467,5 millj. en
inn fyrir 681,8, þar af skip
fyrir 38,4 millj.
Fyrstu sex mánuði sl. árs
var vöruskiptajöfnuðurinn ó-
hagstæður um 146,8 millj. kr.
Þá höfðu verið fluttar út ís-
lenzkar vörur fvrir samtals
466 millj. kr. eða 1.5 millj.
kr. minni upphæð en nú, en inn-
flutningurinn nam á tímabil-
‘inu um 613 millj. kr., rúmlega
69 millj. kr. minna eh nú.
Dvalið verður fjóra daga um
lcyrrt í ferðinni: í Jökuldal
(Nýja dal) Öskju, flerðubreiðar
lindum og við Mývatn. Geta.
menn þá valið um hvort þeir
vilja hvíla sig eða skoða um-
hverfið — jafnvel gert hvort-
tveggja-
Guðmundur Jónasson hefur
farið þessa ferð á hverju ári
síðan 1951. Segja má að tíma-
mót hafi orðið í ferðum um
hálendið árið 1950 þegar hann
fann bilfært vað á Tungnaá —
Hófsvað — 1950 fór hann í
bílnum yfir Tungnaá, á Veiði-
vatnasvæðið, og var það í
fyrsta ískipti að sú leið var
farin í bíl. Með þessu opnaðist
leiðin yfir Köldukvísl og þaðan
áfram til Norðurlands. Eftir
að Guðmundur Jónasson opnaði
Framhald á 2. eíðu
Aldrei í manna
niinnum byggt
eins mikið og nií
Borgarnesi. Frá fréttaritara
Þjóðviljans.
Aldrei í manna minnum hefur
verið byggt eins mikið hér í
Borgarnesi og gert er í sumar.
Á þessu ári eru í smíðum
a.m.k. 25 íbúðir og eru þar
m.a. sex íbúðir í sambyggingu,
sem byggingarfélag verka-
manna er að byggja, sem verð-
ur ein hæð og loft.
Auk þessa eru tvö stórhýsi
í sm'íðum, er annað þeirra hús
sem Kaupfélagið er að byggja
fyrir starfsemi sína, en grunn-
flötur þess er 42x24 metrar.
Ferð ÆFR
Þeir, sein ætla að fara. með
Æskulýðsfylldngunni í Þórs-
mörk og eiga pantaða miða,
verða að sækja þá fyrir 10
f.h. því annars verða þeir selfl-
ir öðrum. — Einnig er fólk
beðið að mæta timanlega í
Tjarnargötu 20 með farangur
sinn til þess að hægt sé að
leggja af stað stundvíslega kl.
2 e. h. — Klæðið ykkur vel.