Þjóðviljinn - 31.08.1958, Page 7
Sunnudagur 31. ágúst 1958 — ÞJÓÐVILJINN >— (7
Brezkum togaraskipstjórum fyrirskipaS a𠥩ra
utan 12 mílna nema í fylgd með herskipum
ÚtgercHarmenn /e//ooð llkurnar á oð upp komht um landhelgisbrjóta
v/ð ísland muni margfaldast þegar 12 milna landhelgm tekur gildi
Það er nú komið á daginn að brezkir útgerðar-
menn hafa gefið skipstjórum sínum fyrirmæli um
að hætta sér ekki inn í 12 mílna landhelgi við
Island. Þeir telja að líkurnar á að upp komist um
landhelgisbrjóta muni margfaldast þegar 12 mílna
landhelgin gengur í gildi.
Frá þessu er skýrt í skeyti
frá fréttaritara The Times í
Hull 24. ágúst. Þar segir svo:
„H*ngað til hafa togaraskip-
stjórar fylgt þeirri feglu að
þeir hafa hæ1t sér inn fyrir
landkelgistakmörk við Island
semi ekki liafa hlotið alþjóða-
viðurkenningu (Aths. Þjv.: Hér
mun vera átt við 4 mílna mörk-
in). Vemjan hefur verið sii að
gagnkvæmar tryggingar tog-
aiaeigenda hafa staðið straum
af háurn sektardómum ís-
lenrkra, dómstóla og upptöku
veiðarfæra. Togaraeigendur
hafa Því yfirleitt ekki gert sér
rellu út af því hvaðan góður
aflafengur kom.
Nú er áhæítan talin liafa
margfaldazt' svo að allir skip-
stjórar eru varaðir við því
munnlega að fara inn fyrir 12
míína takmörkin, nema þeir
séu undir vernd herskipa eða
í grennd við fylgdarskip úr
flot.anum. Skipstjórar sem
teknir verða að veiðum upp
á sitt eindæmi innan takmark-
anna geta átt á hættu að þeir
fái ekki að sigla skipi sínu
undir vernd liinna gagnkvæmu
trygginga“.
Brezki flotinn sem
bingrað kemur
Daily Telegraph skýrir frá
þvi að fiskiverndardeild brezka
flotans sé nú i Rosyth, en sé
nú á förum til íslands. •D.eildin
hefur nýlega verið endurskipú-
lögð. í henni eru m.a. þrjár
nýjar freigátur, Eastbourne,
2.200 lesta, Pallister og Russ-
ell, 1.100 lesta hvor, og 1.100
lesta tundurduflaslæðari,
Hound, og- er hann byggður
Sír Farndale Philips,
forrhaður samtaka brezkra tog-
araeigenda og fyrrverandi her-
foringi.
1942. Auk þeirra eru í deild-
inni sex minni skip, sem að-
eins geta verið stuttan tíma
á sjó. Það er því sennilegt að
skipin sem sigli norður verði
þau fjöguf sem áður voru
nafngreind. Af vopnabúnaði
þeirra er aðeins minnzt á
djúpsprengjur sem sagt er að
hægt sé að skjóta yfir ■ stórt
, .
svæði af mikilli nakvæmru.
„Sambands-
foringjar'4
Daily Telegraph skýrir
einnig frá þvi að tveir gamlir
togaraskipstjórar sem gerþekki
miðin við ísland, en nú hafa
látið af störfum, James Dark-
ins og Jack Mawer, muni fara
með brezku herskipunum til ís-
iands og verða eins konar
,,sambandsforingjar“ milli
þeirra og togaranna. Annars
staðar hefur verið skýrt frá
því að Jack Enevoldsen, ritari
félags yfirmanna á togurum í
Hull, muni verða ráðgjafi
brezka flotans. Á það hefur
einnig verið bent að sir Farn-
dale Phillips, sem nú er for-
maðui’ brezkra togaraeigenda,
sé hershöfðingi að nafnbót og
hafi gegnt herþjónustu í land-
gönguliði flotans!!
í brezkum blöðum hefur að
undanförnu verið talað um að
á annað hundrað brezkir tog-
arar myndu verða hér við land
þegar landhelgin verður stækk-
uð og að þeir myndu allir
reiðubúnir til að sigla inn fyr-
ir 12 mílna takmörkin í fylgd
herskipa.
Verða brezku tog-
ararnir aðeins 50
Nú herast hins vegar frétt-
ir uni aó brezku togararnir
sem kunna að sigla inn fyrir
12 mílna mörkin í skjóli her-
skipa muni a.m.k. verða miklu
færri en talað hefur verið um
í brezkum bliiðum. Kaup-
mannahafnarblaðið POLITIK-
EN sagðist hafa fengið fréttir
nm það á miðvikudagskvöld,
að margir brezku togaranna
liafi fengið fyrirmæli um að
sigla (51 Hvítahafs, þar sem
mi sé mikhi betri veiði en við
ísland. Verði úr sameiginleg-
um aðgerðum brezkra togara
og herskipa við ísland, muni
sennilega aðeins um fimmtíu
togarar frá IIull og Grimsby
taka þátt í þeim.
Herskipin lögð
af stað
Daily Telegrapli segír að
brezku herskipin hafi lagt af
stað til íslands á miðvikudag-
inn og fimmtudaginn. Allir
togaraskipstjór.ar hafi fengið
innsigluð fyrirmæli um hvað
þeir eigi að gera ef íslenzk
varðskip reyna að taka skip
þeirra i landhelgi. Blaðið seg-
ir:
„Þeir geta valið á milli
þriggja herskipa sem munu
fylg'ja flotanum yfir takmörk-
in. Skpstjórunum hefur verið
sagt að vera ekki of langt frá
verndarskipunum ef til vand-
ræða kemur.
Ekki verður látið uppi á
hvaða stöðum samflot togar-
anna á að vera. en sennilegt
er að þeir verði við suðurodda
ísl.ands og undan vestur- og
norðvesturströndinni, þar sem
kola- og ýsuvertíðin er um
það bil að hefjast.
Togaraskipstjórarnix’ liafa
fengið ströng fyrirmæli frá
útgerðarmönnum um að fara
aðeins yfir 12 mílna mörkin í
fylgd með herskipum. Togara-
eigendur óttast að segi ein-
hverjir togarar skilið við lióp-
ana og veiði milli 4 og 12 mílna
takmarkanna upp á sitt ein-
dæmi muni reynt að taka þá
fasta og það geti lei t af sér
alþjóðlegan árekstur.
Talið er að fiskiflotinn muni
veð'a á 4—12 mílna svæðinu í
þrjá daga jafnvel þótt ekkert
aflist. Ætlunin er frekar að
staðfesta rétt til alfaravegar.
Framhald á 11. síðu.
Brezkir embœttismenn hafa verið sendir með sumum brezku togurunum á íslandsmið.
Þannig lýsir teikn. brezka blaðsins The Evening News þaráttu‘ þeirra á íslandsmiðum
Brezkt blað: Timabært að tekið séfyr-
Ir yffrgang fiskeinokunarhrlngsins
ÞgS verðo brezkar húsmœÓur sem greiSa
munu kostnaÓinn af fiskveiÓideilunni
Þjóðviljinn hefur áður vakið athygli á því að þaö er
fjárri því að brezkir útgerðarmenn geti reitt sig á stuðn-
ing allra brezkra blaða og brezks almennings í baráttu
sinni fyrir einkahagsmunum
íslendinga.
The City Press, fjármálabiað
sem gefið er út í London, birti
þannig 22. ágúst forystugrein
þar sem svo er komizt að
orði:
Togaramenn í Grimsby ætla
að virða 12 mílna takmörk ís-
lands að vet iigi. Þeir niunu
fá vernd fallbyssubáta. Við
(ieljum að beiting flotavalds sé
mik'Isverð í réttum tilfellum.
Deilan við Island í þetta
sinn stafar beinlínis frá Ottt-
awasamningunum og tollunum
sem settir voru á íslenzkan
fisk. (Aths. Þjv.: Með Ottawa-
samningunum er átt við samn-
inga þá sem gerðir voru í
Ottawa 1932 um tollabandalag
milli brezku samveldisland-
anna).
Upp úr því varð fiskeinokun-
in í Grimsby til. Sá einokunar-
hringur hefur útilokað íslend-
inga frá brezka markaðinum,
svipt brezku þjóðina nýjum og
sínum og deilu sinni við
ódýrum fiski, valdið illindum
við fslendinga og neytt þá til
að selja Rússlandi fisk sinn og
treysta efnahags- og stjórn-
málaten.gsl við það land.
Togaraeigendur í Grimsby
hafa í rauninni ráðið utanrík-
isstefnu Bretlands. Það er kom-
ínn tími íiil að á það sé bund-
inn endir. Það sem ætti að
gera væri að afnema alla tolla
á íslenzkum fiski og leyfa þjóð
okkar að kaupa frá þeim sem
býður bezt. Við myndum þá
ef til vill komast að raun um
að íslendingar munu ekki gera
sér neina rellu út af 12 mílna
takmörkunum".
Húsmæðurnar
borea
Eitt þeirra brezku blaða sem
túlkað hafa málstað íslendinga
af sanngirni er Daily Worker,
málgagn kommúnista. Frétta-
ritari þess í Hull sagði á föstu-
daginn í fyrri viku að ef ekk-
ert værj gert myndi verzlunar-
stríð við ísland hefjast eftir
tíu daga —• og eins og vana-
lega yrðu það brezkar hús-
mæður sem myndu borga brús-
ann.
í forystugrein í blaðinu 26.
ágúst var komizt svo að orði:
„Það ætti að neyða bæði
brezku stjórnina og liina óðu
menn í liópi brezkra togara-
eigenda til að hæ'da við vi-
firringslegar fyrirætlanir um
hefndaraðgerðir gegn íslcnd-
íngum.
Þeir1 standa þegar einir uppi.
Jafnvel be/.ta Ailanzbanda-
lagsvinii- þeirra segja þenu nú
að þeim geðjist ckki að fram-
ferði þeirra“.
Greininni lýkur á þessum
orðum:
„Það er nógur fiskur í sjón-
um og engin ástæða til að
svipta íslenzku þjóðina lielztu
auðsuppsprettu liennar. Það er
orðið tímabært að vi 1 sé kcm-
ið fyrir ríkisstjórúina í þessu
máli“.