Þjóðviljinn - 19.10.1958, Side 6
B) — JMÓÐVILJINN — 'Sunnudagur 19. oMóber 1958
Þióðviliinn
(JtKeíanoi: 0»Ma*inlimftrflokrar aipyOu - öósíallstaflokkuiinn. Rltstjórai
Magnús KJartansson 6b.), SlgurBur Guðmundsson. — FréttarltstJóri: Jón
BJarnason. — ^laBamenn: Ásmundur SigurJónsson. GuÖmundur Vlgfússon.
ívar H. Jónsson. Magnús Torfi Ólafsson. Slgurjón Jóhannsson. Slgurður V
Friöbjófsson. 1 AuglýsingastJórl: Guðgeir Magnússon. - Ritstjórn, af-
areiðsla, auglýslngar. prentsmiðJa: Skóla*örðustíg 19. — Sími: 17-500 (f
ilnur). — Áskriftarverð kr. 30 6 mán. í Reykjavík og nágrenni: kr. 27 ann
arsstaða — Lausasöluverð kr. 2.00. — Prentsmiðja ÞJóÖviljans
Mál er að linni
AV."
-W.1
■ViV
■V»V
SEÁKÞÁTTUK
Ritstjóri:
Sveinn Knstinsson
Bretar hafa nú hafið nýja
áróðurssókn gegn íslending-
irni í landhelgismálinu, og hafa
meginatriði hennar komið fram
að undanförnu í aðalblöðum.
Englands og í brezka útyarp-
inu. Ekki er boðskapurinn ný-
stárlegur, en þó er full ástæða
til að landsmenn gefi honum
gaum. Það er aðalþráðurinn
að stækkun landhelginnar sé
mál „kommúnista“, hún hafi
verið framkvæmd samkvæmt
fýrirskipunum frá Moskvu
sem Lúðvík Jósepsson hafi
veitt viðtöku þegar hann fór
til Sovétríkjarina í haust! Vitna
Bretar um þetta efni í Morg-
unblaðið af mikilli velþóknun
— hvað er betri „sönnun" fyr-
ir andstæðinga okkar en að
gela veifað stærsta blaði ís-
lands í áróðri sínum? Jafn-
framt segja Bretar að það séu
„kommúnistar" sem hafi komið
í veg fyrir málamiðlun, en leið-
togar Sjálfstæðisflokksins hafi
viljað hana, eins og bezt hafi
komið fram er þeir vildu vísa
málinu til ráðherrafundar Atl-
enzhafsbandalagsins.
Þessi áróður sýnir og sann-
ar að enn gera Bretar sér
vonir um að geta sundrað ís-
iendingum. Þeir telja að hér,
á landi séu til menn og stjórn-
máialeiðtogar sem fúsir eru til
„má!amiðlunar“ — þ.e. að
víkja frá 12 mílna landhelginni
— einnig eftir að órás og of-
beldisverk Breta hafa staðið í
nærri tvo mánuði. Og eflaust
hafa brezkir ráðamenn eitthvað
til síns máls. Að minnsta kosti
er ekki iengra síðan en í gær
að Morgunblaðið skrifar í for-
ustugrein að uppástunga Sjálf-
stæðisfokksins um ráðherra
fund Atlanzhafsbandatagsins
hafi verið tillaga um „raunhæf-
ar ráðstafanir" og bætir við:
„Með ákvörðun sinni þá lék
Guðmundur í. Guðnmndsson
hrapallegar af sér í hendur
konun.únista en. nokkurn hefði
getað órað fyrir“. Slíkum um-
■mælum verður eflaust hampað
ósleitilega í brezkum blöðum
og útvarpi næstu daga.
Eins og margsinnis hefur áð-
ur verið bent á hér í blað-
inu er aðeins til ein skýring á
framferði Breta, sú að þeir
hafi sjálfir trúað þeim áróðri
sinum, að íslendingar væru
klofnir í landhelgismálinu. Með
því að sýna íslendingum í tvo
heimana ætluðu Bretar að leiða
klofninginn fullkomlega í 1 jós,
knýja undanhaldsmennina fram
í dagsbirtuna og semja við þá.
Og Bretar gátu stutt þessi sjón-
armið sín ýmsum í'ökum, ekki
aðeins framkomu Sjálfstæðis-
flokksins og skrifum Morgun-
blaðsjns, he!dur og framkomu
sjáifs utanríkiSráðherrans sem
lét embættismenn sína standa
í samningamakki í París allt
fram til fyrsta september og
lýsti síðan yfir því, að makk-
inu væri aðeins „frestað". En.
í þessum hugrenningum sínum
tóku Bretar ekki tillit til ís-
lenzku þjóðarinnar, þeir átt-
uðu sig ekki á því að fólkið
í landinu var algerlega ein-
huga í afstöðu sinni til land-
helgismálsins, og sá einhugur
birtist á svo eftirminnilegan
hátt eftir 1. september, að und-
anhaldsmenn þorðu hvorki að
æmta né skræmta. Eretar tog-
uðu þannig' ekki samninga-
mennina fram i dagsbirtuna
heldur ráku þá inn í skúma-
skotin með hernaðarárásinni.
En Bretar gera sér áuðsjáan-
lega vonir um það enn að hægt
verði að laða þá fram á nýjan
leik,
A uðvitað er það rétt hjá Bret-
um að það voru „kommún-
istar“ sem knúðu fram stækk-
un landhelginnar. Auðvitað er
það einnig rétt hjá Bretum að
það voru „kommúnistar" sem
komu í veg fyrir að unnt yrði
að semja um nokkurt undan-
hald í málinu. En „kommúnist-
ar“ framkvæmdu ekki stefnu
sína með neinu „samsæri"
heldup með því að bera opin-
skátt fram málstað sem öll
þjóðin studdi. Það var sam-
staða þjóðarinnar um stefnu
„kommúnista“ sem tryggði
stækkun landhelginnar, og á
sama hátt er þjóðin staðráð-
in í því að hvika í engu frá
gerðum sínum, hvort sem boð-
skapur Breta er stríður eða
blíður. Engin áróðursbrögð
Breta geta haggað þeim ásetn-
ingi, engin Rússagríla mun
hrífa.
¥*að er eðlilegt að undanhalds-
* mennirnir við Morgunblað-
ið, Bjami Benediktsson og Ól-
afur Thors, eigi erfitt með að
una sigri ,,kommúnista“ í land-
helgismálinu, en þeir eru þá
enn minni karlar en haldið var
ef þeir láta slíkt ofstæki ráða
gerðum sínum, eins og málum
er nú komið. Og það er ein-
mitt á færi þessara manna að
koma Bretum endanlega í
skilning um það að allar til-
raunir þeirra til að knýja eða
lokka íslendinga til undanhalds
eru vonlausar. Ef ráðamenn
Sjálfstæðjsflokksins lýsa yfir
þvi að ekki verði hvikað frá
12 mílna landhelginni og aldrei
samið við Breta um það mál,
ef utanríkisráðherra lýsir yfir
hinu sama, vita ráðamenn
Breta að íslendingum verður
ekki sundrað, að allar tilraun-
ir þeirra eru vonlausar fyrir-
fram. En. á meðan öll fram-
koma leiðtoga Sjálfstæðis-
flokksins mótast af óheilindum,
munu Bretar halda ofbeldi
sánu áfrain í von um að það
beri árangur. Það er framkoma
íslenzkra stjómmálamanna sem
er forsenda óluefuverkanna
brezku, og mál er að linni.
Frá Olympíuskákmótimi
Svo sem vonlegt var tókst ís-
iendingum ekki að ná efsta
riðli úrslitanna að þessu sinni
á Olympíumótinu.
Fjarvist Friðriks Ólafssonar
var svo tilfinnanleg, að frá
upphafi var vonlaust, að slíkt
mundi heppnast. Má raunar
segja, ejns og allt var í pott-
inn búið, að 4.—5. sæti í und-
anrásunum væru alls ekki ó-
viðunandi útkoma. Ingi R. Jó-
hannsson hefur staðið sig með
sérstakri prýði það sem af er;
hlaut 5 Vz vinning af 8 á 1.
borði í undanrásunum, en það
er útkoma sem jafnvel Friðrik
Ólafsson þyrfti ekki að fyrir-
verða sig fyrir. Er ekki annað
sýnna en stórmeistarinn sé að
eignast þarna innlendan keppi-
naut( sem hann verði að taka
alvarlega og er það vel. Því
miður hefur mér enn eigi bor-
izt nein af skákum Inga, en
bæti það upp með þvi að birta
skák eftir Freystein Þorbergs-
son frá viðureigninni við Persa.
Ilvítt: Freysteina Þorbergsson
Svart: Pakdamau. (íran)
Kóngs-indversk vörn.
1. d4 Rf6
2. c4 d6
3. Rf3 g6
4. g3 Bg7
5. Bg2 •—o
6. o—o a6
7. Rc3 Rc6
8. h3 Hb8
Persinn virðist búa sig undir
að fylgja forskrift argentinska
stórmeistarans Pannós með
peðasókn á drottningarvæng.
9. e4 ©5
10. d5 Re7
10. — Ra5 er algengari leikur
og eðlilegri í þessu afbrigði.
11. De2 Bd7
12. a4
Hindrar b5. Með næsta leik
undirbýr svartur því peðasókn
á kóngsvæng.
12. ------------- Re8
13. b4 f5
14. Ba3?!
Undirbýr komandi peðsfórn,
sem er tvíeggjuð, en vel til
þess fallin að rugla óreyndan
andstæðing í ríminu.
14. — — fxe4
15. Rxe4 Bxa4
Svart: Pakdanuui
ins e6 og auk þess er hann í
yfirvofandi tortímingarhættu.
(Hótun Rc3).
16.----- axb5
Möguleikanum 16. — Rxd5
00 |jjj|
ifll ^
(D i PJ * WÁ
in m,
n
n pif
H!
•4 S
ABCDEFQM
Hvítt: Freysteinn;
16. b5!
Nú tekur hugmynd Freysteins
á sig skýrari mynd. Biskupinn
er hindraður frá völdun reits-
Freysteinn Þorbergsson
hugðist Freysteinn ekki sv.ara
með 17. cxd5, þar sem svartur
fengi þá tækifæri til að vinna
hrók og þrjú peð fyrir tvo létta
menn með 17. — Bxb5 o. s.
frv. Svarið sem Freysteinn
hafði á takteinum var 17. Rf-
g5.
17. Rf-g5 Dd7
18. Re6 bxc4
Svartur telur sig hafa efni á
að láta skiptamun, þar sem
hann á í augnablikinu þrjú
peð yfir.
19. Rxf8 Bxf8
20. Hf-bl
Nú er ekki svo þægilegt að
valda peðið á c4 og 20. —
Rxd5 gengur ekki vegna 21.
Dxc4, Bc6 22. Rc3 o. s. frv.
20. --------------- b5
Sýnist veita alltryggilega völd-
un en nú fellur peð á öðrum
stað.
21. Bxd6! cxd6
22. Hxa4 Dc7
22. -— Rxd5 yrði svarað með
23. Hxc4. Sá leikur kemur þó
mjög til greina, þar sem peðið
á d5 er svörtum næsta óþægi-
legt.
23. Ha-b4 Rf5
Og nú var sjálfsagt betra fyr-
ir si/artan að sldpta á d- og b-
peðunum. Eins og skákim teflist
fellur b-peðið fyrir ekkert.
24. Rc3 Rd4
25. Da2 Bh6
26. Rxb5 Hxb5
27. Hxb5 Uxb5
28. Hxb5
Nú á svartur ekki nema eitt
peð eftir upp i skiptamunjnn.
Er það að vísu fripeð, en næsta
hættulaust.
Framhald á 9. síðu.
<sa
SÖLUBÖRN ÓSKAST
til að selja merki Blindravinafélags Islaonds
í dag, sunnudaginn 19. október. Merkin
verða afhent á þessum stöðum frá
kl. lO f.h.
Melaskólanum (fordyri)
Öldugötuskólanum
Ingólfsstræti 16 (syðri dyr)
Austurbæjarskólanum
Laugarnesskólamun (fordyri)
Langholtsskólanum (fordyri)
Haagerðisskólanuin
Sölulaun og verðlhun. — Foreldrar hvetjið
börnin til ,að selja merki,
BLINDRAVINAFÉLAG ISLANDS
MERKJASALA
(Blindravinafélag Islands er í dag.
Styrkið blinda og kaupið merki. Imian
merkjasölunnar er h|appdrætti og eru
vinningar þessir:
1. Sóí’asett
2. Flugferð til Kaupmannahafnar.
3. Islendingasögur
4. Sunbeam-panna
5. Sfandlampi
6. Kaffistell.
7. —10. Borðlampar.
11.—12. Blaðagrindur
13.—15. Bækur.
BLINDRAVINAFÉLAG ISLANDS