Þjóðviljinn - 18.11.1958, Blaðsíða 6
6) — ÞJÓÐVILJINN' — Þriðjudagur 18. nóvember 1958
þlÓÐVIUINN
Útprefandi: SameininBarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. — Ritstjórar:
MaKnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson. — Fréttaritstjóri: Jón
BJarnason. — Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Guðmundur Vigfússon,
ívar K. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson, Sigurjón Jóhannsson, Sigurður V.
Friðbjófsson. — Auglýsingastjóri: Guðgeir Magnússon. — Ritstjórn, af-
greiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Sími: 17-500 (5
línur>. — Askriftarverð kr. 30 á mán. í Reykjavík og nágrenni: kr. 27 ann-
ersstaöar. — Lausasöluverð kr. 2.00. — Prentsmiðja í»jóðviljans.
Óheppileg skrif Tímans
’T’íminn er á sunnudaginn með
miklar og langdregnar
:olla’-eggingar um það sem
bánn kallar „tangarsókn gegn
vppbyggingu atvinnulifsins í
•æjum, sveitum og þorpum í
cxeifbýlinu“. Telur blaðið mik-
: 1 ráðabrugg í gangi er að því
iefní að spara útgjöld til
rramkvæmda út um landið og
:ð breyta um leið kjördæma-
ikipaninni. Og auðvitað er
vramsóknarflokkurinn algerlega
: ndvígur öllum slíkum ráða-
rerðum og stendur trúr á verð-
. íum um hagsmuni dreifbýlis-
: ís og kjördæmaskipanina. Þó
3;emst Tíminn ekki hjá því að
• iðurkenna að „ástæða geti
verið til að endurskoða gild-
f ndi ákvæði stjórnarskrárinn-
' r um kosningar til Alþingis“
cg hafi Framsóknarflokkurinn
, fyrir löngu tjáð sig reiðubúinn
;.l að ræða við samstarfs-
fiokka sína um það mál“, Þess-
í.i’i játningu um nauðsyn end-
.rskoðunar á kosningaskipan-
:.:mi fylgja svo venjulegar og
sa.iður vinsamlegar hugleiðing-
r um það sem gerzt hafi 1942.
Z-n eins og kunnugt er var þá
:íðast gerð nokkur breyting á
ryrirkomulagi kosninga til Al-
ingis og verstu agnúar leið-
i íttir.
jC'kkt spáir það góðu um já-
kvæða afstöðu Framsóknar
.lil nauðsynlegra breytinga á
>:jördæmaskipaninni hver tónn-
:.in er til breytinganna frá
1142. Varla býst þó Framsókn
• ið að samstarfsílokkarnir hafi
;agt áherzlu á að fá endurskoð-
t n kjördæmaskipunarinnar
•kna upp í, stefnuyfiriýsingu
rikisstjórnarinnar í því augna-
; liði að færa kosningafyrir-
■'omulagið aftur í sama form
og það var fyrir breytinguna
: 042? Ekki verður slíkri giám-
; kyggni trúað á forráðamenn
Framsóknarflokksins. Þeim var
■:g ec áreiðanlega ljóst að það
er, aukið jafnrétti sem fyrir
; eim vakir sem telja núver-
; ndi fyrirkomulag gallað og úr-
■ílt en ekki gangan aftur á bak
til enn fráleitara og úreltara
i'vrirkomulags. Og ef Fram-
róknarflokknum er það einhver
'ívara að vilja leysa þetta mál
j samkomulagi við samstarfs-
r okkana í ríkisstjórn ætti hann
;ð sýna þann samstarfsvilja í
' orki en leggja niður nöidrið
:g árásirnar á þær óhjákvæmi-
3;>gu breytingar sem fengust
: 042 þrátt fyrir andstöðu
■ :•» skilningsleysi Framsóknar.
Tímans um eitthvert
.,Reykjavíkursamsæri“ gegn
:rei£býlinu er líka ósköp
-bamaiegt og varla þess vert
■A gera það að umtalsefni á
sama grundvelli og Tíminn
leggur. Og ekki lofar það góðu
um skiining Framsóknar á
vandamálum líðandi stundar
sé það æt'unin að stimpla allar
hugmyndir sem fram kynnu að
koma um sparnað á útgjöld-
um þess opinbera sem fjand-
skaparbragð við fólkið út í
dreifbýlinu. Skyldi það ekki
vera jafnt. í þess þágu sem al-
mennings í þéttbýlinu að gerð-
ar séu ákveðnar og markvissar
tilraunir til að stöðva verð-
bólguþróunina? Er það mein-
ing Tímans að sú uppbygging
atvinnulífsins sem framkvæmd
hefur verið út um landið fyrir
albeina núverandi ríkisstjórn-
ar og með ágætu samkomulagi
stjói’narflokkanna sé ekki í
neinni hættu fyrir þeim eldi
verðbólgunnar sem kynntur var
gegn ráðum Alþýðubandalags-
ins á s.l. vetri? Halda Tíma-
menn að voði verðbólguþróun-
arinnar komi ekki einnig við
þær framkvæmdir og undir-
stöðu þeirrar uppbyggingar sem
fram fer út um landsbyggðina?
Hér er ekki hægt að skilja á
milli og það ber ekki vott um
■mikinn skilning eða samstarfs-
vilja að leggja allar hugmyndir
um sparnað eða tímabundna
frestun vissra framkvæmda út
sem samsæri eða fjandskap við
dreifbýlið. En kannski kemur
. I
þarna fram sá raunverulegi
skilningur sem fyrir hendi er
hjá foi'kólfum Framsóknar á
vandamálum efnahagslífsins og
vilji þeirra til að leysa þau
með þjóðarhagsmuni fyrir aug-
um? Sé svo má segja að þarf-
legt sé að slíkt komi fram.
Samstarfsaðilarriir vita þá bet-
ur hvers vænta má þegar á
hólminn kemur.
Ikað er visulega illt verk og
óþarft að gera tilraunir til
að koma því inn hjá vissum
hluta þjóðarinnar að ætlunin
sé að níðast sérstaklega á hon-
um við lausn efnahagsmálanna
og sérstaklega þegar ekkert
slíkt er raunverulega til stað-
ar. Einkum og sér í iagi er
slíkt óviðurkvæmilegt meðan
engar formlegar viðræður eru
hafnar milli stjórnarflokkanna
um ieiðir út úr vandanum.
Tíminn ætti að tileinka sér
nokkra stillingu og hafa Vit á
að auka ekki á vandann og
mótsetningarnar ef honum er
annt um það samstarf sém vér-
ið hefur um stjórn landsins sl.
tvö ár og metur þá árangra
einhvers sem með því hafa
náðst. Vandamálin eru sjálf-
sagt nægilega erfið viðfangs
þótt ekki sé gerður leikur að
því að skapa tortryggni og úlf-
úð að tilefnislausu eins og skrif
Tímans á sunnudaginn eru ó-
neitanlega tilraun til.
Er ekki kominn timi til að
egera eitthvað?
I fréttum ríkisútvarpsins áð-
an, var skýrt frá því að enn
einu sinni hefði floti Hennar
hátignar Bretadrottningar
hindrað starfmenn landhelgis-
gæzlunnar í að sinna skyldu-
störfum sinum. Brezkir yfir-
gangsseggir hindruðu varðskip-
ið Þór í að koma lögum yfir
brezkan togara, sem var með ó-
löglegan umbúnað veiðarfæra
2% mílu undan landi.
Sennilega kemur innan
skamms önnur frétt um að ut-
anríkisráðherra okkar hafi sent
mólmælaorðsendingu — mein-
lausa og gagnslausa.
En spurningin er: Á að láta
þar við sitja?
Er ekki kominn tími til að
gera eitthvað?
Er ekki kominn tími til að
kæra Breta fyrir valdbeit-
ingu og raunverulega árás á
vopnlausa smáþjóð?
Er ekki kominn tími til að
kalla ambassador íslands heim
frá Bretlandi og vísa ambassa-
dor Breta úr landi? Slíta öllu
stjómmála- og viðskiptasam-
bandi við Bretland.
Er ekkj kominn tími til að
ísland segi skilið við Atlanz-
hafsbandalagið?
Er ekki kominn tími til að
íslefndingar vísi heilnum úr
landi og heim til föðurhús-
anna og þannig verði staðið
við það loforð ríkisstjórnarinn-
ar?
Þetta eru allt spurningar,
sem allur almenningur ber fram
af brennandi áhuga, en fram
að þessu hafa þær, því miður
verið bornar upp fyrir dauf-
um eyrum. Eg held að allfiest
félagasamtök og starfshópar
séu nú búin að senda áskoran-
ir til ríkisstjómariinnar um
mótaðgerðir þær, sem spurn-
ingarnar fjalla um. Ráðherr-
arnir okkar virðast ekki enn
vera farnir að skilja að þeir
eru þjónar þjóðarinnar en ekki
herrar hennar, og eiga fyrst
og fremst að framkvæma vilja
hennar. Minnsta kosti á þjóð-
in heimtingu á að henni sé
skýrt undanbragðalaust frá því
hversvegna þessar ákveðnu
kröfur hennar eru hunzaðar.
Almenningur fær ekki skilið
hvernig ísland getur verið í
Atlanzhafsbandalaginu með
Bretum — valdagráðugustu ár-
ásarseggjum heimsins
Hann fær heldur ekki skilið
hvernig ísland getur verið í
vináttutengslum við þjóð, sem
sendir herskipaflota tii þess að
vernda sjóræningja og aðstoða
þá við að stela fiski íslend-
inga, sem jafngildir því að stol-
ið væri brauðinu frá munni
þeirra.
Almenningur fær heldur ekki
skilið hversvegna við eigum
að lána land okkar undir her-
stöðvar handa Bandaríkjunum,
sem ekki telja að það komi
þeim neitt við þó BREZK her-
skip komi inn í hafnir í leyfis-
leysi, þrátt fyrir margendur-
teknar fullyrðingar um að þeir
séu hér til að vernda okkur
fyrir árásum. Það er mál til
komið að gefa þeim lausn í ó-
náð.
Eg læt svo þessu lokið í von
um að skýr svör fáist fljótt
og vel, í orði ef ekki í verki.
Sigipfirði 12. nóv. ’58.
Öm Ægir.
VERÐLAUNA
KEPPNI
tANGAB YSUR AÐ EIGNAST?
1, Raímagnseídavél (Philco) írá 0. J. Kaaher h. f.
2 Stiauvél (Baby) frá Heklu h. f.
3, fírærivé! (Kenwood) frá Heklu h. f.
Innan skamms munum vér bjóða öllum landsmönnum þátttöku
verðlaunasamkeppni.
Vér munum aðeins ieggja fyrir yður 6—10 mjög auðveldar
spumingar sem þér eigið að svara — og senda öll svörin til
vor að lokinni keppni. Nauðsynlegt er að skrifa greinilegt nafn
og heimilifang á spurnarseðilinn.
Verði mörg svör rétt, verður dregið um verðlaunin, og nöfn
þeirra sem þau liljóta birt að lokinni keppni.
VERÐLAUNIN ERU:
1. PHILCO-rafmagnseldavél
2. BABY-strauvél
3. KENWOOD-hrærivél
Vér munum birta spnrningar í öllum dagblöðum bæjarins
næstu fjóra sunnudaga (nema í Vlsi á mánudögum) og er
sama úr hvaða blaði þér klippið spurnarseðilinn. — Verð-
laún verða afhent 3. janúar, 1959,
Svör verða að berast fyrir kl. 12 á bádegi 2. janúar n.k.
Fyrsta spurningin verður birt 23. nóvember, og væntum vér
þess að allir verði með.
TRYGGINGARMIBSTÖÐIN H.F.
Aðaistræti 6 — Pósthólf 1412.
"'.’i'Jí’
:
£ jA-
Z-
y\ yy
t yjtíx